Monitor - 04.10.2012, Page 6
Hver er Arna Jónsdóttir? Brosandi
ballerína sem elskar að kaupa föt.
Hvernig myndir þú lýsa stílnum
þínum? Hann er mjög plein og
óútpældur. Mér fi nnst gaman að
skreyta með töskum og fylgihlutum.
Ég elska gallajakka,leðurbuxur og
stóra klúta.
Hefur þú mikinn áhuga á tísku? Ég
hef gaman af því að klæða mig og
vera fín, en ég get ekki sagt ég hafi
neinn sérstakan áhuga á tísku, en
að sjálfsögðu elska ég að kaupa föt
og vera öðruvísi.
Hvar kaupir þú helst fötin þín?
Grunninn kaupi ég mest í Monki,
H&M, Urban Outfi tters og Topshop.
Svo fi nnst mér gaman að eiga einn
og einn fínan hlut úr Marc Jacobs og
Kastaníu.
Hvaða árstími fi nnst þér skemmti-
legastur hvað varðar tísku?
Sumarið. Stuttbuxur, kjólar og Ray-
ban-sólglerugu eru mitt uppáhald.
Hvað er ómissandi að að eiga í
fataskápnum fyrir haustið? Fallegt
loð, sokka með blúndu og hlaupa-
skó, myndi ég segja.
Hver hafa verið þín verstu tísku-
mistök? Ég stekk alltaf í leðurjakka
yfi r mig á leiðinni út og hef oft lent í
því að vera óvart í leðurbuxum líka,
það myndi ég segja að væri svona
algengustu mistökin dagsdaglega.
En svona það alversta myndi ég
segja að væri retro-skinku-týpan
sem ég þóttist púlla í 9. bekk.
Hver er best klædda kona í heimi?
Ég skoða lítið hvernig stjörnur
klæða sig nema þegar ég fl etti
blöðum á kaffi húsum, svo engin
ein stendur uppúr. En mér fi nnst
Andrea Röfn og Elísabet hjá Trendn-
et mjög fl ott klæddar og svo lít ég
mikið upp til eldri systur minnar,
Hafdísar Bjarkar.
Er eitthvað skemmtilegt á döf-
inni hjá þér í haust? Já, það eru
spennandi tímar framundan. Ég er
að vinna í Verzlunarskólablaðinu,
dansa á ballettsýningu og svo
hlakka ég mikið til að komast á
snjóbretti.
Hvort myndir þú frekar vilja
vera forseti eða rokkstjarna?
Rokkstjarna, bókað. Ég er ekki nógu
ákveðin og formleg í forsetaemb-
ættið. Það færi mér miklu betur
að sveifl a hárinu fram og aftur og
öskra “eru ekki allir í fíling” í stað
þess að stjórna heilu landi.
Að þessu sinni er það fegurðardísin og
sprellarinn Arna Jónsdóttir sem heim-
sækir Stílinn. Arna er á sínu þriðja ári
í Verzló en í frítíma sínum er hún ball-
erína sem fi nnst einstaklega gaman
að kaupa sér ný föt og vera öðruvísi.
Eru ekki
allir í fíling?
6 MONITOR FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2012
Lísa Hafl iðadóttir
lisa@monitor.is
stíllinn
UPPÁHALDS
LAKKASKÓR: H&M
STUTTBUXUR: URBAN OUTFITTERS
BELTI: MARKAÐUR
PEYSA: SPÚTNIK
ÚT Á LÍFIÐ
LEÐURBUXUR: URBAN OUTFITTERS
JAKKI: MANGO
LOÐ: GEYSIR
TASKA: MALAGA
SPARI
SKÓR: KAUPFÉLAGIÐ
JAKKI: URBAN OUTFITTERS
VESTI: GEYSIR
TASKA: MARC JACKOBS
HVERSDAGS
BUXUR: TOPSHOP
PEYSA: ZARA,
VESKI: MONKI
SKÓR: CONVERSE
M
yn
di
r/
St
yr
m
ir
Ká
ri
Kringlunni - Smáralind
ntc.is - erum á
s. 512 1760 - s. 512 7700
FÁST HJÁ OKKUR
HINIR SÍVINSÆLU