Morgunblaðið - 03.11.2012, Side 43
Amma var heilsuhraust þrátt
fyrir háan aldur, með góða sjón
en heyrnin var farin að gefa sig.
Hún fylgdist vel með, las dag-
blöð og hafði unun af lestri bóka.
Amma var ætíð hrókur alls fagn-
aðar á mannamótum. Amma var
stálminnug eins og áður er getið,
og ættglögg mjög. Hún hefur
gegnum tíðina sagt mér frá
mörgum landsfrægum Íslend-
ingum og rakið nákvæmlega
ættartengsl þeirra við fjölskyldu
okkar. Þegar hún hitti konuna
mína fyrst taldi hún sig geta ráð-
ið af svip hennar hvaðan hún
væri ættuð vestan af fjörðum.
Það passaði allt við frekari könn-
un.
Ég á eftir að sakna ömmu,
eiga við hana spjall um gamla og
nýja tíma og njóta samveru með
henni. Hún var tilbúin í síðasta
ferðalagið sitt og hafði oft rætt
það fólkið sitt. Ég er viss um að
hún unir sér glöð með börnum
sínum þremur sem kvöddu á
undan henni en hún varðveitti
minningu þeirra svo vel í hjarta
sínu.
Blessuð sé minning hennar
Huldu ömmu.
Eyjólfur Eyjólfsson.
Elsku amma. Nú ertu búin að
kveðja þetta líf aðeins rúmum
mánuði fyrir 100 ára afmælið
þitt. Þú hefur lifað tímana
tvenna sem gerir það ómetan-
legt að hafa verið í sambandi við
þig og heyra sögur um hvernig
lífið var hér á árum áður.
Það var alltaf gott að heim-
sækja þig. Þú vafðir okkur hlýju
og ást, auk þess sem að alltaf
var borið á borð fyrir mann
„fermingarhlaðborð“ af veiting-
um. Við eigum bara góðar minn-
ingar frá Hvassaleitinu, Bólstað-
arhlíðinni og núna síðustu ár á
Hrafnistu því þú varst yndisleg
heim að sækja.
Ég veit að þú hefur það gott
þar sem þú ert í dag enda margt
af því fólki sem þér þótti vænst
um farið og óskum við þess af
heilum hug að þú hafir nú þegar
hitt það allt aftur við mikinn
fögnuð og kátínu.
Á þessari kveðjustund er það
fyrst og fremst þakklæti sem við
finnum fyrir og þá sérstaklega
yfir því að hafa verið svo lán-
samar að vera barnabörn þín, en
það voru forréttindi.
Mér tregt er um orð til að þakka þér,
hvað þú hefur alla tíð verið mér.
Í munann fram myndir streyma.
Hver einasta minning er björt og blíð,
og bros þitt mun fylgja mér alla tíð,
unz hittumst við aftur heima.
(Hugrún.)
Minning þín lifir í hjarta okk-
ar allra.
Kveðja og takk fyrir allt.
Elísabet og Hulda Kar-
en Eyjólfsdætur.
Að lifa í hartnær hundrað ár
er fáum gefið. Ennþá merkilegra
er að ná þessum aldri þrátt fyrir
margt og mikið mótlæti í lífinu.
Amma hélt vitsmunalegri og
andlegri heilsu fram í andlátið.
Hún varð fótfúin og sat í hjóla-
stól síðustu mánuðina. Fram að
því var hún hinsvegar létt á fæti.
Heyrnarleysi háði henni frá
barnæsku. Ekkert tillit var til
þessa tekið í skóla. Heyrnartæki
fékk hún fyrst eftir að hún varð
fullorðin.
Amma mín var mörgum góð-
um kostum gædd. Mér stendur
næst að þakka henni fyrir örlæt-
ið og þá léttu lund sem henni var
gefin. Ég fæddist árið 1959.
Amma var þá einstæð móðir
með tvö börn á framfæri. Móðir
mín var einnig einstæð móðir.
Hún veiktist alvarlega á geði
þegar ég var á öðru ári. Amma
tók mig þá að sér. Hún vann á
þessum tíma láglaunastörf hjá
Bæjarútgerðinni og við hrein-
gerningar. Eigi að síður var hún
alltaf jákvæð og bjartsýn. Móðir
mín var alvarlega veik og var
innlögð nær samfellt þangað til
ég var fjögurra ára. Þegar hún
loks útskrifaðist, fór það svo að
hún flutti inn til ömmu. Þar
bjuggum við svo bæði þar til ég
flutti að heiman um tvítugt.
Sjúkdómur móður minnar gerði
það að verkum að ég og amma
urðum að standa saman að því
að sinna móður minni á veik-
indatímabilum frá því ég var 7-8
ára gamall. Þetta var ekki alltaf
auðvelt, hvorki fyrir hana né
mig, en hún tók þessu mótlæti af
æðruleysi og án þess að nokkurn
tímann örlaði á biturð eða reiði
gagnvart móður minni, mér eða
forlögunum. Ekki síst studdi
amma mig alltaf, sama hverju ég
fann upp á. Hún sýndi mér skil-
yrðislausa ást og umhyggju –
alla tíð.
Mér og konu minni er báðum
minnisstætt þegar hún gisti í
fyrsta sinn hjá mér á heimili
ömmu. Amma átti ekki að vita af
þessu, enda vorum við líklega 17
og 18 ára gömul. Hún ætlaði að
læðast út snemma á sunnudags-
morgni, en áður en hún komst að
dyrum bauð amma í pönnukökur
og var þá þegar búin að baka
stóran stafla sem við svo röð-
uðum í okkur. Slík var rausn og
örlæti hennar.
Ég held að allir sem þekktu
ömmu kannist við umhyggju
hennar og örlæti. Þetta gildir
a.m.k. um okkur afkomendur
hennar. Amma lifði það að verða
langalangamma.
Síðasta minning mín um
ömmu var í jarðarför móður
minnar í maí í ár. Mamma var sú
þriðja af fimm börnum ömmu
sem hún fylgdi til grafar. Eftir
lifa aðeins Eyjólfur og Sigga.
Umhyggja ömmu gagnvart móð-
ur minni var takmarkalaus. Í
jarðarför mömmu vissi hún vel
hvað gerst hafði og benti á gler-
listaverk Leifs Breiðfjörð og
hafði orð á því hvað þetta væri
fallegt. Hún sagði þetta háum
rómi þannig að bæði presturinn
sem jarðsöng og allir sem voru í
kirkjunni heyrðu þetta vel. Það
er vel viðeigandi að hún var
kvödd undir þessari sömu mynd
bara tæpu hálfu ári seinna.
Hvernig er hægt að þakka
fyrir allt? Það er hvorki meira
né minna en það sem ég á henni
að þakka. Þegar minn tími kem-
ur hlakka ég til endurfundanna.
Hún talaði sjálf oft um hvað biði
hinumegin. Ég vona að hún
mæti þeim sem hún hefur kvatt
og ég er viss um að þeir taka vel
á móti henni.
Blessuð sé minning Huldu Ás-
geirsdóttur.
Ásgeir Bragason.
Það eru ekki allir svo lánsam-
ir að eiga langömmu á lífi þegar
þeir fæðast og að fá að taka þátt
í lífi hennar í svona langan tíma
eins og við höfum haft tækifæri
til. Takk fyrir allt sem þú varst.
Það var alltaf svo notalegt að
koma í heimsókn til þín.
Myndirnar sem við eigum af
þér með börnunum okkar í
skírninni hans Matthíasar eru
ómetanlegar, þar sem þú heldur
á honum og við systurnar stönd-
um við hliðina á þér með Natalíu
Laufeyju og Garðari Kára. Fal-
leg mynd af fallegri konu með
yndislegum langalangömmu-
börnum.
Takk fyrir samfylgdina og
vonum að þér líði vel.
Vertu ekki grátinn við gröfina mína
góði, ég sef ekki þar.
Ég er í leikandi ljúfum vindum,
ég leiftra sem snjórinn á tindum.
Ég er haustsins regn sem fellur á fold
og fræið í hlýrri mold.
Í morgunsins kyrrð er vakna þú vilt,
ég er vængjatak fuglanna hljótt og
stillt.
Ég er árblik dags um óttubil
og alstirndur himinn að nóttu til.
Gráttu ekki við gröfina hér –
gáðu – ég dó ei – ég lifi í þér.
(Höf. ókunnur.)
Sandra Sif, Berglind
og Sólveig Gunnarsdætur.
MINNINGAR 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2012
✝ Erla AðalheiðurHjörleifsdóttir
fæddist á Akranesi
29. desember 1934.
Hún andaðist á gjör-
gæsludeild Land-
spítalans við Hring-
braut 21. október
2012.
Erla var miðju-
barn í fimm systra
hópi. Foreldrar
hennar voru Guðrún
Gunnarsdóttir f. 27. júní 1904, d.
1. apríl 1996 og Hjörleifur Guð-
mundsson f. 21. ágúst 1905, d. 4.
apríl 1995. Systur Erlu eru Vigdís
Magnúsdóttir f. 2. september 1925
(látin), Anna Helga f. 2. júlí 1933
(látin), Ágústína f. 18. janúar 1936
og Hjördís Guðrún f. 28. júlí 1940.
arsdóttir f. 21. mars 1962. Börn
þeirra eru Finnbogi Rúnar f. 8.
maí 1996 og Aðalheiður Kristín f.
10. mars 2000.
Erla ólst upp á Suðurgötu 19 á
Akranesi hjá foreldrum sínu til 7
ára aldurs er foreldrar hennar
skildu. Þá flutti hún með móður
sinni og systrum að Suðurgötu 48
á Akranesi. Síðar voru þær heim-
ilisfastar að Mánabraut 6 á Akra-
nesi. Þar bjó Ásgeir Guðmunds-
son sem móðir Erlu var ráðskona
hjá. Var Erla heimilisföst þar
þangað til hún stofnaði sitt eigið
heimili. 14 ára gömul fór Erla í
vist til Vigdísar systur sinnar að
Akbraut í Holtum í Rang-
árvallasýslu. Einnig var hún í vist
í Hafnarfirði. 18 ára kemur hún
alkomin til Akraness og bjó þar
alla tíð síðan. Erla vann svo til alla
tíð utan heimilis með húsmóð-
urhlutverkinu. Lengst af vann
hún í mötuneyti Sementsverk-
smiðju ríkisins á Akranesi.
Útför Erlu Aðalheiðar hefur
farið fram í kyrrþey.
Eiginmaður Erlu
er Daði Kristjánsson
f. 9. október 1935 á
Litlabæ við Skötu-
fjörð í Ísafjarð-
ardjúpi. Þau giftu
sig 30. desember
1962.
Erla átti son með
Ingólfi Hafsteini
Sveinbjörnssyni f.
26. mars 1932 (lát-
inn) sem hét Guð-
mundur Róbert f. 15. mars 1952,
d. 3. september 2009. Sambýlis-
kona hans var Þórný Sigurjóns-
dóttir, f. 8. okt. 1957. Börn Erlu
og Daða eru Sigrún Hrönn f. 14.
ágúst 1956 og Kristján Þröstur f.
20. október 1960. Eiginkona
Kristjáns er Friðrika Eygló Gunn-
Elsku mamma.
Kveðjan var alltof stutt fyrir
okkur. Þú fórst í aðgerð. Eftir
þrjár vikur var kallið komið, svo
skyndilega þar sem þú varst á
batavegi. Maður veit aldrei, eng-
inn ræður sínum næturstað.
Elsku mamma, það er margt sem
þú skilur eftir þig í lífi okkar. Góð-
ar minningar lifa sem lengst. Tím-
inn líður hratt í veröld okkar. Þú
áttir góðar stundir með Finnboga
og Aðalheiði. Þú passaðir þau oft
fyrir okkur. Auðvitað komst þú
alltaf í afmælin þeirra ásamt
pabba og Sigrúnu systur. Þetta
gladdi þau mikið. Mörg ferðalög
fórum við í saman. Síðast núna í
haust var farin ferð í berjamó því
að tína ber hafðir þú mikla ánægju
af. Einnig varst þú einstaklega
dugleg að spila með ömmubörn-
unum. Þú varst þeirra dyggasti
stuðningsmaður. Að lokum vil ég
kveðja þig með ljóði sem sam-
starfskona þín orti fyrir mörgum
árum og segir allt sem segja þarf
um þig.
Lokið er kafla í lífsins miklu bók.
Við lútum höfði í bæn á kveðjustund.
Biðjum þann Guð, sem gaf þitt líf og
tók
græðandi hendi að milda sorgarstund.
Ó, hve við eigum þér að þakka margt
þegar við reikum liðins tíma slóð.
Í samfylgd þinni allt var blítt og bjart
blessuð hver minning, fögur, ljúf og
góð.
Okkur í hug er efst á hverri stund
ást þín til hvers, sem lífsins anda dró
hjálpsemi þín og falslaus fórnarlund.
Friðarins Guð þig sveipi helgri ró.
(Vigdís Runólfsdóttir)
Megi Guð styrkja okkur öll í
sorginni.
Kveðja, þinn sonur
Kristján.
Elsku Erla, hjartans þökk fyrir
samfylgdina, minning þín lifir í
hjörtum okkar.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Okkar innilegustu samúðar-
kveðjur til ástvina,
Ágústína og Sigvaldi.
Sárt er vinar að sakna.
Sorgin er djúp og hljóð.
Minningar mætar vakna.
Margar úr gleymsku rakna.
Svo var þín samfylgd góð.
Daprast hugur og hjarta.
Húmskuggi féll á brá.
Lifir þó ljósið bjarta,
lýsir upp myrkrið svarta.
Vinur þó félli frá.
Góða minning að geyma
gefur syrgjendum fró.
Til þín munu þakkir streyma.
Þér munum við ei gleyma.
Sofðu í sælli ró.
(Höf. ók.)
Yndislega móðursystir mín,
hún Erla, er dáin og nú er komið
að kveðjustund. Erla var einstök
kona sem á fáa sína líka. Hún hef-
ur átt sérstakan stað í hjarta mínu
frá því ég man eftir mér. Til Erlu
og Daða var einstaklega gott og
skemmtilegt að koma og tekið á
móti manni með einstakri gest-
risni og hjartahlýju. Að heim-
sækja Erlu, Daða og fjölskyldu
t.d. á aðfangadagsmorgun var al-
gerlega ómissandi í jólahaldi okk-
ar hjóna og barnanna okkar. Þar
var tekið á móti manni á ógleym-
anlegan hátt. Minningar leita á
hugann. Það er svo margs að
minnast og þær minningar mun
ég varðveita um tíð. Guð geymi
þig, elsku Erla mín. Ég bið góðan
Guð að styrkja Daða, Sigrúnu,
Kristján, Eygló, Aðalheiði, Finn-
boga og aðra aðstandendur á erf-
iðum tímum. Missir ykkar er mik-
ill. Ég og fjölskylda mín vottum
ykkur okkar dýpstu samúð. Hvíl í
friði, elsku Erla.
Petrún Berglind
Sveinsdóttir.
Okkur systurnar langar að
minnast móðursystur okkar, Erlu,
sem var okkur einstaklega kær
alla tíð. Þegar litið er yfir farinn
veg koma fram margar góðar
minningar sem ylja okkur nú þeg-
ar komið er að leiðarlokum. Mikill
samgangur var á milli fjölskyldna
okkar og þegar við vorum yngri
var farið í ófá ferðalögin. Þar
smökkuðum við systur í fyrsta
sinn kartöflumús og rauðar pulsur
sem Erla eldaði. Algjört lostæti að
okkar mati. Ekki má gleyma far-
artækjunum sem ferðast var í,
Moskovits-eðalbílar á þeim tíma.
Minningar tengdar jólunum
eru margar og góðar. Hittust þá
fjölskyldurnar þar sem súkkulaði
og hnallþórur voru á boðstólum.
Munum við systur sérstaklega
eftir dropajólaseríunni á jólatrénu
hjá Erlu og Daða sem við gátum
endalaust dáðst að. Jólaböllin sem
Erla og Daði buðu okkur á í Sem-
entsverksmiðjunni gleymast líka
seint. Á aðfangadagsmorgun var
og er enn sá góði siður að koma
við á Heiðarbrautinni með jóla-
kortin og hafa börnin okkar nú
bæst í hópinn með okkur.
Þær systur Erla og mamma
okkar, voru mjög samrýmdar alla
tíð. Erla var handlagin kona og
var mömmu oft innan handar t.d.
við að sauma föt á okkur systk-
inin. Þær systur tóku saman slát-
ur lengi vel, og þá var mikið fjör
og mikið hlegið. Okkur fannst
Erla elda heimsins besta mat og
fannst okkur alltaf betri maturinn
hjá henni en mömmu. Erla hafði
góða nærveru. Hún var hlý og góð
og hafði mikið að gefa. Alltaf var
gott að heimsækja þau Daða á
Heiðarbrautina og eigum við þar
minningar um margar góðar
stundir. Nú er komið að leiðarlok-
um. Við viljum þakka allar góðu
stundirnar með þér. Við vitum að
Róbert og amma hafa tekið vel á
móti þér. Það er með miklu þakk-
læti sem við kveðjum hana Erlu
frænku okkar og vottum fjöl-
skyldu hennar okkar dýpstu sam-
úð. Minninguna um þig munum
við geyma í hjarta okkar það sem
við eigum eftir ólifað.
Erla, góða Erla!
eg á að vagga þér.
Svíf þú inn í svefninn
í söng frá vörum mér.
Kvæðið mitt er kveldljóð,
því kveldsett löngu er.
Úti þeysa álfar
um ísi lagða slóð.
Bjarma slær á bæinn
hið bleika tunglskinsflóð.
Erla, hjartans Erla,
nú ertu þæg og góð!
(Stefán frá Hvítadal.)
Guð blessi minningu þína.
Guðrún og Helga.
Erla Aðalheiður
Hjörleifsdóttir
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við
andlát og útför
INGIBJARGAR KRISTJÁNSDÓTTUR,
Árskógum 4,
áður Reynimel 72.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Austurbæjar
á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ fyrir
sérstaklega góða aðhlynningu og fallega minningarstund.
Arnar Birgisson, Sigrún Þorsteinsdóttir,
Birgir Hrafnsson, Oddný Indíana Jónsdóttir,
Finnur Lárusson, Merrilyn Lárusson,
Hafliði Kristján Lárusson, Catherine Alaguiry,
Katrín María Birgisdóttir, Jóhann Birkir Guðmundsson
og barnabörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts ástkærrar móður,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÁSLAUGAR TULINIUS
Bólstaðarhlíð 41,
sem lést þriðjudaginn 9. október.
Sérstakar þakkir til starfsfólks heimahjúkrunar
og þeirra sem önnuðust hana af mikilli kostgæfni á heimili hennar.
Hrefna Tulinius, Guðmundur Ármannsson,
Alberta Tulinius, Helgi Halldórsson,
Guðrún Halla Tulinius,
Helga Tulinius,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Þökkum öllum þeim er sýndu okkur samúð
og hlýhug vegna andláts ástkærs
eiginmanns, pabba, tengdapabba og afa,
SVAVARS BJARNASONAR
tæknifræðings.
Brynja Bærings Halldórsdóttir,
Halldór G. Svavarsson, Tatiana Dimitrova,
Ásta Svavarsdóttir, Þorsteinn Hauksson,
Árný Anna Svavarsdóttir, Snæbjörn Freyr Valbergsson,
Helgi Páll Svavarsson
og afabörn.
✝
Alúðarþakkir til allra sem auðsýndu okkur
samúð og vináttu við andlát og útför
ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
ÖNNU KRISTINSDÓTTUR,
Borgarbraut 65a,
Borgarnesi,
áður Fífusundi,
Hvanneyri.
Ingimar Einarsson,
Guðrún Ingimarsdóttir,
Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir,
Ingibjörg Eydís Ingimarsdóttir, Pétur Magnússon,
Kristín Erla Ingimarsdóttir, Styrmir Þorsteinsson
og ömmubörn.