Morgunblaðið - 03.11.2012, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 03.11.2012, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2012 M AT VÆLALANDIÐ ÍSLAND FJÁRSJÓÐUR FRAMTÍÐAR M AT VÆLALANDIÐ ÍSL A N D FJÁRSJÓ ÐUR FR AMTÍÐAR HÓTEL SÖGU ÞRIÐJUDAGINN 6. NÓVEMBER KL. 12:30-16:00 Aðgangur er ókeypis Skráning á vefnum si.is. Staðsetning: Hótel Saga, 2. hæð, salurinn Katla. RÁÐSTEFNA UM MATVÆLA- FRAMLEIÐSLU Á ÍSLANDI Kl. 12:30 Skráning og hádegishressing Hvernig framleiðum við meiri og betri mat? Daði Már Kristófersson, auðlindahagfræðingur Nýsköpun og aukin verðmæti Aukin verðmætasköpun í sjávarútvegi – Pétur Hafsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis Íslensk jarðrækt – nýir möguleikar – Finnbogi Magnússon, landbúnaðartæknifræðingur Markaðssetning og vörumerkjastjórnun í landbúnaði - Gunnlaugur Karlsson, framkvæmdastjóri SFG Gróska í smáframleiðslu matvæla - Sigrún Elsa Smáradóttir, fagstjóri hjá Matís Íslenskur matur, ferðaþjónusta og útflutningur Ísland sem vörumerki – skyr.is – Guðný Steinsdóttir, markaðsstjóri MS Matarmenning og ferðaþjónusta – Jón Baldur Þorbjörnsson, Ísafold travel Að metta milljón ferðamenn – Friðgeir Ingi Eiríksson, Hótel Holt/Viðey Íslensk matarmenning á alþjóðavettvangi - Guðný Káradóttir, markaðsstjóri hjá Íslandsstofu Eftir erindin verða pallborðsumræður þar sem m.a. Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvega- og nýsköpunar- ráðherra, tekur þátt. Dagskrá: Helgi Bjarnason helgi@mbl.is RARIK hefur lokið við að leggja 35 kílómetra af dreifikerfi sínu í Mý- vatnssveit í jarðstreng. Ákvörðun um framkvæmdina var tekin eftir að loft- línan fór illa í ísingarveðri í septem- ber. Eftir að línan eyðilagðist var straumi komið á bæi sveitarinnar með streng sem lagður var til bráðabirgða ofanjarðar. Ákveðið var að endurnýja ekki loftlínuna enda var á dagskrá RARIK að endurnýja hana með jarð- streng á næstu átta árum. Óveðrið flýtti þessari áætlun. Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri RARIK, segir að línukerfið í Mývatnssveit sé yfir fimmtíu ára gamalt. Það hafi verið byggt á höndum og ekki allsstaðar hægt að koma tækjum að til viðgerða. Samstarf tókst við sveitarfélagið, landeigendur og ýmsar stofnanir um að koma línunni í jörð og tókst það á tiltölulega stuttum tíma. Jarðstreng- urinn var víðast plægður niður við vegi. Búið er að tengja alla bæi á þess- ari leið. Kostnaðurinn 120 milljónir Áætlað er að framkvæmdin hafi kostað um 120 milljónir kr. Á næsta ári verður 15 kílómetra löng lína lögð í jörðu, það er lína sem minna bilaði í ísingarveðrinu. Að því loknu verður búið að endurnýja nán- ast allt dreifikerfið í Mývatnssveit. Kópaskerslína sem er á vegum Landsnets fór einnig illa í óveðrinu. Viðgerð á henni lauk í síðustu viku. RARIK vinnur á hverju ári að end- urnýjun dreifikerfis síns. Teknir eru fyrir um 200 kílómetrar á ári. Allar línur eru lagðar í jarðstrengjum enda segir Tryggvi Þór að ódýrara sé orðið að leggja línur á lágri spennu í jörðu en lofti. Elstu línur RARIK eru frá því fyrir 1950 og er mest áhersla lögð á end- urnýjun elstu línanna því lokið er að mestu þeim línum sem mest biluðu eða höfðu ekki næga flutningsgetu. Kerfi RARIK er um 8 þúsund kíló- metrar að lengd og er um helmingur þess enn í loftlínum. Segir Tryggvi Þór að kostnaður við endurnýjun þess sem eftir er sé áætlaður 23 milljarðar króna og því þurfi að vinna þetta á mörgum árum. Rarik leggur 35 km jarðstreng  Verkinu lýkur á næsta ári Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Viðgerð Víða þurfti að gera við lín- ur eftir ísingarveðrið í september. Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Tæpur helmingur, eða 47,8% allra félagsmanna í stéttarfélögunum Efl- ingu, Hlíf í Hafnarfirði og Verka- lýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur og nágrennis, segist hafa mjög mikl- ar eða frekar miklar áhyggjur af fjárhagslegri stöðu sinni. Þar af segjast tæp 19% hafa mjög miklar áhyggjur af fjárhagsstöðu sinni. Að- eins 9,2% segjast á hinn bóginn eng- ar áhyggjur hafa og hefur sá hópur stækkað lítillega frá sama tíma í fyrra. Þessar upplýsingar koma fram í viðamikilli launakönnun sem Capa- cent Gallup gerði fyrir Flóafélögin þrjú en félagsmenn þeirra telja tugi þúsunda launþega á höfuðborgar- svæðinu og á Reykjanesi. Erfiðlega gekk að ná til erlendu starfsmannanna Í könnuninni var einkum spurt um vinnutíma og laun en einnig var leit- að upplýsinga um fjárhagslega stöðu félagsmanna o.fl. Félagsmönnum sem eru af erlendu bergi brotnir hef- ur fjölgað verulega á seinustu árum og að sögn Hörpu Ólafsdóttur, for- stöðumanns kjaramálasviðs hjá Efl- ingu, voru fengnir pólsku- og ensku- mælandi spyrlar til að ná til erlendra ríkisborgara auk þess sem þeim gafst kostur á að svara á pólsku og ensku. Hún segir að það hafi samt gengið mjög erfiðlega að ná til er- lenda hópsins. Þeir virtust í mörgum tilvikum hafa breytt um heimilisfang og voru bréfin því endursend í mörg- um tilvikum. Af þeim sem svöruðu voru 78% Íslendingar, 14% Pólverjar og 8% af öðru þjóðerni að sögn Hörpu. Könnunin sýnir að sá hópur sem segist hafa mjög miklar fjárhags- áhyggjur hefur minnkað lítið eitt frá í fyrra eða úr 19,2% allra fé- lagsmanna haustið 2011 í 18,6% nú. Á hinn bóginn hefur fjölgað í hópi þeirra sem segjast hafa frekar mikl- ar áhyggjur af fjárhagslegri stöðu sinni. Þeir voru 27,2% í sambærilegri könnun fyrir ári en teljast núna vera 29,2% þeirra sem afstöðu tóku. Konur hafa til muna meiri fjár- hagsáhyggjur en karlar. Þannig sögðust 52% kvenna í könnuninni hafa mjög miklar eða frekar miklar áhyggjur af fjárhagslegri stöðu sinni en 43% karla lýstu þessum áhyggj- um sínum í könnuninni. Ef svörin eru greind eftir starfs- hópum kemur einnig mikill munur fram á hversu miklar fjárhags- áhyggjur félagsmenn í þessum stétt- arfélögum hafa. Mestar mælast áhyggjurnar meðal leiðbeinenda en 65% þeirra segjast hafa mjög miklar eða frekar miklar áhyggjur af fjár- hagslegri stöðu sinni. Bílstjórar og tækjamenn koma næstir í röðinni því 60% þeirra segjast hafa mjög eða frekar miklar áhyggjur af fjárhags- stöðunni og 57% fólks í umönnunar- störfum lýstu sömu áhyggjum í könnuninni. Duga ekki fyrir framfærslu Stærsta ástæða þess að fólk hefur áhyggjur af fjárhagslegri stöðu sinni er lág laun, sem duga ekki fyrir framfærslu. 58,2% tilgreindu þessa ástæðu en 26,8% sögðu áhyggjurnar stafa af hækkandi verðlagi og verð- bólgu. Fleiri leita aðstoðar ættingja og vina vegna fjárhagserfiðleika Ríflega fjórðungur félagsmanna hefur leitað sér aðstoðar vegna fjár- hagslegrar stöðu sinna sem er aðeins fækkun frá því í fyrra. Þá eru fleiri nú en í fyrra sem leita sér aðstoðar hjá ættingjum og vinum og er hlut- fallið nú 13,8%. Þeim sem leituðu sér aðstoðar hjá sínum viðskiptabanka hefur fækkað frá því í fyrra eða úr 15% í 11,3%. Fram kom í Morgunblaðinu í gær að skv. könnuninni hefur kynbund- inn launamunur aukist meðal laun- þega í þessum stéttarfélögum. Hann mælist nú 19% en mældist 15,8% í samskonar könnun fyrir ári. Markmið könnunarinnar var að kanna kjör og viðhorf félagsmanna Eflingar, Hlífar og VSFK. Um var að ræða bæði síma- og netkönnun, sem gerð var 5. september til 15. október meðal 3.300 félagsmanna. Í endanlegu úrtaki voru 2.395 en svar- endur voru alls 1.183 og svarhlutfall- ið því aðeins 49,4%. 47,8% hafa miklar eða frek- ar miklar fjárhagsáhyggjur  Konur með meiri fjárhagsáhyggjur en karlar  Leiðbeinendur skera sig úr Áhyggjur af fjárhagslegri stöðu Hver er helsta ástæða þess að þú hefur miklar áhyggjur af fjárhagslegri stöðu þinni? Lág laun/launin duga ekki fyrirframfærslu Heimild: Capacent Gallup 0% 10% 20% 30% 40% 50% 60% 58.2% 26,8% 18,8% 8,9% 6,7% 6,6% 3,9% 3,7% 13,7% Hækkandi verðlag/ verðbólga Skuldir/háar afborganir aflánum Atvinnuleysi Lágar bætur/bætur duga ekki Atvinnuóöryggi/mögu- leguratvinnumissir Minni vinna/launa eða vinnutímaskerðing Þjóðfélagsástandið almennt Annað Þegar framboðsfresti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík lauk klukkan 16 í gær höfðu 19 framboð borist. Prófkjörið fer fram laugardag- inn 24. nóv- ember nk. Eftirtalin framboð höfðu bor- ist í gær: Áslaug María Friðriksdóttir, borgarfulltrúi, Birgir Ármannsson, alþingismaður, Birgir Örn Stein- grímsson, framkvæmdastjóri, Brynjar Níelsson, hæstarétt- arlögmaður, Elí Úlfarsson, flug- nemi, Elínbjörg Magnúsdóttir, verkakona, Guðjón Sigurbjartsson, framkvæmdastjóri, Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður, Gunnar Kristinn Þórðarson, stuðnings- fulltrúi, Hafsteinn Númason, leigubílstjóri, Hanna Birna Krist- jánsdóttir, borgarfulltrúi, Illugi Gunnarsson, alþingismaður, Ingi- björg Óðinsdóttir, stjórn- unarráðgjafi, Jakob F. Ásgeirsson, rithöfundur og útgefandi, Pétur H. Blöndal, alþingismaður, Sigríð- ur Ásthildur Andersen, héraðs- dómslögmaður, Sigurður Sigurð- arson, rekstrarráðgjafi, Teitur Björn Einarsson, lögmaður, Þór- halla Arnardóttir, framhaldsskóla- kennari. Nítján bjóða sig fram í Reykjavík  Prófkjör verður 24. nóvember
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.