Morgunblaðið - 03.11.2012, Blaðsíða 25
næsta ári. Þá koma fyrstu lirfurnar
í kerin. Gangi allt að óskum verður
hægt að slátra fyrstu fullvöxnu
senegalflúrunum hér á landi vorið
2014. Framkvæmdirnar eru allar
fjármagnaðar af eigin fé fyrirtæk-
isins og hvorki tekin lán né heldur
nýtur Stolt Sea Farm skattaíviln-
ana hér á landi.
„Ef allt gengur vel þá höldum við
áfram og klárum næsta áfanga þar
sem framleidd verða 1.500 tonn á
ári,“ sagði Eyþór. Yfir seinni áfang-
ann verða reistar samtals um
54.000 fermetra stórar byggingar.
Húsnæði fullbyggðrar stöðvarinnar
verður því rúmlega 70.000 fermetr-
ar, eða eins og rúmlega tíu fótbolta-
vellir, og framleiðslan um 2.000
tonn af senegalflúru á ári. Þótt
stöðin muni breiða mjög úr sér þá
verður hún ekki áberandi vegna
þess hvað hún stendur lágt undir
hraunkantinum. Hún mun t.d.
hvorki sjást frá Reykjanesvirkjun
né Gunnuhver. Húsin verða
svargrá á lit og munu því falla vel
inn í hraunið þegar horft verður á
stöðina frá sjó.
Skapar fjölda nýrra starfa
Starfsmenn við fyrsta áfanga
stöðvarinnar verða 35 talsins. Þeg-
ar fiskeldisstörf Stolt Sea Farm
verður fullbyggð mun hún skapa 75
bein störf og allt að því jafn mörg
óbein störf m.a. við slátrun, pökkun
og flutning afurðanna. Þegar er bú-
ið að ráða tvo starfsmenn, auk Ey-
þórs, annan þeirra fiskeldisfræðing
og er þjálfun hans hafin.
„Þetta eldi er nákvæmnisvinna,
rétt eins og búskapur. Það þarf að
fylgjast með fiskinum og sjá hvort
hann er að éta eða ekki og með-
höndla hann rétt,“ sagði Eyþór.
Hann sagði að það hefði tekið Stolt
Sea Farm fjórtán ár að þróa
senegalflúru sem eldisfisk. Það
þurfti að fá hana til að klekjast í
búrum, þróa þurrfóður og fá fiskinn
til að éta það. Fóðrið verður flutt
inn til að byrja með en síðar meir
vonast Eyþór til að hægt verði að
framleiða fóðrið hér á landi.
Til að byrja með verður fullvax-
inn fiskurinn fluttur kældur í kör-
um frá stöðinni og honum pakkað
heilum í Reykjanesbæ eða Grinda-
vík. Fiskurinn verður svo fluttur út
ferskur og kældur með flugi til
Evrópu og Norður-Ameríku. Stolt
Sea Farm framleiðir nú um 350
tonn af senegalflúru á ári á Spáni
og gengur mjög vel að selja afurð-
irnar, að sögn Eyþórs.
Stórt í sniðum Dr. Eyþór Eyjólfsson brá sér inn í stórt rör sem mun flytja frárennslið frá fisk-
eldisstöðinni út í bunustokk Reykjanesvirkjunar. Stöðvarhús virkjunarinnar sjást í baksýn.
Blöndunarstöð Verið er að steypa stöð þar sem 35°C heitum sjó frá Reykjanesvirkjun verður
blandað við 8-9°C sjó úr borholum og hann síðan súrefnisbættur áður en hann fer í eldiskerin.
FRÉTTIR 25Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2012
Stolt Sea Farm er dótturfélag
norska stórfyrirtækisins Stolt-
Nielsen Limited, sem er ein
stærsta tankskipaútgerð í heim-
inum.
Einnig annast félagið gas-
flutninga og á olíubirgðastöðvar
víða um heim auk fiskeldisins.
Starfsmenn eru um 5.000.
Stolt-Nielsen fjölskyldan á
meirihluta í fyrirtækinu sem er
skráð í kauphöllinni í Ósló.
Jacob Stolt-Nielsen, fyrrver-
andi forstjóri Stolt-Nielsen Limi-
ted, hóf laxeldi árið 1972 og
stofnaði Stolt Sea Farm. Það
varð þriðja stærsta laxeldisfyr-
irtæki í heiminum með starfs-
stöðvar m.a. í Noregi, Kanada
og Síle.
Laxeldið var selt árið 2006
en Stolt Sea Farm hélt áfram
eldi á sandhverfu, styrju, sene-
galflúru og túnfiski. Eldisstöðv-
arnar eru í Noregi, Frakklandi
og Portúgal, á Spáni, í Banda-
ríkjunum, Ástralíu og brátt á Ís-
landi.
Stolt Sea Farm
MÓÐURFÉLAGIÐ STOLT-NIELSEN LIMITED ER RISASTÓRT