Monitor - 11.10.2012, Síða 3
FYRIR HÚMORISTA
Hraðfrétta-
Benni og
Hraðfrétta-
Fannar
slógu í
gegn á mbl.
is síðasta
vor með
Hraðfréttirnar
sínar og færðu sig
í framhaldinu yfi r á RÚV. Það er því
gríðarlega mikilvægt fyrir alla með
góðan húmor að muna að fylgjast
með þeim piltum á lokamínútum
Kastljóssins á fi mmtudögum.
FYRIR LESTRARHESTA
Vefsíðan eBækur,
www.ebaekur.is, er
tilvalin fyrir alla þá
sem hafa gaman af
lestri góðra bóka.
Á síðunni er hægt
að fi nna íslenskar og
erlendar rafbækur og þá
leynast þar einnig hljóð-
bækur fyrir þá sem vilja stytta sér
stundir í bílnum, í strætó eða bara
heima í stofu.
FYRIR TÓNLISTARGRÚSKARA
Margir hafa náð að smíða ótrúleg-
ustu lög heima hjá sér enda tónlist-
arforritin orðin ansi
aðgengileg í
dag. En alltaf
má á sig
blómum
bæta og
því væri
upplagt
fyrir tón-
listargrúskara
að skella sér á
fyrirlestur um Pro Tools 10-forritið
sem fram fer í Hinu húsinu á laugar-
daginn klukkan 14.00. Fyrirlesari er
hinn reyndi Kristinn Sturluson og er
miðaverð 2.500 krónur.
„Við sömdum verkið sjálf undir leiðsögn kennara en það varð til í
spunaferli á svona sex vikum. Allt efnið sem varð til á þeim tíma er
reyndar mun lengra en verkið, þetta eru í raun bara bestu brotin úr þessu
merkilega vinnuferli sem áhorfendur fá að sjá,“ segir Salóme Rannveig
Gunnarsdóttir sem ásamt bekkjarsystkinum sínum í útskriftarbekk
leikaranema úr LHÍ frumsýnir verkið Tímaskekkju annað kvöld, 12.
október. „Verkið tekur á samskiptum kynjanna þar sem við skoðum
bæði kynjahlutverk nútímans og fortíðarinnar, væntingar okkar hvers til
annars og þá fegurð og þau vonbrigði sem við upplifum þegar hlutirnir
ganga ekki sem skyldi.“
Leikhópinn í verkinu skipa allir nemendur útskriftarbekkjarins, fi mm
ungar konur og fi mm ungir menn. Þau heita Arnar Dan Kristjánsson,
Arnmundur Ernst Backman, Elma Stefanía Ágústsdóttir, Hafdís Helga
Helgadóttir, Hildur Berglind Arndal, Oddur Júlíusson, Thelma Marín
Jónsdóttir, Þorleifur Einarsson, Þór Birgisson ásamt fyrrnefndri Salóme.
Seltan af tárunum verst
Tímaskekkja er fyrsta verkefni af mörgum sem Nemendaleikhús LHÍ
setur upp í vetur. Þegar leikaranemarnir eru spurðir hvað hafi verið
skemmtilegast við vinnuferlið svarar Arnar Dan: „Nú, grínið auðvitað.
Það er svo fyndið, sjáðu til,“ við kátínu viðstaddra. Það sísta við ferlið var
hins vegar að hans sögn „seltan af þurrum tárum“, sem gefur til kynna að
ekki hafi verið átakalaust að rýna svo djúpt í samskipti kynjanna. Nú eða
þá einfaldlega að nemendur bekkjarins séu einfaldlega ekki góðir hverjir
við aðra. Blaðamaður forvitnast því um stöðuna á því hvort allir séu vinir
eða hvort samkeppnin leikaranemanna á milli spilli allri vináttu. „Þetta
er biluð samkeppni, eiginlega bara svolítið eins og í Hunger Games,“ segir
Oddur á léttum nótum. En er það þá svo að samkeppnin sé svo mikil
af því að umrætt verkefni sé svo góður gluggi fyrir nemana til að vera
uppgötvuð af leikhúsunum? „Já, að minnsta kosti í augum fl estra okkar,“
svarar Hildur Berglind. „Sum okkar ætla samt bara að verða stjórnmála-
menn þegar þau verða fullorðin og hallærisleg. Fyrir þeim er þetta ekkert
mikilvægt svo sem.“
Sem fyrr segir verður verkið frumsýnt annað kvöld en aðrar sýningar
fara fram kl. 20:00 dagana 14.-18. október. Frítt er á sýningarnar en panta
þarf miða með tölvupósti á leikhus@lhi.is.
Útskriftarbekkur leikaranema úr LHÍ frumsýnir á morgun
Tímaskekkju, spunaverk eftir nemendurna sjálfa
Það væri rosalega gaman ef ungt fólk myndi skrifa
einhver og eitthvað en ekki eitthver og einhvað...
fyrst&fremst
Vikan á
Margrét Erla
Maack
þekkir einhver
sveðjumann-
inn? mig
langar að senda
honum þakkarskeyti.
8. október kl. 9:28
Ingólfur
Þórarinsson
Hvað er betra
á sunnudags-
kvöldi en
endursýndur
þáttur af Silfur Egils og 4 daga
gamalt spaghettí með goslausu
Sinalco? 7. október kl. 23:29
MONITOR MÆLIR MEÐ...
3 FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2012 MONITOR
Halldór Eldjárn
Sat í rólegheit-
um í bíl fyrir
utan Hagkaup
í Garðabæ,
svona eins og
maður gerir. Rennir þá ekki upp
að mér svartur Range Rover
fullur af unglingsdrengjum sem
rétt náðu niður á ökufetlama,
keyrandi um á bráðabirgðaöku-
réttindum í Justin Bieber-hettu-
peysum. Þeir gerðu sér lítið fyrir
og köstuðu forláta skinkusneið
í rúðuna hjá mér og brunuðu
svo mútu-hlæjandi á brott. Nú er
mér spurn: Hvað gerði ég til að
verðskulda þessar aðfarir?
7. október kl. 00:29
Sigrún
Össurardóttir
Edda (6 ára)
lærir heima og
á að skrifa orð
sem byrja á Ó.
Hún spyr pabba sinn: “hvernig
skrifa ég ó my god?”
8. október kl. 18.26
Leiklistarskólinn eins
og Hunguleikarnir
ARNAR DAN ER MJÖG
DANNAÐUR LEIKLISTARNEMIÚTSKIFTAR-
HÓPURINN
Uppáhaldskennitala
innan leikhópsins:
Kennitalan hans Þórs
310788-2619, sjúklega
fyndin kennitala.
Uppáhaldsleikari á
Íslandi: Prófessor
Stefán Jónsson.
Uppáhaldsleikari í
útlöndum: Gellan sem
lék í Love Actually.
Uppáhaldsskyndibitinn:
Bananar, nema Þorleifur
hann hatar þá, því hann
kúgast svo mikið.
Uppáhaldsgata: Dreka-
kór, því drekar eru svo
ógeðslega svalir, hvað
þá syngjandi drekar.
Í BLAÐINU
FEITAST
Ætli hún
Sóley
eigi
Íslandsmet í
Youtube-áhorfi
á stakt mynd-
band?
4
Hildur
og
Sigríður
reka verslunina
Velvet þar sem
þær selja alls
kyns fylgihluti.
6
Íris
Mist er
fárán-
lega fl ott fi m-
leikaskvísa
sem er á leið á
Evrópumót.
Birta
Sól
kann
ráð við ýmsu og
fór hún létt með
að leysa Loka-
próf Monitor.
MONITOR@MONITOR.IS Ritstjóri: Jón Ragnar Jónsson (jonragnar@monitor.is) Framleiðslustjóri: Hilmar Gunnarsson (hilmar@monitor.is)
Blaðamenn: Einar Lövdahl Gunnlaugsson (einar@monitor.is) Lísa Hafl iðadóttir (lisa@monitor.is) Umbrot: Monitorstaðir
Auglýsingar: Auglýsingadeild Árvakurs (augl@mbl.is) Forsíða: Styrmir Kári Erwinsson (styrmirkari@mbl.is)
Myndvinnsla: Ingólfur Guðmundsson Útgefandi: Árvakur Prentun: Landsprent Sími: 569 1136
Efst í huga Monitor
Aldrei segja aldrei
Ég hef stundum velt því fyrir mér hvað maður þurfi að
vera svo maður geti skilið
eftir sig tilvitnun sem myndi lifa um
ókomna tíð og fólk myndi óspart nota við
hin ýmsu tilefni.
Á þriðjudaginn síðasta fór ég á Hanann með samstarfsfólki mínu hér á
Monitor. Það er alltaf voðalega notalegt að
kíkja eitt og eitt hádegi svona út að borða
með góðu fólki. Hittum þar einmitt Hrað-
frétta-bræðurna Fannar og Benna og var það
mikil ánægjuviðbót.
Nema hvað að á afgreiðsluborði Hanans er vitnað í kántrí-manninn Kris Kristofersson og eru orðin
hans „The heart is what matters most of all“ sett fallega
inn í ramma svo úr verður hið prýðilegasta listaverk.
Nema hvað að við fórum að spjalla um það hvað maður
þyrfti eiginlega að gera og vera í lífi nu svo maður gæti
sagt eitthvað ágætlega gáfulegt og fólk myndi hafa það
eftir þér seinna meir.
Ég er nefnilega alveg viss um að einhver Íslendingur hafi sagt fyrir
mörgum árum: „Það er hjartað sem
skiptir mestu máli,“ en enginn
hafi skrifað það niður og vitnað
í. Er hægt að vera bara heima
hjá sér við matarborðið og segja
einhverja snilld og svo myndi það
bara fréttast eða þarf maður að
vera frægur leikari eða heimspek-
ingur?
Nei, ég er bara að pæla í þessu. Sér-staklega eftir að ég fór á American
Style um daginn og sá þar stóra tilvitnun í Justin
Bieber. Ekki misskilja mig, ég fíla Bieberinn, en ég held
að hann viti það best sjálfur að hann er ekki sá eini sem
hefur sagt „Never Say Never“ þó svo að lagið sé fínt hjá
honum og Jaden Smith.
jrj
8
15
*athugið: þessi pistill er bara gerður til gamans,
skrifaður með tóma gleði í hjarta.