Morgunblaðið - 29.10.2012, Page 13

Morgunblaðið - 29.10.2012, Page 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. OKTÓBER 2012 www.xd.is Við viljum heyra í þér Sjálfstæðisflokkurinn Í dag milli kl. 16 og 20 verða þingmenn Sjálfstæðisflokksins á línunni í síma 515 1700. Í dag verða þingmenn Sjálfstæðisflokksins við símann og ræða við kjósendur um það sem þeim liggur á hjarta. Orðið er laust. Við viljum heyra í þér hljóðið og ræða hvernig við getum unnið saman að betra samfélagi. Tekið verður við símtölum í síma 515 1700 frá kl. 16 - 20. Sækjum fram - Sjálfstæðisflokkurinn 26 börnum og fjölskyldum þeirra, samtals rúmlega 150 manns, var afhentur ferðastyrk- ur úr sjóðnum Vildarbörn Icelandair á laug- ardaginn. Alls bárust sjóðnum um 300 um- sóknir í þetta sinn en markmið hans er að gefa langveikum börnum, foreldrum þeirra og systkinum tækifæri til þess að fara í draumaferð sem þau ættu annars ekki kost á. Alls hafa 355 fjölskyldur notið stuðnings frá sjóðnum frá stofnun hans. Þetta er 19. út- hlutun sjóðsins og 10. starfsár hans. Sjóðurinn Vildarbörn er fjármagnaður með beinu fjárframlagi Icelandair, frjálsum framlögum félaga í Saga Club Icelandair sem geta gefið af Vildarpunktum sínum, með söfnun myntar um borð í flugvélum Ice- landair, sölu á Vildarenglinum um borð í vél- um Icelandair og söfnunarbaukum á Kefla- víkurflugvelli og söluskrifstofu Icelandair. Í hverjum styrk frá sjóðnum felst skemmti- ferð fyrir barnið og fjölskyldu þess og er all- ur kostnaður greiddur – flug, gisting, dag- peningar og aðgangseyrir að sérstökum viðburði sem barnið óskar sér, að því er segir í tilkynningu frá Icelandair. Að meðaltali eru fimm í hverri fjölskyldu og því hafa um 1.770 einstaklingar farið í ferð á vegum sjóðsins. Jafnan hafa margar fjölskyldnanna valið að fara til Flórída og heimsækja Disneyland og aðra skemmtigarða þar. Starfsemi Vildarbarna Icelandair byggist á hugmyndum og starfi Peggy Helgason, eig- inkonu Sigurðar Helgasonar, sem lengi var forstjóri Flugleiða og nú stjórnarformaður Icelandair Group, en Peggy hefur lengi unnið sem sjálfboðaliði á barnadeildum sjúkrahúsa í Reykjavík og stutt fjölskyldur fjölda veikra barna. Hún er nú í stjórn Vildarbarna Ice- landair. Á myndinni eru styrkþegar ásamt stjórnendum Vildarbarna við úthlutunina. Rúmlega 150 manns á leið í utanlandsferð með styrk frá sjóðnum Vildarbörn Icelandair Ljósmynd/Karl Petersen Brosmild og glöð á leiðinni í draumaferðina Fjölsótt landsmót Æskulýðs- sambands þjóðkirkjunnar fór fram í íþróttahúsinu á Egilsstöðum um helgina. Alls tóku á annað þúsund manns þátt í dagskránni, þar af um 800 ungmenni af öllu landinu. Á laugardagskvöldinu fór fram karni- val þar sem krakkarnir sungu, léku á hljóðfæri, fluttu leikrit og gerðu margt fleira sér til skemmtunar. Seldu unglingarnir vöfflur og heima- gerðan brjóstsykur til gesta sem komu á karnivalið. Landsmótinu lauk í gær með stórri messu í íþróttahúsinu, líklega þeirri stærstu sem fram hefur farið á Egilsstöðum. „Kjörorð okkar á að vera að gera heiminn örlítið betri í dag en hann var í gær,“ sagði séra Solveig Lára Guðmundsdóttir, vígslubiskup á Hólum, í predikun við lokamessuna. Yfirskrift landsmótsins var H2O þar sem fræðst var um vatn og hjálp- arstarf í þróunarlöndunum. Höfðu ungmennin safnað fé til Hjálpar- starfs kirkjunnar. Messað á fjölsóttu lands- móti æskulýðsfélaganna Ljósmyndir/Bogi Benediktsson Landsmót Hátt í 800 ungmenni af öllu landinu voru á landsmóti æskulýðs- félaga þjóðkirkjunnar á Egilsstöðum um helgina. Þótti mótið takast vel.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.