Monitor - 18.10.2012, Blaðsíða 4

Monitor - 18.10.2012, Blaðsíða 4
4 MONITOR FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2012 Agnes Björt Andradóttir er virkilega spennt fyrir kom- andi Airwaves-hátíð en þar mun hún koma fram ásamt piltunum þremur sem ásamt Agnesi skipa hljómsveitina Sykur Dansar í strætó Þú vinnur í Fatamarkaðnum við Hlemm. Eru allur sviðs-klæðnaðurinn þinn þaðan? Mikið af honum alla vega, það koma oft alls konar skrýtin og fl ippuð föt til mín sem virka vel á sviði. Þú ert þekkt fyrir villta og rokkaða framkomu. Væri þetta hundleiðinlegt ef þú stæðir bara kyrr með lokuð augun? Þetta væri náttúrulega ómögulegt ef ég stæði kyrr með lokuð augun, þá gæti ég ekki sungið eða tjáð mig eins og ég vildi. Ég á erfi tt með að hreyfa mig ekki þegar ég heyri tónlist, stundum til dæmis gríp ég sjálfa mig við að dansa í strætó við lag í útvarpinu en þegar ég er að spila þá margfaldast þessi tilfi nning og ég næ fullkominni útrás. Tónlist er ekki bara eitthvað sem þú heyrir, heldur líka hvernig þú skynjar orkuna frá tónlistinni. Þið hafi ð spilað hér og þar á íslenskri og erlendri grundu. Hvar var besta giggið og hvar var það sísta? Besta giggið að mínu mati var á Nasa á laugardeginum á Airwaves 2011. Það voru allir í svo miklu stuði og góðu skapi. Það var eins og það myndaðist rafmagn á milli okkar og fólks úti í sal, það var svo gott orkufl æði. Einu sinni spiluðum við á bar í Kefl avík, og það var svo hryllilegt gigg að staðurinn brann. Er einhver munur á því að spila erlendis og hérlendis? Mér fi nnst eins og að margir útlendingar séu oft opnari fyrir að hlusta á nýja tónlist og fylgjast með þótt þeir kunna ekki textann eða þekkja ekki laglínuna en þegar Íslendingar komast í fíling þá verður ekki aftur snúið og þeir sleppa sér frekar en annað fólk. Það er fallegt að sjá. Eru Kristján og Halldór alltaf með mörg járn í eldinum? Já, þeir þurfa að hamra járnið meðan það er heitt. Hvað er framundan hjá Sykri? Airwaves og svo ætlum við að kíkja til Noregs og spila á nokkrum tónleikum þar. Við erum líka að vinna að nýju efni sem er allt rosalega spennandi. Þetta er þín önnur hátíð en strákarnir hafa spilað oftar. Hver er snilldin við Airwaves? Snilldin við Airwaves er stemningin sem myndast við að fara saman, með fullt af skemmtilegu fólki, á 5 daga tónlistarhátíð. Mér fi nnst líka spenningurinn rosalega skemmtilegur. Hvað ætlar þú að sjá á Airwaves? Allt sem ég kemst yfi r að sjá. Nú er blaðamaður ekki að reyna að vera fyndinn en heyrst hefur úr nokkrum áttum að til sé fólk sem haldi að textinn í Reykjavík sé „Reykjavík þú rekur við.“ Er það áfall fyrir ykkur sem hljómsveit? Ég hef heyrt margar útgáfur af textanum í Reykjavík. Reykjavík þú rekur við, rekur mig, drepur mig, leikur mig, lepur mig og svo framvegis en við hlæjum bara að þessu öllu saman og leiðréttum fólk vinsamlega ef þess er óskað. AGNES BJÖRT Fyrstu sex: 230691 Uppáhaldshljóðfæri: Öll hljóðfæri. Það sem skiptir máli er hvernig fl ytjandinn glæðir það lífi . Sími: Huawei, ég kalla hann „who are we.“ Þetta er gamli síminn minn en ég er byrjuð að nota hann aftur eftir að iphone-inum mínum var stolið. Lag á heilanum núna: Ebony and Ivory. Ég var að horfa á fóstbræður í gær. Tónlist er: Besta útrásin Rafmagnað stuðkvöld Mynd/Ómar

x

Monitor

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.