Morgunblaðið - 26.10.2012, Side 8

Morgunblaðið - 26.10.2012, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2012 FÆST Á REDKEN HÁRGREIÐSLUSTOFUM GET INSPIRED. SEE YOUR STYLIST.Dreifing: HÁR EHF s. 568 8305 | har@har.is | REDKEN Iceland á FYRIR LIÐAÐ HÁR FYRIR HÁRLOSFYRIR ALDRAÐ HÁRFYRIR ÚFIÐ HÁR FYRIR SKEMMT HÁR FYRIR HÁR Í SÓL OG SJÓ FYRIR LJÓST HÁR FYRIR ÓLITAÐ HÁR FYRIR LITAÐ HÁR FYRIR ÞURRT HÁR FYRIR ÓRÓLEGT HÁRFYRIR FÍNGERT HÁR REDKEN býður upp á fullkomna línu fyrir hárgerð þína í sjampói, næringu og djúpnæringu SÉRSTAKAR ÞARFIR. EINFALDAR LAUSNIR HVERS ÞARFNAST ÞITT HÁR? Hið annálaða orðvara prúð-menni, Björn Valur Gíslason, segir í viðtali við Herðubreið að „dauður maður getur séð að það eru og hafa verið einhvers konar valdaátök milli þeirra tveggja (Steingríms J. og Ögmundar) allt frá stofnun flokksins“.    Og hann ræðir einnig flóttaþriggja þingmanna úr VG og skýrir hann svo að komið hafi í ljós „sumarið 2009 að mörgum hraus hug- ur við því sem fram- undan var og virtust ekki hafa bein til að standast álagið. Enda fór það lið á endanum ýmist í aðra flokka eða í óábyrga pólitíska eyðumerk- urgöngu sem þau ráfa enn í“.    Björn Valur segir að eftir aðSteingrími hlotnaðist sæti í ríkisstjórn hafi hann orðið „óum- deildur leiðtogi flokksins og al- mennt viðurkennt að það var hann frekar en aðrir sem leiddi rík- isstjórnina í gegnum erfið verkefni og gerir enn … Allir ráðherrar rík- isstjórnarinnar féllu í skuggann af Steingrími strax í upphafi kjör- tímabilsins og gera enn“.    Og um Samfylkinguna er hafteftir Birni að sá flokkur hafi verið óstjórntækur í samstarfinu við Sjálfstæðisflokkinn og engu skilað til þjóðarinnar, öðru en leið- indum. „Við björguðum Samfylkingunni. Það er svo einfalt. Flokkurinn var á hraðri leið til helvítis undir öruggri stjórn Ingibjargar Sólrúnar í sam- starfinu við Sjálfstæðisflokkinn.“    Ingibjörg Sólrún sem sagt farar- stjóri til fjandans og Jóhanna núll og nix hjá Steingrími. Er ekki erfitt fyrir dauða manninn, sem allt sér, að horfa upp á þessi ósköp? Björn Valur Gíslason Dauður maður horfir agndofa á STAKSTEINAR Veður víða um heim 25.10., kl. 18.00 Reykjavík 2 súld Bolungarvík -2 heiðskírt Akureyri -6 heiðskírt Kirkjubæjarkl. 0 slydda Vestmannaeyjar 3 súld Nuuk 7 skúrir Þórshöfn 1 skýjað Ósló 1 heiðskírt Kaupmannahöfn 7 léttskýjað Stokkhólmur 2 léttskýjað Helsinki -1 skýjað Lúxemborg 13 heiðskírt Brussel 11 skýjað Dublin 11 skýjað Glasgow 8 skýjað London 12 skýjað París 12 léttskýjað Amsterdam 11 skýjað Hamborg 8 skýjað Berlín 8 skýjað Vín 11 skýjað Moskva 3 alskýjað Algarve 18 léttskýjað Madríd 17 skýjað Barcelona 20 léttskýjað Mallorca 22 léttskýjað Róm 22 léttskýjað Aþena 17 léttskýjað Winnipeg 2 skýjað Montreal 7 alskýjað New York 15 alskýjað Chicago 22 léttskýjað Orlando 26 skýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 26. október Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 8:54 17:30 ÍSAFJÖRÐUR 9:09 17:25 SIGLUFJÖRÐUR 8:53 17:07 DJÚPIVOGUR 8:26 16:57 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Það fer venjulega mjög stór hópur fyrstu helgina. Ekki skiptir alltaf máli hvernig gengur, menn vilja bara fara fyrstu helgina með sömu fé- lögunum og oft á sömu svæðin, og fara kannski svo ekki meir,“ segir Elvar Árni Lund, formaður Skotvís. Rjúpaveiðin hefst í dag. Þessa fyrstu helgi má veiða í þrjá daga, föstudag til sunnudags. Þá er leyft að halda til veiða þrjár helgar í nóvember en aðeins laugardag og sunnudag, þannig að veiði- dagarnir verða alls níu, eins og á síðasta ári. Tak- mörkunin er vegna bágrar stöðu rjúpnastofnsins. Á síðasta ári veiddust 39 þúsund rjúpur. Nátt- úrufræðistofnun leggur til að hámarksveiði í ár verði 34 þúsund fuglar sem svarar til um sex rjúpna á hvern veiðimann, miðað við þann fjölda manna sem stundað hefur rjúpnaveiðar á und- anförnum árum. Umhverfisstofnun hvetur rjúpnaveiðimenn til að stunda hófsamar og ábyrg- ar veiðar og ganga vel um náttúruna. Elvar Árni segir að búast megi við að fimm til átta þúsund veiðimenn gangi til rjúpna um helgina. Hann segir að sóknin og veiðin fari alltaf eftir veðri. Útlit er fyrir ágætt veður í dag og á sunnudag en að úrkoma verði á norðanverðu land- inu á morgun. Snjóað hefur á Norðurlandi þannig að menn gætu þurft að ganga töluvert til að ná í skammtinn sinn, sem áætlaður er sex rjúpur. „Það er misjafnt hvað menn hafa verið að sjá. Margir hafa séð rjúpu en hvergi neinar breiður svo ég hafi heyrt af. Ég reikna með að svipað sé af rjúpu og í fyrra,“ segir Elvar Árni. Sölubann áfram í gildi Flestar rjúpur eru veiddar á Austur- og Norð- urlandi. Á síðasta vetri voru 9.700 rjúpur veiddar á Austurlandi og 8.600 á Norðurlandi eystra og litlu minna á Norðurlandi vestra. Minna í öðrum landshlutum. Sölubann er á rjúpnaafurðum, eins og verið hef- ur, og áfram er friðað fyrir veiði á ákveðnu svæði á Suðvesturlandi. Kort af bannsvæðinu er á vef Umhverfisstofnunar. Náttúrufræðistofnun Íslands hvetur rjúpna- skyttur til að klippa annan vænginn af rjúpunum sem veiddar eru og senda stofnuninni til aldurs- greiningar. Þúsundir til rjúpna um helgina  Fyrsti rjúpnaveiðidagur vetrarins í dag  Sóknin takmörkuð vegna bágrar stöðu rjúpnastofnsins  Mælt með að veiðimenn taki ekki nema sex fugla Morgunblaðið/Sverrir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.