Morgunblaðið - 03.11.2012, Blaðsíða 18
www.forlagid.is – alvöru bókaverslun á netinu
Spennandi framhald
metsölubókarinnar
Víti í Vestmannaeyjum.
BÓK SEM HITTIR
BEINT Í MARK
bbbb
F R ÉT TATÍ MI N N
G
UN
NAR
HELGASO
N
Metsölulisti
Eymundsson
Barna- og unglingabækur
2
4
.–3
0
.10
.121.
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2012
12. nóvember með heimsókn ráð-
herra og staðfestu samninga.
Hjá Sláturhúsi KVH á Hvamms-
tanga var slátrað 90137 kindum, þar
af 82.390 dilkum með meðalvigt 16,7
kg. Fjölgun er frá fyrra ári um 2.800
fjár og meðalþyngd dilka 0,5 kg
hærri. Að slátrun komu um 150
manns og fullvinnsla afurða aukin
milli ára. Félagið keypti á árinu um
1.200 fermetra húseign. Húsið er not-
að fyrir hausaverkun og innmat-
arvinnslu en nýting aukaafurða hefur
aukist árlega hjá félaginu.
Nesfiskur ehf. í Garði hefur
keypt rækjuverksmiðjuna Meleyri á
Hvammstanga. Bergþór Baldvinsson
framkvæmdastjóri segir að ætlunin
sé að gera út 2-3 báta á rækju frá
Hvammstanga og fullvinna hana á
staðnum. Unnið er að endurbótum á
húsum og vélbúnaði og eru áform um
að hefja rekstur í vetur. Heimafólki
líst vel á þessa atburðarás. Meleyri er
með elstu rækjuverksmiðjum á land-
inu, stofnsett 1972, og hefur verið í
nokkuð samfelldum rekstri frá upp-
hafi.
Framhaldsdeild á Hvammstanga
Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson
Rækjuvinnsla Nesfiskur í Garði hefur keypt Meleyri á Hvammstanga.
ÚR BÆJARLÍFINU
Karl Ásgeir Sigurgeirsson
Hvammstangi
Haustið minnti hressilega á sig í
byrjun september, eins og um allt
Norðurland. Bændur hér sluppu þó
betur en austar á landinu, heiðarnar
nýsmalaðar og réttarstörfum lokið.
Göngur í Vatnsnesfjalli voru þó eftir
óveðrið, nokkur skaði varð þar á fé.
Almennt eru heimtur sauðfjárbænda
þó ekki góðar og Ráðunautaþjón-
ustan vinnur nú að gagnaöflun hjá
bændum í Húnaþingi og á Ströndum.
Nú gengur annar illviðriskafli
yfir Norðurland og munu margir
bændur þegar hafa hýst fénað sinn.
Haustverðáttan hefur verið rysjótt,
nokkurt frost í jörðu og hvítt yfir að
líta.
Í haust var opnuð á Hvamms-
tanga framhaldsdeild frá Fjölbrauta-
skólanum á Sauðárkróki. Að sögn
Rakelar Runólfsdóttur umsjónar-
manns eru 18 nemendur úr Húna-
þingi vestra við dreifnám með fjar-
fundarbúnaði. Þannig eru nemendur
virkir inni í kennslustofum skólans á
Sauðárkróki. Tvisvar á hverri önn
fara nemendur á Sauðárkrók og
dvelja í heimavist. Skapast þá teng-
ing við kennara og aðra nemendur og
félagslíf skólans. Nemendur eru mjög
ánægðir, góður andi, og öll sam-
skipta- og tæknimál ganga upp.
Formleg opnun deildarinnar verður
Egill Ólafsson
Þórun Kristjánsdóttir
Rannsóknarnefnd kaþólsku kirkj-
unnar komst að þeirri niðurstöðu að
kirkjan hefði reynt að þagga niður
upplýsingar um andlegt ofbeldi í
Landakotsskóla sem átti sér stað á
tímabilinu 1946-2003. Þetta kom
fram í skýrslu nefndarinnar.
Nefndin var skipuð í ágúst 2011, í
kjölfar saka sem bornar voru á fyrr-
verandi starfsmenn kaþólsku kirkj-
unnar um andlegt og líkamlegt of-
beldi gagnvart nemendum skólans.
Átta beitt kynferðislegu ofbeldi
Alls sögðust átta hafa sætt kyn-
ferðislegu ofbeldi, 27 andlegu of-
beldi, í einstaka tilvikum líkamlegu.
Tilvikin, sem nefndin rannsakaði,
tengjast öll séra Georg, fyrrverandi
skólastjóra Landakotsskóla og Mar-
gréti Müller, kennara við skólann.
Að auki fjallaði nefndin um ásak-
anir sem komu upp á hendur þrem-
ur öðrum ónafngreindum aðilum.
Um var að ræða einn kennara og
tvo presta.
Hjördís Hákonardóttir, formaður
nefndarinnar, tók skýrt fram að það
hefði ekki verið hlutverk þessarar
nefndar að leggja mat á sannleiks-
gildi frásagnanna.
Skrifleg gögn ekki til
Flestir sem sögðust hafa orðið
fyrir ofbeldi, þögðu um það sem þeir
upplifðu og kvörtuðu ekki undan því
á sínum tíma. Það átti þó ekki við
um alla. Frá 1988-2010, lýstu fimm
yfir kynferðislegu ofbeldi og fleiri
kvörtuðu undan andlegu ofbeldi.
Þegar nefndin kallar eftir upplýs-
ingum frá kirkjunni um hvernig tek-
ið hafi verið á þessum kvörtunum
kemur nefndin að tómum kofa. Það
er sáralítið til af skriflegum gögn-
um.
Mistök í vinnubrögðum
Að því er varðar kynferðislegt of-
beldi bendir rannsóknarnefndin á
nokkur mistök eða vanrækslu varð-
andi viðbrögð við ásökunum sem
fram komu á tímabilinu 1988-2010.
Það er niðurstaða nefndarinnar
að í einu tilviki hafi nunna og í öðru
tilviki prestur vanrækt að tilkynna
biskupi um ásakanir sem staðfest er
að lýst var á þeim tíma.
Nefndin telur að Alfred Jolson,
sem var biskup kaþólsku kirkjunnar
á árunum 1988-1994, hafi í þremur
tilvikum vanrækt þá skyldu sína að
skrá ásökun og upplýsingar um of-
beldi, og þá skyldu að tryggja að
fram færi sjálfstæð rannsókn á
ásökunum.
Nefndin fjallar um hvort hægt sé
að tala um að um þöggun hafi verið
að ræða. Hún kemst að þeirri nið-
urstöðu að svo hafi verið af hálfu
kaþólsku kirkjunnar, varðandi and-
legt ofbeldi í skólanum.
Biskup lét eyðileggja bréf
„Rannsóknarnefndin telur að
biskupinn frá 1996-2007 hafi í einu
tilviki gert mistök með því að eyði-
leggja bréf sem forveri hans hafði
falið kanslara að varðveita í bisk-
upsembættinu,“ segir í skýrslu
nefndarinnar. Sá biskup sem um
ræðir er Johannes Gijsen. Í skýrsl-
unni kemur fram að maður hafi á
sínum tíma komið til Jolsons bisk-
ups og átt með honum fund.
Séra Jakob Roland sagði fyrir
nefndinni að maðurinn hefði „haft
einhverja slæma reynslu með séra
Georg í skólanum“. Hann hefði vilj-
að koma þessum upplýsingum á
framfæri til að tryggja að samskon-
ar myndi ekki gerast aftur. Hann
hefði afhent biskupi umslag sem
hefði verið geymt í skjalasafni bisk-
upsembættisins.
Séra Jakob sagðist hafa afhent
Gijsen umslagið eftir að hann tók
við biskupsembættinu. Þegar Gijsen
var búinn að kynna sér efni þess
hefði hann eyðilagt bréfið.
Nefndin segir einnig að Gijsen
hafi í þremur tilvikum vanrækt
skyldu sína að skrá ásökun og upp-
lýsingar um ofbeldi. Í einu þessara
tilvika hafi Gijsen að auki vanrækt
skyldu sína að tryggja að fram færi
sjálfstæð rannsókn á ásökunum og
að gripið yrði til réttra viðbragða og
í öðru tilviki þá skyldu að meta
hvort þörf væri á sérstakri rann-
sókn og að taka ákvörðun um önnur
viðbrögð.
Einnig taldi rannsóknarnefndin
að Pétur Bürcher, núverandi bisk-
up, sem tók við árið 2007, hefði í
einu tilviki látið hjá líða að hafa
frumkvæði að því að fram færi
rannsókn í kjölfar þess að honum
bárust upplýsingar um að aðili hefði
sem barn sætt kynferðisofbeldi af
hálfu prests, sem nú var látinn.
Georg tók öll skjöl við starfslok
Nefndin segir að „nánast engin
gögn um starfsemi Landakotsskóla“
hafi fundist. Séra Hjalti Þorkelsson
tók við starfi skólastjóra í Landa-
koti árið 2003 af séra Georg sem var
skólastjóri á þeim tíma sem ásak-
anir nemenda snúast um. Hjalti seg-
ir að þegar hann tók við hafi engin
gögn verið í skólanum. Séra George
hafi sagt sér að nauðsynleg gögn
væru á skrifstofu skólastjóra en
önnur gögn ætti hann sjálfur og
hefði tekið með sér. Þegar séra
Georg lést árið 2008 fundust ýmis
gögn í dánarbúi hans.
Þöggun kaþólsku kirkjunnar
Áfellisdómur rannsóknarnefndar yfir kaþólsku kirkjunni Átta nemendur í Landakotsskóla
sættu kynferðislegu ofbeldi af hendi kennara og skólastjóra Kirkjan þaggaði niður ásakanirnar
Morgunblaðið/Kristinn
Rannsóknarnefnd Í nefndinni sátu Hjördís Hákonardóttir, Hrefna Frið-
riksdóttir og Jón Friðrik. Róbert Spanó skipaði nefndina.
„Í nafni Kaþ-
ólsku kirkj-
unnar á Íslandi,
sem og per-
sónulega, leitar
hugur minn til
allra þeirra sem
telja að á sér
hafi verið brot-
ið og einnig til
fjölskyldna
þeirra. [...] Hin hörmulega mis-
notkun á börnum frá hendi krist-
inna manna, einkum manna úr
klerkaslétt, veldur mikilli skömm
og óskaplegri hneykslun,“ stend-
ur meðal annars í yfirlýsingu
sem Pétur Bürcher, biskup kaþ-
ólsku kirkjunnar á Íslandi, sendi
frá sér í kjölfar niðurstöðu Rann-
sóknarnefndar um kaþólsku
kirkjuna.
„Hörmuleg
misnotkun
á börnum“
KAÞÓLSKA KIRKJAN
GRÍPUR TIL RÁÐSTAFANA
Pétur (Pierre)
Bürcher
Ágúst
George
Margrét
Müller