Morgunblaðið - 26.10.2012, Síða 18

Morgunblaðið - 26.10.2012, Síða 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2012 STUTTAR FRÉTTIR ● Hagnaður Haga á tímabilinu mars til ágúst nam 1.554 milljónum króna. Svarar það til 4,4% af veltu fyrirtæk- isins, sem meðal annars á og rekur Bónus og Hagkaup. Vörusala nam 35.569 milljónum króna, samanborið við 33.711 milljónir króna fyrir sama tímabil árið áður. Sölu- aukning félagsins er því 5,5% milli ára, segir í tilkynningu. Afkoma fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta nam 2.632 milljónum króna, samanborið við 2.188 milljónir króna árið áður. Hagnaður Haga 1,5 ma ● Marel skilaði 8,4 milljóna evra hagn- aði eftir skatta á þriðja ársfjórðungi, en það er lækkun frá 10,5 milljóna hagnaði á sama tíma í fyrra. EBITDA var 20,5 milljónir evra, sem er 12,5% af tekjum. Tekjur félagsins lækkuðu um 2,8%, en þær voru 154,3 milljónir evra á ársfjórð- ungnum. Staða pantana Marels nam 151 milljón evra í lok fjórðungsins sam- anborið við 196,8 í lok annars ársfjórð- ungs 2012, segir í fréttatilkynningu. Hagnaður Marels var 8,4 milljónir evra Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,28% í október frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði um 0,47% frá september, samkvæmt því sem fram kom á vef Hagstofu Íslands í gær. Hækkað um 0,9% á þremur mánuðum Verð á dagvörum hækkaði um 0,6% (vísitöluáhrif 0,11%) en kostn- aður vegna eigin húsnæðis minnk- aði um 0,4% (-0,11%). Þar af voru -0,105% áhrif af lækkun markaðs- verðs og -0,05 af lækkun raunvaxta. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,2% og vísitalan án húsnæðis um 4,7%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,9% sem jafngildir 3,6% verðbólgu á ári (5,6% verðbólgu á ári fyrir vísitöluna án húsnæðis). Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í október 2012, sem er 400,7 stig, gildir til verðtryggingar í desember 2012. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 7.912 stig fyrir desember 2012. Innlendar vörur og grænmeti hafa hækkað um 5,1% undanfarna tólf mánuði en búvörur og græn- meti um 5,9%. Á sama tímabili hafa innlendar vörur án búvöru hækkað um 4,3% og innfluttar vörur hafa alls hækkað um 3,7%. Dagvara al- mennt hefur hækkað um 4,7% á síðustu tólf mánuðum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Verðbólga Búvörur og grænmeti hafa hækkað um 5,9% undanfarna tólf mánuði, innfluttar vörur um 3,7% og dagvara almennt um 4,7%. Verðbólgan mælist nú 4,2%  Dagvara hækkaði um 0,6% BAKSVIÐ Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Ljóst er að þær hagræðingarað- gerðir sem sjávarútvegsfyrirtækin fóru í síðustu ár eru farnar að skila sér í bættum rekstri. Rekstur ís- lenskra sjávarútvegsfyrirtækja hef- ur að jafnaði gengið vel síðustu ár þrátt fyrir skuldsetningu greinar- innar. Þetta kemur fram í skýrslu Ís- landsbanka um sjávarútveg sem kom út í gær. Þar segir að rekstr- arhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) hafi verið með mesta móti síðustu þrjú ár. „Þessi árangur hefur náðst þrátt fyrir kvótasam- drátt, hátt olíuverð og auknar álög- ur á greinina,“ segir í skýrslunni. Frá árinu 2008 hafa skuldir fyr- irtækjanna lækkað jafnt og þétt og eru útlán fjármálastofnana til ís- lenskra sjávarútvegsfyrirtækja svipuð árið 2012 og þau voru árið 2007 en þá voru skuldir sjávarút- vegsfyrirtækja um 325 milljarðar króna. Hlutfall skulda á móti EBITDA hefur hækkað síðasta ára- tuginn í sjávarútvegi. Árið 2001 var hlutfallið 3,6 en náði hámarki árið 2007 í tíu. Frá árinu 2007 hefur hlut- fallið lækkað og var 6,1 árið 2010. Aukinn hagnaður sjávarútvegsfyrir- tækja fyrir afskriftir og fjármagns- liði (EBITDA) skýrir að miklu leyti lækkunina á skuldahlutfallinu, segir í skýrslunni. Síðustu tvo áratugi, eftir að afla- heimildir urðu framseljanlegar, hef- ur verið sterk tilhneiging til að sam- eina einstakar útgerðir í íslenskum sjávarútvegi. Drifkraftur þessa var aukin hagræðing í rekstri. Þessi samþjöppun hafði í för með sér aukna skuldsetningu innan greinar- innar en á sama tíma stuðlaði hún að meiri hagkvæmni í rekstri og auk- inni arðsemi félaganna. Þá eru stærri félög, sem hafa aflaheimildir í fleiri tegundum fiskistofna, betur í stakk búin að takast á við rekstr- arsveiflur. „Frá innleiðingu kvótakerfisins, um miðjan níunda áratuginn, hefur arðsemi í sjávarútvegi aukist, en fyrir þann tíma var atvinnugreinin að jafnaði rekin með tapi. Sam- keppni jókst innan greinarinnar samhliða því að aðgangur að fisk- veiðiauðlindinni var takmarkaður en í kjölfarið hefur hagkvæmni í rekstri og samþjöppun sjávarútvegsfyrir- tækja stóraukist,“ segir í skýrsl- unni. Undirstaðan í áratugi Sjávarútvegurinn hefur verið ein af undirstöðum íslensks hagkerfis í marga áratugi. Greinin var með um 11% beint framlag til landsfram- leiðslu árið 2011 og 25% ef tekið er tillit til framleiðslu sjávarklasans. Ef tekið er tillit til afleiddra starfa í sjávarútvegi þá skapar greinin um 15-20% starfa á Íslandi. Framlag sjávarútvegs til landsframleiðslu hefur aukist síðustu ár en það má teljast líklegt að greinin hafi fallið í skugga annarra atvinnugreina, t.d. fjármálamarkaðarins, á tíunda ára- tug síðustu aldar. Þróun síðustu tveggja ára gæti verið merki um breytta tíma og umskipti á stöðu sjávarútvegs innan íslensks sam- félags vegna breyttra aðstæðna í kjölfar hrunsins árið 2008, segir í skýrslunni. Stærstu 50 sjávarútvegsfyrirtæk- in eru með um 85% af úthlutuðum meðaltalskvóta. Árið 2012 voru eft- irfarandi fimm félög stærst, reiknað út frá úthlutuðum kvóta: HB Grandi, Samherji, Þorbjörn, FISK- Seafood og Brim, segir í skýrslunni. Hagræðing skilaði árangri  Sjávarútvegur var með um 11% beint framlag til landsframleiðslu árið 2011  Rekstur fyrirtækjanna gengur vel þrátt fyrir skuldsetningu greinarinnar Stór fyrirtæki Stærstu 50 sjávarútvegsfyrirtækin eru með um 85% af út- hlutuðum meðaltalskvóta. Stærstu útgerðirnar eru HB Grandi og Samherji. Morgunblaðið/Árni Sæberg                                          !"# $% " &'( )* '$* +,-./0 ,1/.2+ +,3./4 ,,.114 ,,.105 +2.412 +/5.35 +.53-/ +40.0- +-0., +,-.-0 ,10./+ +,3.3- ,,.13/ ,,.++ +2.4-/ +/-.+/ +.5214 +45.10 +-0.-- ,,-.-530 +,-.40 ,10.2+ +,2.+/ ,,.+/3 ,,.+35 +4.1+2 +/-.5+ +.5255 +45.-, +-5.+, Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á LAUGAVEGI 24 - 101 REYKJAVÍK SÍMI: 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - 600 AKUREYRI SÍMI: 462 4646 ER ÞÖRF Á MARGSKIPTUM GLERAUGUM? MARGSKIPT GLER -25% Mikið tap Amazon Amazon skilaði 274 milljóna dollara tapi á þriðja fjórðungi þessa árs. Þetta er talsvert verri afkoma en búist var við. Á sama tíma fyrir ári hagnaðist Amazon um 63 milljónir dollara. Fyrirtækið hefur að undanförnu varið miklum fjárhæðum í fjárfest- ingar, en það hefur vaxið hratt. Tekjur Amazon jukust um 27% á þriðja ársfjórðungi. Í tilkynningu frá Amazon segir að mest selda vara fyrirtækisins sé Kindle Fire HD spjaldtölvan, en ekki kom fram hversu mikið seldist af henni. Hlutabréf í Amazon lækk- uðu um 3% í gær. Lækka lánshæfis- mat franskra banka Matsfyrirtækið Standard and Po- or’s hefur lækkað lánshæf- iseinkunn þriggja franskra banka, en þeirra á meðal er BNP Paribas. Þá hefur fyrirtækið sett 10 aðra banka á athugunarlista með neikvæðum horfum, m.a. Credit Agricole og Societe Gene- rale. Standard and Poor’s segir að bankarnir standi frammi fyrir aukinni efnahagslegri áhættu. Þeir séu því berskjaldaðri gagn- vart þeirri hættu sem sé samfara langvarandi kreppu á evrusvæð- inu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.