Morgunblaðið - 03.11.2012, Blaðsíða 22
SVIÐSLJÓS
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Allt legurými á Landspítalanum,
um 670 rúm, er svo gott sem fullt
og hefur verið undanfarnar vikur
vegna mikillar fjölgunar innlagna
og veikinda
fólks. Dagbjört
Þyri Þorvarð-
ardóttir, inn-
lagnastjóri á
Landspítalanum,
segir þessa
stöðu koma oft
upp á þessum
árstíma en
ástandið sé þó
búið að vera
óvenju slæmt.
Hefur þurft í auknum mæli að
setja sjúklinga á ganga spítalans.
Óttast Dagbjört að þetta ástand
eigi eftir að vara fram að jólum, þó
að allir voni það besta.
Sjúklingar á göngum
Biðlistar eftir aðgerðum hafa
lengst í þessu ástandi og að sögn
Dagbjartar bíða um 50 aldraðir
einstaklingar, með svonefnt vist-
unarmat, eftir vistunarúrræði á
hjúkrunarheimilum. Hefur sá
fjöldi ekki verið jafnmikill á þessu
ári.
„Við höfum reynt eins og við
getum að halda starfseminni sam-
kvæmt áætlun, þrátt fyrir mikil
þrengsli og miklar annir. Því mið-
ur höfum við af þeim sökum verið
með sjúklinga á göngum. Á þess-
um árstíma er starfsemin á fullum
þunga, bæði hvað varðar valkvæð-
ar aðgerðir og bráðastarfsemi. Við
höfum lent í það miklum niður-
skurði og sparnaði að við höfum
ekki fleiri rúm, okkur vantar legu-
rými og verðum þess vegna að
setja sjúklinga á gangana í sumum
tilfellum. Við reynum að gera það
eins vel og við getum,“ segir Dag-
björt Þyri.
Hún segir ástandið afar mis-
munandi eftir deildum spítalans.
Mesta álagið sé á lyflækningasvið-
inu og á almennum bráðadeildum.
Um mikil almenn veikindi sé að
ræða hjá sjúklingum á öllum aldri.
Fjölgun innlagna eigi sér ýmsar
skýringar.
Margir af landsbyggðinni
„Höfuðborgarsvæðið er mjög
stórt. Það er búið að draga mikið
úr starfseminni á landsbyggðar-
sjúkrahúsum og við erum farin að
finna fyrir því. Við fáum töluvert
marga sjúklinga af landsbyggð-
inni, einkum vegna okkar sérhæf-
ingar og að við getum tekið á okk-
ur viss verkefni,“ segir Dagbjört
og tekur sem dæmi að vegna
noro-veirusýkingar hafi
heilbrigðisstofnanir orðið að loka
deildum, t.d. á Suðurnesjum, og
því þurft að flytja sjúklinga á
Landspítalann.
„Síðustu vikur hafa verið okkur
erfiðar. Það er ekkert sem segir
okkur að það verði eitthvert lát á
þessu, ég á alveg eins von á því að
þetta verði svona fram undir jól.
Við vonum að sjálfsögðu að það
fari að draga úr þessum veikind-
um,“ segir hún.
Ekki æskilegt ástand
Spurð hvort ástandið á Land-
spítalanum sé ekki komið að ör-
yggis- og hættumörkum telur
Dagbjört Þyri svo ekki vera. Allt
sé gert til að tryggja öryggi sjúk-
linga og starfsmanna.
„Við höfum töluverða reynslu af
því að takast á við svona annir og
gerum allt sem í okkar valdi
stendur til að tryggja öryggið. Við
bregðumst við þessu á hverjum
degi en vissulega er það ekki
æskilegt ástand að þurfa að leggja
sjúklinga í rúm á göngunum,“ seg-
ir Dagbjört Þyri að endingu.
Öll legurými Landspítalans
í notkun og álagið er mikið
Mikið um veikindi og ástandið óvenjuslæmt Um 50 aldraðir bíða eftir vistun
Morgunblaðið/Ómar
Landspítalinn Hvert sjúkrarúm er skipað þessa dagana. Innlagnastjóri
spítalans segir ástandið óvenjuslæmt og óttast að það verði svona til jóla.
Dagbjört Þyri
Þorvarðardóttir
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2012
DÚKA KRINGLUNNI SÍMI: 533 1322 SMÁRALIND SÍMI: 564 2011
Ný sending
frá Koziol
komin í hús
Sunnudaginn 4. nóvember verður
fjölbreytt dagskrá í Þjóðminjasafni
Íslands.
Almenningi er boðið að koma
með gamla gripi í greiningu til sér-
fræðinga safnsins á milli 14 og 16.
Að þessu sinni verður sérstök
áhersla á silfurgripi, t.d. gamlar
skeiðar með stimpli og búninga-
silfur. Greiningin er gestum að
kostnaðarlausu.
Greiningardagar safnsins hafa
verið mjög vel sóttir. „Dagarnir eru
ekki bara fróðlegir fyrir þá gesti
sem koma með gripi, heldur gefst
starfsfólki safnsins einnig einstakt
tækifæri til að sjá þá mörgu áhuga-
verðu og skemmtilegu gripi sem til
eru á heimilum landsmanna,“ segir
í tilkynningu. Af fenginni reynslu
næst að greina um 50 gripi á 2
klukkustundum og því er fólki bent
á að koma tímanlega
Boðið að koma með
silfurgripi í skoðun
Alþjóða-
málastofnun Há-
skóla Íslands í
samstarfi við
bandaríska
sendiráðið býður
til opins fundar
með dr. James A.
Thurber, mánu-
daginn 5. nóv-
ember kl. 12 í
Lögbergi 101. Í erindi sínu mun
Thurber skoða þau málefni sem
helst standa upp úr í lok kosninga-
baráttunnar vestanhafs og spá í
spilin degi fyrir forsetakosning-
arnar. Hann þykir einn þekktasti
fræðimaður Bandaríkjanna á sínu
sviði. Fundurinn fer fram á ensku
og fundarstjóri er Silja Bára Óm-
arsdóttir aðjunkt.
Spáir í spilin fyrir
forsetakosningar
James A. Thurber
Hagyrðingamót verður haldið í sal
Lífs fyrir list, Laugavegi 103,
klukkan 20 í kvöld. Mun allur ágóði
af mótinu verða nýttur til að koma
aftur á skólamáltíðum í grunnskóla
ABC barnahjálpar í Pakistan.
Ragnar Ingi Aðalsteinsson mun
stýra hagyrðingamótinu en auk
hans munu Bjarki M. Karlsson,
Helgi Zimsen, Sigrún Haraldsdóttir
og Sigurjón V. Jónsson kveðast á
og standa fyrir vísnasölu.
Hagyrðingar styrkja
ABC barnahjálp
STUTT
Biðlistar eftir skurðaðgerðum á
Landspítalanum hafa verið að
lengjast. Samkvæmt upplýsingum
á vef spítalans um stöðu biðlista
frá 26. október sl. höfðu þá alls
2.165 manns beðið lengur en í þrjá
mánuði eftir aðgerð, sem er 30%
aukning miðað við sama tíma í
fyrra. Þar af voru á biðlista skurð-
lækningasviðs nærri 1.900 manns,
borið saman við 1.460 í lok októ-
ber 2011.
Flokkað eftir einstökum aðgerð-
um höfðu 730 beðið eftir skurð-
aðgerð á augasteini í meira en þrjá
mánuði, 257 beðið eftir gerviliða-
aðgerð á hné, 121 á mjöðm og 50
beðið eftir hjartaþræðingu lengur
en þrjá mánuði. Síðan í júlí hefur
biðlisti eftir þræðingu tvöfaldast.
Ef þeir eru taldir með sem beðið
hafa eftir aðgerð skemur en þrjá
mánuði þá var heildarfjöldi á bið-
lista í lok október um 3.500
manns. Þeir voru um 3.000 fyrir
ári.
Hafa lengst um þriðjung
BIÐLISTAR EFTIR AÐGERÐUM Á LANDSPÍTALANUM
„Okkur er að blæða út og ég held að
það yrði mjög dýrt fyrir íslenskt sam-
félag að tapa út þessari verkkunnáttu
og geta ekki mannað [störfin] sjálfir,“
sagði Guðmundur Ragnarsson, for-
maður VM, Félags vélstjóra- og
málmtæknimanna, á kjararáðstefnu
VM, sem hófst í gær.
Þar var rætt um kosti og galla sam-
ræmdrar launastefnu. Guðmundur
sagði mikla eftirspurn eftir fagmennt-
uðu fólki í vél- og málmtæknigreinum
en unga fólkið sækti ekki í þessar
greinar og nauðsynlegt væri að bæta
kjörin.
Kom fram að VM hefði gert fjölda
kjarasamninga beint við fyrirtæki í
ákveðnum greinum og náð þar mun
betri árangri, jafnvel upp á tugi pró-
senta í launahækkanir. „Í fyrir-
tækjum sem eru með borð fyrir báru
og gengur þokkalega eru menn til-
búnir að leggja ýmislegt af mörkum
og halda fólki og tryggja stöðugleika,“
sagði hann. „Ef við ætlum að tryggja
það til framtíðar að við fáum ungt fólk
til þess að koma og mennta sig í þessu
og tryggja að við getum sjálf með inn-
lendu vinnuafli viðhaldið þeim at-
vinnutækjum sem eru í gangi í dag,
þá verður eitthvað róttækt að gerast.“
Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs-
ins, flutti erindi á ráðstefnunni og
fjallaði m.a. um launaskrið. Kjara-
samningshækkanir frá 2011 voru
metnar á 8,9% en í raun hafa allir hóp-
ar hækkað meira, að sögn hans, þó
mjög mismikið, og launavísitalan í
heild hækkaði um 12,5%. Í nýrri
könnun meðal fyrirtækja innan vé-
banda SA sögðust 34% þeirra hafa
hækkað laun starfsmanna umfram
samninga. omfr@mbl.is
„Okkur er
að blæða út“
34% hafa hækkað
laun umfram samninga
Guðmundur
Ragnarsson
Vilhjálmur
Egilsson