Morgunblaðið - 29.10.2012, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 29.10.2012, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. OKTÓBER 2012 Skógarhlíð 18 sími 595 1000 www.heimsferdir.is Birt með fyrirvara um prentvillu. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. • • Stökktu til Kanarí 30. október í 23 nætur Verð frá kr. 99.900 Nú bjóðum við síðustu sætin í sólina á Kanaríeyjum þann 30. október í 23 nætur á frábæru stökktutilboði. Þú bókar flugsæti og þremur dögum fyrir brottför látum við þig/ykkur vita á hvaða gististað dvalið er á. Ekki missa af þessu einstaka tilboði. Ath. mjög takmarkaður fjöldi sæta í boði. Verð getur hækkað án fyrirvara. Stökktu tilboð. Verð frá kr. 99.900 Netverð á mann m.v. 2 - 4 fullorðna í íbúð/studio/herbergi í 23 nætur. Aukagjald á einbýli 49.000 kr. Stökktu tilboð - með hálfu fæði! Verð frá kr. 149.900 Netverð á mann m.v. 2 í tvíbýli í 23 nætur. Aukagjald fyrir einbýli kr. 69.000. Stökktu tilboð - með allt innifalið! Verð frá kr. 199.900 Netverð á mann m.v. 2 í tvíbýli í 23 nætur. Aukagjald fyrir einbýli kr. 100.000. Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Samþykkt var á kjördæmisþingi Framsóknarflokksins í Norðaustur- kjördæmi, sem haldið var í Mývatns- sveit um helgina, að boða til tvöfalds kjördæmisþings 1. desember næst- komandi þar sem raðað verði upp á lista flokksins fyrir komandi kosn- ingar. Á slíku þingi hafa bæði aðal- og varafulltrúar rétt til að greiða at- kvæði og er gert ráð fyrir að tæplega 500 manns muni taka þátt. Greidd voru atkvæði um það hvort fara ætti þessa leið eða halda lokað prófkjör allra framsóknarmanna í kjördæm- inu og var fyrri leiðin samþykkt með 115 atkvæðum gegn 48. Hafði Sig- mundur Davíð Gunnlaugsson, for- maður Framsóknarflokksins, mælt með tillögunni en hann hafði sem kunnugt er gefið kost á sér í efsta sæti listans í kjördæminu ásamt Höskuldi Þór Þórhallssyni, sem vildi fara prófkjörsleiðina. Á seinna kjördæmisþinginu verð- ur kosið um uppstillingu frambjóð- enda og er byrjað á efsta sæti listans og síðan farið niður koll af kolli. Sigmundur Davíð segir að tvöfalt kjördæmisþing sé langskynsamleg- asta leiðin til þess að ákveða fram- boðslistann, en sú aðferð hafi verið verið notuð oft áður í þessu kjör- dæmi og gefið góða raun, þar sem nokkur hundruð flokksmanna komi saman og raði upp sigurstranglegum lista og fari út af fundinum sem eitt lið. „Upp á framhaldið að gera, sam- stöðu innbyrðis og út á við held ég að þetta sé mjög skynsamleg leið.“ Sigmundur segist bjartsýnn á að ná kjöri í efsta sæti listans á kjör- dæmisþinginu enda hefði hann ekki flutt sig um kjördæmi annars. Upp- haflega hefði vilji stuðningsmanna sinna staðið til að hann byði sig fram í kjördæminu árið 2009 en þá hefði hann viljað byggja upp fylgið í Reykjavík. Ekki náðist í Höskuld Þór Þór- hallsson við vinnslu fréttarinnar þrátt fyrir ítrekaðar tilraun- ir en í samtali við frétta- stofu RÚV í gær sagði hann að lýðræðislegustu leiðinni til þess að velja á listann hefði verið hafnað. Framsóknarflokkur- inn þyrfti að verða opnari og horfa til framtíðar en ætti enn langt í land. Tillaga Sigmund- ar var samþykkt  Framsókn boðar til tvöfalds kjördæmisþings í NA-kjördæmi mennra reglna hefði Seðlabankinn alltof víðtækt vald til að veita und- anþágur,“ segir Helgi. Aðspurður hvort hann kannist við það að einstakir þingmenn hafi haldið á lofti kröfum slitastjórna, sbr. ofangreind ummæli Seðla- bankans, segir Helgi að Seðlabank- inn verði að útskýra það sjálfur. Ekki fengust frekari svör frá Seðlabankanum við vinnslu fréttar- innar í gær. Svör Seðla- banka rædd í efnahagsnefnd  Helgi Hjörvar segir bankans að út- skýra ummæli sín um þingmenn Morgunblaðið/Ómar SÍ Ummæli Seðlabankans verða rædd í efnahags- og viðskiptanefnd. Ummæli Seðlabankans » Í Morgunblaðinu sl. laug- ardag birtust ummæli bankans um að honum hafi verið gert að birta reglur um ráðstöfun gjaldeyris af sölu annarra eigna sem ekki séu líklegar til að valda óstöðugleika » „Var þetta gert til þess að koma til móts við kröfu frá slitastjórnum, sem ýmsir þing- menn tóku undir,“ sagði bank- inn jafnframt. SVIÐSLJÓS Skúli Hansen skulih@mbl.is Guðlaugur Þór Þórðarson, þing- maður Sjálfstæðisflokksins, hyggst taka svör Seðlabankans, sem birt- ust í Morgunblaðinu síðastliðinn laugardag, upp á fundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis í dag. Svör bankans voru þess efnis að honum hafi verið gert að birta regl- ur um ráðstöfun gjaldeyris af sölu annarra eigna sem ekki eru líkleg- ar til að valda óstöðugleika en slíkt hafi verið gert til þess að koma til móts við kröfu frá slitastjórnum sem „ýmsir þingmenn“ tóku undir, eins og það var orðað. Um er að ræða breytingartillögu Alþingis er laut að tilslökun varð- andi útgreiðslu gjaldeyris þrotabú- anna sem laus var til ráðstöfunar þegar lögin voru sett í síðastliðnum marsmánuði. Í svörum Seðlabank- ans við fyrirspurnum Morgun- blaðsins, sem birt voru í blaðinu sl. laugardag, kom einnig fram að bankinn hefði ekki verið fylgjandi fyrrnefndri breytingartillögu. Talsverð andstaða við málið „Meirihlutinn í efnahags- og við- skiptanefnd flutti í mars frumvarp um breytingar gjaldeyrishöftunum sem laut að því að afnema þá und- anþágu sem kröfuhöfum var veitt í tíð ríkisstjórnar Geirs Haarde,“ segir Helgi Hjörvar, formaður efnahags- og viðskiptanefndar. Að sögn Helga kom fram tals- verð andstaða við málið, m.a. af hálfu stjórnarandstöðunnar, við umfjöllun um það í þinginu. Með samþykkt frumvarpsins í mars voru þrotabúin felld undir gjald- eyrishöftin en þó kveðið á um það að erlendar innistæður í Seðla- bankanum yrðu efndar enda hefði það komið fram hjá bankanum að slíkt hefði ekki áhrif á gjaldeyr- isjöfnuð hans. „Þá var bankanum falið að setja reglur um aðra þætti málsins en það var fyrst og fremst vegna gagnrýni, meðal annars úr stjórn- arandstöðunni, á það að án al- „Ég á ekki von á meiriháttar áherslubreytingum af minni hálfu, enda tek ég við góðu starfi af fráfar- andi efnahagsráðgjafa,“ segir Ágúst Ólafur Ágústsson, fv. varaformaður Samfylkingarinnar, sem ráðinn hef- ur verið efnahags- og atvinnuráð- gjafi forsætisráðherra. Ágúst Ólafur tekur við starfinu af Sigurði Snævarr, hagfræðingi, en tveggja ára tímabundinn ráðning- arsamningur hans við ráðuneytið rann út 1. október síðastliðinn. Aðspurður hvort hann muni leggja tillögur að breytingum fyrir forsætisráðherra segir Ágúst svo ekki vera. „Það er hlutverk ráðherra að ákveða stefnubreytingar, mitt hlutverk er að gefa eins góð ráð og mér er frekast unnt,“ segir hann. „Margt hefur áunnist í efnahags- og atvinnumálum á síðustu miss- erum. Ísland er á réttri leið en þó er ljóst að enn er vandi fyrir hendi og margt sem ýmist þarf að klára eða halda áfram með,“ segir Ágúst. Hann segir sterkt hagkerfi vera allra hag. „Efla þarf atvinnulífið með ýmsum hætti eins og ríkisstjórnin hefur gert að undanförnu,“ segir hann. Inntur eftir ástæðum starfslok- anna segir Sigurður Snævarr þær einfaldar: „Ég var ráðinn til tveggja ára. Á meðan var ég í leyfi frá störf- um mínum sem borgarhagfræð- ingur. Þeirri stöðu gegndi ég í níu ár en hún var síðan lögð niður. Ég á því rétt á biðlaunum hjá borginni, flókn- ara er það ekki,“ segir hann „Framhaldið er þannig að skrifa bók á biðlaunum, því mér varð ljóst að ég gæti ekki lagt lokahönd á hana á meðan ég væri í ati. Ég mun því skrifa og pústa svolítið út,“ segir Sig- urður en hann vinnur nú að endur- útgáfu bókarinnar Haglýsing Ís- lands sem fyrst kom út fyrir 20 árum. „Ég átti góðan tíma í forsæt- isráðuneytinu og er þakklátur fyrir þann tíma. Jafnframt gleðst ég yfir því að við tekur maður sem ég held að sé fagmaður fram í fingurgóma,“ segir Sigurður. gudrunsoley@mbl.is Nýr ráðgjafi á ekki von á áherslubreytingum  Fyrri ráðgjafi í bókarskrif á biðlaunum frá borginni Ágúst Ólafur Ágústsson Sigurður Snævarr Sigmundur Davíð Gunn- laugsson, formaður Framsókn- arflokksins, segist vera mjög ánægður með stöðu flokksins í höfuðborginni við upphaf kosn- ingavetrar. „Staðan í Reykjavík er með besta móti myndi ég segja. Oft höfum við þurft að keppa fram á lokadaga kosningabarátt- unnar til að ná inn mönnum, en núna mælumst við nokkuð sterk í Reykjavík þegar þetta langt er til kosninga. Við stefnum á að fá þar tvo þingmenn í hvoru kjör- dæmi.“ Valið verður á framboðslista flokksins í Reykjavíkurkjör- dæmunum tveimur á kjör- dæmaþingi sem haldið verður 24. nóvember næstkomandi. Stefna á fjóra þingmenn FRAMSÓKN Í REYKJAVÍK Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Morgunblaðið/Birkir Fanndal Framsókn Höskuldur Þórhallsson alþingismaður situr hér fyrir miðjum sal og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, stendur fyrir aftan á kjördæmisþingi flokksins í Mývatnssveit í gær.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.