Morgunblaðið - 03.11.2012, Blaðsíða 54
54 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2012
Í Kaffihúsinu Álafossi verður í
dag, laugardag, klukkan 17 haldið
upp á útgáfu sýningarskrárinnar
Lýðveldið – eyrin, planið, fjaran. Í
skránni er fjallað um sýningarhald
hóps myndlistarmanna á þremur
stöðum á landinu, á Þingeyri og
Siglufirði árið 2010 og á Stokks-
eyri árið 2011. Jafnframt verður
opnuð þar á staðnum örsýning í
kaffihúsinu sem mun standa til 29.
nóvember.
Listamennirnir sem mynda sýn-
ingarhópinn eru Anna Jóa, Bryn-
dís Jónsdóttir, Guðbjörg Lind
Jónsdóttir, Hildur Margrétardótt-
ir, Hlíf Ásgrímsdóttir, Kristín
Geirsdóttir, Kristín Jónsdóttir frá
Munkaþverá og Ólöf Oddgeirs-
dóttir.
Sýningarskráin er sú þriðja og
síðasta er hópurinn gefur út um
sýningarhald sem spannað hefur
alls sjö sýningar í sex sveit-
arfélögum á átta ára tímabili – en
fyrsta sýningin var haldin í Ála-
fosskvosinni á 60 ára afmæli lýð-
veldisins.
Listamennirnir Hópurinn stóð að sýningum á Þingeyri, Siglufirði og
Stokkseyri. Nú kemur út sýningarskrá og örsýning verður opnuð um leið.
Skrá um Lýðveldið –
eyrin, planið, fjaran
Útgáfuhóf og örsýning í Álafossi
„Það kemur á óvart hvað verkin
passa vel hér inn. Ég hélt þau yrðu í
mikilli andstöðu við stofnanalegt
umhverfið en svo er bara eins og þau
eigi að vera hérna,“ segir Helgi
Þórsson myndlistarmaður. Í dag,
laugardag, klukkan 13.30 verður
opnuð sýning á úrvali verka hans í
anddyri og á göngum Arion banka í
Borgartúni 19. Þá mun Markús Þór
Andrésson sýningarstjóri fjalla um
myndlistarmanninn og verk hans.
Fyrirlesturinn nefnir hann „Candy
Man“.
Litrík og skrautleg málverk
Helga taka sig vel út í húsakynnum
bankans, en þar eru reglulega kynnt
verk ólíkra myndlistarmanna, með
sýningu og fyrirlestri.
„Þetta eru mestmegnis verk frá
síðustu tveimur árum en svo slæðast
nokkur eldri með,“ segir Helgi. Stór
málverk eru áberandi en á sýning-
unni eru líka skúlptúrar; einskonar
ker og vinalegir álfar.
„Þessar stóru myndir mínar hafa
aldrei fengið svona mikið rými, þær
anda vel hérna“ segir hann. „Þær
eru meira skrípó hér en ég hef upp-
lifað áður. Þessi fyrsta þarna, sem er
líka sú nýjasta er algjör skrípamynd
og kannski gefur hún tóninn.“
Myndheimur Helga er æði skraut-
kenndur. „Já, ég er glysgjarn og
hrifinn af miklu og nokkuð yf-
irþyrmandi skrauti. En skrípamynd-
irnar koma samt frekar úr raun-
veruleikanum en Disney-myndum,
ég hef aldrei verið fyrir teikni-
myndasögur. Annars var ég að vona
að sýningin yrði meira pönk hér inni
en þetta er furðulega afslappað,“
segir hann og horfir yfir salinn.
Sýningin er opin alla virka daga,
klukkan 9 til 16.30. efi@mbl.is
Verk Helga í Arion banka
Morgunblaðið/Einar Falur
Skrautheimur Helgi Þórsson við nokkur verka sinna í bankanum.
Ragnar Bragason vinnurmikið með leikurum þeg-ar hann skrifar verk.Þetta skilar sér í mjög vel
mótuðum og skemmtilegum per-
sónum í Gullregni. Leikmyndin er
afar raunsæisleg, nosturslega gerð
íbúð í Breiðholtinu með alls konar
smáatriðum sem bera grísaveislu-
menningu fagurt vitni. Hljóðmyndin
er flott með hundgá, píanóleik og
ýmsum blokkarhljóðum. Fatnaður
persónanna er viðeigandi, hvort sem
það er æfingagalli, peysa, rúllu-
kragabolur, útivistarfatnaður eða
annað. Út um gluggann má svo sjá
gullregnið sem stendur í garðinum
og næstu blokk, misvel eftir því
hvort það er nótt eða dagur en það
er sýnt með glæsilegri lýsingu. Með
þessu tekst að fanga ákveðna
stemningu og andrúmsloft í smáat-
riðum. Að því leyti er leikritið Gull-
regn eins og samtímabíómynd,
heimavöllur höfundarins og leik-
stjórans.
Ljóst virðist að sagan sprettur
fram af persónusköpuninni og er
eiginlega undirskipuð henni. Per-
sónurnar eru allar áhugaverðar.
„Öryrkinn“ Indíana Jónsdóttir er
bótaþegi á sextugsaldri og verkið
gerist á heimili hennar. Þar kynn-
umst við syninum Unnari sem einn-
ig er á bótum, hinni pólsku Danielu,
kærustu hans, og Jóhönnu Ein-
arsdóttur, nágranna og aðstoð-
arkonu Indíönu. Til viðbótar koma
svo við sögu fulltrúi umhverfisráðu-
neytisins, lögfræðingur Trygg-
ingastofnunar og við fræðumst um
móður Indíönu.
Indíana er að mörgu leyti vel af
guði gerð en hefur ákveðið að beina
hæfileikum sínum og kröftum í þann
farveg að mergsjúga kerfið og hún
gerir son sinn einnig út í þeim til-
gangi. Liður í því er að tjóðra hann
niður með því að vega stöðugt að
sjálfsmynd hans. Jóhanna ná-
grannakona hennar er raunveruleg-
ur öryrki sem æðrast aldrei en
hjálpar Indíönu og kemur henni í
gegnum gerviköstin sem hún tekur.
Sigrún Edda Björnsdóttir leikur
Indíönu mjög vel. Hún er voldugur
karakter sem heldur uppi spennu í
samskiptum við alla í kringum sig.
Hallgrímur Ólafsson er einnig stór-
góður sem Unnar sonur hennar.
Þegar hann kemur heim með Dani-
elu í fyrsta skipti má til dæmis sjá
hrinu svipbrigða og takta á andliti
hans á meðar hann reynir að lesa í
viðbrögð móður sinnar. Brynhildur
Guðjónsdóttir túlkar Danielu, skap-
fasta og vandaða pólska kærustu
hans afar vel. Íslenska hennar er
sérlega sannfærandi. Halldóra Geir-
harðsdóttir er alveg stórskemmtileg
sem Jóhanna nágrannakona. Hún er
uppfull af ódýrri lífsspeki og já-
kvæðni sem margvíslegir erfiðleikar
eru hægt og bítandi að kvarna úr.
Líkamsbeiting Halldóru er flott,
hún er framhallandi og kjagandi
vegna ónýtra hálsliða og baks og
virðist einnig illa haldin af gyllinæð.
Halldór Gylfason er óaðfinnanlegur
í hlutverkum sínum og Hanna María
Karlsdóttir býr til eftirminnilegt
gamalmenni.
Gullregn er spennandi verk um
hluti sem skipta máli, meðal annars
bótasvik, rasisma og spurninguna
um að hve miklu leyti einstaklingar
eru bundnir af því umhverfi sem
þeir fæðast inn í. Í síðasta hluta þess
fer af stað nokkuð hröð atburðarás.
Deila má um hvort hún er nógu vel
undirbyggð en þar vantar aðeins
upp á að mínu mati. Eftir stendur þó
fyrst og fremst virðing fyrir þeirri
góðu vinnu sem höfundur og leik-
stjóri, leikarar og aðrir aðstand-
endur hafa innt af hendi.
Spenna „Sigrún Edda leikur Indíönu mjög vel. Hún er voldugur karakter sem
heldur uppi spennu í samskiptum við alla í kringum sig,“ segir m.a. í dómi.
Skemmtilegt skráar-
gat í Breiðholtinu
Gullregn bbbbn
Gullregn eftir Ragnar Bragason.
Leikarar: Sigrún Edda Björnsdóttir,
Hallgrímur Ólafsson, Halldóra Geir-
harðsdóttir, Brynhildur Guðjónsdóttir,
Halldór Gylfason og Hanna María Karls-
dóttir.
Leikmynd: Hálfdán Pedersen,
búningar: Helga Rós V. Hannam,
lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson,
tónlist: Mugison.
Leikstjóri: Ragnar Bragason.
Frumsýning 1. nóvember 2012 á Nýja
sviði Borgarleikhússins.
SIGURÐUR G.
VALGEIRSSON
LEIKLIST
LAUGAVEGI 24 - 101 REYKJAVÍK
SÍMI: 552 0800
SKIPAGÖTU 7 - 600 AKUREYRI
SÍMI: 462 4646
ER ÞÖRF Á
MARGSKIPTUM
GLERAUGUM?
MARGSKIPT
GLER
-25%