Morgunblaðið - 03.11.2012, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2012
Ragnar Arnalds, áður fjár-málaráðherra, vitnar í orð
Draghis seðlabankastjóra: „Ef við
viljum endurvekja traust á evru-
svæðinu, verða ríki að framselja
fullveldi sitt til samevrópskra
stofnana.“
Og Ragnar held-ur áfram:
„Eins og sjá má af
þessum orðum eru
forystumenn ESB
ekki lengur að
fara í launkofa með þá grundvall-
arstaðreynd að ESB-aðildin feli í
sér framsal fullveldis aðildarríkj-
anna. En hér á Íslandi er þessu
ávallt þverneitað af ESB-sinnum
og talað um ESB-aðild sem „sam-
starf og samvinnu fullvalda
ríkja“.
Furðulegast við þá miklubreytingu sem nú er að eiga
sér stað í ESB er þó ekki aðeins
hröð samrunaþróun og sífellt
meira framsal fullveldisréttinda á
æ fleiri sviðum, heldur hitt að nú
er opinskátt stefnt að því að
þröngva að lýðræði og sameig-
inlegum ákvörðunarrétti fulltrúa
aðildarríkjanna með því að gefa
sérstökum kommissar valdheim-
ildir sem hvorki ESB-þingið né
aðrir kommissarar geta hnekkt
en þetta er einmitt kjarnapunkt-
urinn í tillögum fjármálaráðherra
Þýskalands.
Mikið hefur verið rætt um lýð-ræðishallann í ESB. Þessar
hugmyndir ganga þó langtum
lengra í misþyrmingu lýðræð-
islegra vinnubragða en allt annað
sem gerst hefur innan ESB. Er
þetta það sem Íslendingar vilja?
Ekki þarf að efast um að ákaf-
asta ESB-liðið í Samfylkingunni
tekur þessari þróun fagnandi. En
ótrúlegt er að fólk í öðrum
stjórnmálaflokkum sé hrifið af
því að dragast inn í hið nýja stór-
ríki Evrópu sem nú er að þróast
með þessum hætti.“
Ragnar Arnalds
Lýgur Draghi líka?
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 2.11., kl. 18.00
Reykjavík 1 skýjað
Bolungarvík -1 snjókoma
Akureyri -1 snjókoma
Kirkjubæjarkl. 2 skýjað
Vestmannaeyjar 1 skýjað
Nuuk 2 skýjað
Þórshöfn 6 léttskýjað
Ósló 5 skýjað
Kaupmannahöfn 7 skýjað
Stokkhólmur 7 heiðskírt
Helsinki 7 skýjað
Lúxemborg 6 skúrir
Brussel 7 skýjað
Dublin 6 skýjað
Glasgow 7 skýjað
London 8 léttskýjað
París 7 skýjað
Amsterdam 7 skúrir
Hamborg 8 skýjað
Berlín 10 skýjað
Vín 8 skýjað
Moskva 2 alskýjað
Algarve 17 skúrir
Madríd 16 léttskýjað
Barcelona 20 léttskýjað
Mallorca 20 léttskýjað
Róm 17 léttskýjað
Aþena 22 heiðskírt
Winnipeg -2 alskýjað
Montreal 3 súld
New York 10 skýjað
Chicago 6 léttskýjað
Orlando 21 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
3. nóvember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 9:20 17:04
ÍSAFJÖRÐUR 9:38 16:55
SIGLUFJÖRÐUR 9:22 16:38
DJÚPIVOGUR 8:52 16:30
89 milljóna króna tap verður á rekstri
Reykjavíkurborgar í ár miðað við út-
komuspá en í fjárhagsáætlun Reykja-
víkurborgar fyrir næsta ár er gert
ráð fyrir rekstrarafgangi upp á 329
milljónir. Á sama tíma hækka skatt-
tekjur borgarinnar töluvert.
„Þetta sýnir að kerfið og umfang
borgarinnar hefur aukist allt of mik-
ið. Það hefði átt að innheimta lægri
skatta og hafa kerfið umfangsminna.
Það kallast ekki afrek að halda
rekstrinum í horfinu með svona stór-
auknar skatttekjur,“ segir Hanna
Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálf-
stæðisflokksins í borgarstjórn, og
tekur fram að hagræðingaraðgerðir
meirihlutans innan stjórnsýslunnar
séu ekki að skila árangri. „Kjara-
samningar auka vissulega launa-
kostnað borgarinnar en það skýrir
langt í frá þá aukningu í launakostn-
aði sem verið hefur. Við hefðum viljað
sjá reikning borgarinnar lægri, um-
fang stjórnsýslu minna og álögur
lægri svo almenningur hefði meira
umleikis,“ segir Hanna Birna.
Dagur B. Eggertsson, oddviti
Samfylkingar í borgarstjórn, gefur
lítið fyrir umræðu um bólgnun
stjórnsýslunnar. „Stórir kjarasamn-
ingar skýra aukinn launakostnað auk
lífeyrisgreiðslna sem gjaldfærðar eru
árlega þó þær komi til greiðslu á
mörgum áratugum. Einnig tók borg-
in við málefnum fatlaðra árið 2011,“
segir Dagur og bendir á að skattar á
íbúðarhúsnæði hafi verið lækkaðir.
„Það hefur orðið viðsnúningur í
rekstri borgarinnar. Við erum með sí-
vaxandi kostnað í velferðarmálum,
m.a. í tengslum við afleiðingar hruns-
ins,“ segir Dagur en tekur fram að
áfram þurfi að halda vel á spöðunum.
heimirs@mbl.is
Deila um árangur í borginni
Dagur B.
Eggertsson
Hanna Birna
Kristjánsdóttir
Viltu selja eða
kaupa fyrirtæki?
Firma Consulting, Þingaseli 10, 109 Reykjavík,
GSM: (+354) 820 8800 og (+354) 896 6665,
Fax: (354) 557 7766, Veffang: firmaconsulting.is
Magnús Hreggviðsson viðskiptafræðingur og lög-
giltur fyrirtækja-, fasteigna- og skipasali. Magnús er
með áratuga reynslu af endurskoðunarstörfum, sem
rekstrarráðgjafi, fyrirtækja- og fasteignasali, útgef-
andi, fasteignarekandi, „land-developer“ í Smára-
hvammi og starfandi stjórnarformaður í nokkrum
fyrirtækjum. Er aðalráðgjafi hjá Firma Consulting.
(magnus@firmaconsulting.is)
Firma Consulting (www.firmaconsulting.is) er
ráðgjafafyrirtæki sem sérhæfir sig í ráðgjöf við
kaup og sölu millistórra og stórra fyrirtækja.
berjabomba með rjóma
Baksturinn byrjar á gottimatinn.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
SÍ
A
Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/