Morgunblaðið - 03.11.2012, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 03.11.2012, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2012 BAKSVIÐ Skúli Hansen skulih@mbl.is Matarkarfa Alþýðusambands Ís- lands hefur reynst ódýrust í mat- vöruverslunum Bónuss í þremur af fjórum síðustu könnunum, hinsvegar hefur hún tvisvar sinnum reynst dýrust í Nóatúni og sömuleiðis tvisv- ar sinnum í Samkaup-Úrval. Þá voru Bónus og Krónan ávallt á meðal þeirra þriggju ódýrustu í fyrrnefnd- um könnunum. Síðastliðinn laugardag kannaði verðlagseftirlit ASÍ verð í lágverðs- verslunum og stórmörkuðum á höfuðborgarsvæðinu en niðurstöður þeirrar könnunar voru birtar í fyrra- dag. Samkvæmt könnuninni var matarkarfan ódýrust í Bónus en dýr- ust í Nóatúni, en 22% verðmunur var á matarkörfunni í verslununum tveimur. Hinsvegar munaði ekki nema 2% á matarkörfunni í Bónus og matarkörfunni í versluninni Iceland, en matarkarfan mældist næstódýr- ust þar. Tvær mismunandi aðferðir Að sögn Ólafs Darra Andrasonar, hagfræðings hjá ASÍ, kannar ASÍ annars vegar hvar matarkarfan er ódýrust og hins vegar hvaða verslun er oftast með lægsta verðið. Iceland var ódýrust í tveim könnunum í röð og var þá oftast með lægsta verðið. Könnunin nú fylgir þar á eftir. Þegar matarkörfur eru bornar sam- an er hins vegar um að ræða heildar- verð á öllum vörum. Segir Ólafur Darri þetta tvennt því ekki alveg sambærilegt. Þá er matarkarfan í verðkönnun- um ASÍ ekki ávallt sú sama. Sem dæmi má nefna að í síðustu könnun samanstóð karfan af 48 almennum neysluvörum til heimilisins, í könn- uninni sem gerð var í apríl síðast- liðnum voru vörurnar 53 talsins, þá voru þær 58 talsins í könnuninni sem gerð var í nóvember 2011 og 33 tals- ins í þeirri sem framkvæmd var í ágúst sama ár. Í könnununum er skráð hilluverð vöru eða það verð sem neytandinn hefur upplýsingar um inni í viðkom- andi verslun að honum beri að greiða fyrir vöruna, þá er skráð afsláttar- verð í þeim tilfellum þegar skýrt er gefið til kynna að veittur sé afsláttur af merktu verði við kassa. Í einni af hinum fjórum könnunum sem hér er fjallað um, þeirri sem gerð var 29. ágúst 2011, var auk ofangreinds skoðaður ódýrasti valkostur af ákveðinni vöru, til dæmis lægsta kílóverðið af hveiti eða ákveðið vöru- merki. Þá er einnig mismunandi eftir verðkönnunum hversu margar versl- anir eru heimsóttar og sömuleiðis hvort kannanirnar eru einungis framkvæmdar á höfuðborgarsvæð- inu eða á landinu öllu. Samkvæmt upplýsingum frá ASÍ hefur að undanförnu fjölgað þeim matvöruverslunum sem neita að taka þátt í verðkönnunum sam- bandsins. Þannig neituðu verslanirn- ar Kostur Dalvegi, Samkaup-Úrval og Víðir þátttöku í síðustu könnun. Ekki náðist í forsvarsmenn Bón- uss vegna vinnslu fréttarinnar. Matarkarfan oftast ódýrust í Bónus  Ekki eru alltaf sömu vörurnar né sami vörufjöldinn í matarkörfum Alþýðusambands Íslands  Þeim matvöruverslunum fjölgar sem neita að taka þátt í verðkönnunum á vegum sambandsins Verðmunur milli verslana 25.000 20.000 15.000 10.000 5.000 0 Heimild: Alþýðusamband Íslands. Matarkarfa 29. ágúst 2011 Matarkarfa 8. nóvember 2011 Matarkarfa 23. apríl 2012 Matarkarfa 27. okt. 2012 1 2 3 4 5 6 7 8 1 2 3 4 5 6 7 8 1 2 3 4 5 6 7 1 2 3 4 5 6 7 10 .1 03 10 .1 29 10 .2 82 10 .5 94 10 .9 16 12 .1 36 12 .2 68 12 .9 12 16 .4 69 16 .6 43 17 .4 75 17 .6 44 18 .3 43 19 .0 56 19 .3 55 19 .6 22 19 .8 65 21 .4 83 21 .6 67 22 .1 0 5 23 .5 46 24 .0 42 24 .0 60 16 .7 91 17 .1 54 18 .0 59 18 .6 83 19 .5 97 19 .6 47 20 .5 23 Krónan Bónus Víðir Nettó Fjarðarkaup Samkaup-Úrval Hagkaup Nóatún Iceland Rétt er að taka það fram að hvorki er um að ræða alveg sömu vörutegundir né alveg sama fjölda vörutegunda í öllum könnunum. Myndin er því ekki lýsandi fyrir verðlagsþróun á matarkörfunni en hún sýnir hinsvegar verðlagsmun á milli mismunandi verslana. Morgunblaðið/Árni Sæberg Matvöruverslun Ekki er sama hvar verslað er enda getur talsverður verð- munur verið á matarkörfunni í mismunandi matvöruverslunum. „Mér sýnist það vera innan skekkjumarka. Tvö prósent, það er nú ekki mikið,“ segir Jóhann- es Jónsson, kaupmaður í Ice- land. Að sögn Jóhannesar eru Bónus-verslanirnar að elta Ice- land hvað lágt vöruverð varðar en í verðkönnun ASÍ, frá því í ágúst síðastliðnum, mældist matvöruverslunin Iceland oftast með lægsta verðið. „Ég held að það sé blaðamannamál að skoða það hvað hefur áunnist með til- komu Iceland,“ segir Jóhannes. Aðspurður segist hann vissu- lega vera sáttur með nið- urstöður könnunarinnar en hann bendir þó á að framkvæmd hennar hefði mátt vera betri. „Í þessari könnun voru vörur sem var tekið fram að væru ekki til,“ segir Jóhannes og bendir á að þá hafi verðlagsfulltrúar ASÍ ekki fundið vörurnar en samt ekki leitað aðstoðar. Illa staðið að könnuninni Að sögn Kristins Skúlasonar, framkvæmdastjóra Krónunnar, er hann mjög óánægður með hvernig staðið var að síðustu verðkönnun ASÍ en hann segir Krónuna hafa sett fram kröfu- lista þar sem gerðar voru at- hugasemdir við hversu illa var staðið að könnuninni. „Það var fjöldi lína, ætli það hafi ekki ver- ið 18 til 20 vörur teknar. Við höfum ekki fengið nein svör frá ASÍ út af þessari verðkönnun,“ segir Kristinn og bætir við: „Þær eru orðnar svo villandi þessar verðkannanir og við hvetjum náttúrlega viðskiptavini okkar til þess að gera eigin verðkann- anir.“ Þá segir hann að þróunin sé sú að margar verslanir séu farnar að hafna þessum verðkönnunum þar sem almennt sé illa staðið að þeim. „Það er ekki nógu margt fagfólk sem veit hvað það er að bera saman epli og epli í þessu og þess vegna verða nið- urstöðurnar svolítið villandi,“ segir Kristinn og bendir á að eðlilegast væri að taka vöru á móti vöru í gegnum kassakerfið og bera síðan saman strimlana. Guðmundur Marteinsson hjá Bónus svaraði ekki blaðamanni. ÓSÁTTIR VIÐ FRAMKVÆMD Á NÝJUSTU VERÐKÖNNUN ASÍ Jóhannes Jónsson Kristinn Skúlason Jóhannes segir Bónus elta Iceland í lágu vöruverði Diesel.is | Klettháls 15 | 110 Reykjavík | Sími 578 5252 | diesel@diesel.is www.fiat500.is SKANNAÐU KÓÐANN OG SKOÐAÐU MÁLIÐ BETUR G R A F IK E R .IS 2.670 ÞÚS. KR.* NÝR FIAT 500 LOUNGE 2013 VERÐ KR. Eyðir aðeins 4.8L á hundraði í blönduðum akstri. *Miðað við gengi á euro 159 KYNNA& Í þessari bók segir Vilhjálmur Hjálmarsson á Brekku gamansögur af sér og samferðar- mönnum sínum og útkoman er vægast sagt bráðskemmtileg. Glettur og gamanmál kemur öllum í gott skap. holabok.is/holar@holabok.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.