Morgunblaðið - 29.10.2012, Page 15

Morgunblaðið - 29.10.2012, Page 15
FRÉTTIR 15Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. OKTÓBER 2012 V/Reykjalund - Mosfellsbæ - Sími 562 8500 - www.mulalundur.is Múlalundur - fyrir betri framtíð PLASTVASAR Í Múlalundi eru framleiddar glærar kápur, hulstur og plastvasar í öllum stærðum og gerðum.Ýmsar stærðir eru til á lager og ef þín stærð er ekki til þá búum við hana til. Hafið samband í síma 562 8500 eða mulalundur@mulalundur.is. Þingkosningar fóru fram í Úkraínu í gær og var kosið um 450 þingsæti. Mikið eftirlit var með kosningunum, ekki síst vegna gagnrýni stjórn- valda á Vesturlöndum á Viktor Yanukovych, for- seta Úkraínu, fyrir að fangelsa Yuliu Tymo- shenko, leiðtoga stjórnarandstöðunnar. Útgönguspár gera ráð fyrir 28 prósenta fylgi við flokk Yanukovych og 24,7 prósenta fylgi við flokk Yuliu Tymoshenko. AFP Kosið um 450 sæti á úkraínska þinginu í gær Mikill niður- skurður er fram- undan hjá rík- isstjórn Marianos Rajoys, forsætis- ráðherra Spán- ar. Skera á niður um 40 milljarða evra til að koma í veg fyrir að Spánn þurfi að sækja í neyðar- lán ESB. Á sama tíma er atvinnu- leysi 25% og hátt í helmingur ungra Spánverja er án vinnu. Þúsundir mættu því til að mótmæla ríkis- stjórninni og niðurskurðinum fyrir framan þinghúsið í Madríd um helgina. Þúsundir mótmæltu í Madríd um helgina Mótmælt í Madríd. SPÁNN Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Afleiðinga fellibylsins Sandy var strax farið að gæta um helgina áður en hann gengur á land en fólk hef- ur hamstrað bæði mat og aðrar nauðsynjavörur og eru hillur margra verslana að tæmast. Sam- kvæmt verstu spám getur fellibyl- urinn haft áhrif á líf nærri 60 millj- óna Bandaríkjamanna en áætlað er að hann komi á land í kvöld eða snemma á morgun. Víða hefur fólk verið beðið að yfirgefa heimili sín og þá sérstaklega á svæðum sem eru nærri ströndinni. Í New York borg hefur Michael Bloomberg, borgarstjóri, fyrirskipað rýmingu þeirra hluta borgarinnar sem liggja lágt og talin er hætta á flóðum fari allt á versta veg. Þá hætti neðan- jarðarlestakerfi borgarinnar öllum ferðum í gærkvöldi af ótta við að vatn flæddi niður í lestargöng. Fellibylurinn hefur að auki áhrif á skóla borgarinnar en 1,1 milljón barna í opinberum skólum hefur verið gefið frí meðan á veðrinu stendur. Í Norður-Karólínu, Delaware, New Jersey, Connecticut og öðrum fylkjum hefur verið lýst yfir neyð- arástandi og svæði rýmd sem talin eru vera í mestri hættu. Veðrið hefur einnig leikið for- setaframbjóðendurna Mitt Romney og Barack Obama grátt en kosn- ingabarátta þeirra hefur riðlast vegna fellibylsins. Þá er ljóst að verulega mun draga úr kjörsókn þar sem fólki býðst að kjósa utan- kjörstaða fyrir kjördag. AFP Óveður Fellibylurinn Sandy kemur á land í kvöld eða snemma á morgun. Svæði rýmd vegna fellibylsins Sandy  Fólk hamstrar mat og aðrar nauð- synjavörur í verslunum í Bandaríkjunum Danir vilja ekki skipta út dönsku krónunni fyrir evruna, samkvæmt nýlegri skoðanakönnun sem Gallup gerði fyrir dagblaðið Berlingske. Niðurstaða könnunarinnar er afger- andi en 67 prósent eru andvíg því að taka upp evruna meðan einungis 22 prósent eru því hlynnt og 11 prósent segjast óákveðin. Sé aðeins litið til þeirra sem taka afstöðu eru 75 pró- sent Dana andvíg því að taka upp evruna. Í skoðanakönnuninni var einnig spurt hvort Danir teldu að þeir stæðu betur eða verr að vígi efna- hagslega ef þeir væru með evruna í stað dönsku krónunnar. Af þeim sem svöruðu sögðust 46 prósent telja að Danir stæðu verr að vígi með evruna en 27 prósent töldu að Danir myndu standa betur að vígi og 16 prósent tóku ekki afstöðu. Þá er spurt hvort fólk sé sammála því eða ósammála að Danmörk ætti að taka þátt í frekari samruna á vettvangi Evrópusam- bandsins. Um 46% eru ósammála frekari samruna á vettvangi sam- bandsins en 35% sammála. 19% taka hins vegar ekki afstöðu til málsins. vilhjalmur@mbl.is AFP Gjaldmiðill Evran er ekki vinsæl meðal almennings í Danmörku. Mikill meirihluti Dana vill ekki taka upp evru  Danir vilja ekki frekari samruna Um helgina var vetrartími tekinn upp í flestum löndum Evrópu og því er tímamunurinn milli Íslands og t.d. Bretlands ekki nema ein klukku- stund. Bandaríkin taka upp vetr- artíma um næstu helgi. Ísland og Rússland eru meðal landa sem ekki taka upp vetrar- eða sumartíma. EVRÓPA Vetrartími víða tekinn upp

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.