Morgunblaðið - 03.11.2012, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2012
Walker sem framkvæmdastjóra.
Hann er kannski að gera mér ein-
hvern greiða. Ég held að það sé
þessi persónulegi kunningsskapur
við Jón Ásgeir og okkur, sem gerir
þetta að verkum. Þegar ég missti
Haga vildi hann endilega gera eitt-
hvað fyrir okkur og styðja við bakið
á mér. Úr því ég var í stuði til að
byrja aftur, þá vildi hann gjarnan
vera með. Ég held að það sé mjög
mikill styrkur fyrir mig, að hafa
Iceland sem bakhjarl. Ég get því
boðið upp á öðruvísi vörur og keypt
þær ódýrt.“
– Hvað þýða þessi kaup á 35%
hlut í Iceland?
„Þetta styrkir mig í áframhald-
andi rekstri og uppbyggingu. Þetta
er mjög af hinu góða.“
– Fyrst þú nefnir áframhaldandi
uppbyggingu, treystirðu þér til að
opna fleiri verslanir?
„Já, ég mun opna eina 1. desem-
ber og svo er ég opinn fyrir tæki-
færum.“
– Fyrst þú segir uppbygging, ætl-
arðu að auglýsa meira, eða hvað
þýðir þetta?
„Nei, nei. Ég reyni að reka Ice-
land-verslanirnar vel. Náttúrulega
ertu betur í stakk búinn til inn-
kaupa þegar þú hefur nægilegt fjár-
magn.“
Jóhannes segir að 60-70% af mat-
vöru sem Iceland selji sé innlend
framleiðsla og nefnir sem dæmi
landbúnaðarvörur, gosdrykki, kex
og bakkelsi. „Við eigum því í mikl-
um viðskiptum við innlenda aðila,“
segir hann
Iceland í Bretlandi og Hagar
Jóhannes þekkir vel til Iceland en
Baugur, félag í eigu fjölskyldu hans,
keypti í félagi við aðra matvörukeðj-
una í uppsveiflunni. Samstarfsaðilar
Walker keyptu 77% hlut í fyrirtæk-
inu af slitastjórn Landsbankans en
fyrir kaupin átti hann 23% hlut.
Fjölskylda Jóhannesar átti einnig
Haga, móðurfélag Bónuss og fleiri
verslanir, en Arion banki tók yfir fé-
lagið eftir bankahrun. Fram kom í
Viðskiptablaðinu í maí að sam-
kvæmt tólf mánaða starfslokasamn-
ingi sem Jóhannes gerði við Haga
þegar hann fór úr stjórn fyrirtæk-
isins í ágúst 2010 hefði hann ekki
mátt fara í samkeppni við Haga í 18
mánuði. Sá tími væri nú liðinn.
Hann fékk 90 milljóna króna ein-
greiðslu við starfslokin.
Walker í hluthafahóp
Iceland-búða Jóhannesar
Jóhannes Jónsson segir að skriffinnska í Bretlandi hafi dregið ferlið á langinn
Morgunblaðið/Árni Sæberg.
Matvara Fólk streymdi í verslun Jóhannesar við Engihjalla og leit úrvalið
augum þegar hún var opnuð. Næsta verslun verður opnuð eftir mánuð.
Löng bið
» Jóhannes Jónsson hefur
alltaf sagt að Malcolm Walker
mundi eiga Iceland með hon-
um.
» Walker er ekki enn hluthafi í
fyrirtækinu en Jóhannes segir
að Walker muni eignast hlut í
næstu viku.
» Skriffinnska í Bretlandi hef-
ur að sögn Jóhannesar tekið
mikinn tíma.
Jóhannes
Jónsson
Malcolm
Walker
BAKSVIÐS
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Bretinn Malcolm Walker, stofnandi
Iceland-matvörukeðjunnar, mun
ganga í hluthafahóp íslensku Ice-
land-verslunarinnar, sem Jóhannes
Jónsson kaupmaður stofnaði í ár, í
næstu viku. Walker mun líklega
eignast 35% í íslenska fyrirtækinu
og Jóhannes mun eiga 65%. Þetta
segir Jóhannes í samtali við Morg-
unblaðið. „Þetta er alveg að bresta
á; verður í næstu viku.“
Upplýst var að Jóhannes myndi
opna Iceland-matvöruverslun hér á
landi í vor. Hann hefur frá þeim
tíma sagt að Walker mundi eiga
hlut í íslenska fyrirtækinu. Þó er
hann ekki hluthafi í dag. Jóhannes
segir að vegna skriffinnsku í Bret-
landi hafi þetta mál dregist mjög á
langinn. „Það eru lögfræðingar sem
stýra þessu,“ segir hann. Fyrsta
verslunin var opnuð í lok júlí í Engi-
hjalla í Kópavogi. Opna á aðra
verslun 1. desember út við Fiskislóð
í húsnæði sem áður hýsti verslun
Europris.
Fær sæti í stjórn
Fulltrúi frá Walker mun að sögn
taka sæti í stjórn Iceland á Íslandi
ásamt Jóhannesi. Jóhannes segir
Walker að líkindum ekki munu setj-
ast sjálfur í stjórn fyrirtækisins.
„En einhver frá honum.“ Þetta
verði tveggja manna stjórn.
– Það er ekkert sjálfgefið að Wal-
ker fjárfesti hér á landi. Krónan
getur hoppað og skoppað jafnvel
þótt verslunin gangi vel.
„Já. Þetta er bara fyrir tilstuðlan
fyrri kunningsskapar. Við [Baugur]
áttum Iceland á tímabili og réðum
● Arion banki hefur hafið end-
urútreikning tiltekinna ólögmætra
gengistryggðra lána sem eiga sér sam-
bærilega greiðslusögu og lán sem ný-
legur hæstaréttardómur í máli Borg-
arbyggðar fjallaði um, samkvæmt því
sem fram kemur í fréttatilkynningu frá
Arion banka.
„Um er að ræða lán til einstaklinga
og minni fyrirtækja þar sem fulln-
aðarkvittun um greiðslu á vöxtum og
höfuðstólsafborgun liggur fyrir sam-
kvæmt skilmálum lánsins, óháð láns-
tíma,“ segir orðrétt í tilkynningunni.
Arion banki áætlar að innan þriggja
mánaða verði endurútreikningi fram-
angreindra lána að mestu lokið og nið-
urstaðan verði aðgengileg í netbanka
viðskiptavina.
Endurreikna lánin
● Standard & Poor’s hefur lækkað
lánshæfiseinkunn fyrirtækisins Panaso-
nic í annað sinn á einu ári.
S&P lækkaði lánshæfið um tvo
punkta niður í BBB. Í yfirlýsingu frá
matsfyrirtækinu kemur fram að þetta
sé annað árið í röð sem félagið muni
tapa miklum fjármunum. Það veiki láns-
hæfi þess. Í gærmorgun lækkaði mats-
fyrirtækið Fitch lánshæfi Sharp niður í
ruslflokk en Sharp hafði líkt og Panaso-
nic varað við miklu tapi.
S&P lækkar Panasonic
Stuttar fréttir…
!"# $% " &'( )* '$*
+,-.,/
,01.,2
+,-./3
,+.234
,,.+,-
+3.33-
+1/.-2
+.42+,
+51.4-
+-,.4/
+,-.4/
,01.2-
+,-.34
,+.3/5
,,.+5+
+3.5/+
+14.04
+.4243
+5/.+/
+-,.55
,,4.,-35
+,-.3/
,0/.,4
+,2.,,
,+.5+1
,,.,4-
+3.55-
+14./1
+.430/
+5/.2,
+-1.//
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Steinþór Pálsson,bankastjóri Lands-
bankans, hefur gefið til kynna að
hann vonist til að hægt verði að lengja
skuldabréfið um 10-20 ár. Í markaðs-
punktum Arion banka er þessi mögu-
leiki ræddur og þar sagt, að nái slík
áform fram að ganga, gætu þau valdið
straumhvörfum.
Orðrétt segir í markaðspunktum
bankans í fyrradag: „Ljóst má vera að
Landsbankinn hefur safnað umtals-
verðum gjaldeyri á síðustu misserum,
eins og batnandi gjaldeyrisstaða
bankans gefur til kynna. Ef umrædd
framlenging nær fram að ganga er
ljóst að gjaldeyrisþörf bankans mun
snarminnka á næstu árum sem mun
að öðru óbreyttu draga úr þrýstingi á
gengi krónunnar. Í raun má ganga
svo langt að segja að þetta gæti valdið
straumhvörfum.“
Þar segir ennfremur að áhrifin
komi líklega fljótt fram, þrátt fyrir að
enn sé nokkuð í næstu höfuðstóls-
greiðslu (árið 2015), þar sem Lands-
bankinn þurfi ekki lengur að einbeita
sér í jafn ríkum mæli að gjaldeyris-
söfnun og áður. Hversu sterk áhrifin
verði sé erfitt að segja til um í dag,
þar sem ekki sé vitað með vissu
hversu umsvifamikill bankinn hefur
verið á gjaldeyrismarkaði.
Morgunblaðið/Kristinn
Landsbankinn Lenging á skuldabréfi bankans um 20 ár gæti breytt miklu.
Lenging skuldabréfs
gæti breytt miklu
Gjaldeyrisþörfin myndi minnka