Morgunblaðið - 03.11.2012, Síða 37
UMRÆÐAN 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2012
Þrátt fyrir að allir
bæjarfulltrúar Garða-
bæjar féllust á sam-
þykkt um að sameina
skyldi Garðabæ og
Álftanes reyndust
47% íbúa sem kusu
vera því ósammála.
Líkindi segja að ef
nei-sinnar hefðu
skipulagt sig tím-
anlega og unnið með
þeim fagmannlega hætti sem gert
var þá hefði sameining verið felld.
Lýðræðið tapaði á því að kjörnir
fulltrúar bæjarbúa og embætt-
ismenn tóku eindregna afstöðu.
Samfylkingin og Fólkið í bænum
tóku þar þátt. Það er mat undirrit-
aðra að ekki hafi verið gætt hags-
muna Garðbæinga í málflutningi.
Því miður.
Á kjördag tóku 2.822 Garðbæing-
ar, 25% íbúa, ákvörðun um það fyr-
ir hönd 11.500 Garðbæinga að
greiða kröfuhöfum Álftaness 3,2
milljarða. Þessi ákvörðun getur
reynst Garðbæingum dýrkeypt.
Fram hjá því verður ekki komist að
kynning og framsetning valkosta
var einhliða. Vefurinn okkarval.is
var vægast sagt á gráu svæði. Það
er mál sem verður að draga lær-
dóm af.
En áfram skal haldið og þá er
mikilvægt að tekið sé tillit til tæp-
lega helmings Garðbæinga, sem
höfnuðu sameiningu. Tryggja þarf
að staðið verði að fullu við loforð
forsvarsmanna Garðabæjar og
Álftaness. Það er:
a) Garðbæingar samþykktu að
taka yfir 3,2 milljarða skuldir Álft-
nesinga. Óháðir aðilar þurfa að
staðfesta að 1. janúar 2013 komi að
hámarki 3,2 milljarður af skuld
Álftnesinga inn í sameiginlegan
ársreikning nýja Garðabæjar.
Garðbæingar samþykktu ekki opinn
reikning fyrir kröfuhafa Álftaness í
bæjarsjóð og útsvar Garðbæinga.
Ef hærri skuld birtist hvað skal
gera þá?
b) Snorri Finnlaugsson fullyrðir
að ekki þurfi að ráðast í fram-
kvæmdir á Álftanesi næstu árin.
Staðfesta þarf að svo verði. Ef
framkvæma þarf hvað gerist þá?
c) Ekki komi til skerðingar á
þjónustu eða framkvæmdum í
gamla Garðabæ á næstu árum.
Finna þarf aðferð til að mæla sem
upplýsir kjósendur.
d) Álögur á Garðbæinga verði
óbreyttar og engar hækkanir vegna
samruna. Finna þarf aðferð til að
mæla sem upplýsir kjósendur.
Réttast væri nú að já-sinnar og
nei-sinnar í Garðabæ ynnu saman
að því að hér yrði það besta gert úr
samrunanum fyrir íbúa Garða-
bæjar. Setjum saman nefnd á jafn-
réttisgrunni sem fer með eftirlit á
samrunanum og sinnir ráðgjaf-
arhlutverki svo þetta verði sem
best úr garði gert. Ákvörðun um
sameiningu er þegar tekin. Mik-
ilvægasta ferlið er að hún verði
hagkvæm, að kostir sameining-
arinnar raungerist og að gallarnir
verði lágmarkaðir. Nefnd valinna
Garðbæinga, já- og nei-manna, tæki
allt að 3ja ára skipunartíma eða til
ársloka 2016 vegna þessa.
Áskorun um samstarf
Eftir Jón Árna
Bragason og Braga
Þorstein Bragason
Jón Árni
Bragason
»Réttast væri nú að
já-sinnar og nei-
sinnar í Garðabæ ynnu
saman að því að hér yrði
það besta gert úr sam-
runanum fyrir íbúa
Garðabæjar.
Jón Árni er verkfræðingur og Bragi
er rekstrarhagfræðingur. Báðir eru
íbúar í Garðabæ.
Bragi Þorsteinn
Bragason
Allt fram á seinni hluta síðustu aldar
þótti sjómönnum vont að fá skötusel í
net sín. Flestir landsmenn fúlsuðu við
þessum ljóta fiski
og yfirleitt var
honum hent.
Skötuselurinn er
vissulega með ljót-
ari fiskum sem
veiðast við Ís-
landsstrendur en
smátt og smátt
tókst fólki að líta
framhjá því og í
dag er skötuselur
borinn fram á fínni
veitingahúsum bæjarins sem herra-
mannsmatur.
Eitt þekktasta dæmið á verald-
arvísu um það hvernig viðhorf getur
breytt virði hluta er ævintýrið um
„gælugrjótið“ eða „Pet Rock“ sem
gerðist á áttunda áratug síðustu ald-
ar. Þar var á ferðinni Gary nokkur
Dahl, amerískur markaðsmaður og
yfirmaður á auglýsingastofu.
Dahl þessi sat á spjalli við félaga
sína eitt aprílkvöldið árið 1975 þegar
talið barst að því umstangi sem fylgdi
því að eiga gæludýr. Dahl nefndi í
hálfkæringi að auðveldast væri hrein-
lega að eiga grjót fyrir gæludýr – því
þyrfti ekkert að sinna og uppihald
þess kostaði ekki neitt. Stuttu seinna
ákvað Dahl að setja hefðbundið fjöru-
grjót í gjafaöskjur ásamt umhirðu-
leiðbeiningum í gamansömum tón og
á fáeinum mánuðum tókst Dahl að
selja yfir eina og hálfa milljón af öskj-
um með „gælugrjóti“. Þar með var
hann orðinn milljónamæringur á því
að selja grjót í gjafaöskjum!
Það er öllum hollt að taka Dahl sér
til fyrirmyndar og skoða tækifærin
sem felast í verðlitlum hversdags-
legum hlutum allt í kringum okkur.
Um þessar mundir gefst framhalds-
skólanemum gott tækifæri til þess
því nú stendur yfir hugmynda-
samkeppni þeirra á meðal sem geng-
ur einmitt út á þetta: Að gera sem
mest virði úr verðlitlum hlutum. Inn-
ovit nýsköpunar- og frumkvöðlasetur
hefur fengið hátæknifyrirtækið Mar-
el og Samtök atvinnulífsins með sér í
lið en saman standa þessir aðilar að
Snilldarlausnum Marel – hugmynda-
samkeppni framhaldsskólanema.
Fyrir utan ánægjuna af því að skapa
eru bestu hugmyndirnar verðlaun-
aðar með peningaupphæðum sem
vonandi skapa þessum ungu frum-
kvöðlum tækifæri til frekari dáða. Á
heimasíðu keppninnar snilldarlausn-
ir.is er allt annað sem þarf að vita um
hana.
Hagsæld Íslands næstu áratugi
byggist á nýsköpun, frjórri hugsun
og framkvæmdagleði ungs fólks. Því
er ekki seinna vænna en að hefjast
handa strax í dag.
STEFÁN ÞÓR HELGASON,
framkvæmdastjóri Snilldarlausna
Marel.
Skötuselur og gælugrjót framtíðarinnar
Frá Stefáni Þór Helgasyni
Stefán Þór
Helgason
Bréf til blaðsins
Aukablað
alla þriðjudaga
Hátún 6
105 Reykjavík
Glæsileg Penthouse íbúð
Stærð: 123 fm
Fjöldi herbergja: 3
Byggingarár: 1961
Fasteignamat: 22.150.000
Opið
hús
MÁNUDAGINN 5.NÓV FRÁ KL 18:00 - 18:30 Verð: 39.900.000
RE/LIND KYNNIR: STÓRGLÆSILEGA, MIKIÐ
ENDURNÝJAÐA 2-3 HERBERGJA ÚTSÝNISÍBÚÐ Á 9.
HÆÐ (efstu hæð) VIÐ HÁTÚN 6 Í RVÍK. Eignin er skráð
hjá FMR sem 88,5 fm, en samkvæmt nýjum teikning-
um er eignin 123 fm að stærð. EIGNIN ER SÉRLEGA VEL
HEPPNUÐ Í ALLA STAÐI. SJÓN ER SÖGU RÍKARI
RE/MAX Lind - Hlíðasmára 6 - 201 Kópavogur - Sími 5107900 - www.remax.is
Gunnar Valsson
Sölufulltrúi
699-3702
gv@remax.is
Þórarinn Jónsson
Lögg. fast. hdl.
510-7900
thorarinn@remax.is
TIL SÖLU
HÓTEL HÖFN Á HORNAFIRÐI
Hótelið er þriggja stjörnu, í
rekstri allt árið, með 68
velbúnum herbergjum, með
veitingasal, fundaraðstöðu, bar
og á A la carde veitingastað
sem hefur verið í farabroddi
með hráefni úr héraði og
humarinn sem aðalsmerki.
Hér er er einstakt tækifæri til að eignast rótgróið og vel
rekið hótel með öfluga viðskiptavild.
Allar frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu
Fasteignasölunnar Inni, www.inni.is, sími 580-7915
Snorri Snorrason, lögg, fasteigna- og fyrirtækjasali
INNI fasteignasala • Sími 580 7905 • www.inni.is
◆ Ársalir - fasteignamiðlun ◆ Ársalir - fasteignamiðlun ◆
Ársalir
FASTEIGNAMIÐLUN
Engjateigi 5, 105 Rvk
533 4200
Ársalir
fasteignasala - fyrirtækjasala - leigumiðlun
533 4200 og 892 0667
Engjateigi 5, 105 Rvk
MÁVAHRAUN HAFNARFIRÐI – Opið hús
Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali
Til sölu gott 158 m² einbýlishús á einni
hæð, með sambyggðum 40 m² bílskúr,
við Mávahraun 1, Hafnarfirði. Húsið
stendur á skjólsælum stað á hornlóð með fallegum garði og stórri
verönd mót suðri.
Áhugasamir velkomnir að skoða
húsið í dag milli 14-16.