Morgunblaðið - 03.11.2012, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 03.11.2012, Blaðsíða 42
42 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2012 ✝ Hulda fæddistá Bíldudal 28. nóvember 1912. Hún lést 24. októ- ber sl. Hún var næstyngst 13 barna hjónanna Þóru Árnadóttur og Ás- geirs Ásgeirssonar. Móðir Huldu lést þegar hún var sex ára. Hún bjó hjá föður sínum til 11 ára aldurs er hann lést. Börn- unum, sem ekki voru þegar flutt úr föðurhúsum, var komið í fóstur hjá fjölskyldum hér og þar. Hulda fór til móðursystur 1937, d. 2012, hún lætur eftir sig son, Ásgeir Bragason. Eyj- ólfur, f. 1940, kvæntur Sólveigu Gunnarsdóttur. Börn: Elisabet, Gunnar, Axel, Eyjólfur og Hulda Karen. Sigurður, f. 1944, d. 1946. Sigríður, f. 1946, var gift Peter Vinther, þau skildu. Börn: Hans Kristjan, Nina Sös og Jakob. Þórður, f. 1948, d. 1999, kvæntur Grímhildi Hlöð- versdóttur. Börn: Hulda og Her- dís. Hulda og Axel skildu 1958. Hulda vann eftir það ýmis til- fallandi störf. Í Reykjavík bjuggu þau hjónin fyrst í Nökkvavogi, síðan á Laug- arásvegi og í Stigahlíð. Hulda bjó lengst af í Hvassa- leiti, seinna Bólstaðarhlíð. Hulda fór 91 árs á Hrafnistu í Reykjavík. Útför Huldu fór fram í kyrr- þey að hennar eigin ósk. sinnar Guðnýjar og Samúels í Árnahúsi á Bíldudal. Þau áttu einn dreng, Sigurð Samúelsson, sem Hulda leit gjarnan á sem bróður sinn. Hulda fluttist til Reykjavíkur um tvítugt. Giftist Axel Eyjólfssyni hús- gagnasmið. Þau fluttust til Akraness og bjuggu þar til 1947 en þá fluttu þau til Reykjavíkur. Þau hjónin eignuðust fimm börn. Þau eru: Jakobína, f. Elsku mamma mín, megi Guð blessa minningu þína. Þú kvadd- ir okkur mánuði fyrir 100 ára af- mælið þitt. Það er farsælt að fá að fara þegar maður er orðinn fullorðinn og finnst orðið tíma- bært að englarnir taki við manni. Ég veit að börnin þín, systkini og foreldrar taka á móti þér með útbreiddan faðminn. Við hin verðum að venjast því að þú ert ekki lengur hérna hjá okkur. Líf þitt hefur ekki alltaf verið auðvelt. Þú misstir foreldra þína sem barn en þú og systkini þín voruð sett í fóstur hér og þar. Þú misstir þrjú af börnunum þínum fimm, skildir eftir erfitt hjóna- band, og annaðist dóttur þína Jakobínu í veikindum hennar. Þú veiktist í eyrum sem barn og heyrnarskerðing háði þér alla ævi. Þrátt fyrir erfiðleikana kvart- aðir þú aldrei heldur varst já- kvæð og gladdist yfir því að á morgun kemur alltaf nýr dagur. En þú varst ekki að vorkenna sjálfri þér en talaðir með hlýju um þá sem voru farnir. Engan hef ég þekkt með jafn mikið jafnaðargeð og aldrei var ég skömmuð sem barn. Við Þórður komum oft heim gauðrifin og skítug en fengum hrein föt þeg- andi og hljóðalaust. Alltaf gafst þú þér tíma til að spila við okk- ur, leika og segja okkur sögur. Eins varst þú við barnabörnin. Ásgeir son Jakobínu tókst þú að þér þegar Jakobína var veik. Þú varst músíkölsk, fróðleiksfús og last bækur og blöðin fram til þess síðasta. Í seinni tíð veltir þú mikið fyrir þér hvort það væri líf eftir dauðann og last bækur um þau málefni. Ég er viss um að þú varst sátt við að deyja og að dauðinn var byrjun á nýju lífi. Auðvelt var að gleðja þig, bara að bjóða þér í bíltúr gaf þér mikla ánægju og þú varst þakk- lát. Hvað þá að ferðast til út- landa, síðasta utanlandsferðin var farin til Spánar þegar þú varst níutíu og tveggja ára. Þér fannst svo gaman að fara á markaðina og versla. Oft skoðaðir þú landakort og ferðaðist í huganum. Fyrst þeg- ar þú komst til Kaupmannahafn- ar þekktir þú alla miðborgina. Þú varst aldrei hrædd við að taka strætó vegna þess að ef þú lentir í röngum vagni fór hann bara út á endastöð og til baka. Stundum tókstu líka lestina fram og aftur af því að svo margt var að sjá. Ekki stóð heldur á þér að koma til Danmerkur og passa barnabörnin í fleiri mánuði þeg- ar ég bað þig um það. Þú varst einstaklega fé- lagslynd og gestrisin. Allir voru velkomnir á heimili þitt og þú veittir ríkulega. Þó að um væri að ræða síðustu peningana þína gafstu þá börnunum þínum eða þeim sem þér fannst hafa þörf fyrir þá. Alltaf gladdist þú yfir að fá heimsókn á Hrafnistu en kvartaðir aldrei yfir því að það væri langt síðan maður kom síð- ast. Þvert á móti kvartaðir þú yf- ir að geta ekki veitt nóg. Þú bauðst alltaf upp á súkkulaði og gos fyrir litlu börnin en sjerrí fyrir okkur hin. Þú varst svo lánsöm að eign- ast 11 barnabörn, 25 langömmu- börn og sex langalangömmu- börn. Öll nöfnin á börnunum mundir þú alveg fram á síðasta dag. Þakka þér fyrir lífið og allt það góða sem þú hef- ur kennt mér. Guð veri með þér, elsku góða mamma mín. Ég lít í anda liðna tíð, er leynt í hjarta geymi. Sú ljúfa minning – létt og hljótt hún læðist til mín dag og nótt, svo aldrei, aldrei gleymi … (Halla Eyjólfsdóttir.) Sigríður Axelsdóttir. Ég kom inn í fjölskyldu Huldu þegar ég var 20 ára. Hún tók mjög vel á móti mér. Við Þórður fengum að búa hjá henni í nokkra mánuði þangað til við fluttum í okkar íbúð. Við eign- uðumst okkar fyrsta barn sem við skírðum Huldu meðan við bjuggum hjá henni. Hún gaf mér mörg góð ráð og hjálpaði mikið til við litla barnið. Hulda bjó lengst af í Hvassa- leiti 157. Við fjölskyldan minn- umst með gleði þegar við mætt- um í sunnudagskaffi og jólaboð hjá henni, og hittum aðra fjöl- skyldumeðlimi, því þar var alltaf hlaðborð af heimatilbúnum kök- um og öðru góðgæti. Hún hafði alltaf tíma til að spila við krakk- ana og spjalla við þau. Hulda hafði einstaklega gott skap og tók öllu með jafnaðargeði, aldrei orðinu hærra við börnin né aðra. Hulda var með afbrigðum minn- ug á ætt sína og fjölskyldu- tengsl. Þegar Hulda flutti úr Hvassaleitinu bjó hún um tíma hjá okkur á Hraðastöðum í Mos- fellsdal, Það var góður tími, dætrum okkar fannst gott að koma heim úr skólanum og amma var heima að taka á móti þeim. Þegar hún flutti svo í Ból- staðarhlíðina í fallega íbúð voru allir alltaf velkomnir. Hún fór út um allan bæ að spila við „gamla fólkið“ eins og hún sagði. Hún fór allra sinna ferða í strætó, þekkti og rataði um Reykjavík betur en ég þó að hún væri að verða 100 ára. Þegar hún flutti svo á Hrafn- istu fór ég og hún í marga góða bíltúra og sóttum kaffihús borg- arinnar stíft. Hún elskaði að fara út að keyra, sama hvert var far- ið. Þegar þetta fína kaffihús á Hrafnistu var opnað létum við okkur ekki vanta þar. Ég á eftir að sakna þessarar heimsóknar til Huldu. Það þurfti aldrei að bíða eftir henni, hún var alltaf tilbúin sama hvað var, og ef maður kom of seint lét hún mann aldrei finna það sagði bara „gott að þú ert komin“ og „mikið er gaman að sjá þig“. Hulda var ekki bara tengdamóðir mín hún var minn besti vinur, og okkar samband var alltaf gott og traust. Blessuð sé minning Huldu. Grímhildur Hlöðversdóttir. Það er komið að kveðjustund. Elskuleg tengdamóðir mín Hulda Ásgeirsdóttir andaðist á Hrafnistu í Reykjavík hinn 24. október síðastliðinn 99 ára göm- ul. Það vantaði aðeins rúman mánuð í 100 árin. Þetta var orðin löng ævi og hún löngu tilbúin að kveðja. Yndislegri manneskju hef ég aldrei kynnst, svo rólegri og yf- irvegaðri og skipti aldrei skapi, tók öllu í lífinu með jafnaðargeði. Ég var mjög ung þegar ég kom fyrst inn á heimili Huldu, þá nýbúin að kynnast syni hennar Eyjólfi. Ég var mjög kvíðin og feimin í þessari fyrstu heimsókn, en ég hefði getað verið rólegri því hún tók mér svo vel, eins og við hefðum þekkst lengi. Svona hefur það verið síðan. Ást henn- ar og umhyggja fyrir okkur, barnabörnum og síðan lang- ömmubörnum sínum hefur alltaf verið mikil. Fram á síðasta dag spurði hún um okkur öll með nafni, hvernig við hefðum það og hvort ekki gengi vel hjá öllum. Gestrisnari konu var vart hægt að finna, enda farið í marg- ar heimsóknir til hennar eftir sunnudagsbíltúrana með börnin. Þeim fannst alltaf jafn gaman að vera hjá ömmu sinni, því hún gaf þeim svo mikinn tíma. Þreyttist aldrei á að spila við þau eða segja þeim sögur. Höfum við nú öll kvatt hana með miklum söknuði og þakk- læti fyrir öll árin sem við áttum með henni. Hún var örugglega hvíldinni fegin. Orðin þreytt og vissi að þrjú barna hennar sem farin voru á undan henni, myndu taka vel á móti henni. Blessuð sé minning þessarar elskulegu konu. Sólveig Gunnarsdóttir. Nú er hún amma Hulda kom- in á góðan stað. Búin að hitta börnin sín sem fóru alltof fljótt á undan henni, og alla þá sem hún hefur misst á sinni löngu ævi. Eða það vona ég, því vænting- arnar voru miklar hjá henni. Ég vona alla vega að hún geti heyrt vel núna og sé laus við alla verki, en um þá kvartaði hún aldrei neitt svo sem, en henni leiddist óskaplega að vera svona gömul, „oha, það er svo leiðinlegt að vera svona gömul og geta ekki boðið ykkur upp á neitt,“ sagði hún oft. Amma var nefnilega í essinu sínu í eldhúsinu þegar hún var að baka, elda og hlúa að öllum í kringum sig. Maður minnist allra pönnukaknanna með rjómanum, kleinanna, að ekki sé minnst á heita súkku- laðið. Það var alltaf mikil til- hlökkun að fara með rútunni úr sveitinni niðrí Hvassó til ömmu, ég tala nú ekki um til þess að gista, þá las hún alltaf fyrir mann Dimmalimm, og alltaf sama hvað það var mikið að gera hjá henni hafði hún alltaf tíma til að spila og kenna manni ný spil. Ég og börnin mín eigum eftir að sakna ömmu og langömmu, hún var klettur sem aldrei hagg- aðist eða bugaðist í öllu hennar mótlæti í lífinu sem var nú nóg um. Hún tók öllu með æðruleysi, skipti aldrei skapi eða hallmælti öðrum. Ef maður hefði eitthvað af hennar geðslagi, þá væri mað- ur í góðum málum, hugsa ég. Minning hennar verður ljós í lífi okkar. Þegar raunir þjaka mig, þróttur andans dvínar, þegar ég á aðeins þig einn með sorgir mínar. Gef mér kærleik, gef mér trú, gef mér skilning hér og nú. Ljúfi drottinn lýstu mér, svo lífsins vef ég finni, láttu ætíð ljós frá þér ljóma í sálu minni. (Gísli á Uppsölum) Herdís Þórðardóttir og fjölskylda. Hulda amma er fallin frá. Hún lést á heimili sínu á Hrafnistu í Reykjavík hinn 24. október síð- astliðinn rétt tæplega 100 ára gömul. Það var við hæfi að hún færi í síðasta fríið sitt á kvennafrídaginn. Hennar verður sárt saknað. Amma var mjög góð kona. Maður skynjaði góðmennsku hennar við það eitt að hitta hana. Þegar maður var lítill heilsaði hún manni af hlýju og hafði áhuga á því sem við börnin höfð- um fyrir stafni. Hún passaði jafnframt upp á að barnabörnin færu ekki frá henni öðruvísi en södd og sæl. Jafnvel rúmlega það, því hún var gjörn á að bjóða okkur meira af kleinum eða kök- um nokkrum sinnum eftir að bú- ið var að segja „takk fyrir mig“. Þannig eiga ömmur að vera. Það var ekki síður áhugavert að kynnast ömmu sem fullorðinn einstaklingur. Hún hafði frá svo mörgu að segja sem var áhuga- vert þó svo að hún af lítillæti vildi ekki alltaf tala mikið um sig eða sitt lífshlaup. Það var ótrú- lega skemmtilegt að hlusta á hana segja frá atvikum í lífi sínu sem áttu sér stað fyrir 80-90 ár- um og allt mundi hún eins og það hefði gerst í gær. Amma var sterk kona sem varð fyrir heilmiklu mótlæti á lífsleiðinni án þess nokkru sinni að bogna í baki. Hún bar sig allt- af vel og bar aldrei kala til nokk- urs manns. Þannig manneskja var amma. Hún hafði áhrif á lífs- viðhorf mitt t.d. þegar hún sagð- ist dauðleið á krepputali fólks í dag sem kvartaði yfir því að komast ekki til útlanda tvisvar á ári. Þegar hún var að alast upp vestur á fjörðum var lífsbaráttan hörð. Hún sagði frá móðurmissi í æsku, fráfalli systkina, sundrun fjölskyldu og almennu brauð- striti þar sem mestu áhyggjur fólks snérust um að allir hefðu eitthvað að borða. Þetta voru erfiðir tímar og hennar björt- ustu minningar úr æsku voru að finna lyktina af blómunum á vor- in. Hulda Ásgeirsdóttir 24 tíma vakt Sími 551 3485 Davíð H. Ósvaldsson S: 896 8284 Óli Pétur Friðþjófsson S: 892 8947 ÞEKKING–REYNSLA–ALÚÐ ÚTFA RARÞJÓNUSTA ✝ Þökkum þeim fjölmörgu sem hafa látið í ljós samúð vegna andláts GUÐRÚNAR BJARNADÓTTUR, Grundarási 12, Reykjavík, og sýnt minningu hennar hlýju og virðingu. Hörður Gíslason, Helga Harðardóttir, Haraldur Skarphéðinsson, Gunnar Harðarson, Emil Dagsson, Álfrún Haraldsdóttir, Ásta Árnadóttir. ✝ Alúðarþakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, STEFÁNS STEFÁNSSONAR, Hlíðarhúsum 3, Reykjavík. Starfsfólki og vinum hans í Hlíðarhúsum eru færðar sérstakar þakkir fyrir hlýju og vináttu. Stefán Stefánsson, Kristín Jóhannesdóttir, Karólína Sigfríð Stefánsdóttir, Þórður Björgvinsson, Elín Pálsdóttir, Vigfús Þór Árnason. ✝ Hjartans þakkir til allra sem sýndu samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, ÓSKARS SIGURJÓNSSONAR sérleyfishafa. Guð blessi ykkur öll. Sigríður Halldórsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Við þökkum innilega auðsýnda samúð vegna fráfalls eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, MARGRÉTAR MARÍU JÓNSDÓTTUR, sem lést sunnudaginn 16. september á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Sunnuhlíðar og heima- hjúkrunar Heilsugæslunnar í Kópavogi fyrir einstaka hlýju og nærgætni í störfum sínum. Guðmundur Jónasson, Jónas Guðmundsson, Anh-Dao Tran, Arnfríður Guðmundsdóttir, Gunnar Rúnar Matthíasson og barnabörn. ✝ Innilegar þakkir til ykkar allra sem sýnduð okkur hlýhug og samúð vegna andláts og útfarar GÍSLA HALLDÓRSSONAR arkitekts. Sérstakar þakkir til starfsfólks og borðfélaga á hjúkrunarheimilinu Eir, deild 2-b, fyrir alúð og vinskap. Leifur Gíslason, Þórdís Jónsdóttir, Margrét Leifsdóttir, Þorsteinn Stefánsson, Gísli Leifsson, Jón Páll Leifsson, Guðrún Norðfjörð og langafabörn. ✝ Hugheilar þakkir til allra sem auðsýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, SIGRÚNAR EINARSDÓTTUR Simmu, áður til heimilis að Efstasundi 74. Sérstakar þakkir til alls starfsfólks á Hrafnistu í Hafnarfirði sem kom með hlýhug að umönnun hennar. Guð blessi ykkur öll. Sigurhanna Erna Gísladóttir, Einar Jóhann Gíslason, Diljá Erna Eyjólfsdóttir, Halldór Gíslason, Anne May Sæmundsdóttir, Gísli G. Sveinbjörnsson, Guðrún Bergmann, Guðlaug Ingibergsdóttir, barnabörn, langömmubörn og langalangömmubörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.