Morgunblaðið - 03.11.2012, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 03.11.2012, Qupperneq 33
UMRÆÐAN 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2012 Núverandi rík- isstjórn sem kennir sig við norræna velferð er á góðri leið með að eyði- leggja grunn heilbrigð- iskerfisins á Íslandi með því að sýna heilsu- gæslu og heimilislækn- ingum algjört af- skiptaleysi. Formaður heimilislækna sagði frá því nú um daginn að tugþúsundir Reykvík- inga hefðu ekki skráðan heim- ilislækni en heilsugæslan er allajafna fyrsta aðkoma almennings sem þarf að leita sér lækninga. Jafnframt kom fram hjá formanni heimilislækna að aðbúnaður og álag á starfsfólk heilsu- gæslunnar í Reykjavík er komið að þolmörkum. Hvað þýðir það í raun að hafa ekki sinn heimilislækni? Einstaklingar og fjölskyldur sem eru án skráðs heim- ilislæknis ná ekki að byggja upp þann trúnað og þá þekkingu á heilsufari viðkomandi sem skráður heim- ilislæknir hefur sýn yfir. Heim- ilislæknir er sá aðili í heilbrigðiskerf- inu sem á að hafa alla sjúkrasögu viðkomandi hjá sér. Heilsugæslan er í forystu í forvörnum gagnvart lífstíl- ssjúkdómum sem eru í flestum tilvikum áunnir sé ekkert að gert. Við Reykvíkingar höfum orðið illilega fyrir barðinu á niðurskurði í heilbrigðisþjónustunni á síðustu árum. Velferð- arráðherra hefur tapast á teiknistofu SPITAL og hefur ekki fundist þrátt fyrir ítarlega leit. Þó heyrðist misskilið neyðarkall frá honum er hann hækkaði laun eins læknis nú um daginn en sambandið rofnaði við hann og allt varð við það sama. Öll orka norrænu velferðarstjórnarinnar hefur farið í að halda uppi hönnunar- og verkfræðigeiranum við útfærslu á nýju sjúkrahúsi. Á meðan eru Reyk- víkingar afskiptir og þurfa að glíma einir og sér við sína lífstílssjúkdóma og mæta ekki til læknis fyrr en í óefni er komið. Við taka yfirfullar deildir hátæknisjúkrahússins, þar sem álag- ið er komið yfir þolmörk eins og ann- ars staðar í heilbrigðiskerfinu. Þetta heitir hjá núverandi stjórnvöldum að hafa „varið“ velferðarkerfið. Það hlýtur að vera skynsamlegt, bæði heilsufarslega og ekki síður fjár- hagslega, fyrir Reykvíkinga og þjóð- ina alla að huga vel að heilsugæsl- unni. Þjóðin eldist og þarf betri upplýsingar og nánara eftirlit til að koma í veg fyrir ótímabæran heilsu- missi vegna hás blóðþrýstings, syk- ursýki, stíflunar kransæða ofl. sjúk- dóma, sem með reglubundnu eftirliti á heilsugæslustöð er hægt að koma í veg fyrir eða uppgötva í tíma þannig að sem minnstur skaði hljótist af. Bílaumboð gera það að kröfu fara með nýkeyptan bílinn í skoðun með reglubundum hætti hjá umboðsaðila í fyrirbyggjandi viðhald til að viðhalda ábyrgðartryggingu sem veitt er við kaup á bílnum. Við eigum að gera sömu kröfu til heilbrigðiskerfisins sem gæti verið í formi reglubundinna, aldurstengdra skoðana á ein- staklingum. Til þess að svo megi verða verður að hlusta á starfsfólk heilsugæsl- unnar og koma til móts við kröfur þess er varðar bæði starfskjör og að- búnað. Huga verður að nýju rekstr- arformi heilsugæslunnar án fordóma. Upplýsingar sem komið hafa frá Sví- þjóð benda til þess að breytt rekstr- arfyrirkomulag á heilsugæslu hafi reynst vel og bætt aðgengi og þjón- ustu við borgarana þannig að eftir er tekið. Í kjölfarið hefur læknum fjölg- að verulega sem velja sér heim- ilislækningar sem sérgrein í Svíþjóð. Þessu er öfugt farið hér. Sárafáir læknar velja heimilislækningar sem sérgrein og aldurssamsetning starf- andi heimilislækna er á þann veg, að innan fárra ára fækkar starfandi heimilislæknum verulega á Íslandi. Þessari þróun þarf að snúa við hið snarasta í nánu samstarfi við starfs- fólk heilsugæslunnar. Við höfum ekki efni á öðru, hvorki heilsufarslega né fjárhagslega. Heilsutjón í norrænni velferð Eftir Guðlaug Gylfa Sverrisson » Það hlýtur að vera skynsamlegt, bæði heilsufarslega og ekki síður fjárhagslega, fyrir Reykvíkinga og þjóðina alla að huga vel að heilsugæslunni. Guðlaugur Gylfi Sverrisson Höfundur er verkefnastjóri og er í framboði til sætis á lista Framsókn- arflokksins í Reykjavík. Lög sem Alþingi setur eru þverbrotin af stjórnsýslunni sem á sama tíma áminnir aðra og sektar fyrir að fara ekki að lög- um. Það kemur sífellt betur í ljós hversu stjórnsýslan fer sínu fram og hundsar allt og alla þegar vanhæfi hennar eða hagur býður svo. Nýjasta dæmið er aum- legar afsakanir stjórnenda rík- isfyrirtækja sem hafa ekki skilað ársreikningum eins og krafist er af öðrum. Slíkar afsakanir dygðu skammt ef aðrir ættu í hlut. Nefna má glöggt dæmi sem snert- ir litla fjárhagslega hagsmuni en endurspeglar meira það viðhorf, að stjórnsýslan geti farið sínu fram án tillits til laga ef það þykir þægilegt. Dæmið sem ég nefni er brot á lögum um þjóðfánann. Í þeim er skýrt, að allar opinberar stofnanir eiga að draga fána að húni alla opinbera fánadaga eða eins og segir í lögunum: Draga skal fána á stöng á hús- um opinberra stofnana, sem eru í umsjá valdsmanna eða sérstakra forstöðumanna ríkisins, eft- irgreinda daga: 1. Fæðingardag forseta Íslands. 2. Nýársdag. 3. Föstudaginn langa. 4. Páskadag. 5. Sumardaginn fyrsta. 6. 1. maí. 7. Hvítasunnudag. 8. Sjómannadaginn. 9. 17. júní. 10. 16. nóvember, fæðingardag Jónasar Hallgrímssonar. 11. 1. desember. 12. Jóladag. Þetta er því miður ekki gert, en lögreglan flaggar alla daga og stjórnarráðið og e.t.v. örfáar aðrar stofnanir gera þetta á fánadögum, – einkum þeim sem falla á virka vinnudaga. Ekki er nú löghlýðnin og virðing við þjóðfánann meiri en svo að menn grípa til afsakana með vísun til kostnaðar til að reyna að réttlæta lögbrotin. Reyndar er þjóðfáninn sem ein- kenni þjóðríkis og menningar ekki meira virtur en svo, að það tók fleiri ár að fá þingið til að hafa fánann uppi í þingsalnum. Þegar spurt var að því af hverju fánann hefði vantað í þingsal- inn við 5. innsetningu forseta Íslands var svarað að menn hefðu óttast að forsetinn flækti sig í fánanum á leið út á svalir þing- hússins. Einhvern tíma hefði nú ekki þótt tiltökumál þótt forsetinn hefði verið beðinn að hinkra á meðan menn færðu fánann til hliðar við svalahurðina þannig að greið leið væri út á þær. En nei, þetta merki þjóðríkisins var fjarlægt úr þingsalnum og hlýtur að teljast til einsdæma í þessum heimshluta. En annað dæmi sem ég vildi nefna um brot stjórnsýslunnar á lögum er óútkomin reglugerð sem umhverfisráðuneytið átti skv. lög- um er tóku gildi 1. júlí 2011 að gefa út fyrir síðustu áramót þar sem ákvæði sem hún átti að skýra áttu þá að koma til framkvæmda. Þetta hefur valdið verulegu tjóni sem nú þarf að sækja með dóms- máli á hendur ráðuneytinu f.h. rík- isins. Fyrirtæki í landinu þurfa að hlíta ákvæðum laga og reglugerða að viðlögðum sektum, en lögin gilda jafnt um alla, þ. á m. stjórn- sýsluna. Þótt vitað sé að töluverð- ur fúaviður sé í starfsliði ríkisins þá er þar líka afbragðsfólk. Það er m.a. þetta fólk sem stundum fær nóg og lekur upplýsingum um ótrúleg afglöp og óstjórn innan kerfisins til fjölmiðla. Nú vonast þjóðin til að Alþingi hysji upp um sig buxurnar með vandaðri af- greiðslu stjórnarskrár og fleiri mála. Jafnframt er mikilvægt að stjórnarráðið sé sett á sinn stað sem þýðir að þar eiga menn að hlýða lögum eins og aðrir og vinna vel í þágu þjóðarinnar. Og, – við skulum öll flagga næsta opinbera fánadag. Með lögum skal … Eftir Sigurð Jónsson » Það kemur sífellt betur í ljós hversu stjórnsýslan fer sínu fram og hundsar allt og alla þegar vanhæfi hennar eða hagur býður svo. Sigurður Jónsson Höfundur er áhugamaður um aukna notkun þjóðfánans. LINNETSSTÍG 2 | SÍMI: 565-4854 Mánudag - Föstudag 11:00 - 18:00 | Laugardagur 11:00 - 14:00 Handsmíðað í Hafnarfirði síðan 1993 Svartur demantur 1.00 ct 6stk 0.02ct f/vs1 demantar 14k gull www.s i ggaog t imo . i s

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.