Morgunblaðið - 29.10.2012, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 29.10.2012, Blaðsíða 11
áherslu á að bjóða viðskiptavinum sín- um upp á vandaðar vörur á góðu verði. „Verð og gæði haldast í hendur hjá okkur. Þess vegna reyni ég að bjóða góðar og vandaðar vörur eins ódýrt og kostur er.“ Þriðji ættliðurinn Verslunin hefur verið í eigu sömu fjölskyldu frá stofnun hennar árið 1918 og er Svava þriðja kynslóðin sem heldur utan um reksturinn. Á Svövu er ekkert fararsnið og segir hún að framundan séu spenn- andi tímar með þróun vefverslunar og tækifæra sem ný tækni og nýir tímar færa með sér en Guðsteinn afi hennar gerði sér vel grein fyrir því að tím- arnir breytast. Í viðtali við Lesbók Morgunblaðsins skömmu fyrir jólin 1963 sagði hann að með batnandi efnahag og auknum framförum hefði öllu farið fram og bætti því við að óhætt væri að segja að allt hefði breyst og velmegunin aukist ótrú- lega. Fólk væri farið að kaupa dýrari vörur en áður og spyrði ekki eins mikið um verð. Guðsteinn sagði í lok viðtalsins að tímarnir hefðu auðvitað mátt breytast – „því að þetta var ekk- ert líf hjá fólkinu í gamla daga, hreint ekkert líf“. Morgunblaðið/RAX Hvernig skal hnýta Hjálpleg og skemmtileg veggmynd á versluninni. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. OKTÓBER 2012 Ein er upp til fjalla kvaðJónas Hallgrímsson. Núum helgina hafa líklegast um 3.000 rjúpnaveiðimenn verið einir upp til fjalla yli húsa fjær. Veður til rjúpnaveiða var ekki sér- lega gott víðast hvar á landinu nema þá helst í gær, sunnudag. Líklegast stunda um 5.000 Íslend- ingar rjúpnaveiðar. Nú í haust eru veiðidagarnir aðeins níu og talið er að rjúpnastofninn telji um það bil 390.000 fugla, ráðlagt er að ekki verði veiddar fleiri en 34.000 rjúpur í ár. Eins og áður sagði ganga um 5.000 manns til rjúpna hér á landi, samkvæmt ráðlagðri veiðiráðgjöf á hver veiðimaður að veiða svona sex til sjö fugla. Kannanir sýna að um 20% Ís- lendinga snæða rjúpur um jólin, það eru líklegast um 70.000 rjúp- ur. Það er því ljóst að rjúpur verða ekki á borðum margra landsmanna þó að þeir svo gjarn- an hefðu kosið það. Það eru ekki svo mörg ár síðan við veiddum svona 120-140.000 rjúpur á ári, veiðitíminn var þá 67 dagar. Á sín- um tíma voru rjúpnaveiðar at- vinnugrein og rjúpur útflutnings- vara. Árið 1913 voru fluttar út 169.500 rjúpur og árið 1919 204.000 rjúpur. Á öldum áður hef- ur verið gríðarlega mikið af rjúpu hér á landi, svo mikið að komið hefur fyrir að hún hafi ekki haft nægjanlegt æti eða það hafi komið upp sjúkdómar í stofninum vegna stærðar hans. Í ævisögu Þorsteins Kjarvals, „Örlaganornin að mér réð“, sem Jón G. Jónatansson skráði, segir meðal annars: „Mikið hrun var í rjúpnastofninum 1893. Þorsteinn fór í eftirleit frá Rann- veigarstöðum í Álftafirði til Víði- dals ásamt tveim mönnum öðrum. Fundu þeir mikið af dauðri rjúpu á leið sinni yfir fjöllin. „Þar lá rjúpan víða, steindauð og stirðnuð en horuð og var það ömurleg sjón,“ segir Þorsteinn.“ Íslenski rjúpnastofninn hefur dregist verulega saman á undan- förnum 50 árum, talsvert hefur verið deilt um ástæður þessarar miklu fækkunar. Þess má geta að rjúpum hefur einnig fækkað talsvert annars staðar á norðlægum slóðum eins og til dæmis í Finnlandi, Noregi og Svíþjóð. Ofveiði er ekki eina ástæðan fyrir fækkun rjúpunnar. Ýmsir aðrir þættir spila þarna inn í, nefna mætti hlýnun veðurfars, breytingu á gróðurfari og fjölgun refs og mannvirkja eins og girð- inga og háspennulína. Rjúpnaveið- ar eru vinsælustu skotveiðar ís- lenskra veiðimanna og er það ekki skrítið. Rjúpnaveiðar eru líkam- lega krefjandi, veiðimaðurinn þarf að vera vel á verði, lesa í lands- lagið, fylgjast með veðurfari og landslaginu. Það er einstök náttúruupplifun að vera úti í íslenskri náttúru á þessum tíma árs, seinnihluta haustsins og í byrjun vetrar. Þá er rjúpan einhver sá besti matur sem völ er á og vinsæll jólamatur eins og áður hefur komið fram. En nú er staðan sú að ekki eru nægjan- lega margar rjúpur til skiptanna og það verðum við að virða. Rjúpnaveiðar ganga nefnilega út á svo margt annað en að fella bráð- ina. Stór þáttur er að takast á við náttúruna, vera þátttakandi en ekki bara áhorfandi. Í 2.000 ár hafa karlar haldið út á mörkina til að veiða, á kvöldin hafa svo menn setið við eldinn og sagt frá við- burðum dagsins og veiðisögur. Þessi þáttur veiðanna, félags- skapurinn, er ekki síður mikil- vægur en vel heppnuð veiði. Sagt er að veiðieðlið sé af sama meiði og kynhvötin, það skyldi þó ekki vera, allavega þráum við veiði- menn sterkt að komast á fjöll næstu helgarnar. Spurningin er hvort á þessum tíma árs sé veiðihvötin ekki sterk- ari á meðal margra veiðimanna en kynhvötin? Morgunblaðið/Golli Rjúpnaveiðar Margir fara til fjalla. „Einn er upp til fjalla“ Nýting og náttúra Sigmar B. Hauksson Heildarlausnir í hreinlætisvörum Stangarhyl 4, 110 Reykjavík, Sími: 520 7700 Hafðu samband og fáðu tilboð sími 520 7700 eða sendu línu á raestivorur@raestivorur.is raestivorur.is Viltu halda fjárhagsáætlun líka þegar kemur að hreinlætisvörum? Sjáum um að birgðastaða hreinlætis- og ræstingarvara sé rétt í þínu fyrirtæki. Hagræðing og þægindi fyrir stór og lítil fyrirtæki, skóla og stofnanir. Við erum með lausnina fyrir þig

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.