Morgunblaðið - 26.10.2012, Page 16

Morgunblaðið - 26.10.2012, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2012 Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Umfjöllun Morgunblaðsins í gær um nauðasamninga þrotabúa föllnu bankanna, þar sem fram kom að hagsmunum Íslands gæti verið stefnt í voða ef erlendum kröfu- höfum verður gert kleift að fá út- greiðslur í erlendum gjaldeyri, hef- ur vakið athygli. Fram kom að Alþingi hefði gert stórkostleg mis- tök með samþykkt ákvæðis í mars sl. sem veitti slitastjórnunum und- anþágu frá banni við fjármagns- flutningum í erlendum gjaldeyri. Guðlaugur Þór Þórðarson, þing- maður Sjálfstæðisflokksins, sem sæti á í efnahags- og viðskipta- nefnd, hefur að undanförnu vakið athygli á þessu máli, m.a. í grein í Morgunblaðinu 16. október. Hann hefur nú óskað eftir sérstakri um- ræðu á Alþingi um málið. Guðlaugur Þór bendir á að ótrú- lega lítið hafi farið fyrir umræðu um nauðasamninga við kröfuhafa gömlu bankanna. „Það kemur ekki til greina að ganga frá nauðasamn- ingunum við þessar aðstæður að mínu áliti,“ segir hann í samtali. Hann hefur fært rök fyrir því að sú leið sem hefur minnsta áhættu í för með sér fyrir almenning sé að setja gömlu bankana í þrot og greiða eignirnar út í íslenskum krónum. „Þá sitja allir kröfuhafar við sama borð og komið er í veg fyr- ir að almenningur borgi fyrir gjald- þrot einkabanka.“ Hann sagði í gær að undanþágan sem veitt var á Alþingi í mars hefði verið algerlega á ábyrgð stjórn- armeirihlutans, hún afgreidd á miklum hraða og ekki farið hátt. Minnihlutinn hafi ekki tekið þátt í því. Hann segir mikla hættu felast í því að einn maður, seðlabankastjóri, ráði því hvort nauðasamningarnir verða samþykktir því mikið sé í húfi. „Það er mikið áhyggjuefni að einum manni séu falin svona gríð- arlega mikil völd í þjóðfélaginu því hér erum við að tala um risavaxið mál,“ segir hann. ,,Áhættan er gríð- arleg.“ Gætt sé ýtrustu varúðar „Það er mjög mikilvægt að gætt sé ýtrustu varúðar út frá þjóðhags- legum sjónarmiðum í samningum um þessi gríðarlega stóru bú föllnu bankanna,“ segir Helgi Hjörvar, formaður efnahags- og viðskipta- nefndar. „Það var óheppilegt að þegar höftin voru sett á sínum tíma, í tíð ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar, voru skila- nefndirnar undanskildar. Það sem Alþingi var að gera núna í mars var að taka búin inn undir höftin. Sjálf- stæðisflokkur og Framsókn- arflokkur lögðust gegn málinu hér á þinginu og það gerðu líka ýmsir um- sagnaraðilar,“ segir Helgi. Hann segir að það hafi verið mat manna að erlendar innistæður í Seðlabankanum væru útgreið- anlegar án þess að það hefði áhrif á gjaldeyrisjöfnuð bankans og þess vegna væri rétt að setja þær ekki undir gjaldeyrishöftin en fela Seðla- bankanum í framhaldinu að setja reglur um hvernig farið yrði með aðrar erlendar eignir í þrotabúun- um. „Seðlabankinn hefur síðan ver- ið að vinna að þessari reglusetningu og mun auðvitað gera það með hagsmuni Íslands að leiðarljósi. Ef það reynist einhverjum vand- kvæðum bundið fyrir bankann að setja slíkar reglur eða hann telur að það ógni með einhverjum hætti þjóðhagslegri stöðu okkar, þá kem- ur bankinn aftur til þingsins með málið,“ segir Helgi. Spurður nánar um umdeilda lagabreytingu þingsins í mars segir Helgi breytingarnar hafa miðað að því að taka þrotabúin inn undir höftin. En á þeim tíma hafi verið talið að erlendar innistæður í Seðla- bankanum fyrir gildistöku laganna „væru einfaldlega með þeim hætti eign manna að það væri óvarlegt að leggja hald á þær“. Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokks, sagðist í gær hafa óskað eftir fundi í efnahags- og viðskiptanefnd með fulltrúum fjár- mála- og efnahagsráðuneytisins til að fara yfir það sem fram kom í um- fjöllun Morgunblaðsins. Hann verð- ur haldinn 31. október. „Ef einhver mistök hafa verið gerð af hendi Al- þingis í lagasetningu ber að leið- rétta það sem allra fyrst.“ Snjóhengjan við að bresta „Tímabær umfjöllun í Morg- unblaðinu í dag um snjóhengjuna sem er við að bresta,“ skrifar Lilja Mósesdóttir, sem á sæti í efnahags- og viðskiptanefnd, á Facebook-síðu sína í gær. Hún segist í samtali hafa reynt að vekja athygli á þessu vandamáli frá því í mars. Und- irlægjuháttur hafi einkennt viðhorf og aðgerðir stjórnarmeirihlutans gagnvart erlendum kröfuhöfum, sem flestir eru vogunarsjóðir. Vog- unarsjóðirnir vilji að þrotabúin gefi út skuldabréf í erlendum myntum upp í skuldir gömlu bankanna sem muni ógna efnahagslegu sjálfstæði þjóðarinnar. Aðeins er hægt að mati hennar að tryggja efnahags- legt sjálfstæði þjóðarinnar með verulegum afskriftum á verðmæt- um í snjóhengjunni svonefndu í gegnum skiptigengisleið eða upp- töku nýkrónu á mismunandi gengi. Lilja segir að það hafi verið mis- tök að veita slitastjórnum þrotabúa föllnu bankanna undanþágu frá banninu við fjármagnsflutningum milli landa í erlendum gjaldeyri. Þetta hafi verið keyrt í gegn á þinginu síðdegis mánudaginn 12. mars. Hún hafi þá verið upptekin á fundi utan þingsins og hún eins og fleiri fulltrúar stjórnarandstöð- unnar ekki haft ráðrúm og völd til að koma í veg fyrir að stjórn- armeirihlutinn samþykkti að er- lendar inneignir slitastjórna í Seðla- bankanum skyldu undanþegnar gjaldeyrishaftalögunum. „Það voru mikil mistök að leyfa slitastjórnunum að taka út þetta fjármagn. Seðlabankinn er núna í mun veikari stöðu en annars til að tryggja að gerðir verði nauðasamn- ingar við kröfuhafa í samræmi við hagsmuni almennings og greiðslu- getu þjóðarbúsins,“ segir hún. Smám saman er að renna upp fyrir fólki að nær óhugsandi er þeg- ar nauðasamningum lýkur að gefið verði út skuldabréf í erlendri mynt í uppgjöri við erlendu kröfuhafana. „Það eru flestir búnir að átta sig á því að sú leið mun gera skuldir þjóð- arbúsins í erlendum myntum ósjálf- bærar,“ segir Lilja. Hún er ekki þeirrar skoðunar að það sé skynsamleg lausn að kröfu- hafar fái allt greitt út í krónum því það myndi kynda undir verðbólgu og óstöðugleika ef of margar krón- ur flæða á skömmum tíma út í hag- kerfið í leit að skammtímahagnaði. Því þurfi að skrifa niður verðmæti eigna þrotabúanna, Vogunarsjóð- irnir keyptu kröfurnar á hrakvirði og því óðs manns æði að greiða þær upp að fullu, að mati hennar. Að sögn Lilju kom fram við um- fjöllun í efnahags- og viðskipta- nefnd að kröfuhafar Kaupþings og Glitnis væru margir og ætti hver þeirra innan við 10% af heild- arverðmæti eignanna í þrotabúun- um. „Hver og einn vogunarsjóður hefur því enga hagsmuni af því að vel gangi á Íslandi og mun gera allt til að komast sem fyrst út.“ Þá stafi bankakerfinu einnig hætta af því að það séu fyrst og fremst vogunar- sjóðir sem eru búnir að kaupa þess- ar kröfur og eiga þannig í raun Ar- ion banka og Íslandsbanka. Skv. lögum um fjármálafyrirtæki séu vogunarsjóðir ekki hæfir eigendur banka. Morgunblaðið/Golli Þingumræður Guðlaugur Þór Þórðarson hefur óskað eftir sérstakri um- ræðu á Alþingi vegna nauðasamninga þrotabúa gömlu bankanna. „Áhættan er gríðarleg“  „Kemur ekki til greina að ganga frá nauðasamningunum við þessar aðstæður“  „Ef einhver mistök hafa verið gerð […]ber að leiðrétta það sem allra fyrst“ Guðlaugur Þór Þórðarson Helgi Hjörvar Eygló Þóra Harðardóttir Lilja Mósesdóttir STUTT Anna Margrét Guðjónsdóttir, ráðgjafi og sjálf- stæður atvinnu- rekandi, gefur kost á sér í 4.-5. sæti í flokksvali Samfylking- arinnar í Reykjavík. „Það þarf að skapa störf og vinna bug á atvinnuleysi. Þetta er eitt brýnasta verkefni okkar Íslend- inga. Þess vegna gef ég kost á mér,“ segir m.a. í tilkynningu frá Önnu Margréti. Anna Margrét er 1. varaþing- maður Samfylkingarinnar í Suður- kjördæmi og hefur nokkrum sinn- um tekið sæti á Alþingi. Hún er gift Þorgeiri Ólafssyni og eiga þau sam- tals fimm börn. Stefnir á 4.-5. sæti Stjórnmálaflokkarnir munu á næst- unni velja frambjóðendur á lista fyrir komandi alþingiskosningar. Morgunblaðið mun birta fréttir af þeim sem gefa kost á sér. Prófkjör árið 2012 Þorgerður María Halldórsdóttir há- skólanemi gefur kost á sér í próf- kjöri Sjálfstæð- isflokksins í Suð- vesturkjördæmi fyrir alþingis- kosningarnar næsta vor og sækist eftir stuðningi í 6. sæti. „Ég tel að á Íslandi eigi að vera öflugt heilbrigðiskerfi á heims- mælikvarða. Því miður hefur nið- urskurður undanfarinna ára gert það að verkum að kerfið er ekki eins og best verður á kosið. Úr sér genginn tækjakostur og atgervisflótti í stéttum heilbrigð- isstarfsmanna er afleiðing rangrar forgangsröðunar ríkisstjórn- arinnar,“ segir m.a. í tilkynningu frá Þorgerði. Sækist eftir 6. sæti Hrafnhildur Ragnarsdóttir stjórnmálafræð- ingur býður sig fram í 5. sæti á lista Samfylking- arinnar í Reykja- vík. „Ég tel að við verðum að skapa hér raunveruleg verðmæti og sam- félag sem byggist á jöfnuði og jafnrétti. Jafnrétti er bæði réttlæt- ismál og stuðlar að því að hugvit og mannauður þjóðarinnar nýtist sem best,“ segir m.a. í tilkynningu frá Hrafnhildi. Hún er formaður Kvennahreyf- ingar Samfylkingarinnar og á sæti í framkvæmdastjórn flokksins og stjórn fulltrúaráðsins í Reykjavík. Hún starfar nú sem sérfræðingur á Þjóðskjalasafni. Stefnir á 5. sæti Finndu okkur á facebook.com/lindexiceland Embellished glamour. Toppur, 3995,–

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.