Morgunblaðið - 26.10.2012, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 26.10.2012, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2012 Helle Thorning-Schmidt, forsætis- ráðherra Danmerkur, sagði í gær að stjórn sín myndi beita neitunarvaldi gegn tillögum um fjárlög Evrópu- sambandsins fyrir árin 2014-2020 ef Danmörk fengi ekki afslátt að and- virði milljarðs danskra króna, 22 milljarða íslenskra. „Meginskilaboð okkar, og það sem við berjumst fyrir, er að við verðum að fá afslátt og viljum ekki borga fyrir afslætti annarra auðugra ríkja,“ sagði Thorning-Schmidt á fundi með Evrópumálanefnd danska þingsins. Danmörk hefur ekki fengið neinn afslátt af framlögum sínum til Evrópusambandsins. Bretland, Þýskaland, Holland, Svíþjóð og Austurríki hafa hins vegar samið um afslætti vegna þess að ríkin telja framlög sín of mikil samanborið við önnur aðildarlönd Evrópusam- bandsins. Auknum framlögum hafnað David Cameron, forsætisráðherra Danmerkur, hótaði í vikunni sem leið að beita neitunarvaldi gegn fjár- lagatillögunum ef framlög aðildar- ríkjanna til Evrópusambandsins yrðu aukin á sama tíma og ríkin þyrftu að ráðast í erfiðar sparnaðar- aðgerðir heima fyrir til að minnka eigin fjárlagahalla. Fjárlagatillögurnar verða ræddar á leiðtogafundi Evrópusambandsins 22.-23. nóvember og talið er að samningaviðræðurnar verði mjög erfiðar. Herman Van Rompuy, for- seti leiðtogaráðs ESB, hefur hvatt aðildarríkin til að ljá máls á tilslök- unum í viðræðunum. bogi@mbl.is Danir vilja fá afslátt  Hóta að beita neitunarvaldi gegn fjárlagatillögum ESB Áætlað er að um 2,5 milljónir manna hafi safnast sam- an á sléttu við Arafat-fjall í Sádi-Arabíu í gær til að taka þátt í mikilvægustu athöfnunum í fimm daga píla- grímahátíð múslíma, hajj. Pílagrímar frá 189 löndum voru á sléttunni og margir þeirra höfðust við í litlum litskrúðugum tjöldum og báðu. Yfirvöld í Sádi-Arabíu sögðu að um 1,7 milljónir píla- gríma hefðu komið þangað frá öðrum löndum. Margir þeirra komu frá löndum arabíska vorsins svonefnda og bænir þeirra endurspegluðu ólguna sem verið hefur í arabaríkjunum. „Allah tortími Bashar forseta,“ bað til að mynda þrí- tugur Sýrlendingur og skírskotaði til Bashars al- Assads, forseta Sýrlands. Móðir hans gaf honum oln- bogaskot og þaggaði niður í honum. „Núna drepa her- menn stjórnarinnar alla fjölskylduna okkar heima í Sýrlandi,“ sagði konan sem er frá Idlib-héraði í norðan- verðu landinu. Uppreisnarmenn hafa náð mestum hluta héraðsins á sitt vald en ekki öllu. Einræðisstjórnin í Sýrlandi heimilaði ekki pílagríms- ferðir frá yfirráðasvæði sínu í ár. Sýrlenskir flótta- menn í Jórdaníu og Líbanon komust þó á trúarhátíðina. AFP „Allah tortími Bashar forseta“ Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Ný skoðanakönnun The Washington Post bendir til þess að þótt Barack Obama forseti sé talinn hafa sigrað í þriðju sjónvarpskappræðunum að- faranótt þriðjudags hafi Mitt Rom- ney, forsetaefni repúblikana, tekist að styrkja stöðu sína meðal líklegra kjósenda, m.a. óflokksbundinna kjósenda sem líklegt er að ráði úr- slitum. Um 48% þátttakendanna í könnuninni sögðust telja að Obama hefði „sigrað“ í síðasta einvíginu en 24% sögðu Romney hafa haft betur. Fylgi þeirra breyttist þó ekki eftir einvígið. 49% líklegra kjósenda sögð- ust styðja Romney en 48% Obama forseta, að sögn The Washington Post. Þegar óflokksbundnir kjósendur voru spurðir um áhrif sjónvarpsein- vígjanna þriggja á álit þeirra á fram- bjóðendunum sögðu 40% viðhorf sín til Romneys hafa batnað en aðeins 18% sögðu þau hafa versnað. Um 20% óflokksbundnu kjósendanna sögðu viðhorf sín til Obama hafa versnað en um 10% sögðu þau hafa batnað. Flestir þátttakendanna í könnuninni sögðu að einvígin hefðu ekki breytt áliti þeirra á forsetanum. Fleiri óháðir styðja Romney Könnunin bendir ennfremur til þess að 50% líklegra kjósenda séu ánægð með störf forsetans en 49% óánægð. Þegar þátttakendurnir voru spurðir hvor frambjóðendanna skildi betur fjárhagsleg vandamál venjulegs fólks nefndu 50% líklegra kjósenda Obama og 45% Romney. Þegar þeir voru spurðir hvor væri betur til þess fallinn að leysa efna- hagsvanda landsins nefndu 50% Romney og 44% Obama. Munurinn var enn meiri, eða 17 prósentustig, meðal óflokksbundinna kjósenda. Um 54% óflokksbundnu kjósend- anna sögðust ætla að kjósa Romney en 42% Obama, en ekki kemur fram hversu mikil skekkjumörkin voru. Fleiri jákvæðari í garð Romneys  Styrkti stöðu sína þótt Obama forseti hafi þótt „sigra“ í þriðja einvíginu Nýjustu kannanir benda til þess að lítill munur verði á fylgi fjögurra stærstu flokka Finnlands í sveitarstjórnar- kosningum sem fram fara á sunnu- dag. Líklegt er að Sannir Finnar þrefaldi fylgi sitt frá síðustu sveitarstjórnarkosningum. Gallup-könnun, sem birt var í dag- blaðinu Helsingin Sanomat, bendir til þess að Sambandsflokkurinn, sem er hægriflokkur, fái 20,7% fylgi í kosn- ingunum og Jafnaðarmannaflokkur- inn 20%. Miðflokknum er spáð 17% og Sönnum Finnum 16%. Andvígir aðstoð við evruríki Sannir Finnar fengu meira fylgi í þingkosningum í fyrra, eða 19%, þeg- ar þeir urðu þriðji stærsti flokkur landsins. Flokkurinn fékk aðeins 5,4% í sveitarstjórnarkosningum fyrir fjór- um árum. Frambjóðendur hans þá voru aðeins 1.840 en eru nú 4.394. Sannir Finnar eru undir forystu Timo Soini, sem átti sæti á Evrópu- þinginu frá 2009 og þar til hann bauð sig fram í þingkosningunum í fyrra þegar hann fékk fleiri atkvæði en nokkur annar frambjóðandi. Kosningabaráttan hefur einkum snúist um heilbrigðis-, atvinnu- og skattamál en aukinn stuðningur við Sanna Finna er einnig rakinn til and- stöðu þeirra við þátttöku Finnlands í björgunaraðgerðum vegna skulda- vanda evruríkja. Jan Sundberg, prófessor í stjórn- málafræði við Helsinki-háskóla, spáir því að Sannir Finnar komi mjög vel út úr kosningunum. „Stuðningurinn við þá stafar að mjög miklu leyti af því að margir hafa orðið fyrir von- brigðum með stjórnmálaflokkana,“ hefur fréttaveitan AFP eftir honum. „Í bakgrunninum er einnig óttinn við að Finnland taki meiri þátt í því að bjarga evrunni.“ Mikil andstaða er meðal almenn- ings í Finnlandi við þátttöku í björg- unaraðgerðunum og stjórn landsins hefur krafist þess að ríkin sem fái að- stoð grípi til frekari sparnaðarað- gerða. Finnland er eina ríkið sem hef- ur krafist veða fyrir sínum hluta af lánveitingum til evruríkja. bogi@mbl.is Sannir Finnar þrefalda fylgið  Mjótt á munum í kosningabaráttunni Timo Soini Barack Obama fór í gær í tveggja sólar- hringa kosningaferð um sex ríki og hugðist m.a. kjósa utankjörstaðar í heimaborg sinni Chicago, tíu dögum fyrir kosningarnar. Þetta er í fyrsta skipti sem bandarískur for- seti nýtir réttinn til að kjósa utankjörstaðar fyrir kjördag. Um 6,5 milljónir Bandaríkjamanna hafa þegar kosið utankjörstaðar. Um 30% kjós- endanna nýttu þennan rétt í síðustu for- setakosningum fyrir fjórum árum og stjórn- málaskýrendur telja að enn fleiri geri það nú, eða um 35%. Talið er að hlutfallið verði miklu hærra í lykilríkjum á borð við Flórída, Colorado, Iowa og Ohio, jafnvel 85% í Colo- rado. Þriðjungur kýs fyrir kjördag MIKIL KJÖRSÓKN UTAN KJÖRFUNDAR Í BANDARÍKJUNUM Brosir Barack Obama forseti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.