Morgunblaðið - 03.11.2012, Blaðsíða 39
MINNINGAR 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2012
✝ Ólafur FelixHaraldsson var
fæddur á Patreks-
firði 14.10. 1970,
hann lést 20. októ-
ber síðastliðinn af
slysförum.
Foreldrar hans
voru Haraldur Að-
alsteinsson vél-
virkjameistari, f.
14. apríl 1927, d.
27. okt. 1992, og
Arnbjörg Guðlaugsdóttir hús-
móðir, f. 17. júní 1930, d. 19.
ágúst 1998. Felix var ellefti í röð
tólf systkina elst er Ingibjörg f.
13. maí 1952, d. 24. maí 2010,
Guðlaug Jóhanna, f. 4. júlí 953,
Erlingur, f. 14. júlí 1954, Helga,
f. 28. nóv. 1955, Aðalsteinn Unn-
ar, f. 16. nóv. 1956, Rannveig, f.
8. febrúar 1958, Skúli Theodór,
Felix er Björg Sæmundsdóttir,
f. 27. apríl 1967, bjuggu þau á
Mýrum 10. Börn hennar eru Sæ-
dís Eiríksdóttir, f. 16.11. 1986.
Sambýlismaður hennar er Davíð
Þ. Valgeirsson, f. 16.1. 1983.
Davíð Jónsson, f. 2.12. 1990, og
Stefán Dagur Jónsson, f. 19.12.
2002.
Felix starfaði alla tíð við sjó-
inn, lengst af starfaði hann á
Vestra BA 63 sem skipstjóri og
síðar á þeim stærri sem kokkur
allt þar til yfir lauk. Hann átti
einnig smábát, Tjald BA 294,
ásamt Haraldi Ólafssyni sem
þeir gerðu út á strandveiðar á
sumrin. Felix var þúsundþjala-
smiður, það var alveg sama
hvað hann tók sér fyrir hendur
það lék allt í höndunum á hon-
um. Hann sinnti tómstundum
sínum vel, hann var virkur fé-
lagi í Golfklúbbi Patreksfjarðar,
mótorhjólaklúbbnum Þeysi,
Módelklúbb Vestfjarða og Fis-
félaginu Sléttunni.
Útför Felix fer fram frá Pat-
reksfjarðarkirkju 3. nóvember
2012 og hefst athöfnin kl. 14.
f. 25. mars 1959,
Þröstur, f. 24. okt.
1960, Þórey Arna,
f. 7. janúar 1966,
Brynja, f. 26. mars
1968, Regína, f. 9.
júní 1974.
Felix stofnaði
heimili á Bjarka-
götu 5 og síðar á
Hólum 17 ásamt
Bjarnveigu Guð-
bjartsdóttur, f. 12.
maí 1972. Þau slitu samvistum.
Þau eignuðust 3 börn; Alex-
andra Hólm, f. 13. apríl 1991.
Sambýlismaður hennar er Ísak
Már Símonarson. Melkorka
Marsibil, f. 9. júní 1994, sam-
býlismaður hennar er Ásþór
Elvarsson. Guðbjartur Ingi, f.
25. nóvember 2000.
Eftirlifandi sambýliskona
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni.
Drottinn minn faðir lífsins ljós
lát náð þína skína svo blíða.
Minn styrkur þú ert mín lífsins rós
tak burt minn myrka kvíða.
Þú vekur hann með sól að morgni.
Faðir minn láttu lífsins sól
lýsa upp sorgmætt hjarta.
Hjá þér ég finn frið og skjól.
Láttu svo ljósið þitt bjarta
vekja hann með sól að morgni.
Drottinn minn réttu sorgmæddri sál
svala líknarhönd
og slökk þú hjartans harmabál
slít sundur dauðans bönd.
Svo vaknar hann með sól að morgni.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens.)
Elska þig og sakna þín meira
en orð fá lýst.
Þín
Björg.
Elsku Felix.
Lífið getur verið svo ósann-
gjarnt, að þú skulir vera tekinn
frá okkur munum við aldrei
geta skilið. Við erum ævinlega
þakklát fyrir að hafa kynnst þér
og hafa fengið að vera í kring-
um þig. Þegar þú komst inn í líf
mömmu/Bjargar varð okkur
fljótlega ljóst að þið áttuð svo
vel saman og þið ljómuðuð í ná-
vist hvort annars, þið bættuð
hvort annað upp, mamma róleg
og með jafnaðargeð en þú ávallt
kvikur eins og fjöður. Þegar við
hugsum um þig kemur fyrst
upp í hugann dugnaður, ótrú-
lega laginn og brandararnir þín-
ir sem aldrei voru langt undan.
Það sem maður gat alltaf verið
viss um var að alltaf varst þú
boðinn og búinn að taka til
hendinni ef á þurfti að halda.
Við munum sakna þín sárt og
um leið erum við minnt á að
enginn veit hvað morgundagur-
inn ber með sér.
Grátið ei við gröf mína
ég er ekki þar.
Er norðurljósin leiftra
þá njóttu þess að sjá
að orku mína og krafta
þú horfir þar á.
(Þýð/H.S.S.)
Minning þín mun lifa í hjört-
um okkar alla tíð.
Sædís og Davíð.
Með söknuði og sorg kveð ég
litla bróður minn, hann Felix.
Þú fórst allt of fljótt og með
engum fyrirvara var veröldin
sett á hvolf og maður hugsar af
hverju þú? En maður verður að
reyna að trúa að þín bíði stærri
verkefni hinum megin, kominn
til mömmu, pabba og Ingu syst-
ur. Hvað þetta er allt ósann-
gjarnt, lífið blasti við þér ný-
komnum heim úr frábærri
siglingu um Miðjarðahafið með
henni Björgu. Þú varst svo ham-
ingjusamur.
Þú varst afskaplega orðhepp-
inn maður og hafðir góðan frá-
sagnarhæfileika og kunnir
ógrynni af bröndurum, það var
alltaf stutt í grínið hjá þér þó að
þú hafir ekki alltaf verið bros-
andi. Það var nú aldrei leiðinlegt
að hlusta á ykkur bræðurna, það
var hægt að hlæja endalaust
þegar þið skiptust á að segja
sögurnar.
Hugurinn reikar, það eru
margar golfferðir sem við höfum
farið saman bæði innan- og ut-
anlands og alltaf var jafn gam-
an. Þú varst nú oft að skamma
okkur Björgu fyrir hvað við
værum fljótfærar og að við
þyrftum að vanda okkur meira.
Metnaðarfullur varstu í öllu sem
þú tókst þér fyrir hendur og þó
að við værum ekki alltaf sam-
mála vorum við alltaf góðir vin-
ir.
Flugið átti hug þinn allan
þessa stundina og það geislaði af
þér þegar þú talaðir um flugtím-
ana. Nýbúinn að kaupa fisflug-
vél ásamt vini þínum. Þú hlakk-
aðir svo til þegar þú gætir farið
með börnin þín í útsýnisflug. Þú
varst frábær bróðir og yndisleg-
ur vinur og mun ég geyma
minningar um þig í brjósti mínu
um ókomna tíð.
Ég elska þig, elsku hjartans
bróðir minn, og innilegar þakkir
fyrir allt sem þú gafst mér um
ævina.
Ég bið guð og englana að
varðveita þig
Þín systir,
Brynja.
Elsku Felix, ég kann svo
sannarlega ekki á lífið án þín,
enda varstu litli bróðir mömmu.
Við vorum svo góðir vinir og
gátum talað saman um hvað sem
er. Þú varst og ert ein af mínum
uppáhaldspersónum. Missirinn
er svo mikill og svo hrikalega
sár. Ég á mér varla eitt áhuga-
mál en þín voru alveg milljón.
Þú varst svo yndislegur, góður
og svo klár. Þú varst svo ást-
fanginn og ánægður með lífið.
Þið Björg voruð svo frábær
saman.
Ég gæti skrifað endalaust
áfram en læt þetta duga. Ég er
svo heppin að eiga stútfullt
hjarta af minningum um þig og
þær mun ég varðveita.
Elsku Björg og fjölskylda.
Alexandra, Melkorka, Guðbjart-
ur og Haraldsbörn. Megi Guð
styrkja ykkur í þessari miklu
sorg.
Þín systurdóttir,
Erla Maren.
Elsku Felix
Það er með söknuði og hryggð
sem ég skrifa þessi kveðjuorð til
þín. Hver er tilgangur lífsins að
hrífa burt ungan, glæsilegan og
góðan dreng frá sambýliskonu,
börnum og allri fjölskyldunni?
Minningarnar sækja að og hug-
urinn hvarflar til baka. Síðan þú
komst í þennan heim hefur þú
verið hluti af lífi okkar frænda
þíns, alltaf búið nálægt okkur og
við sést nær daglega. Þú kemur
ekki lengur hljóðlega inn og seg-
ir hvar er frændi? Þú varst ætíð
reiðubúinn að hjálpa okkur,
sama hvað var. Síðast þegar ég
hringdi og bað um hjálp þá var
svarið: „þú þurftir ekki að biðja
mig, ég ætlaði að smala.“ Og ef
eitthvað bilaði á heimilinu, þá
varst þú beðinn að lagfæra það.
Allt lék í höndunum á þér. Sama
hvað það var. Ég man þann dag í
sumar þegar þú komst og sýndir
okkur myndir af flugvélinni
þinni. Ánægjan leyndi sér ekki
og fallega brosið þitt skein svo
skært og augun ljómuðu. Þú átt-
ir gott með að koma öllum í gott
skap með þínum skemmtilega
húmor, alltaf var góður brandari
vel þeginn og hlegið dátt. Nú er
komið að kveðjustund. Það er
þungt og sárt að kveðja. Minn-
ingin um góðan dreng er dýr-
mæt, hún lifir með okkur. Þökk
fyrir samfylgdina í fjörutíu og
tvö ár. Við vitum að vel var tekið
á móti þér af þeim sem á undan
eru farnir.
Guð geymi þig elsku Felix.
Í dagsins önnum dreymdi mig
þinn djúpa frið, og svo varð nótt.
Ég sagði í hljóði: Sofðu rótt,
þeim svefni enginn rænir þig.
En samt var nafn þitt nálægt mér
og nóttin full af söngvaklið
svo oft, og þetta auða svið
bar ætíð svip af þér.
Og þungur gnýr sem hrynji höf
mitt hjarta lýstur enn eitt sinn:
Mín hljóða sorg og hlátur þinn,
sem hlutu sömu gröf.
(Steinn Steinarr)
Innilegar samúðarkveðjur til
ástvina allra.
Laufey og Trausti.
Satt að segja finnst mér að ég
eigi ekki að vera að skrifa minn-
ingargrein um þig, elsku Felix.
En lífið getur víst verið jafn
óréttlátt og það getur verið rétt-
látt. Að þurfa að kveðja þig er
eitthvað sem ég bjóst ekki við að
gera fyrr en í fjarlægri framtíð
og að þurfa að hugsa til þess að
ég fái ekki að sjá hressa og
skemmtilega frænda minn aftur
með bros á vör er hrikalega
sárt. Þú varst alltaf svo tilbúinn
í allt, til í að hjálpa við hvað sem
er eins og öll systkini þín. Þið
eigið það öll sameiginlegt að
vera þannig að ef einhvern vant-
ar eitthvað eruð þið öll mætt á
staðinn, boðin og búin til að gera
allt sem þarf að gera. Þú og
bræður þínir, ofurhetjurnar, það
er eina orðið sem passar. Þið
óhræddir við allt og ef þið voruð
ekki á spíttbát voruð þið hang-
andi aftan á honum á bretti eða
sjóskíðum. Það sem við krakk-
arnir fengum ekki að sjá þegar
við vorum yngri, öll ævintýrin
sem ykkur datt í hug og við
fengum að taka þátt í. Þið voruð
alveg ótrúlegir.
Þú varst svo hæfileikaríkur
og það eru mörg listaverkin sem
til eru eftir þig, þú varst svo
handlaginn, teiknaðir, smíðaðir
og gerðir í raun allt sem hug-
urinn girntist. Þú varst svo klár.
Ég mun alltaf geyma það sem
þú gafst mér og minnast þín
sem góða og hressa ofurhugans
frænda míns sem hló svo
skemmtilega. Þú verður alltaf í
hjarta mínu og þú munt aldrei
gleymast.
Þetta er handa þér, Felix.
Þú flýgur til himins,
til fjarlægra fjalla.
Þú skrifar í skýin,
til stjarnanna kallar.
Felix nú flýgur,
á fjarlægar slóðir.
Að eilífu og alltaf,
kæri bróðir.
Himininn hefur þig
hjá sér um stund.
Á meðan við bíðum
að koma á þinn fund.
(Elva Dögg.)
Elsku Björg og fjölskylda,
Alexandra, Melkorka og Guð-
bjartur.
Elsku systkini. Megið þið
finna styrk til að komast í gegn-
um erfiða tíma.
Þín frænka,
Elva Dögg Pálsdóttir.
Það eru bara nokkrir dagar
síðan Felix og Björg settust inn
í kaffi hjá Ingibjörgu bekkjar-
systur á Kjalarnesinu. Hann sat
reyndar ekki lengi kyrr, sá strax
að dytta þyrfti að uppþvottavél-
inni og hófst strax handa. Fyrir
Felix var reyndar fínt meðlæti
með kaffinu að kíkja á eina upp-
þvottavél því hann var bæði ið-
inn, handlaginn og hjálpsamur.
Úttektinni lauk svo með léttu
gríni eins og hans var von og
vísa.
Og þannig munum við bekkj-
arsystkinin eftir Felix frá fyrstu
tíð. Upp í huga okkar koma
myndir af honum að skrúfa eitt-
hvað sundur eða saman, smíða
eitthvað alveg nýtt – nú eða þá
arka á undan okkur beint upp í
fjall. Það var hann sem fann
bestu skíðabrekkurnar, nýjustu
svellin og allt sem gerir hvers-
daginn að hverfishátíð. Ný tæki-
færi voru allt í kring og í barn-
mörgu þorpi var stundum haft á
orði að krökkunum „entist ekki
dagurinn til að djöflast“. Þetta
átti við okkur öll en allra best
við Felix. Við upplifðum aldrei
neina lognmollu með honum og
það var gaman að vera með.
Aldrei hik, bara kraftur. Felix
var góður íþróttamaður og ef
hann hefði t.d. lagt fyrir sig
hlaup, sund eða fótbolta þá hefði
hann náð langt. Handverk og
tækni áttu hins vegar hug hans
alla tíð og það er fátt í þeim
heimi sem hann kunni ekki skil
á.
Við munum minnast hans alla
tíð. Okkar innilegustu samúðar-
kveðjur fá Björg kona hans,
börnin hans þrjú og stjúpbörn.
Þeirra missir er mikill.
Fyrir hönd bekkjarsystkina í
árgangi 1970,
Jón Páll og Jóhanna.
Ólafur Felix
Haraldsson
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
VIGFÚS ÓLAFSSON,
Víðilundi 9,
Akureyri,
lést á Sjúkrahúsi Akureyrar föstudaginn
19. október.
Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju
miðvikudaginn 7. nóvember kl. 13.30.
Anna Gunnur Vigfúsdóttir, Sölvi Antonsson,
Sigurlaug María Vigfúsdóttir,
Sigurður Vigfússon, Þóra Elísabet Leifsdóttir,
Hulda Vigfúsdóttir, Ómar Stefánsson,
Gunnar Vigfússon, Jóhanna María Friðriksdóttir,
Dóra Vigdís Vigfúsdóttir, Ámundi Sjafnar Tómasson,
afa- og langafabörn.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
GUÐNÝ ANNA JÓNASDÓTTIR,
Aðalgötu 1,
Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
þriðjudaginn 30. október.
Útförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju
þriðjudaginn 6. nóvember kl. 13.00.
Stefán J. Kristinsson,
Barði Jónsson, Lena Jónsson,
Ragnhildur Stefánsdóttir, Sigurgeir S.T. Þórarinsson,
Inga Sif Stefánsdóttir, Kjartan Þór Eiríksson
og barnabörn.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
EINAR KR. JÓNSSON
frá Neðri-Hrepp,
lést mánudaginn 29. október síðastliðinn.
Steinunn Á. Einarsdóttir,
Sigurður Einarsson,
Björn H. Einarsson, Ástríður Guðmundsdóttir
og barnabörn.
✝
Ástkær móðir, tengdamóðir, amma, dóttir,
systir, mágkona og frænka,
GUÐRÚN DÝRLEIF KRISTJÁNSDÓTTIR
lögmaður og hjúkrunarfræðingur,
sem lést miðvikudaginn 24. október, verður
jarðsungin frá Neskirkju við Hagatorg
miðvikudaginn 7. nóvember kl. 15.00.
Þeim sem vilja minnast Dýrleifar er bent á minningarsjóð
í hennar nafni til að efla rannsóknir á sviði auðlinda- og
umhverfisréttar og á sviði geðverndar, bankareikningur:
0331-13-307298, kt. 570297-2289.
Fyrir hönd vina og ættingja,
Kristján Gerhard, Hjördís Erna Sigurðardóttir,
Rebekka Rut, Rannveig Lára og Rúnar Máni,
Unnur Jónsdóttir,
Stefán Kristjánsson, Ólöf H. Bjarnadóttir,
Guðríður A. Kristjánsdóttir, Ómar B. Hansson,
Kristín Jóna Kristjánsdóttir, Hafsteinn Már Einarsson
og systkinabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamamma, amma
og langamma,
HALLFRÍÐUR MARGRÉT
MAGNÚSDÓTTIR,
lést á Heilbrigðisstofnun Fjallabyggðar,
Siglufirði, laugardaginn 27. október.
Útförin fer fram frá Ólafsfjarðarkirkju
laugardaginn 10. nóvember kl. 14.00.
Kristinn Kristófer Ragnarsson,
Ása Jóhanna Ragnarsdóttir, Ingi Vignir Gunnlaugsson,
Sigríður Anna Ragnarsdóttir, Haukur Friðriksson,
Sveina Guðbjörg Ragnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.