Morgunblaðið - 03.11.2012, Qupperneq 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2012
VIÐTAL
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Heimahlynning á 25 ára starfs-
afmæli í ár en það var með tilkomu
hennar sem sjúklingar fóru að hafa
möguleika á því að vera heima í
veikindum sínum og að deyja
heima. Um er að ræða sérhæfða
hjúkrunar- og læknisþjónustu sem
er ætluð sjúklingum sem hafa erfið
einkenni vegna langvinna sjúk-
dóma. Starfað er samkvæmt hug-
myndafræði um líknarmeðferð og
er hlutverk þjónustunnar að gera
skjólstæðingum kleift að dvelja
heima eins lengi og aðstæður leyfa.
Heimahlynning var fyrst rekin af
Krabbameinsfélaginu en er nú hluti
af starfsemi Landspítalans og er
með aðsetur í sama húsi og líkn-
ardeildin í Kópavogi. Valgerður
Sigurðardóttir er yfirlæknir líkn-
ardeildar og Heimahlynningar og
Helgi Benediktsson er deildarstjóri
Heimahlynningar. Blaðamaður
settist niður með þeim í húsnæði
starfseminnar í Kópavogi og fékk
að heyra um þessa merkilegu þjón-
ustu sem hefur reynst fjölda Ís-
lendinga ómetanleg stoð í stríðinu
við illvíga sjúkdóma.
Spurð út í upphaf Heimahlynn-
ingar segir Valgerður að hug-
myndafræði líknar hafi verið búin
að skjóta upp kollinum hér á landi
fyrir 1987 þegar Heimahlynning
var stofnuð. „Um þetta sama leyti
eru krabbameinslækningarnar líka
að byggjast betur upp og Heima-
hlynningu er hrundið af stað í þeirri
hringiðu. Á níunda áratugnum í
Evrópu og sérstaklega á Norð-
urlöndum er sams konar þjónusta
að fara í gang. Þetta var þá fyrst og
fremst þjónusta til að sinna sjúk-
lingum með langt gengið krabba-
mein og deyjandi.“
Heimahlynning hóf starfsemi
sína með símaþjónustu á virkum
dögum sem hjúkrunarfræðingar
sinntu. Síðan er byrjað að fara í
vitjanir á dagtíma en sjúklingar eru
veikir allan sólarhringinn. Það er
svo haustið 1989 að meira skipulagi
er komið á þjónustuna með tveimur
læknum og fjórum hjúkrunarfræð-
ingum. Starfsemin hefur síðan auk-
ist stig af stigi og er sólarhring-
sþjónusta í dag. Áður var ekki nein
sérhæfð þjónusta í boði heima fyrir
þá sem voru deyjandi eða með
krabbamein; fólk hefði ekki átt ann-
ars kost en að deyja inn á spítöl-
unum.
Á vel heima innan spítalans
Heimahlynning byrjaði sem þró-
unarverkefni hjá Krabbameins-
félaginu og var þar til ársins 2006
þegar hún flutti til Landspítalans.
Helgi og Valgerður segja starfsem-
ina eiga vel heima innan spítalans.
„Hér í Kópavogi hefur verið byggð
upp líknareining. Legudeildin var
opnuð 1999, heimahlynningin flutt-
ist hingað 2006, árið á eftir er opn-
uð fimm daga deild, dagdeild opin
tvisvar í viku og göngudeild. Núna,
2012, eru hér tólf legurúm, eitt
bráðarúm, fjögur fimm daga pláss,
dagdeild og göngudeild og heima-
þjónusta. Við erum með öll þjón-
ustustigin innan heilbrigðisþjónust-
unnar,“ segir Valgerður.
Helgi segir að það hafi verið
gæfa fyrir Heimahlynninguna að
flytjast inn á Landspítalann. „Eftir
það fengum við fleiri hjúkr-
unarfræðinga í vinnu og við fengum
meiri nálægð við spítalann, kom-
umst t.d. inn í allt þekkingarkerfi
Landspítalans og í meira samstarf
við aðrar starfsstéttir. Við eru nú
með 7,2 stöðugildi hjúkrunarfræð-
inga, sem 8 sinna.“
Meðhöndla þjáninguna
Helgi hefur starfað við Heima-
hlynningu frá árinu 1993. Hann
segir starfið sem slíkt ekki hafa
breyst mikið síðastliðin tuttugu ár.
Valgerður bætir við að í upphafi
hafi verið mest áhersla á umönnun
þeirra sem voru deyjandi og að gefa
þeim þann möguleika að deyja
heima. „Það sem hefur breyst í
starfinu er að hugtakið líkn-
armeðferð nær ekki lengur bara yf-
ir umönnun þeirra deyjandi heldur
hefur það inntak að meðhöndla þá
þjáningu sem sjúkdómurinn veldur.
Stærsti hluti sjúklinga okkar er
fólk með mikinn sjúkdóm en sumir
eru ennþá í meðferð eða hafa erfið
einkenni sem við erum fyrst og
fremst að hjálpa þeim með.“
Umönnun snýr ekki lengur bara
að krabbameinssjúklingum, á seinni
árum hefur Heimahlynning tekið
inn fleiri sjúklingahópa. „Stærstu
hóparnir af þeim eru sjúklingar
með langvinna lungnateppu og
hjartabilun. Fólk með þessa sjúk-
dóma lifir oft mjög lengi með langt
genginn sjúkdóm og mikil einkenni.
Þegar við vorum að byrja var al-
næmissjúkdómurinn í algleymingi
og við vorum með mjög marga al-
næmissjúklinga. Svo höfum við
líka alltaf sinnt einstaklingum með
MND sjúkdóm. En þetta hefur
alltaf verið lítill hluti sjúklinganna.
95% eru krabbameinssjúklingar.“
Á hverjum tíma sinnir Heima-
hlynning um 55 til 65 sjúklingum
eða 180 til 200 sjúklingum á ári.
Fjölskyldan tekur þátt
Hlutverk Heimahlynningar er
ekki aðeins að sinna sjúklingnum
heldur líka að þétta netið í kring-
um fjölskylduna svo hún geti verið
örugg heima. „Fjölskyldufundir og
samtöl við aðstandendur eru hluti
af vinnunni. Við reynum að styrkja
þá í að vera þátttakendur í umönn-
un ættingja sinna í staðinn fyrir að
vera áhorfendur inni á spít-
alanum.“
Spurður hvort starfið sé erfitt
segir Helgi það auðvitað vera það
en starfið sé þakklátt. „Það sem
við fáum út úr þessu er ánægjan,
ef það má orða það svo, að hafa
getað hjálpað og komið því til
leiðar að fjölskyldan er sátt við
þá þjónustu sem ástvinur þeirra
hefur fengið.“
Valgerður segir að í Heima-
hlynningunni sjái starfsfólkið bet-
ur líðan einstaklingsins. „Við fáum
betri innsýn inn í raunveruleikann,
sjáum veikleika og styrkleika
hverrar fjölskyldu. Hluti af með-
ferðinni er stuðningur, að takast á
við breyttar aðstæður og búa fólk
undir það að sjúkdómurinn geti
versnað. En sjúklingar útskrifast
líka úr meðferð hjá okkur. Við
sinnum fólki í tímabundnum erf-
iðleikum og hjálpum þeim að ná
betri líðan og betri tökum á lífinu.“
Helgi segir að af þeim sjúkling-
um sem Heimahlynningin sinni
heima látist að meðaltali 25 á ári.
Þeim sjúklingum hefur fækkað
sem deyja heima eftir að líkn-
ardeildin kom til skjalanna og auð-
veldara varð fyrir sjúklinga að
leggjast inn og fá sambærilega
þjónustu.
Þau segja starfið þakklátt og
verk þeirra skipti máli. Það gefi
fyllingu í starfi og smitist yfir á
sjúklinginn og fjölskyldu hans.
Tuttugu og fimm ára afmæl-
isfagnaður Heimahlynningar verð-
ur haldinn 9. nóvember næstkom-
andi frá kl. 16 til 18 í húsnæði
Krabbameinsfélagsins. Allir eru
velkomnir.
Hlúa að sjúklingum heima
Heimahlynning Landspítalans hóf starfsemi sína fyrir 25 árum Sérhæfða hjúkrunar- og læknis-
þjónustu sem gerir sjúklingum kleift að dvelja heima eins lengi og aðstæður leyfa Þakklátt starf
Morgunblaðið/Kristinn
Umönnun Helgi Benediktsson deildarstjóri Heimahlynningar og Valgerður Sigurðardóttir, yfirlæknir líknardeildar og Heimahlynningar.
Morgunblaðið/Kristinn
Húsin Líknardeildin og Heimahlynning eru þar sem Kópavogshælið var.
Samkvæmt skilgreiningu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO
2002), er tilgangur líknarmeðferðar að auka lífsgæði sjúklinga sem eru
með lífshættulega sjúkdóma og fjölskyldna þeirra. Meðferðin felst í því
að fyrirbyggja og draga úr líkamlegri, sálfélagslegri og andlegri þjáningu.
Líknarmeðferð á ekki eingöngu við á lokastigum veikinda, heldur einnig
snemma í veikindaferlinu, samhliða annarri meðferð.
Heimahlynning Landspítala starfar samkvæmt hugmyndafræði um
líknarmeðferð. Hún er ætluð sjúklingum sem hafa erfið einkenni vegna
langvinnra sjúkdóma.
Bæta lífsgæði sjúklinga
HVAÐ ER LÍKNARMEÐFERÐ?
laugardaginn 24.nóvember.
Í jólablaðinu í ár komum við víða við, heim-
sækjum fjölda fólks og verðum með fullt af
spennandi efni fyrir alla aldurshópa.
Jólablaðið er flottasta sérblaðið
sem Mogginn gefur út og er eitt
af vinsælustu blöðum lesenda.
SÉRBLAÐ
Pöntunartími auglýsinga:
er fyrir klukkan 16 mánudaginn
19.nóvember
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími 569-1105
kata@mbl.is
Uppáhalds jólauppskriftirnar.•
Uppskriftir að ýmsu góðgæti til að•
borða á aðventu og jólum.
Villibráð.•
Hefðbundnir jólaréttir og jólamatur.•
Smákökur.•
Eftirréttir.•
Jólakonfekt og sælgæti.•
Grænmetisréttir og einnig réttir fyrir•
þá sem hafa hollustuna í huga þegar
jólin ganga í garð.
Vínin með veislumatnum í ár•
Gjafapakkningar.•
Tónlistarviðburðir, söfn, kirkjur á aðventu•
og í kringum jólahátíðina.
Kerti og aðventukransar.•
Jólagjafir•
Heimagerð jólakort.•
Jólaföndur.•
Jólabækur og jólatónlist.•
Jólaundirbúningur með börnunum.•
Margar skemmtilegar greinar sem•
tengjast þessari hátíð ljóss og friðar.
MEÐAL EFNIS:
– Meira fyrir lesendur
Morgunblaðið gefur út
stórglæsilegt jólablað
JÓLABLAÐ