Morgunblaðið - 03.11.2012, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2012
Hilmar Foss, löggiltur
skjalaþýðandi og dóm-
túlkur, andaðist á
Droplaugarstöðum 30.
október síðastliðinn, 92
ára að aldri.
Hilmar fæddist í
Brighton í Englandi
hinn 28. febrúar 1920,
sonur Magnúsar
Scheving Thor-
steinsson, fram-
kvæmdastjóra í
Reykjavík, og Elísabet-
ar Láru Kristjáns-
dóttur Foss, kaupkonu í Reykjavík.
Hilmar fór til náms í Englandi að
loknu námi í Verzlunarskóla Íslands.
Hann nam við Acton Technical,
Elmhurst College í London 1938-39
og svo í City Literary Institute í
London 1959.
Hilmar bjó í London
á stríðsárunum og var
ritari Anglo-Icelandic
Joint Standing Com-
mittee (Ministry of
Economic Warfare)
1940-41 og sendiráðs-
ritari við sendiráð Ís-
lands í London 1941-
42.
Hann varð löggiltur
skjalaþýðandi og dóm-
túlkur í Reykjavík
1947 og starfaði við
það þar til í fyrra.
Hann gegndi fjölda trúnaðar- og fé-
lagsstarfa um ævina.
Kona Hilmars var Guðrún G. Foss
(f. 1916, d. 2007). Börn þeirra eru
Hilmar Friðrik og Elísabet Guðlaug.
Útför Hilmars heitins fer fram í
kyrrþey að hans ósk.
Andlát
Hilmar Foss
Frummælendur:
Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA
Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands og formaður SAF
Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka og formaður SFF
Magnús Þór Ásmundsson, forstjóri Alcoa á Íslandi og formaður Samáls
Margrét Kristmannsdóttir, framkvæmdastjóri Pfaff og formaður SVÞ
Pétur Hafsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis hf. Grindavík
Svana Helen Björnsdóttir, forstjóri Stika og formaður SI
Vala Valtýsdóttir, sviðsstjóri skatta- og lögfræðisviðs Deloitte á Íslandi
Samantekt:
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA
Fundarstjóri:
Vilmundur Jósefsson, formaður SA
Skattstofnar atvinnulífsins
RÆKTUN EÐA RÁNYRKJA?
Opinn fundur SA í Hörpu – Silfurbergi, föstudaginn 9. nóvember kl. 8.30–10.00
SKRÁNING Á WWW.SA.IS
Þátttakendur fá nýtt rit SA um skattamál atvinnulífsins sem kemur út sama dag.
Boðið verður upp á kraftmikið kaffi og morgunhressingu frá kl. 8.00.
www.forlagid.is
Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði
í gær kröfu verjanda Gunnars And-
ersens, fyrrverandi forstjóra Fjár-
málaeftirlitsins, um að ákæruvaldið
afli gagna um viðskipti Bogmanns-
ins ehf. og Landsbankans í júní
2003.
Segir í úrskurði héraðsdóms að
ekki sé augljóst að gögnin, sem
Gunnar vildi að ákæruvaldið aflaði,
séu nauðsynleg fyrir málflutning
og því sé kröfunni hafnað.
Eigandi Bogmannsins var Guð-
laugur Þór Þórðarson alþing-
ismaður en Gunnar er ákærður fyr-
ir að hafa haft frumkvæði að því að
koma upplýsingum um kaup Lands-
bankans á Bogmanninum til DV.
Guðjón Ólafur Jónsson, verjandi
Gunnars, tilkynnti í gær að þessi
niðurstaða héraðsdóms yrði kærð
til Hæstaréttar. Búast má við niður-
stöðu frá Hæstarétti í næstu viku.
Héraðsdómur hafn-
aði kröfu Gunnars
Vilborg Arna Gissurardóttir hóf
leiðangur sinn á Suðurpólinn í
gær frá anddyri kvennadeildar
Landspítalans. Leiðangurinn er
farinn í þágu Lífs, styrktarfélags
sem hefur það markmið að styðja
konur og fjölskyldur þeirra á
kvennadeildinni. Fjölmargir
kvöddu Vilborgu og árnuðu henni
heilla, þar á meðal Steingrímur J.
Sigfússon starfandi forsætisráð-
herra.
Vilborg Arna sem er 32 ára,
frá Reykjavík, verður ein í för á
Suðurpólinn og hefur undirbúið
þessa för sína um árabil. Ef henni
tekst þetta ætlunarverk sitt verð-
ur hún fyrsta íslenska konan sem
nær þessu metnaðarfulla mark-
miði.
Leiðangur Vilborgar á Suður-
pólinn ber heitið Lífsspor. Göngu-
leiðin er 1.140 km og má búast
við krefjandi veðurfari, miklum
mótvindi, erfiðu skíðafæri og
háum rifsköflum. Áætlaðir
göngudagar eru 50 talsins en til
þess að ná þeim þarf Vilborg að
ganga að meðaltali 22 km á dag.
Nánar má lesa um ferð Vil-
borgar á heimasíðu hennar:www-
.lifsspor.is
Vilborg Arna Gissurardóttir hóf leiðangur sinn á Suðurpólinn í gær en hennar bíður 1.140 kílómetra ganga í erfiðu veðurfari
Fyrsta
Lífssporið
stigið í gær
Morgunblaðið/Kristinn