Morgunblaðið - 03.11.2012, Side 29
FRÉTTIR 29Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2012
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Umdæmisdómstóllinn í Lefortovsky
í Moskvu komst að þeirri niður-
stöðu í gær að ákvörðun rússnesku
rannsóknarnefndarinnar, að neita
að rannsaka hvernig staðið var að
björgunaraðgerðum þegar tétsnesk-
ir skæruliðar tóku 912 leikhúsgesti í
gíslingu fyrir áratug, hafi verið
ólögmæt.
Úrskurður dómstólsins þykir
óvenjulegur en því hefur verið hald-
ið fram að rússneskir dómstólar
hlífi stjórnvöldum venjulega við því
að axla ábyrgð og margir hafa lýst
yfir efasemdum um að embættis-
mennirnir, sem höfðu yfirumsjón
með hinni umdeildu björgunarað-
gerð, verði nokkurn tímann sóttir til
saka.
Alls 130 létust þegar rússneskir
sérsveitarmenn réðust inn í Du-
brovka-leikhúsið 26. október 2002
en það hafði þá verið á valdi téts-
neskra skæruliða í þrjá daga, sem
höfðu hótað því að sprengja upp
bygginguna ef Rússar kölluðu her-
afla sinn ekki frá Tétsníu.
Í björgunaraðgerðunum notuðu
sérsveitirnar óþekkt gas til að taka
gíslatökumennina úr umferð en
margir af þeim sem lifðu af segja
heilsu sína hafa hlotið varanlegt
tjón af gasinu og að þeir hafi ekki
fengið viðeigandi læknismeðferð
þar sem enn sé ekki vitað hvaða gas
var um að ræða.
„Við höfum þurft að bíða eftir
þessu í áratug,“ sagði lögfræðing-
urinn Igor Trunov, sem sótti málið,
eftir að úrskurður var kveðinn upp í
gær. Hann sagði niðurstöðu dóm-
stólsins um að ákvörðun rannsókn-
arnefndarinnar hefði verið ólögmæt
hafa komið á óvart.
Draga þurfi menn til ábyrgðar
Það var í fyrra sem Mannrétt-
indadómstóll Evrópu fyrirskipaði
rússneskum stjórnvöldum að taka
upp rannsókn á því hvernig dauða
gíslanna í Dubrovka-leikhúsinu bar
að en rannsóknarnefndin, sem er
sambærileg við FBI í Bandaríkj-
unum, neitaði.
Gagnrýnendur aðgerðanna hafa
sagt að refsa hefði átt háttsettum
embættismönnum á sviði öryggis-
mála í kjölfar atburðarins, annars
vegar fyrir að hafa brugðist þegar
skæruliðarnir tóku leikhúsið og hins
vegar fyrir að hafa lagt blessun sína
yfir notkun banvæns gassins.
Trunov segir hins vegar að draga
þurfi sjúkraliðana sem komu á stað-
inn, slökkviliðsmennina og fyrrver-
andi borgarstjórann Yury Luzhkov
til ábyrgðar.
„Í staðinn fyrir að bera meðvit-
undarlaust fólkið út klæddu þeir
það úr loðkápunum,“ sagði hann.
„Rán [þar sem harmleikur hefur átt
sér stað] er þekkt fyrirbæri í Rúss-
landi. Þeir afklæða lík alls staðar en
í Rússlandi gerir enginn neitt í því,“
sagði hann.
Ákvörðun rannsóknar-
nefndarinnar ólögmæt
AFP
Minning Þess var minnst í október sl. að tíu ár voru liðin frá harmleiknum.
Máttu ekki neita
að rannsaka Du-
brovka-gíslatökuna
Dubrovka
» Gasið, sem sérsveitirnar
dældu inn í leikhúsið áður en
þær réðust inn, varð flestum af
þeim 130 sem létu lífið að bana.
» Mörg börn voru meðal gísl-
anna í leikhúsinu og af þeim
sem létu lífið voru sautján leik-
arar og tónlistarfólk sem tók
þátt í sýningunni.
Frá og með næsta ári verður nýju
líffæragjafakerfi komið á í Kína,
sem ætlað er að minnka þörfina
fyrir líffæragjafir frá dauðadæmd-
um föngum.
Þetta kemur fram í nóv-
emberhefti tímarits Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunarinnar en þar
segir sérfræðingur í kínverska
heilbrigðisráðuneytinu að líf-
færagjafakerfi sem reiði sig á líf-
færi úr föngum sem teknir hafa
verið af lífi sé hvorki siðlegt né
varanleg lausn.
Í fyrra voru um 4.000 fangar
teknir af lífi í Kína, þar sem eft-
irspurn eftir líffærum er langt
umfram framboð.
Hætta að reiða sig á líffæri úr föngum
KÍNA
Þórsteinssjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki
úr sjóðnum.
Tilgangur Þórsteinssjóðs er að styrkja blinda og sjónskerta til náms við Háskóla
Íslands og að efla rannsóknir á fræðasviðum sem aukið geta þekkingu á blindu
og skertri sýn, einkum í félags- og hugvísindum.
Umsóknarfrestur er til 16. nóvember 2012.
Í ár verða veittir námsstyrkir til blindra eða sjónskertra stúdenta sem stunda nám
eða hyggja á nám við Háskóla Íslands skólaárið 2013–2014. Heildarfjárhæð
styrkja er að hámarki tvær milljónir króna.
Frekari upplýsingar um styrkveitingu og úthlutun er að finna á heimasíðu HÍ,
hi.is og sjóðavef HÍ, sjodir.hi.is. Einnig hjá Helgu Brá Árnadóttur, verkefnastjóra
styrktarsjóða og hollvina, helgab@hi.is, sími 525 5894.
STYRKTARSJÓÐIR
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
12
31
48
Styrkir til blindra og sjónskertra
nemenda við HÍ
Markaðsverðlaun ÍMARK verða afhent
á Hilton Reykjavík Nordica
fimmtudaginn 8. nóvember kl.12
Forseti Íslands afhendir verðlaun fyrir
Markaðsfyrirtæki ársins og Markaðsmann ársins.
Allir velkomnir
2012
Nánari upplýsingar á imark.is
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
KALT ÚTI
Rafmagnshitablásari
2Kw 1 fasa
6.990
Panelofnar í MIKLU ÚRVALI!
FRÁBÆRT VERÐ!
KRANAR OG
HITASTILLAR FRÁ
Ryco-1509 Olíufylltur
2000W rafmagnsofn
m/termo stillingum og
yfirhitavörn 9 þilja
7.990
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
Akureyri
Vestmannaeyjum
Ryco-2006T Rafmagns-
þilofn Turbo með yfirhita-
vari 3 stillingar 2000w
4.490
Rafmagnshita-
blásari 2Kw
1.995