Morgunblaðið - 03.11.2012, Blaðsíða 28
FRÉTTASKÝRING
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
„Fjórir dagar í viðbót!“ hrópuðu
stuðningsmenn Mitts Romneys, for-
setaefnis repúblikana, þegar hann
ávarpaði kosningafund í Wisconsin í
gær, áður en hann hélt til Ohio, þar
sem keppinautur hans, Barack
Obama, reyndi einnig að afla sér
stuðnings á lokasprettinum fyrir
kosningarnar á þriðjudag.
Skoðanakannanir sýna að litlu
munar á fylgi frambjóðendanna en
Obama virðist þó hafa örlítið forskot á
Romney í flestum þeirra ríkja þar
sem stuðningur við hvorugan er af-
gerandi. Þessi ríki eru, samkvæmt
CNN, Ohio, Colorado, Iowa, New
Hampshire, Nevada, Virginia, Wis-
consin og Flórída, sem Romney verð-
ur að vinna ætli hann að eiga mögu-
leika á forsetaembættinu.
Nýjar atvinnuleysistölur sem
komu út í gær sýndu að atvinnuleysi
jókst um 0,1 prósentustig milli mán-
aða og stendur nú í 7,9%. Á sama tíma
fjölgaði störfum um 171 þúsund en
sérfræðingar höfðu spáð því að störf-
um myndi fjölga um 125 þúsund.
Niðurstöðurnar eru sagðar mikill
léttir fyrir Obama en slæmar tölur
hefðu mögulega getað kostað hann
kosningarnar. En þrátt fyrir að nýj-
um störfum hafi fjölgað í 25 mánuði,
um 580.000 alls frá því að Obama tók
við embætti, þótti Romney ekki mikið
til koma.
„Í fjögur ár hefur stefnumótun
Obama forseta sligað millistéttina,“
sagði Romney. „Þegar ég verð forseti
mun ég gera raunverulegar breyting-
ar sem munu leiða til raunverulegs
bata, þannig að næstu fjögur ár verði
betri en þau síðustu,“ sagði hann.
Slagsmál brutust út í löngum bið-
röðum við þær fáu bensínstöðvar sem
enn voru opnar í New York-ríki og
New Jersey í gær. Þá var eldsneyti
orðið af skornum skammti og yfirvöld
í sumum bæjum og borgum höfðu
neyðst til að grípa til skömmtunar,
jafnvel til lögreglunnar.
Vandamálið var þó ekki alls staðar
skortur á eldsneyti, heldur neyddust
sumar stöðvarnar til að hafa lokað þar
sem ekkert rafmagn var á dælunum
en 4,5 milljónir heimila og fyrirtækja í
15 ríkjum voru enn án rafmagns.
Alls hefur verið tilkynnt um 98
dauðsföll í Bandaríkjunum eftir að
fellibylurinn Sandy gekk á land að-
faranótt þriðjudags en þá hafði fár-
viðrið þegar valdið 69 dauðsföllum í
Karíbahafinu.
Hart barist á loka-
spretti baráttunnar
Eldsneytisskortur og rafmagnsleysi á austurströndinni
AFP
Forsetinn Borgarstjóri New York-borgar, Michael Bloomberg, lýsti yfir stuðningi við Obama í gær.
AFP
Áskorandinn Kannanir benda til þess að kosningarnar á þriðjudag verði af-
ar tvísýnar en Romney þarf að sigra í Flórída til að eiga möguleika.
Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2012
Mannréttindafulltúi Sameinuðu
þjóðanna, Navi Pillay, kallaði eftir
því í gær að Kína tæki til athug-
unar þau mörgu ágreiningsefni sem
leitt hefðu til fjölda örvænting-
arfullra mótmæla í Tíbet á síðustu
misserum.
Um 60 Tíbetar, margir þeirra
munkar og nunnur, hafa kveikt í
sér í Kína síðan í febrúar 2009 í
mótmælaskyni við yfirráð Kína í
Tíbet, þar af sjö í síðustu viku.
„Ég skil mikla gremju og ör-
væntingu Tíbeta, sem hefur orðið
til þess að þeir grípa til róttækra
aðgerða sem þessara,“ sagði Pillay
og biðlaði til kínverskra stjórnvalda
um að leyfa Tíbetum að tjá tilfinn-
ingar sínar án þess að eiga það á
hættu að þeim hefndist fyrir. Hún
sagðist vera uggandi vegna ásak-
ana um að Tíbetar væru beittir of-
beldi fyrir að neyta réttar síns,
grundvallarmannréttinda á borð við
tjáningarfrelsið, og harmaði fregnir
af handtökum og mannshvörfum og
ofbeldi gegn friðsömum mótmæl-
endum.
„Ég skora á stjórnvöld að virða
rétt fólks til að koma saman og tjá
sig í friðsamlegum tilgangi og að
láta þá lausa sem hafa verið hand-
teknir fyrir að neyta þessara al-
gildu réttinda,“ sagði hún.
Þá hvatti hún Tíbeta til að finna
aðrar leiðir til að mótmæla en að
fórna lífi sínu.
Skorar á Kína að virða
rétt Tíbeta til mótmæla
AFP
Vaka Tíbetar á Indlandi biðja fyrir
ungum manni sem kveikti í sér.
Tíbetar geti
tjáð sig óhræddir
Mótmæli
» Margir Tíbetar hafa ásakað
stjórnvöld í Kína um trúar-
ofsóknir og segja þau vega að
tíbeskri menningu.
» Pillay tók dæmi um 17 ára
stúlku sem var beitt ofbeldi og
dæmd í 3 ára fangelsi fyrir að
dreifa bréfum þar sem kallað
var eftir frjálsu Tíbet.KORTIÐ GILDIR TIL
31. janúar 2013
– MEIRA FYRIR ÁSKRIFENDUR
MOGGAKLÚBBURINN
MOGGAKLÚBBSFÉLÖGUM
BJÓÐAST FJÖLMÖRG FLOTT
TILBOÐ Í NÓVEMBER
Ertu ekki örugglega áskrifandi!
MOGGAKLÚBBURINN
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á MBL.IS/ASKRIFT
EÐA Í SÍMA 569 1100
Moggaklúbburinn er fríðindaklúbbur Morgunblaðsins. Allir
áskrifendur Morgunblaðsins eru sjálfkrafa meðlimir í Mogga-
klúbbnum, hvort sem um er að ræða blaða- eða net- og
iPad-áskrifendur.
Áskrifendur njóta ýmissa fríðinda og tilboða á m.a. veitinga-
stöðum, bíóhúsum, utanlandsferðum, listviðburðum og
bókum.
Tilboð og fríðindi Moggaklúbbsins eru birt í Morgunblaðinu
og er að finna á mbl.is/moggaklubburinn. Skráning á
póstlista Moggaklúbbsins fer fram á mbl.is/postlisti
Hafðu samband í síma 569 1100
eða askrift@mbl.is hafi Moggaklúbbskortið ekki borist þér.