Morgunblaðið - 29.10.2012, Síða 18

Morgunblaðið - 29.10.2012, Síða 18
18 UMRÆÐAN Bréf til blaðsins MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. OKTÓBER 2012 ✝ Valdimar Krist-insson fæddist í Reykjavík 3. febr- úar 1929. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 17. októ- ber 2012. Foreldrar hans voru hjónin Kristinn Valdimarsson, pípu- lagningameistari, eftirlitsmaður Hita- veitu Reykjavíkur, f. 7.10. 1899 í Reykjavík, d. 18.7. 1967, og Valgerður Guðmunds- dóttir, húsmóðir, f. 7.9. 1906 í Reykjavík, d. 21.4. 1991. Valdi- mar var eina barn þeirra hjóna. Valdimar kvæntist 5. sept- ember 1971 Valborgu Stef- ánsdóttur, bókasafnsfræðingi, f. 1.2. 1948. Foreldrar hennar voru hjónin Stefán Gunnlaugur Þór- arinsson, húsgagnasmíðameist- ari á Akureyri, f. 16.1. 1913, d. 23.9. 2006, og Ingibjörg Sigurð- ardóttir, húsmóðir, f. 14.8. 1914, d. 17.1. 1992. Synir Valdimars og Valborgar eru Kristinn, stjórn- mála- og stjórnsýslufræðingur, f. 8.9. 1972, og Stefán Ingi, stærð- fræðingur, f. 5.7. 1980. Eiginkona mar átti sæti í byggingarnefnd Seðlabankahússins við Kalkofns- veg. Hann lét af störfum vorið 1996. Valdimar sat í Stúdentaráði HÍ 1953-54 og síðan í ýmsum nefnd- um á vegum þess og Háskólans. Hann var formaður Félags við- skiptafræðinga 1958-59 og var hvatamaður að stofnun Hag- fræðafélags Íslands 1959 með samruna Hagfræðingafélags Ís- lands og Félags viðskiptafræð- inga. Hann sat í fasteignamats- nefnd Reykjavíkur 1966-71, í útvarpsráði 1970-73, varamaður frá 1956 og í skipulagsnefnd Reykjavíkur 1973-74, varamaður frá 1964. Hann sat í dómnefnd í hugmyndasamkeppni sem efnt var til um skipulag Þingvalla í til- efni 1100 ára afmælis Íslands- byggðar 1974. Valdimar hafði alla tíð mikinn áhuga á ýmsum þjóðmálum, einkum byggða-, skipulags- og samgöngumálum og ritaði fjölda greina um þau efni í bækur, blöð og tímarit. Valdimar ólst upp á Ásvallagötu. Hann reisti ásamt foreldrum sín- um hús á Reynimel þar sem hann bjó síðar með fjölskyldu sinni til ársins 2001 er þau hjónin fluttu inn á Kirkjusand. Þau hafa átt annað heimili á Akureyri um ára- bil. Útför Valdimars fer fram frá Áskirkju í dag, 29. október 2012, og hefst athöfnin kl. 15. Stefáns er Elínborg Ingunn Ólafsdóttir, stærðfræðingur, f. 6.4. 1979. Sonur þeirra er Þórarinn, f. 8.3. 2012. Valdimar varð stúdent frá MR 1949. Hann var við nám í París 1950-51. Hann lauk kandí- datsprófi í við- skiptafræði og BA- prófi í landafræði og mannkyns- sögu frá HÍ 1955. Hann stundaði nám í hagrænni landafræði við Columbia University í New York 1955-56. Valdimar var eftirlitsmaður við framkvæmdir á vegum Reykjavíkurborgar 1949-50, rit- stjóri Frjálsrar verslunar 1959-61 og prófdómari í landafræði og kennari í hagrænni landafræði við HÍ um árabil. Hann var starfsmaður hagfræðideildar Seðlabanka Íslands, þá hluti Landsbankans, fyrst 1955 og síð- an 1956-59. Hann tók á ný til starfa í Seðlabankanum 1962, m.a. sem ritstjóri Fjármálatíð- inda og bókanna Iceland. Valdi- Valdimar, eða Valli eins og við fjölskyldan kölluðum hann, var stóri frændi, sonur stóru systur mömmu. Mamma hafði passað Valla þegar hún var stelpa og þótti afskaplega vænt um hann. „Hann var svo fallegur, prúður og góður,“ sagði hún og það örl- aði á því að samanburðurinn væri okkur ekki hagstæður. Tengsl mömmu og Valla entust á meðan hún lifði og sýndi hann henni alla tíð tillitssemi og virð- ingu. Valgerður móðir Valdi- mars var elsta systir mömmu, þær voru mjög nánar og var því mikill samgangur milli fjöl- skyldnanna. Kristinn faðir Valdimars var sérlega skemmti- legur og fróður. Fljótlega komu sömu eiginleikar í ljós hjá Valdi- mar. Það var skemmtilegt að fá að vera einhvers staðar nærri þegar fjölskyldurnar hittust. Áhugamál Valdimars voru fjölmörg, þar á meðal voru ým- iss konar þjóðmál og þá sérstak- lega samgöngumál. Hann ritaði m.a. fjölda blaðagreina um þau í marga áratugi. Við systkinin bárum mikla virðingu fyrir Valla frænda og vildum sem mest af honum læra. Tengslin síðari árin hafa ekki verið mikil en á tímabili nokkru eftir að Valli kvæntist Valborgu áttum við frændurnir töluverð samskipi, fórum m.a. ógleyman- lega ferð til Færeyja strax á öðru ári bílaferjunnar Smyrils. Valdimar birti síðar sögu þess- arar ferðar í Lesbók Morgun- blaðsins. Það var alltaf gaman að hitta þau hjónin og spjalla, Valdimar var svo fróður og framsýnn, hann hafði ákveðnar vel rök- studdar skoðanir og sýndi sér- stakan áhuga á því sem við systkinin og okkar afkomendur voru að fást við. Við sendum okkar bestu sam- úðarkveðjur til þín, Valborg, og fjölskyldu þinnar. Anna Jeppesen, Karl Jeppesen. Andlát vinar míns, Valdimars Kristinssonar, kom mjög að óvörum. Ég hafði heimsótt hann á heimili hans aðeins viku fyrr. Þá var alls ekki að merkja að hann ætti aðeins fáa daga ólif- aða. Við Valdimar vorum bestu vinir frá barnæsku. Við ólumst báðir upp á Ásvallagötunni í Reykjavík. Hann átti heima á númer 21 og ég á 10A. Við vor- um saman í bekk í Ágústarskóla og síðan í Menntaskólanum (MR). Okkur gekk illa í latínu- prófum í fjórða bekk og ákváðum þá að fara að lesa sam- an námsgreinarnar. Það bar ár- angur og lásum við saman allar lexíur það sem eftir var af menntaskólagöngu okkar. Utan skóla brölluðum við margt saman. Við spiluðum tennis á Melavellinum, m.a. við börn bandaríska sendiherrans, og seinna innanhúss í KR-hús- inu. Við tókum þátt í starfi Heimdallar og var Valdimar kosinn í stjórn félagsins. Árið 1945 gerðumst við áskrifendur að „National Geographic“ hjá Finni bóksala. Við vorum báðir áskrifendur í hálfa öld eða þar til allar bókahillur voru orðnar full- ar. Við fylgdumst af áhuga með upphafsárum flugs á Íslandi og keyptum báðir 100 kr. hlutabréf í Loftleiðum árið 1948. Valdimar hafði yndi af tónlist og spilaði á píanó. Hann hafði einnig mikinn áhuga á bygging- arlist. Hann hafði hug á því að læra arkitektúr en ekkert varð af því. Hann lauk hins vegar prófi í viðskiptafræði frá Há- skóla Íslands og einnig BA-prófi í landafræði. Síðan stundaði hann framhaldsnám í hagrænni landafræði við Columbia-há- skóla í New York. Nær allan sinn starfsferil vann Valdimar hjá Seðlabanka Íslands. Hann var lengi ritstjóri „Fjámálatíðinda“ ásamt Jó- hannesi Nordal seðlabanka- stjóra. Þeir Jóhannes ritstýrðu auk þess ýmsum ritum sem Seðlabankinn gaf út, þar á meðal hinum gagnmerku yfirlitsbókum um íslenskt samfélag, „Iceland“. Valdimar skrifaði mikið um skipulagsmál. Hann sat í bygg- ingarnefnd höfuðstöðva Seðla- bankans við Kalkofnsveg og fylgdist grannt með þeirri bygg- ingu. Að beiðni Jóhannesar Nor- dal varð Valdimar ráðgjafi Pálma Jónssonar í Hagkaup og tók m.a. þátt í uppbyggingu Kringlunnar fyrir Hagkaup. Valdimar reyndi árangurslaust að fá mig til starfa við byggingu Kringlunnar, en ég var þá í góðu starfi hjá Cargolux í Lúxem- borg. Áður höfðum við Valdimar byggt saman, ásamt Leifi Sveinssyni og Ingólfi Finnboga- syni byggingameistara, fjöl- býlishús við Háaleitisbraut 113. Við leigðum allar íbúðir í blokk- inni út og högnuðumst dável á þessu fyrirtæki. Undanfarin ár hefur útskrift- arhópurinn úr MR árið 1949 hist vikulega í kaffi. Valdimar mætti þar reglulega ásamt Pétri Guð- finnssyni, Þór Vilhjálmssyni, Þórarni Jóhannssyni, Stefáni Sigurkarlssyni, Eggerti Ás- geirssyni, Davíð Sch. Thor- steinsson, Sverri Sch. Thor- steinsson og mér þegar ég hef verið á landinu. Vinátta okkar Valdimars hef- ur haldist í yfir sjötíu ár þótt stundum hafi verið langt á milli Valdimar Kristinsson Það hafa orð- ið miklar fram- farir í með- höndlun psoriasis á undanförnum árum. Við þurf- um ekki lengur að fara á fætur um fimmleytið til þess að ná því að smyrja öll útbrotin með tjöru eins og áður. Sjúklingar verða sjálfir að taka ábyrgð, smyrja útbrot og/eða fara í ljós eða sól. Þau okkar sem eru með psorias- isliðagigt vita að umframkíló eru til ama. Þess vegna er ekkert annað í stöðunni en að ganga hressilega göngu, helst daglega. Fræðsla útrýmir for- dómum. Við smitum ekki! Börnin eiga hug minn allan. Það virðist vera regla frekar en undantekning að barn með psoriasis lendir í einelti í skóla. Það er nógu mikil byrði fyrir barn að bera sjúkdóminn, sem er enn ólæknanlegur, þótt einelti komi ekki til. Það verður fræðslufundur um nýjustu rannsóknir á psoriasis 16. nóv. nk. og von mín að allir sem málið varðar mæti á fundinn. Einkum for- eldrar barna með sjúkdóm- inn þar sem oft brennur á þeim fjöldi spurninga. Þessi sjúkdómur, sem er sjálfsofnæmissjúkdómur og stafar af erfðum og umhverf- isþáttum, var lengi felu- sjúkdómur. Sjúkdómurinn er þess eðlis að flestir psoriasis- sjúklingar eru virkir á vinnu- markaði. Við gátum auðvitað ekki sagt vinnufélögunum frá sjúkdómi sem við vissum harla lítið um. Móðurbróðir minn sem fæddist 1912 og fór til sjós fjór- tán ára þjáðist alla sína ævi af psoriasis, einnig vegna fordóm- anna sem stöf- uðu af vanþekk- ingu. Á sjónum nuddaðist sjó- stakkurinn óþyrmilega í sár- in og þau stækkuðu. Flak- andi psoriasissár eru ekki fögur sjón. Skipfélagar hans neituðu að matast með hon- um. Psoriasissjúklingar eru fjarska lausnamiðaðir, hann fór fram í barkann og skrap- aði af sér sárin með hnífi. Sjómennirnir kipptu sér ekki upp við blóð þannig að hann fékk matinn. Öflum okkur þekkingar sem er á boðstólum, leitum eftir lækningu sem er til. Góðu fréttirnar fyrir alþjóða- psorasisdaginn 29. okt. eru þær að miklar framfarir hafa orðið og mörg ný lyf eru prófuð. Við eigum samleið með öðru fólki með sjálfs- ofnæmissjúkdóma, fræðsla er framtíðin. Ekki síst fyrir börnin, látum þau aldrei lenda í því sem við hin þurft- um að þola. Miklar framfar- ir og rannsókn- ir á psoriasis Eftir Ernu Arngríms- dóttur Erna Arngrímsdóttir » Öflum okkur þekkingar sem er á boðstólum, leit- um eftir lækningu sem er til. Smá- yfirlit um psorias- is. Höfundur er sagnfræðingur. Samfylkingarfólk og þú, Jó- hanna Sigurðardóttir, mikið eruð þið sjálfhverf og und- irförul. Því var ekki spurt fyrir stjórnlaga- þingskosn- ingarnar hvort þjóð- in vildi fella niður varn- ir gegn út- lendingum til þess að þeir fái að kaupa hér jarðir, fyrirtæki og jafnvel í sjávarútvegi, því að í nýju stjórnarskránni fellið þið niður þessar varnir og þá kemst Huang Nubo löglega inn í landið. Til þess að koma okkur í ESB þarf að breyta núverandi stjórnarskrá og þið eruð að því með þeirri nýju. Með lymsku eru bornar fram jáyrðisspurningar og í of- análag ætlið þið að hunsa hversu dræm þátttakan var. Það er gott að geta logið að sjálfum sér og þjóðinni. Stjórnarskráin okkar er góð, og nóg að bæta við því sem telst ábótavant og leggja þær breytingar í þjóðar- atkvæðagreiðslu. En, nei, inn skal Huang Nubo og innganga í ESB. Allt verður falt, enda eruð þið búin að láta eins og óð með þessa kosningu og það í nafni þjóðarinnar. Það er skít- legt eðli að heilaþvo þjóðina og telja henni trú um að hún muni ráða einhverju, því að svo er ekki, og þegar hlutirnir fara að fara úr böndunum getið þið sagt: Þetta vilduð þið og kus- uð. Góð leið til að ná sínu fram og afsaka það. Það er sárt að horfa upp á hvernig farið er með þjóðina og þú, Jóhanna Sigurðardóttir, munt fara í sögubækurnar sem konan er sveik Ísland. Ég mótmæli meiri völdum til þingsins og ég mótmæli þessum hrossakaupum með stjórnarskrána, því hrossið er illa tennt. Megi landvættirnir vernda land mitt og þjóð gegn svona öflum. STEFANÍA JÓNASDÓTTIR, Sauðárkróki. Samfylking og hrossakaup Frá Stefaníu Jónasdóttur Stefanía Jónasdóttir Minningar ✝ Ásdís Eysteins-dóttir fæddist í Meðalheimi, Vestur-Húnavatns- sýslu 13. sept- ember 1927. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Mörk í Reykjavík, 21. október 2012. Foreldrar henn- ar voru Guðrún Gestsdóttir frá Björnólfsstöðum, Austur- Húnavatnssýslu og Eysteinn Björnsson frá Skárastöðum, með henni til Hafnarfjarðar. Ásdís giftist árið 1954 Ás- mundi Kristjánssyni, kennara frá Holti í Þistilfirði, f. 21. júlí 1920, d. 17. júní 2001. Áttu þau lengst af heimili í Stóragerði 19, Reykjavík. Fósturbörn Ásdísar og Ás- mundar eru Jón Tómas Ás- mundsson og Guðrún Gests- dóttir. Ásdís gekk í Flensborg- arskóla í Hafnarfirði. Eftir landspróf fór hún í Mennta- skólann í Reykjavík, lauk stúdentsprófi 1950 og útskrif- aðist frá Kennaraskólanum árið 1951. Ásdís hóf störf við Laugarnesskólann árið 1952 og kenndi þar til starfsloka. Ásdís verður jarðsungin frá Grensáskirkju í dag, 29. sept- ember 2012, kl. 13. Vestur-Húnavatns- sýslu. Ásdís var yngst átta systk- ina en þau voru; Helga, Brynhildur, Hólmfríður, Björn, Svanhildur, Gestur og Kári Eysteins- börn og er Björn Eysteinsson einn eftirlifandi. Eftir að Eysteinn og Guðrún skildu að skiptum árið 1936 bjó Ásdís með móður sinni, fyrst á Blönduósi og fluttist síðan Ásdís Eysteinsdóttir kennari er látin. Ásdís kenndi við Laug- arnesskóla allan sinn kennslu- feril en hún hóf kennslu við skólann 1952 og starfaði þar til ársins 1993. Strax sem ungur kennari hafði hún góða stjórn á fjöl- mennum bekkjum og gat leyst úr margháttuðum málum nem- enda sinna. Á fyrstu kennsluár- unum var algengt að nemendur í hverri bekkjardeild væru vel yf- ir 30 og má nærri geta að kenn- arinn hafi þurft að sinna mörg- um séreinkennum nemenda sinna. Ásdís leysti þann vanda og var sérlega traustur og far- sæll kennari. Hún kenndi alltaf eldri bekkjum barnaskólans og þar með þurfti hún að kenna nær allar námsgreinar utan íþróttir, mynd- og handmennt. Eiginmaður Ásdísar, Ásmundur Kristjánsson, var líka kennari og þegar kennurum voru boðin námskeið til skíðaiðkunar í páskaleyfum sóttu þau hjónin þessi námskeið og voru því lið- tæk við að leiðbeina nemendum sínum í árlegum skíðaferðum á vegum skólans. Ásdís fór einnig með 12 ára nemendum sínum í vorferðalög og í skólasel Laugarnesskólans, Katlagil, og hún var þar góður félagi nemenda sinna og skipu- lagði þessar vettvangsferðir af kostgæfni. Þá er ekki síður að minnast Ásdísar sem góðs félaga, við hjónin áttum þess kost að ferðast með þeim um Vestfirði og þar með til Látra í Aðalvík. Það var athyglisvert hvað Ásdís þekkti marga fugla og blóm svo að við nutum vel náttúrunnar með augun leitandi í móum að litlum blómum um leið og við sáum hreiður fuglanna. Við gistum í tjöldum og minnis- stætt er þegar við tjölduðum í grænu túni á Látrum, en næsta morgun vöknuðu Ásdís og Ás- mundur í blautum svefnpokun- um því að það hafði rignt hressilega um nóttina og í ljós kom að lítill lækur hafði flætt yfir bakka sína og undir tjaldið þeirra. Það var að sjálfsögðu hafist handa við að þurrka við- legubúnaðinn og þrátt fyrir þetta var léttleiki og góða skapið alls ráðandi eins og þeirra var vandi. Þau hjónin voru afar samrýnd og þegar Ásmundur féll frá var eins og Ásdís næði sér ekki eftir þann missi. Ég vil þakka Ásdísi fyrir afar gott samstarf þar sem hún var alltaf jafn traust og ábyrg og við hjónin þökkum allar góðu samverustundirnar hvort heldur var í kaffiboði á heimili Ásdísar eða á vettvangi. Við vottum Jóni Tómasi, Guð- rúnu og fjölskyldum þeirra inni- lega samúð. Blessuð sé minning Ásdísar. Jón Freyr Þórarinsson. Ásdís Eysteinsdóttir HINSTA KVEÐJA Dísa mín, ég kveð þig með kærleika og þökk. Ljúft og gott er heim að halda. Hvar er betra en Guði hjá? Þar er varðveitt allt, sem ann ég, öll þar rætist hjartans þrá. (Sigurbjörn Einarsson) Guðfinna (Ninna).

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.