Morgunblaðið - 26.10.2012, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 26.10.2012, Blaðsíða 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2012 Fátt er eins gaman eins ogað fara í bíó og sjá myndsem stendur undir mikl-um væntingum. Um leið er fátt eins gefandi eins og að sjá velheppnaða mynd um njósnara hennar hátignar, James Bond, þar sem þétt og góð saga er alsett hraða og hasar svo áhorfendur halda niðri í sér andanum. Bond nær ekki alltaf hæstu hæðum en svo er sannarlega í nýjustu myndinni um 007. Jólin koma snemma í ár. Í Skyfall er sótt af áður óþekktum þunga að bresku leyniþjónustunni, MI6, og þá ekki síst yfirmanni henn- ar, M. Það sem í fyrstu virðist vera almenn árás anarkista á opinbera stofnun reynist hefndarför af per- sónulegustu gerð, og Bond spyr sig meðfram skyldustörfunum hvort hin skilyrðislausa tryggð sem hann sýn- ir yfirmanni sínum sé í raun rétt- mæt. Fortíðardraugar fara sumsé á kreik, um leið og heilsa og hæfni okkar manns er í limbói um hríð, að því marki að óvíst er hvort hann sé bógur til að kljást við Silva (Javier Bardem), hinn ófélega erkiþrjót myndarinnar. Það er dagljóst að mikið gæfuspor var stigið með ráðningu Sam Men- des sem leikstjóra Skyfall. Mendes er hörkuflinkur kvikmyndagerð- armaður og lætur jafn vel að byggja upp sálfræðilega háspennu og að stýra tæknilega flóknum áhættu- atriðum með tilheyrandi ofsa og eyðileggingu. En mannlegi þátt- urinn aðgreinir myndina frá Bond í gamla daga — fólki blæðir, Bond blæðir. Ógnin er raunveruleg og lífs- hættan er áþreifanleg. Ekki verður hjá því komist að mannvalið í leikhópi Bond-myndar — í fimmtíu ára sögu James Bond — sjaldan eða aldrei verið jafn kræsi- legt. Bardem hefur fyrir margt löngu sannað sig sem leikari í fremstu röð og hann hefur gríð- arsterka og næstum því óþægilega nærveru sem Silva. Judi Dench er sama brýnið og áður í hlutverki M (hvílík snilld var það líka á sínum tíma að ráða hana í hlutverkið!) og Ralph Fiennes kemur firnasterkur inn sem möppudýrið Mallory, sem leynir á sér þegar til kastanna kem- ur. Yfir öllu gnæfir þó öndvegisleik- arinn Daniel Craig sem hefur hér með eignað sér Bond með húð og hári. Rétt eins og Sean Connery var ekki fullkomlega kominn í rulluna fyrr en í Goldfinger og Roger Moore ekki heldur fyrr en í The Spy Who Loved Me, er Craig í sinni þriðju mynd fullkomlega búinn að finna fjölina sína. Þegar við bætist af- bragðsgott handrit og leikstjórn frá góðum kunningja (þeir Mendes unnu saman að The Road To Perdi- tion) er ekki að spyrja að útkom- unni; Craig hreinlega smjattar á rullunni, hættulegur og heillandi í senn. Frammistaðan er í það heila með því allra besta sem Bond-leikari hefur nokkurn tíma sýnt. Hér skal draga því djúpt andann og segja svo refjalaust: Craig er besti Bondinn fyrr og síðar. Punktur. Framleiðendur gera þá vel í því að búa á ýmsan hátt afskaplega vel í haginn fyrir næstu myndir, að því marki að mann klæjar eftir meiru. Gæfan gefi að Sam Mendes verði aftur við stjórnvölinn, því Skyfall er í hópi bestu Bondmynda sögunnar. Spenna Andrúmsloftið er rafmagnað í öllum návígum erkifjendanna James Bond og Raoul Silva. Daniel Craig sýn- ir einn besta leik sem Bond-leikari hefur skilað og Javier Bardem er sjálfur með eftirminnilegri skúrkum hið sama. Fyrsta flokks 007 Sambíóin, Smárabíó, Laugar- ásbíó, Háskólabíó og Borgarbíó Skyfall bbbbm Aðalhlutverk: Daniel Craig, Javier Bar- dem, Judi Dench, Ralph Fiennes, Nao- mie Harris, Ben Whishaw, Albert Finney. Leikstjóri: Sam Mendes. Sýningartími: 143 mínútur. Bandaríkin, 2012. JÓN AGNAR ÓLASON KVIKMYNDIR Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Þetta verk talar vel við samtímann, því í grunninn fjallar það um hamingjuleit fimm karlmanna og hvaða leið þeir fara að því að ná markmiðum sínum,“ segir Jenný Lára Arn- órsdóttir leikstjóri um verkið Hinn fullkomna jafningja eftir Felix Bergsson sem Leikhóp- urinn Artik frumsýnir í litla sal Norðurpólsins á sunnudaginn kemur kl. 20. Verkið, sem er einleikur, var frumflutt árið 1999 en þá lék höfundurinn sjálfur í verkinu sem fjallar um fimm menn sem taka mismun- andi á samkynhneigð sinni. „Þeir tengjast allir innbyrðis á einn eða annan hátt en samskipti þeirra endurspegla ekki aðeins reynslu sam- kynhneigðra af ástinni, heldur fela þau í sér sammannlega reynslu. Þegar fólk kemur út úr skápnum þarf það oft að leggjast í ákveðna sjálfsskoðun og viðurkenna hvert það er,“ seg- ir Jenný Lára og bætir við: „Mér finnst ég skynja að eftir kreppu séu fleiri tilbúnir að líta í eigin barm og skoða hvað hægt sé að fá meira út úr lífinu.“ Leikur persónur frá 21-68 ára „Ég kynntist þessu verki fyrst þegar það var sett á svið árið 1999, en ég var þá sviðs- maður í sýningu hjá Felix,“ segir Unnar Geir Unnarsson og bendir á að það hafi verið höf- undurinn sjálfur sem hvatti Unnar Geir til þess að setja verkið upp á núverandi tíma- punkti. „Þegar ég fór að lesa verkið með aug- um leikarans áttaði ég mig á því að þetta væri verk sem væri vert að setja á svið aftur. Þegar við fórum að skoða verkið núna 13 árum seinna varð einnig ljóst að margt hefur breyst til hins betra m.t.t. réttindabaráttu samkyn- hneigðra. Ég held að okkur sé hollt að rifja upp hvað við höfum náð langt á þessum 13 ár- um. En þótt við séum búin að taka þessi stóru skref eru enn ansi mörg hænuskref eftir,“ segir Unnar Geir og bætir við: „Auk þess spillir ekki fyrir hversu mikil og skemmtileg áskorun felst í því að fá að túlka öll fimm hlut- verk verksins. Tæknin sem við Jenný Lára lærðum úti byggist mjög mikið á persónu- sköpun, en í raun sálgreinum við persónurnar og greinum verkið í þaula áður en farið er út á gólf. Mér finnst æðislegt að fá tækifæri til þess að prófa tæknina sem ég hef verið að læra síðustu árin,“ segir Unnar Geir, en per- sónur verksins spanna allt frá því að vera 21 árs ungur maður yfir í að vera 68 ára gömul dragdrottning. Með fleiri verkefni á teikniborðinu Leikhópinn Artik stofnuðu Jenný Lára og Unnar Geir fyrr í haust, en Hinn fullkomni jafningi er fyrsta verkefni hópsins. Jenný Lára og Unnar Geir kynntust í námi sínu við ASAD-leiklistarskólann í London þar sem þau lærðu leiklist og leikstjórn, en Unnar Geir út- skrifaðist vorið 2011 og Jenný Lára sl. vor. „Við kynntumst vel í náminu. Við vorum hvort á sínu árinu, en lékum talsvert saman þar sem mikill samgangur var milli árganga. Við höf- um líka leikstýrt hvort öðru, hann sennilega oftar mér en öfugt,“ segir Jenný Lára. Að- spurð segjast þau vera með fleiri verkefni á teikniborðinu. „Við munum skiptast á að leik- stýra. Og við ætlum ekki bara að setja upp einleiki, heldur fá fleira fólk til liðs við okkur,“ segir Unnar Geir. Aðspurð segjast þau hafa átt það sameiginlegt meðan á námi stóð að sjá Ísland alltaf fyrir sér sem framtíðarvettang- inn fyrir listsköpun sína. Um hljóðmynd verksins sér Baldvin Albertsson, sem var sam- tíða þeim Unnari Geir og Jennýju Láru í ASAD og tónlistin er í höndum Gríms Gunn- arssonar. Þess má að lokum geta að stefnt er að því að sýna Hinn fullkomna jafningi alla fimmtudaga og sunnudaga út nóvember í Norðurpólnum. Verk um leitina að hamingjunni Morgunblaðið/Styrmir Kári Skapandi Jenný Lára Arnórsdóttir og Unnar Geir Unnarsson kynntust í leiklistar- og leikstjórnarnámi sínu í London og vinna saman undir merkjum Leikhópsins Artik.  Leikhópurinn Artik frumsýnir Hinn fullkomna jafningja - merkt framleiðsla yfir 30 ára reynsla á Íslandi• hurðir úr áli — engin ryðmyndun• hámarks einangrun• styrkur, gæði og ending — langur líftími• háþróuð tækni og meira öryggi• möguleiki á ryðfríri útfærslu• lægri kostnaður þegar fram líða stundir• Sveigjanlegar lausnir og fjölbreytilegt útlit hentar mismunandi tegundum bygginga. IÐNAÐAR- OG BÍLSKÚRSHURÐIR idex.is - sími: 412 1700 Byggðu til framtíðar með hurðum frá Idex Iðnaðar- og bílskúrshurðir úr áli

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.