Morgunblaðið - 03.11.2012, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2012
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Silfurgráar stálsperrur rísa nú ein
af annarri upp úr svörtu hrauninu
yst á Reykjanesi. Þær eru hluti af
burðarvirki fyrsta áfanga fiskeldis-
stöðvar Stolt Sea Farm Hafnir þar
sem senegalflúrum, heitfengum
flatfiskum ættuðum frá Senegal í
Afríku, mun vaxa fiskur um hrygg í
upphituðum sjó frá Reykjanes-
virkjun.
Fiskeldisstöð Stolt Sea Farm
Hafnir er talin vera stærsta einka-
framkvæmdin á Íslandi frá hruni
bankanna haustið 2008, að því er
dr. Eyþór Eyjólfsson, fram-
kvæmdastjóri Stolt Sea Farm á Ís-
landi, hefur heyrt. Hann má ekki
greina frá byggingarkostnaði fisk-
eldisstöðvarinnar á þessu stigi því
fyrirtækið sem á hana er á hluta-
bréfamarkaði og slíkar upplýsingar
þarf að birta með formlegri hætti
en í blaðaviðtali. Stöðin er kennd
við sveitarfélagið Hafnir, þar sem
hún er staðsett, til aðgreiningar.
Eyþór vonar að hún verði ekki eina
fiskeldisstöðin sem Stolt Sea Farm
byggir á Íslandi.
Vildi fá meira vatn
En hvernig kom það til að Stolt
Sea Farm ákvað að hefja eldi á
senegalflúru hér á landi?
„Ég var yfirmaður Stolt Sea
Farm í Asíu og Ástralíu með aðset-
ur í Japan á árum áður. Eftir að ég
hætti hjá þeim hélt ég alltaf sam-
bandi við eigendurna,“ sagði Ey-
þór. „Fyrir nokkrum árum lét ég
bora eftir heitu vatni á jörð sem ég
á á Ólafsfirði og fékk upp heitt
vatn. Ég lagði til við Stolt Sea
Farm að þeir kæmu þangað með
styrjueldi. Stolt-Nielsen sagði að
þeir þyrftu meira vatn, 4.000 lítra á
sekúndu en ekki fjörutíu lítra á
sekúndu!“
Eyþór leitaði hófanna hjá HS
Orku sumarið 2010 um heitt vatn í
miklu magni og segir að sér hafi
verið mjög vel tekið.
„Þeir hjá HS Orku eru sér mjög
meðvitaðir um hvernig hámarka
megi nýtingu á jarðhitanum,“ sagði
Eyþór. Hvað fiskeldi varðaði var
það talinn vera fýsilegur kostur að
nýta kælivatn, eða kælisjó, frá
hverflum Reykjanesvirkjunar.
Heitur sjórinn hefur hingað til
runnið ónýttur til sjávar um mikinn
bunustokk.
Samningar náðust við HS Orku
um nýtingu á heita afrennsl-
issjónum og Stolt Sea Farm fékk
tíu hektara lóð í næsta nágrenni við
virkjunina. Eyþór skrifaði grein-
argerð fyrir Skipulagsstofnun um
eldi á senegalflúru við Reykjanes-
virkjun. Skipulagsstofnun ákvað að
umhverfisáhrif væru svo lítil að
ekki væri þörf á mati á umhverfis-
áhrifum vegna fiskeldisins. Síðan
var farið í að afla nauðsynlegra op-
inberra leyfa og fengust þau öll.
„Það er mikið af neikvæðum
fréttum á Íslandi en þetta ferli hef-
ur allt verið mjög jákvætt og fólk
hefur unnið þetta vel,“ sagði Eyþór.
Lirfurnar fluttar inn frá Spáni
Áður en ráðist var í byggingu
fiskeldisstöðvarinnar á Reykjanesi
samdi Stolt Sea Farm við Hafrann-
sóknastofnunina um að prófa sjóinn
á Reykjanesi með tilliti til fiskeldis.
Vikulega var sóttur þangað eins
sjór og stöðin mun nota og voru
ræktuð í honum smágerð hjóldýr
og artemia smárækjur. Dýrin þrif-
ust mjög vel í vatninu.
Lirfur senegalflúranna verða
fluttar hingað úr klakstöð Stolt Sea
Farm á Spáni. Búið er að flytja inn
fimm tilraunasendingar með fisk-
lirfum sem vega einungis 0,2
grömm hver. Lirfurnar voru fluttar
með flugi í sérútbúnum gámum
með súrefnisbúnaði. Þær voru sett-
ar í einangrunarstöð í Sandgerði og
aldar þar í nokkrar vikur. Flutning-
arnir og eldið tókust með ágætum,
að sögn Eyþórs.
Fullbyggð mun fiskeldisstöðin
nota 2.000 sekúndulítra af 35°C
heitum sjó frá Reykjanesvirkjun.
Honum verður blandað við 2.000
sekúndulítra af 8-9°C heitum sjó
sem tekinn er úr fimm borholum
við stöðina. Þannig fæst 20°C heit-
ur sjór sem er kjörhiti senegalfl-
úrunnar.
Framkvæmdir á áætlun
Framkvæmdir hófust í lok apríl
s.l. á lóð Stolt Sea Farm Hafnir. Í
þessum áfanga verður lokið við
jarðvinnu á allri tíu hektara stórri
lóðinni áður en fiskeldið hefst. Allt
efni sem er grafið upp er notað aft-
ur til uppfyllingar, sumt mulið og
harpað í þeim tilgangi. Nú er verið
að leggja framtíðarveg að fiskeld-
isstöðinni. Verktaki við byggingu
fyrsta áfanga er Jáverk og meðal
undirverktaka eru Suðurverk, sem
annast jarðvinnu, og Stálgæði sem
reisir stálgrindurnar.
Þessa dagana er verið að smíða
inntaks- og blöndunarmannvirki og
þau eru engin smásmíði. Risavaxn-
ar pípur úr glertrefjum, 1,6 metrar
í þvermál, hafa verið lagðar í jörð
fyrir að- og frárennsli. Á liðnu
sumri var byggður þriggja hólfa
tankur sem tekur við heitum sjó frá
virkjuninni. Þaðan rennur heiti
sjórinn inn í stöð þar sem honum
verður blandað við kaldari sjó úr
borholum. Sjórinn er súrefn-
isbættur áður en 20°C heit sjó-
blandan rennur í eldiskerin. Það
sem stöðin ekki notar af sjónum fer
um yfirfall í bunustokk virkjunar-
innar og út í hafið líkt og frárennsl-
ið frá stöðinni.
Reykjanesvirkjun stendur hærra
en fiskeldisstöðin og því er vatnið
sjálfrennandi að stöðinni og þarfn-
ast ekki dælingar. Sjálfrennandi
heitt vatnið og gæði þess auka á
hagkvæmni stöðvarinnar, að sögn
Eyþórs.
500 tonn í fyrsta áfanga
Fyrsti áfangi eldisstöðvarinnar á
að framleiða um 500 tonn af
senegalflúru á ári í rúmlega 17.000
fermetra húsnæði. Byrjað er að
reisa stálgrindarhús sem munu
m.a. hýsa skrifstofu, fóðurgeymslu,
rannsóknarstofu, móttöku fyrir lirf-
ur og seiðaeldi. Einnig verða reist-
ar tjaldskemmur úr stálgrindum
sem verða klæddar með mjög
sterkum dúk. Í þeim verður m.a.
áframeldið. Senegalflúra er flat-
fiskur og breiðir úr sér, en eld-
iskerin þurfa ekki að vera djúp.
Vatnið í kerjunum verður aðeins
50-75 sentimetra djúpt.
Stefnt er að því að ljúka bygg-
ingu 1. áfanga stöðvarinnar í maí á
Stolt byggir fiskeldisstöð
Fyrstu byggingar Stolt Sea Farm
Hafnir eru að rísa á Reykjanesi Þar
á að ala senegalflúru, verðmætan flat-
fisk, í volgu vatni frá Reykjanesvirkjun
Fullbyggð skapar eldisstöðin 75 ný
störf og ámóta mörg afleidd störf
Framkvæmdastjórinn Dr. Eyþór Eyjólfsson stendur hér við inntaksstöðina, austast á lóðinni. Í
baksýn sést burðarvirki fyrsta stálgrindarhússins. Byggt verður á öllu svæðinu þar á milli.
Burðarvirkið Stálgæði reisir burðarvirki stálgrindarhúsanna. Páll Ragnar Þórisson véliðn-
fræðingur var að vinna við silfurgráa og galvaníseraða stálbitana í nöprum norðangarranum.
Morgunblaðið/RAX
Stórframkvæmd Lokið verður við jarðvinnu á allri tíu hektara stórri lóðinni í fyrsta áfanganum.
Senegalflúra (solea senegalensis) er flatfiskur, koli, og þykir lík sólkola.
Fiskurinn er mjög holdmikill og fiskholdið þétt og skjannahvítt.
Senegalflúran er heitsjávarfiskur og vex hratt við góðar aðstæður.
Fiskurinn nær 350 gramma markaðsstærð á innan við einu ári við kjör-
aðstæður. Hún er eftirsóttur matfiskur og þykir mjög bragðgóð. Senegal-
flúran selst háu verði á fiskmörkuðum.
Senegalflúran er gómsæt
AFRÍSKUR FLATFISKUR NEMUR LAND Á REYKJANESI
Ljósmynd/Stolt Sea Farm
Senegalflúra Fiskurinn nær sláturstærð á tæpu ári við kjöraðstæður.