Morgunblaðið - 03.11.2012, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 03.11.2012, Blaðsíða 30
SVIÐSLJÓS Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is U mhverfis- og sam- göngunefnd Alþingis er með til umfjöllunar þingsályktunartillögu um áætlun um vernd og nýtingu orkusvæða, rammaáætl- unina svonefndu. Óljóst er hvenær nefndaráliti verður skilað fyrir síðari umræðu á Alþingi eða hvort meiri- hluti sé fyrir tillögunni. Óskað var eftir viðbótarumsögnum um rammaáætlunina og meðal þeirra sem skiluðu slíkri umsögn var Lands- virkjun. Þar er aðallega fjallað um Bjarnarflagsvirkjun en einnig virkj- anir í neðri hluta Þjórsár, þar sem ítrekuð er afstaða í fyrri umsögn Landsvirkjunar um að virkjunar- kostir í neðri hluta Þjórsár verði færðir aftur í virkjunarflokk. Langt rannsóknarferli Varðandi Bjarnarflagsvirkjun þá segir Landsvirkjun í sinni umsögn að samkvæmt þingsályktunartillögunni sé virkjunin sett í nýtingarflokk. Bent er á að langt ferli liggi að baki þróun fyrirhugaðra framkvæmda í Bjarnar- flagi. Undirbúningurinn hófst árið 1992 og vinna vegna umhverfismats fyrir síðustu aldamót. Jarðhita- rannsóknir á svæðinu ná enn lengra aftur, eða til byrjunar 7. áratugar 20. aldar. Á grundvelli þeirra rannsókna gerði Landsvirkjun áætlun um 40 MW virkjun í Bjarnarflagi og lagði fram skýrslu um mat á umhverfis- áhrifum. Eftir úrskurð Skipulags- stofnunar árið 2000 var ráðist í frek- ari rannsóknir, m.a. varðandi affall og hveravirkni. Á grunni nýrra gagna, eins og um stærð hitasvæðisins, voru lagðar fram áætlanir um 90 MW virkjun í tveimur áföngum. Í umsögn sinni segist Lands- virkjun áforma „varfærna uppbygg- ingu“ á svæðinu með því að reisa fyrst 45 MW virkjun. Ákvörðun um 2. áfanga verði ekki tekin fyrr en fyrir liggi niðurstöður úr vöktun grunn- vatns sem berst til Mývatns og vökt- un á hveravirkni í Hverarönd og gufuuppstreymi í Jarðbaðshólum. Sú breyting hefur verið gerð á áformum um meðferð affallsvatns frá virkjun- inni að förgun á yfirborði verður hætt og vatninu dælt niður fyrir botn Mý- vatns. Fram hafa komið áhyggjur af áhrif- um affallsvatnsins á volga jarðvatns- strauma í Mývatn og áhrifum á lífríki vatnsins. Landvernd hefur þannig lýst miklum áhyggjum sínum og kraf- ist þess að Landsvirkjun stöðvi fram- kvæmdir í Bjarnarflagi og að fram fari nýtt mat á umhverfisáhrifum virkjunarinnar. Góð reynsla af Kröflu Einnig hafa komið fram áhyggjur af óvissu um áhrif niðurdælingar, með vísan til skjálftanna á Hellisheiði þeg- ar Orkuveita Reykjavíkur dældi af- fallsvatni þar niður. Í umsögn Lands- virkjunar, sem undirrituð er af Herði Arnarsyni forstjóra, segir að með vís- an til góðrar reynslu af niðurdælingu við Kröfluvirkjun sé óvissan um áhrif niðurdælingar talin hverfandi. Hins vegar sé gert ráð fyrir svig- rúmi til tilrauna áður en endanleg lausn verður valin. Í því sambandi sé mikilvægt að Landsvirkjun áformi varfærna uppbyggingu virkjunar- innar. Jafnframt er bent á það í viðbótarumsögn Landsvirkjunar að affallsvatn frá núverandi Bjarnar- flagsvirkjun, sem hefur verið í rekstri frá árinu 1969, sé lítið brot af volgu innrennsli til Mývatns, innan við 1%, og ekki merkjanlegt í grunnvatninu hvort það hafi minnkað eða aukist. „Í raun eru áhrifin þau að ástandið á innrennslinu færist í það horf sem var fyrir vinnslu í Bjarnarflagi en verður áfram undir áhrifum af um- brotum vegna Kröfluelda,“ segir í umsögn Landsvirkjunar. Áhrif niðurdælingar talin hverfandi Morgunblaðið/Birkir Fanndal Bjarnarflag Landsvirkjun hóf síðsumars undirbúningsframkvæmdir fyrir Bjarnarflagsvirkjun, sem Landvernd krefst að verði stöðvaðar. 30 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2012 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Íbúar austur-strandarBandaríkj- anna og íbúar hér á landi hafa fengið að kynnast ógn- arafli náttúrunnar síðustu daga. Stormurinn Sandy olli miklum skaða í Bandaríkjunum, þar með talið mannskaða, og munu Bandaríkjamenn þurfa að glíma við afleiðingar hans mánuðum saman. Stormurinn sem nú gengur yfir Ísland hefur að vísu ekki fengið nafn eins og fellibylj- irnir í Bandaríkjunum, en ofs- inn í veðrinu er engu minni. Í hviðum fór hann yfir 60 metra á sekúndu og fólk hefur bók- staflega fokið um koll. Á slysa- varðstofunni í Reykjavík muna menn ekki annan eins storm. Í Bandaríkjunum skall stormurinn á þéttbýlum svæð- um þegar kosningabaráttan fyrir forsetakosningarnar stóð sem hæst og búast má við að hann kunni að hafa pólitískar afleiðingar. Ef til vill hefur hann hindrað sókn Romneys, en um það er þó enn of snemmt að fullyrða. Nafnlausi stormurinn ís- lenski hefur tæpast pólitísk áhrif, enda engin ástæða til. Hann má hins vegar að ósekju verða landsmönnum öllum til umhugsunar um innlend ör- yggismál. Í Bandaríkjunum hafa lögreglumenn, slökkvilið og fjöldi sjálfboðaliða tekist á við storminn og afleiðingar hans. Til viðbótar hefur herinn verið kallaður til og munar um minna þegar svona stendur á. Hér á landi hafa sömu aðilar tekist á við vandann, fyrir ut- an að hér er enginn her að grípa til við slíkar aðstæður. Hér lendir meg- inþungi aðgerða á lögreglu og sjálf- boðaliðum björg- unarsveitanna sem vinna ótrúleg þrekvirki í hvert sinn sem slíkar að- stæður koma upp hér á landi. Afar mikilvægt er að þeir sem borgararnir treysta á þegar á reynir séu þannig mannaðir og þannig búnir að þeir ráði við aðstæðurnar. Þetta leiðir hugann að stöðu lögreglunnar, sem hefur á liðnum árum tekist á við gríð- arlega erfiðar aðstæður en hefur á sama tíma þurft að þola mikinn niðurskurð. Og lögreglan hefur einnig fundið fyrir niðurskurði annars stað- ar hjá hinu opinbera, eins og greint var frá um daginn, því að hún er oftar kölluð til að- stoðar en áður vegna mann- eklu í velferðarkerfinu. Niðurskurður hjá lögregl- unni getur ekki haldið áfram, sér í lagi vegna þess að Íslend- ingar verða að geta treyst á að hún sé nægilega vel búin og nægilega mönnuð. Við köllum ekki út herinn ráði lögreglan ekki við aðstæður. Um leið er brýnt að björg- unarsveitir landsins hafi þann búnað sem nauðsynlegur er til að geta sinnt áfram því um- fangsmikla sjálfboðastarfi sem þær hafa tekið sér fyrir hendur. Stormurinn sem nú geisar hér á landi er enginn aufúsugestur en hann mætti að ósekju hafa þau jákvæðu áhrif að minna á mikilvægi öfl- ugrar löggæslu og vel búinna björgunarsveita. Það neyð- arkall, sem báðir þessir aðilar senda frá sér með reglubundn- um hætti, hverfur vonandi ekki í háværu hvassviðrinu. Íslendingar og Bandaríkjamenn hafa síðustu daga fengið að kynnast óblíðri náttúrunni} Stórviðri Stjórnarliðartala mikið um bata og árangur ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum en aðrir eiga erf- iðara með að koma auga á afrekin. Ekki verður það auðveldara við lestur nýrr- ar þjóðhagsspár Hagstof- unnar, sem lækkar hagvaxt- arspár sínar fyrir þetta ár og næsta frá spá sinni í sumar. Þróun atvinnuvegafjárfest- ingar er ekki minna áhyggju- efni. Hagstofan spáir því að vöxturinn fari úr því að vera of lítill í ár í að vera enginn á næsta ári. Skýringin á þessari stöðnun er vitaskuld sú að ríkisstjórnin stendur þvert gegn allri upp- byggingu í atvinnulífinu. Eitt dæmið um fyr- irstöðuna er þrautaganga rammaáætlunar í gegnum ráðuneyti og þing sem ekki sér fyrir endann á. Undir núverandi ríkisstjórn er Ísland að festast á allt of lágri fjárfestingar- og hag- vaxtarbraut með ömurlegum afleiðingum fyrir landsmenn þegar fram í sækir. Þessi stefna verður að óbreyttu til þess að Ísland fellur niður lista yfir best settu þjóðir heims og mun skipa sér á bekk með Grikklandi og öðrum fórn- arlömbum evrunnar í stað þess að vera áfram í fremstu röð. Af þessari neikvæðu braut er hægt að snúa – og af henni verður að snúa. Batinn sem ríkisstjórnin boðar verður ekki lesinn út úr nýjum hagtölum} Hagsæld í hættu Þ að vakti hneykslan margra þegar Morgunblaðið sagði frá því fyrir skömmu að rekstrarfélag Kringl- unnar innheimti leigu af Slysa- varnafélaginu Landsbjörg fyrir að fá að selja Neyðarkallinn á göngugötum húss- ins. Guðmundur Örn Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri Landsbjargar, sagði í samtali við Morgunblaðið að svona hefði þetta reyndar verið í nokkur ár en félagið hefði einfaldlega reiknað út að það borgaði sig að greiða leiguna. Fyrirtækið Kraftvélar var þó ekki lengi að bregðast við fréttunum og ákvað að styrkja Landsbjörg um leiguupphæðina, 300.000 krón- ur. Það var sölustjóri hjá Kraftvélum sem af- henti styrkinn en fékk það að launum að mynd frá afhendingunni var birt flennistór í DV fyrir helgi, með umfjöllun um meint gjaldeyrisbrask Guðmundar, sem hefur tekið sér leyfi frá störfum vegna málsins. Tímasetning hneykslisins, ef svo má að orði komast, hefði vart getað verið verri en björgunarsveitarfólk kallar nú ekki allt ömmu sína og hóf ótrautt sölu á Neyðarkall- inum á fimmtudag, sem að þessu sinni er íklæddur kaf- arabúningi. Ólafur Ragnar og Dorrit keyptu fyrstu kall- ana, tvo hvort, og þar með var átakinu formlega hrint úr vör. En þá gerði aftakaveður. Og í stað þess að standa á hverju götuhorni og bjóða fólki að kaupa Neyðarkall til styrktar starfinu, fékk björgunarsveitarfólkið okkar sjálft neyðarkall; um að tryggja þakplötur og lausamuni, hjálpa fólki á bílum föstum í snjó og aka fólki í umönn- unarstörfum til vinnu, svo dæmi séu tekin. Hvar værum við án þessa fólks? Í flestum stærri björgunarsveitum þurfa ný- liðar að klára 18 mánaða nýliðaþjálfun og sitja 10-15 námskeið en eftir nýliðaþjálfunina tekur síðan við sérhæfing. Björgunarsveitarfólk sinnir sjálft fjáröflun fyrir sveitirnar og það er ekki óalgengt að það gefi yfir 100 klukkustundir af tíma sínum í fjár- öflunarverkefni á ári. Þar með talin er flug- eldasalan milli jóla og nýárs, sem kallar á langa daga, og kvöld, fjarri fjölskyldunni. Þegar útkall kemur er ekki spurt að því hvort björgunarsveitarfólkið sé þreytt, svangt eða upptekið. „Þú bara mætir og leysir þau verkefni sem þér eru falin,“ segir ein sem þekkir til. Margt björgunarsveitarfólk er launalaust ef útkall ber upp á vinnutíma en að sama skapi eru margir atvinnurekendur sem líta á það sem sitt fram- lag að greiða fólki laun fyrir þann tíma sem það ver í að hjálpa öðrum. Samkvæmt lögum nr. 43 frá 2003 er björgunarsveitum „skylt að hefja björgun, leit og gæslu ef stjórnvöld óska þess“. Hlutverk þeirra er samkvæmt lögunum „að starfa í þágu almannaheilla með þátttöku við björgun, leit og gæslu á ábyrgð stjórnvalda og í samvinnu við þau“. Það er vonandi að þetta leiðindaveður verði ekki til þess að draga úr sölu á Neyðarkallinum, heldur minni fólk á nauðsyn þess að styrkja starf björgunarsveitanna. holmfridur@mbl.is Neyðarkall í vonskuveðri Pistill Hólmfríður Gísladóttir STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon Virkjun háhitasvæða hefur óhjákvæmilega í för með sér förgun skiljuvatns. Dæling þess niður í jarðhitageyminn er um margt skynsamleg að- gerð og skiptir litlu hvort er litið til umhverfis eða jarðhita- vinnslu. Aðgerðin er hins vegar flókin og þarfnast mikils und- irbúnings og eftirlits. Þetta kemur fram í minnis- blaði Snorra P. Snorrasonar, jarðfræðings hjá Almennu verkfræðistofunni, til umhverf- is- og samgöngunefndar Al- þingis. Segir Snorri að nið- urdæling hafi ýmsa kosti en hún sé dýr og valdi alltaf skjálftavirkni. Skynsamlegt en flókið NIÐURDÆLING VATNS Niðurdæling Vatni hefur verið dælt niður frá Hellisheiðarvirkjun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.