Morgunblaðið - 03.11.2012, Blaðsíða 23
FRÉTTIR 23Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2012
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Það er margt sem hjálpaðist að.
Markaðir fyrir fisk voru ágætir og
veiðar og vinnsla gekk vel, bæði hér á
landi og hjá dótturfélögum Samherja
erlendis,“ segir Þorsteinn Már Bald-
vinsson, forstjóri
Samherja. Félag-
ið skilaði 8,8 millj-
arða króna hagn-
aði á síðasta ári
sem er mesti
hagnaður í sögu
félagsins.
Rekstrartekjur
Samherja og dótt-
urfélaga voru um
80 milljarðar
króna á árinu
2011 sem er 12 milljörðum meira en á
árinu á undan. Fram kemur í frétta-
tilkynningu að hagnaður fyrir af-
skriftir og fjármagnskostnað nam
18,2 milljörðum og hagnaður fyrir
tekjuskatt nam 11,1 milljarði kr. Þeg-
ar tekið hefur verið tillit til tekju-
skatts var hagnaður ársins 8,8 millj-
arðar króna.
Öflugt markaðsnet skilar sér
Samherji er með rekstur í ellefu
löndum. Allar afkomueiningar félags-
ins skiluðu hagnaði á síðasta ári, eins
og árin tvö þar á undan.
Þorsteinn segist ánægður með af-
komu Samherja og erlendra dóttur-
félaga. Félögin hafi sótt fram á mörg-
um sviðum og hafi starfsfólki tekist
afar vel að leysa þau krefjandi verk-
efni sem fylgdu auknum umsvifum.
Kaup Samherja á Útgerðarfélagi
Akureyringa voru helsta fjárfesting
félagsins á síðasta ári. Keyptar voru
fasteignir og rekstur á Akureyri og
Laugum í Reykjadal auk tveggja ís-
fiskskipa með 6 þúsund tonn í afla-
heimildum. Í tilkynningu frá Sam-
herja er lýst ánægju með það hversu
vel íbúar við Eyjafjörð hafi tekið
kaupunum.
Önnur viðbót við reksturinn er fyr-
irtæki með rekstur í Frakklandi og á
Spáni sem keypt var í lok árs 2010. Þá
var árið 2011 fyrsta heila rekstrarár
fyrirtækis sem Samherji keypti í
Kanada og gengið hefur vel.
Rúm 60% af starfsemi Samherja
eru erlendis. „Þetta endurspeglar
fjölbreytnina í rekstri Samherja,“
segir Þorsteinn Már. Hann vekur at-
hygli á því að lögð hafi verið mikil
vinna í uppbyggingu öflugs markaðs-
nets sem nái um allan heim. „Til
dæmis tel ég að starfsmenn félaga
Samherja hafi rutt brautina í sölu
uppsjávarafurða til Afríku sem er nú
mjög mikilvægur markaður fyrir ís-
lenskar uppsjávarafurðir,“ segir Þor-
steinn.
Samherji flutti til landsins 5.200
tonn af hráefni frá dótturfélögum sín-
um erlendis og tókst með því að
tryggja samfellda atvinnu í vinnslum
félagsins á Eyjafjarðarsvæðinu. Um
350 manns starfa í landvinnslunni og
þurfti Atvinnuleysistryggingasjóður
ekki að greiða neinum starfsmanni
þar laun vegna hráefnisskorts.
Samherji greiddi 1,7 milljarða
króna í opinber gjöld fyrir árið 2011. Í
tilkynningu Samherja er á það bent
að önnur félög Samherja á Íslandi
greiði tæpar 100 milljónir til viðbótar
í tryggingagjald. Með álögðu veiði-
gjaldi sem var 400 milljónir á árinu
hafi opinber gjöld félagsins numið
rúmum 2,2 milljörðum króna. Sam-
herji hafi þannig verið það fyrirtæki
sem hafi verið næsthæsti greiðandi
opinberra gjalda það árið.
Áætlað er að veiðigjald Samherja,
sem Alþingi hefur ákveðið, þrefaldist
í ár og verði 1,4 milljarðar kr.
Óveðursský á mörkuðum
Þorsteinn Már segist ekki áður
hafa staðið frammi fyrir jafn krefj-
andi verkefni í rekstri Samherja og
nú. „Það vita allir að mikill ófriður er
um þessa grein hér á landi á sama
tíma og óveðursský hafa verið að
hrannast upp á mörkuðum,“ segir
Þorsteinn og vísar til þess að vegna
efnahagsástandsins í Evrópu eigi við-
skiptavinir ekki jafn greiðan aðgang
að fjármögnun og áður auk þess sem
neytendur hafi snúið sér í einhverjum
mæli að ódýrari afurðum. Þá hafi
mikil aukning þorskkvóta í Barents-
hafi og gríðarlegur vöxtur fiskeldis
sín áhrif.
„Samkeppni við aðrar þjóðir á
mörkuðum er gríðarlega hörð og
ólíku saman að jafna í starfsumhverfi
okkar og keppinauta okkar erlendis,“
segir Þorsteinn Már.
Besta afkoma Samherja
Samherji hagnaðist um 8,8 milljarða á síðasta ári Óveðursský á mörkuðum
Þorsteinn Már Baldvinsson segir að gríðarlega hörð samkeppni sé á mörkuðum
Loðnuveiðar Aflaskip Samherja, Vilhelm Þorsteinsson EA, skilaði miklum tekjum í rekstur Samherja á síðasta ári.
Hér er hann fremstur í flokki á loðnuveiðum. Meirihluti tekna Samherja er þó af rekstri erlendis.
Efnahagur
» Eignir Samherja námu 108,6
milljörðum króna í lok síðasta
árs og heildarskuldir og skuld-
bindingar 71,2 milljörðum.
» Í níu af þeim tíu löndum sem
erlend dótturfélög starfa er
reksturinn fjármagnaður hjá
erlendum fjármálastofnunum.
» Samherji skuldaði 46,5
milljarða hjá íslenskum lána-
stofnunum. Félagið hefur eng-
in lán fengið felld niður eða
endurreiknuð. Félög samstæð-
unnar eru með öll lán í skilum.
Þorsteinn Már
Baldvinsson
IKEA og gestir hafa styrkt slysa-
varnir barna með veglegri upphæð.
Bakaranemar úr Hótel- og mat-
vælaskólanum, þær Telma Rós
Björgvinsdóttir og Hrafnhildur
Anna Kroknes Sigurðardóttir,
þóttu baka besta kanilsnúðinn í
kanilsnúðakeppni IKEA sem haldin
var í versluninni helgina 12.-13.
október. Gestir IKEA þessa daga
gáfu frjáls framlög í bauk fjögurra
bakaraliða sem kepptu, og það lið
sem safnaði mestu sigraði. IKEA
tvöfaldaði svo söfnunarféð og rann
heildarupphæðin óskipt til Árvekni
– verkefnis um slysavarnir barna,
eða 835 þúsund krónur. Árvekni
sinnir afar mikilvægu starfi þar
sem flest börn slasast á heimilum
sínum. Slysum á börnum hefur
fækkað mikið undanfarin ár og það
er ekki síst námskeiðum og fræðslu
á vegum Árvekni að þakka.
Afhending Thelma Rós, Hrafnhildur Anna
Kroknes og Herdís Storgaard hjá Árvekni.
Afhentu Árvekni
veglega upphæð
Ólöf Nordal,
myndlistar-
maður, mun á
sunnudag spjalla
við gesti á sýn-
ingunni Musée
Islandique í
Listasafni Ís-
lands við Tjörn-
ina.
Fram kemur í
tilkynningu að
verk Ólafar hafi vakið mikla at-
hygli og sé hér komið síðasta tæki-
færi til að sjá sýninguna því sunnu-
dagurinn sé jafnframt síðasti
sýningardagur.
Á sama tíma lýkur einnig sýning-
unum Ölvuð af Íslandi og Dáleidd
af Íslandi.
Ólöf spjallar við
gesti á Listasafninu
Ólöf
Nordal
Læknaráð Sjúkrahússins á Akur-
eyri hefur sent frá sér ályktun þar
sem tekið er undir þær áhyggjur
sem fram hafi komið hjá forstjóra
og framkvæmdastjórum sjúkra-
hússins varðandi mönnun og tækja-
kost.
„Það er hægt að draga úr endur-
nýjun og kaupum nýrra tækja í örfá
ár en nútímasjúkrahúsþjónusta
verður ekki veitt án nútímatækja-
búnaðar,“ segir meðal annars í
ályktuninni.
Læknar lýsa áhyggj-
um af tækjakosti
STUTT
Bryndís Lofts-
dóttir gefur kost á
sér í prófkjöri
Sjálfstæðisflokks-
ins í Suðvest-
urkjördæmi. Hún
sækist þar eftir
4.-6. sæti.
Bryndís er fædd árið 1970, lauk
leikaraprófi frá ALRA í London árið
1994 og hefur starfað við bóksölu í
tæp 20 ár. Hún var verslunarstjóri
Eymundsson, Austurstræti, um ára-
bil en gegnir nú starfi vörustjóra ís-
lenskra bóka og tónlistar. Bryndís
situr nú í allsherjar- og mennta-
málefnanefnd Sjálfstæðisflokksins
sem undirbýr drög fyrir landsfund.
Í tilkynningu segir að meðal
stefnumála Bryndísar séu styrking
atvinnulífs og nýting auðlinda, skýr
stefna og einföldun á skattkerfinu,
lagfæring á brotalömum í heilbrigð-
iskerfinu, úrbætur á lagaheimildum
lögreglunnar, vinna gegn brottfalli
nemenda á framhaldsskólastigi og
stytta nám fyrir háskólastig. Bryn-
dís segist ekki hlynnt inngöngu Ís-
lands í Evrópusambandið á meðan
ekki sé ljóst hvert stefni þar.
Framboð í 4.-6. sæti
Teitur Atlason
gefur kost á sér í
fjórða til fimmta
sætið á framboðs-
lista Samfylking-
arinnar í Reykja-
vík í forvali
flokksins.
Teitur heldur úti bloggsíðu á
DV.is þar sem hann fjallar um þjóð-
félagsmál með gagnrýnum hætti.
Hann hefur m.a. unnið við smíðar,
komið við í blaðamennsku og starf-
að í söludeild EJS. Hann er giftur
og þriggja barna faðir.
„Teitur telur að endurreisn
landsins verði að haldast í hendur
við þéttingu öryggisnetsins, rétt-
láta skiptingu sameiginlegra auð-
linda og jöfn tækifæri fyrir alla Ís-
lendinga. Þetta er hefðbundin
jafnaðarmannastefna og hefur ver-
ið ástunduð með góðum árangri á
Norðurlöndum og í Evrópu um ára-
tuga skeið. Fyrirmyndirnar eru þar
– ekki í frjálshyggjutilraunum
Bretlands og Bandaríkjanna sem
hálf heimsbyggðin er nú að súpa
seyðið af,“ segir m.a. í tilkynningu
um framboðið.
Framboð í 4.-5. sæti