Morgunblaðið - 29.10.2012, Síða 19

Morgunblaðið - 29.10.2012, Síða 19
okkar, en ég hef lengi verið bú- settur erlendis. Hann var góður og traustur vinur og hans verð- ur sárt saknað. Við Ingibjörg sendum Val- borgu og sonum þeirra, Kristni og Stefáni og þeirra fjölskyld- um, okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Jóhannes Einarsson. Þá minnist ég Valdimars fyrst þegar við stóðum úti á tjarnarísnum og ræddum saman um heima og geima. Við vorum bekkjarbræður, þá staddir í gagnfræðaskóla. Geng- um svo saman út í lífið eftir stúdentspróf, án þess að hafa þá tengst þeim böndum sem seinna varð. Smám saman fléttaðist líf okkar saman. Eftir langa samferð er margs góðs að minnast, foreldrahúsa hans á Ásvallagötu og heimilis þeirra Valborgar. Að ég nú ekki tali um öll bekkjarferðalögin. Valdimar leit oft inn til fjöl- skyldu minnar í Tjarnargötu, hlédrægur, kurteis og einlægur. Við fórum hvor í sína áttina eftir stúdentspróf en skiptumst á bréfum þegar hann fór til náms og dvalar í Frakklandi, Eng- landi og í Bandaríkjunum. Alltaf var sitthvað sem tengdi okkur; heppnir að eiga góða vini, eins og við töldum okkur eiga og létum okkur ekkert óviðkomandi. Síðar, þegar við höfðum eignast fjölskyldur, hittumst við hvor í annars ranni. Þar voru krufin til mergjar mál ofarlega á baugi. Af nógu var að taka. Valdimar var hugmynda- ríkur og víðsýnn og Valborg ekki síðri. Vegna þarfar fyrir vinskap fórum við ungir að taka þátt í að mynda áhugahópa sem hittust reglulega. Héldum fyrirlestra hvor yfir öðrum um byggingar, bókmenntir og stjórnmál. Ekki höfðum við áhuga á öllu hinu sama, en umburðarlyndir þegar einhver gerðist langorður um sérstök eða skrýtin málefni. Svo leystist fyrsti hópurinn upp. Sjá! Eftir nokkurt skeið var nýr hópur myndaður sem tók að ræða ferðalög og landa- fræði, skipulagsmál; eitthvað sem kannski tengdist menn- ingu. Síðasti hópur félaganna, sem hefur hist lengi, stendur nú uppi hnípinn þegar Valdimar hverfur á brott. Við berjum kannski í brestina, reynum að fá aðra í hópinn; tölum síðan um fornan vinskap, segjum frá viðburðum sem einhver okkar var ekki þátttakandi í, eða er búinn að gleyma! Skarð Valdimars verð- ur ekki fyllt. Við bekkjarsystkin, MR-49, ásamt mökum, kveðjum Valdi- mar með söknuði og þökkum vinskap og samfylgd. Við Sigríður færum Valborgu og sonum innilegustu samúðar- kveðjur. Vonum að við hittumst fyrir hinum megin, ef slíkt býðst. Eggert Ásgeirsson.  Fleiri minningargreinar um Valdimar Krist- insson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. OKTÓBER 2012 ✝ Katrín Sig-urveig Guð- geirsdóttir fæddist á Hellissandi 2. mars 1926. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Sunnuhlíð í Kópa- vogi 18. október 2012. Foreldrar henn- ar voru Svava Ein- arsdóttir, hús- móðir á Hellissandi, og Guðgeir Ögmundsson, smiður á Hellissandi. Systkini Katr- ínar eru Katrín Sigurveig Guð- geirsdóttir, f. 1. júlí 1912, d. 18. ágúst 1924, Aðalheiður Olga Guðgeirsdóttir, f. 27. september 1913, d. 24. ágúst 1995, Guðmundur Guðgeirsson, f. 24. ágúst 1915, d. 24. maí 1987, María Guðgeirsdóttir, f. Hrönn, Benedikt Árni og Katr- ín Guðleif. 2) Svanhildur Árna- dóttir, f. 22. júní 1949, gift Þorvarði Gunnari Haraldssyni og börn þeirra eru Arnar Smári, Sævar Freyr, Elínbjörg Katrín, Kristín Sigurbjörg og Haraldur Árni. 3) Þórður Árnason, f. 22. nóv. 1955, kvæntur Stefaníu Maríu Ólafs- dóttur og börn þeirra eru Árni Bergmann, Anna Jóna, Bjarki Rafn og Ásdís Sara. Fyrstu bú- skaparárin bjuggu þau í Reykjavík en voru frum- byggjar í Kópavogi á Borg- arholtsbraut 63 og bjuggu þar alla tíð. Katrín vann ýmsa til- fallandi vinnu eftir að börnin komust á legg, sem iðnverka- kona í fyrirtækjum eins og Sælgætisgerðinni Völu, Sæl- gætisgerðinni Krumma, Efna- gerðinni Val og Nið- ursuðuverksmiðjunni Ora. Katrín fluttist á Hjúkr- unarheimilið Sunnuhlíð árið 2003. Útförin fer fram frá Kópa- vogskirkju í dag, 29. október 2012, og hefst athöfnin kl. 13. 10. júní 1918, d. 19. janúar 2007, Einar Guð- geirsson, f. 12. júní 1920, d. 27. októ- ber 1993, Árni Guðgeirsson, f. 27. janúar 1923 og Hrafnkell Guð- geirsson, f. 22. júní 1928, d. 19. júní 1977. Árið 1945 giftist Katrín Árna Bergmanni Þórðarsyni, f. 8. sept. 1919 á Hellissandi, d. 17. febrúar 1985 í Reykjavík. For- eldrar hans voru Þórður Árna- son og k.h. María Guðbjörg Sigurgeirsdóttir á Hellissandi. Börn Katrínar og Árna eru: 1) Kristbjörn Árnason, f. 8. nóv. 1945, sambýliskona hans er Þóranna Eyjólfsdóttir. Börn Kristbjarnar eru Reynir, Í dag kveðjum við móður mína, tengdamóður, ömmu og lang- ömmu. Elsku mamma mín, þú kvaddir okkur að næturlagi. Ég veit að það er farsælt að fá að fara þegar maður er orðinn veikur og farinn að þrá að fá hvíldina. Pabbi tekur þér opnum örmum. Einnig systur þínar sem eflaust eru bún- ar að klæða sig upp til að taka á móti þér. Það voru þær vanar að gera þegar þær hittust. Það var mikið áfall fyrir mömmu, aðeins 58 ára gamla að missa pabba, en hún sýndi æðru- leysi þrátt fyrir áfall sem sérhver maður verður fyrir á lífsleiðinni. Þurfti hún að hugsa um stórfjöl- skylduna ein eftir það. Enda kraftmikil kona sem talaði ekki um verkin heldur framkvæmdi þau. Eftir fráfall pabba dreif hún sig í að læra á bíl og taka bílpróf, fékk ökuskírteinið á 60 ára afmælinu sínu sem var haldið upp á. Hún keypti sér bíl og það gaf henni 15 góð ár og frelsi til að fara hvert sem hana lysti. Hún hikaði ekki við að fara til Keflavíkur eða á Hellissand ef henni datt það í hug. Einnig fóru systur hennar með henni en þær voru þá allar orðnar ekkjur. Mamma kom oft í Garða- bæinn þegar hún var á rúntinum til að fá sér kaffi, en stoppaði frek- ar stutt því að hún var svo mikil reglukona að hún þurfti alltaf að vera komin heim á réttum tíma. Mamma leitaði oft til Væa, tengdasonar síns, þegar hún þurfti að fá upplýsingar um eitt- hvað sem bilaði í bílnum. Hann tók oft bílinn og þreif hann fyrir hana og kunni hún það vel að meta. Þegar við systkinin vorum að alast upp í Kópavoginum á erfið- um tímum, þá var ekki alltaf allt til sem maður óskaði sér, en mamma sá fyrir því að við fengjum allt. Hún prjónaði, saumaði og venti flíkum til að búa til eitthvað fallegt sem var tískuföt þess tíma. Við er- um alin upp við að allt var heima- tilbúið eins og slátur og bakstur. Það var alltaf eitthvað til með kaffinu, í þá daga var alltaf kvöld- kaffi. Þegar við systkinin áttum afmæli var stórfjölskyldunni boðið í afmælisveislur. Þegar við systkinin vorum að alast upp var mamma heimavinn- andi og pabbi var eina fyrirvinnan og byggði húsið við erfiðar að- stæður. Mamma var alltaf til stað- ar þegar við komum heim úr skól- anum. Síðan kom að því að hún fór á vinnumarkaðinn, hún var verka- kona fram í fingurgóma og bar höfuðið hátt og var meðvituð um það mikilvæga starf sem hún gegndi í lífinu og tók mikinn þátt í verkalýðsmálum. Mamma hugsaði alltaf vel um stórfjölskylduna sína og var stolt af barnabörnunum sínum. Hún kom oft á tíðum með pönnukökur með sér í afmæli barnanna. Þegar kom að því að mamma missti heilsuna og var alltaf veik óskaði hún eftir því að fá að fara á Sunnu- hlíð. Í Kópavogi vildi hún vera. Þar var hún í níu ár, síðustu tvö árin hrakaði henni mjög. Mamma sýndi alltaf kraftinn, hún klæddist á hverjum degi, hún lá aldrei í rúminu en labbaði fislétt um gang- ana þar til fyrir tíu dögum. Þannig var mamma. Ég þakka henni fyrir allt sem hún gaf mér út í lífið, einnig mað- urinn minn, börnin og barnabörn- in. Þakka þér elsku mamma fyrir alla góðvild þína. Þín dóttir, Svanhildur (Svana), Þorvarður og fjölskylda. Elsku amma, megi guð blessa minningu þína. Ég var mjög lán- söm að eiga þig fyrir ömmu. Elsku amma mín, nú ertu farin og veit ég að nú líður þér vel, nú ertu komin til afa og hinna góðu englanna sem passa þig. Ég á svo margs að minnast, allar yndislegu stundirn- ar okkar saman, þú varst alltaf svo góð, og gerðum við marga hluti saman. Ég man alltaf þegar þú tókst bílpróf þegar þú varst sex- tug og ég sautján ára, þá vorum við flottar saman, svo átti ég yndisleg sumur með þér, bæði bjó hjá þér og vann með þér í Ora. Vá skemmtilegar og ógleymanlegar stundir. Ég gat sagt þér mörg leyndarmál og þú mér og ég geymi þau enn hjá mér. Oft sátum við saman og töluðum um allt og þá helst um hvort við gætum ekki breytt einhverju, því að breyta fannst okkur svo skemmtilegt og hafa mamma og pabbi alltaf sagt að ég sé alveg eins og þú, alltaf að breyta, og sögðu að við ættum að setja húsgögnin á hjól þá væri þetta auðveldara fyrir okkur. Þú ert alltaf efst í huga mínum þegar ég er að breyta eða bæta og „er búin að fara með stofuna marga hringi“. Amma mín þekkti þetta. Þegar Hinrik kom inn í líf mitt tókst þú honum opnum örmum og voruð þið alltaf bestu vinir. Þegar þú varst áttræð flutti ég vestur á Flateyri og var það á af- mælisdaginn þinn, 2. mars. Mér fannst erfitt að kveðja þig þá, en þegar ég kom í bæinn kom ég allt- af til þín og alltaf varst þú glöð að sjá mig, Hinna og börnin mín. Það síðasta sem þú sagðir við mig núna í ágúst var: „Mikið áttu fal- leg börn, Ella mín, öll með svona fallega brún augu eins og þú.“ Þetta er mér ógleymanleg og fal- leg minning, elsku amma mín. Afi minn og amma mín úti’ á Bakka búa. Þau eru mér svo þæg og fín, þangað vil ég fljúga. (Höf. ók.) Takk fyrir allar yndislegu stundirnar, elsku amma mín. Þín Elínbjörg Katrín Þorvarðardóttir. Endar nú dagur, en nótt er nær, náð þinni lof ég segi, að þú hefur mér, Herra kær, hjálp veitt á þessum degi. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Elsku amma, takk fyrir allar yndislegu stundirnar. Sofðu rótt. Þín barnabörn, Árni Bergmann, Anna Jóna, Bjarki Rafn og Ásdís Sara. Ég er þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast henni Katrínu. Árið 1985 var örlagaríkt í lífi okk- ar beggja, Katrín missti Árna manninn sinn og ég kynntist Smára manninum mínum og tengdist Katrínu þar með fjöl- skylduböndum. Katrín er langamma drengjanna minna. Hún var einstaklega barngóð kona og var natin við barnabörnin og barnabarnabörnin sín og dug- leg að fylgjast með hvað þau voru að gera og hvernig þeim vegnaði. Ég fékk sjálf að njóta góð- mennsku hennar og hlýju. Það fengu synir okkar Smára líka. Ég minnist Katrínar sem sterkrar og sjálfstæðrar konu, hún dreif sig í að læra á bíl eftir að hún varð ekkja og fékk bílpróf sextug. Ég man hvað Katrín var glöð og ánægð með þann áfanga, hún naut þess svo sannarlega að geta farið hvert sem hana lysti. Hún vildi vera sjálfstæð og öðrum óháð. Katrín átti fallegt heimili á Borgarholtsbrautinni í Kópavogi. Bjó þar í litlu húsi sem hún og Árni maðurinn hennar byggðu. Eitt af því sem Katrín hafði óskaplega gaman af var að breyta til á heimilinu, færa til húsgögn og raða hlutum öðruvísi upp og jafn- vel breyta herbergjaskipan. Hún var ekkert að kalla eftir aðstoð við þetta heldur gerði það bara sjálf. Fjölskyldan hafði svolítið gaman af þessu. Það gat nú alveg verið spennandi að sjá hvernig amma væri búin að breyta þegar við kæmum næst í heimsókn. Drift og kraftur var einnig einkennandi fyrir Katrínu. Með sorg í hjarta kveð ég ynd- islega og góða konu. Kærar minn- ingar munu fylgja mér um ókomna tíð. Fyrir hönd fjölskyldu minnar votta ég öllum aðstand- endum Katrínar dýpstu samúð. Kristín H. Thorarensen. Katrín Sigurveig Guðgeirsdóttir HINSTA KVEÐJA Elsku langamma, takk fyrir allt með þér. Guð geymi þig. Langömmubörnin, Gróa Hinriksdóttir, Elín Hinriksdóttir, Þorvarður Hinriksson og Hinrik Rúnar Haraldsson.  Fleiri minningargreinar um Katrínu Sigurveigu Guð- geirsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR JÓNSDÓTTIR frá Djúpadal, Sauðármýri 3, Sauðárkróki, sem andaðist á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki fimmtudaginn 18. október verður jarðsungin frá Sauðárkrókskirkju þriðjudaginn 30. október kl. 14.00. Rögnvaldur Gíslason, Eiríkur Rögnvaldsson, Guðrún Ingólfsdóttir, Nanna Rögnvaldardóttir, Guðrún Rögnvaldardóttir, Bjarni Þór Björnsson, Sigríður K. Rögnvaldsdóttir, Þórir Már Einarsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSDÍS EYSTEINSDÓTTIR, fyrrverandi kennari, áður til heimilis að Stóragerði 19, Reykjavík, lést sunnudaginn 21. október. Jarðarförin fer fram frá Grensáskirkju í dag, mánudaginn 29. október, kl. 13.00. Fyrir hönd aðstandenda, Jón Tómas Ásmundsson, Guðrún Gestsdóttir. Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KATRÍN SIGURVEIG GUÐGEIRSDÓTTIR, Kópavogsbraut 1C, áður Borgarholtsbraut 63, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð þann 18. október. Útförin fer fram í dag, 29. október, frá Kópavogskirkju kl 13. Kristbjörn Árnason, Þóranna Eyjólfsdóttir, Svanhildur Árnadóttir, Þorvarður Gunnar Haraldsson, Þórður Árnason, Stefanía María Ólafsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru HUGRÚNAR HRAUNFJÖRÐ, Rauðalæk 42, Reykjavík, sem lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut þann 19. september sl. Sérstakar þakkir fær starfsfólk gjörgæsludeildarinnar fyrir einstaka umönnun og hlýhug. Níels Birgir Svansson, Birgir Elfar Hraunfjörð, Andri Geir Níelsson, Davíð Svanur Níelsson, Thelma María Guðnadóttir, Eiríkur Níels Níelsson, Gordana Kalambura, barnabörn og systkini hinnar látnu. Ástkær móðir mín, dóttir og systir, DAGMAR ANNA GUÐBJARTSDÓTTIR, lést 16. október síðastliðinn. Jarðsungið verður frá Fíladelfíukirkjunni, Hátúni 2, þriðjudaginn 30. október kl. 13. Bjarki Þór Tryggvason, Ester Anna Aradóttir, og systkini. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ERLINGUR DAGSSON, fv. aðalbókari, lést á Hrafnistu í Reykjavík, föstudaginn 26. október. Þór Ingi Erlingsson, Margrét Sigurðardóttir, Vigdís Erlingsdóttir, Steinar Geirdal, Kristrún Erlingsdóttir, Jón Sverrir Erlingsson, Kristín Stefánsdóttir, Kjartan Ragnar Erlingsson, Grétar Örn Erlingsson, Bryndís Anna Bjarnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.