Morgunblaðið - 26.10.2012, Síða 11

Morgunblaðið - 26.10.2012, Síða 11
FÓTBOLTI OG SKÍÐI Íþróttaferill Gunnars Gunnar Helgason æfði og spil- aði fótbolta í yngri flokkum með Fram og Þrótti. „Ég æfði með Fram til sirka tíu ára aldurs og fór þá yfir í Þrótt,“ segir Gunnar sem telur sig fyrst og fremst Þróttara í dag. „Ég hætti í boltanum á öðru ári í öðrum flokki og fór þá að æfa skíði með ÍR en fór svo aftur í boltann og náði einum leik með meistara- flokki.“ Elur upp FH-inga Báðir strákar Gunnars æfa og spila fótbolta með FH. Hér leiðbeinir hann þeim rétt fyrir leik. manna annarra liða.“ Sjálfur er Gunnar Þróttari og aðalsögu- hetjurnar eru allir Þróttarar. „Það er svo lítil ógn í Þrótti og það hatar eng- inn Þrótt eins og oft er með stóru og sigursælu liðin,“ segir Gunnar í létt- um tón. Um önnur lið segist hann gera landsbyggðinni hátt undir höfði enda fjöldi góðra liða utan höfuðborg- arsvæðisins. Pabbarugl og vinskapur Í yngri flokkum fylgja fótboltanum oft hróp og köll frá foreldrum sem styðja börnin sína af ástríðu á hliðarlínunni. Gunnar segist sjálfur þekkja þetta sem fótbolta- foreldri. „Mér hefur farið fram á hliðarlínunni en ég heyrði það utan að mér að það væru mikil læti í mér. Þess vegna setti ég inn í aukaefni bókarinnar mjög góða grein eftir Stefán Ólafsson sjúkraþjálfara um það hvernig foreldrar eiga að haga sér í kringum börnin sín á vell- inum og ég reyni að vera eins og hann segir að eigi að vera.“ Hvatning getur að mati Stefáns verið bæði uppbyggileg og góð en einnig truflandi fyrir börnin sem þurfa að læra að taka ákvarðanir sjálf inni á vellinum og læra að meta stöðuna sem þau eru í án truflunar frá foreldrum sínum. Þá er mikilvægt að kalla ekki neikvæð orð inn á völl- inn til barnanna. Liðarígur er hluti af öllum hóp- íþróttum en hann má ekki ala á hatri og dónaskap í garð annarra. „Mér hefur alltaf leiðst það þegar verið er að púa á önnur lið eða leikmenn. Á fyrsta mótinu sem ég fór á með strákunum mínum uppi á Akranesi var ég að labba með liðið í mat. Þá mætum við hópi ÍR-inga og allt í einu fer hópurinn að kalla „pú á ÍR“ og þeir svara í sömu mynt með púi á FH. Þetta stöðvaði ég strax enda leiðist mér svona hegðun alveg svakalega.“ DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2012 Það er ekki kúl að vera ein-lægur. Þessu trúði églengi vel og þessu trúaflestir á mínum aldri. Ég vil jafnvel ganga svo langt að segja að flestir af minni kynslóð taki heilshugar undir þessa kjánalegu fullyrðingu og lifi í takt við hana. Okkur er kaldhæðnin í blóð borin – við beitum henni reiprennandi og beitum henni af fullkominni kunn- áttu og öryggi. Með hæðnina að vopni brjótum við niður það sem okkur mislíkar, gagnrýnum og grín- umst. Enda er hún ágætis verkfæri sem slík, en þegar hæðnin er orðin að reglu og einlægni að undantekn- ingu, held ég að tími sé kominn til að staldra við og velta vöngum yfir stöðu mála. Þannig hef ég farið í gegnum heilu og hálfu dagana á kaldhæðn- inni einni saman, um kvöldmat- arleytið hef ég uppgötvað að ég hef ekki mælt eitt einlægt orð af vörum allan liðlangan daginn því ég hef verið of upptekin við að spinna flókinn vef merkingarþrunginnar hæðni í öllum mínum samtölum. Þegar ég tjái mig gera við- staddir sjálfkrafa ráð fyrir að ég sé að grínast, og vinir mínir þurfa að rýna í gegnum þykka kald- hæðniþoku til að reyna að átta sig á raunveru- legri merkingu þess sem ég segi. Þetta er ekki gott. Þetta þarf að laga. Því kaldhæðni er auðvitað ekkert annað en varn- arviðbrögð – við dyljum meiningar okkar með kald- hæðni og sveipum tilfinningarnar kald- hæðni til að forðast að gefa færi á okkur. Við felum veiku blettina með hæðni því við erum skít- hrædd við afleiðing- arnar sem gætu hlotist af því að vera einlæg í stundarkorn. Í staðinn fyrir að afhjúpa raunverulega líðan okkar, langanir og þrár gröfum við þær frekar niðri á hafsbotni undir sjö þúsund lítrum af rammsöltum kaldhæðnisjó. Hann virkar líka sem hin fínasta kæling fyrir brennandi heita kvikuna; einlægnina sem við keppumst við að fela fyrir umheim- inum. Það einfaldar samskipti okk- ar við aðra (og okkur sjálf) að splæsa stundum í einlægni, þótt það geti verið fjári ógnvænlegt. Það þarf hugrekki til að vera einlægur. Sjálfsöruggasta fólk- ið er gjarnan það sem þorir að vera einlægt. Ég ber virðingu fyrir því og ætla að vinna markvisst að því að vera á meðal þess. Meiri einlægni, minni kald- hæðni. »Við gröfum þær frekar niðri á hafsbotni undir sjö þúsund lítrum af ramm- söltum kaldhæðnissjó. Heimur Guðrúnar Sóleyjar Guðrún Sóley

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.