Morgunblaðið - 03.11.2012, Qupperneq 56
56 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2012
Dagur myndlistar er haldinn hátíð-
legur víða um land í dag, laug-
ardaginn 3. nóvember. Í tilefni
dagsins hefur fjöldi listamanna
vinnustofur sínar opnar fyrir
áhugasömum gestum frá klukkan
14 til 17. Á vefsíðu dags myndlistar,
www.dagurmyndlistar.is, er hægt
að skoða stutt viðtöl við myndlist-
armenn. Þá er á vefnum gagnvirkt
kort með upplýsingum um allar
opnar vinnustofur og listamennina
sem taka þátt í verkefninu í ár.
Gestum býðst að skoða vinnustof-
urnar og verkin, ræða við lista-
mennina og fræðast um starfið.
Samband íslenskra myndlist-
armanna (SÍM) hefur staðið fyrir
Degi myndlistar undanfarin ár.
Liður í verkefninu er að bjóða upp
á kynningar í skólum landsins um
starf listamannsins. Unglingum er
þá veitt innsýn í viðamikið starf
listamannsins. Í ár varð sú breyting
á að skólar utan höfuðborgarsvæð-
isins munu taka þátt í fyrsta sinn.
Myndlistarmenn
opna vinnustofur
fyrir gestum
Morgunblaðið/Þorkell
Opið hús Í SÍM-húsinu í Hafnarstræti
verður opnuð sýning Pauls R. Weile.
Mercuryverðlaunin bresku í dæg-
urtónlist eða Barclaycard Mercury
Prize eins og þau heita víst núna
þykja mikið hnoss og gildisskapandi
fyrir þá sem eru sæmdir þeim. Verð-
launin eru veitt fyrir framúrskarandi
plötur, við getum jafnvel talað um
„verk“ í þessu samhengi, fremur en
eitthvað vinsælt og nafntogað. Upp-
runalegur tilgangur þeirra var sem-
sagt sá að beina sjónum að listinni
fremur en markaðnum og hafa sig-
urvegarar síðustu ára verið lista-
menn á borð við The xx, Elbow, Klax-
ons, Franz Ferdinand, Dizzee
Rascal, Gomez og Portishead. Fyrsta
platan sem var sæmd verðlaununum
var Screamadelica eftir Primal
Scream (árið 1992, útgefin 1991). Alla
jafna fer ferill viðkomandi á flug
vegna verðlaunanna en það er þó
ekki algilt
En það var semsagt breska sveitin
Alt-J (takkasamsetningin Alt og J er
notuð til að framkalla gríska bókstaf-
inn delta á Apple-tölvum). Verðlaun-
in fékk sveitin fyrir frumburð sinn,
An Awesome Wave, sem kom út í maí
á þessu ári. Sveitin var stofnuð fyrir
fimm árum í háskólanum í Leeds og
bakgrunnur meðlima er í lista- og há-
skólum, ekki ósvipað og í tilfelli Ra-
diohead sem Alt-J hefur verið borin
saman við. Meðlimir fara heldur ekk-
ert í grafgötur með þennan bak-
grunn, tala um stærðfræði og fara í
heimspekilegar vangaveltur um eðli
breytinga kinnroðalaust.
Tónlist er vel sýrð og ágeng, en
hæfilega áhlýðileg um leið. Auk Ra-
diohead kemur líka hin eðla sveit
Wild Beasts upp í hugann. Sumpart
er tónlist Alt-J nokkuð skýr birting-
armynd um tónlistarvinnslu á nýrri
öld, meðlimir, aldir upp á hraða
tæknialdar, demba alls kyns áhrifum
í blönduna án þess að pæla mikið í því
að því er virðist. Popp, rokk, döbb,
þjóðlagatónlist, hipp-hopp, „ambi-
ent“, jaðarskotin raftónlist, teknó …
allt er þetta þarna í einhverjum mæli.
Pælingar
Það hefur, einhverra hluta vegna,
verið mikið „suð“ í kringum sveitina
undanfarna mánuði. Erfitt er að til-
greina ástæður. Þreyta á skyndi-
poppi; þrá eftir proggaðri, úthugs-
aðri, nördískri og grafalvarlegri
rokktónlist? Þegar ég skoða aðra til-
nefnda fæ ég ekki þessa „þessi hefði
átt að vinna!“-tilfinningu og listinn er
dálítið slakur verður að segjast.
Michael Kiwanuka og Ben Howard
eru að leika sér með þrælöruggt og
leiðinlegt „Blunt“-popp, Jessie Ware
er ekki að gera sig og nýjasta plata
hinnar annars frábæru Field Music
er dálítil endurtekning á fyrri afrek-
um. Helst hefði ég verið sáttur ef
Django Django hefðu tekið þetta,
enda frá Edinborg! Að gríni slepptu
er uppfært, sýrulegið trukk þeirra í
gegnum sólstrandarpopp afskaplega
vel útfært þó að áhrifin frá Beta
Band séu vel greinanleg (yngri bróðir
Johns MacLeans er í bandinu). Ann-
að er eftir þessu þannig að Alt-J átti
þetta skilið eins og hver annar.
Semsagt, útvarpstækin hérna á
Bretlandi – og víðar – verða í herkví
framsækins, nördalegs háskólarokk-
popps næstu misseri. Bölvun – eða
blessun?
Jafnvel skrítnari
en Radiohead
Alt-J hreppti Mercury-verðlaunin
Framsækið, listrænt og temmilega
tormelt, vísir að þróun næstu ára?
» Popp, rokk, döbb,þjóðlagatónlist, hipp-
hopp, „ambient“, jað-
arskotin raftónlist,
teknó … allt er þetta
þarna í einhverjum
mæli.
Slakir Meðlimir Alt-J slaka rækilega á eftir að hafa fagnað Mercury-verðlaununum með stæl.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is
Alt-J – An Awesome Wave
Ben Howard – Every Kingdom
Django Django
– Django Django
Field Music – Plumb
Jessie Ware – Devotion
Lianne La Havas –
Is Your Love Big Enough?
Michael Kiwanuka
– Home Again
Plan B – iLL Manors
Richard Hawley
– Standing at the Sky’s Edge
Roller Trio – Roller Trio
Sam Lee – Ground of its Own
The Maccabees
– Given to the Wild
Tilnefnd verk
MERCURY 2012
SKYFALL Sýnd kl. 6 - 7 - 9 - 10 (Power)
PITCH PERFECT Sýnd kl. 5:50 - 8 - 10:15
WRECK-IT RALPH 3D Sýnd kl. 4
HOTELTRANSYLVANIA2D Sýnd kl. 2 - 4
TEDDI 2D Sýnd kl. 2 - 4
PARANORMAN 3D Sýnd kl. 2
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
FYRSTA SINN Á ÍSLANDI! SÝNINGAR Í 4K - KL: 7 OG 10
POWE
RSÝN
ING
KL. 10
Í 4K
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG
FORSÝNING
ÍSL TEXTI
ÍSL TAL
-bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU
7
7
12
12
L
L
,,Sú besta í allri seríunni”
T.V - Kvikmyndir.is
,,Fyrsta flokks 007”
J.A.Ó - MBL
,,Þrælspennandi og skemmtileg
frá upphafi til enda”
H.V.A - FBL
Þ.Þ - FBL
T.V. - KVIKMYNDIR.ISJ. A. Ó. - MBL
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%GLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
PITCH PERFECT KL. 5.30 - 8 - 10.30 12
H. TRANSYLVANIA ÍSL.TEXTI KL. 1 (TILB.) - 3.15 - 5.50 - 8 - 10.10* 7
SKYFALL KL. 1 (TILBOÐ) - 5 - 8 - 10.10** - 11* 12
SKYFALL LÚXUS KL. 1 - 5 - 8 - 11* 12
TEDDI LANDKÖNNUÐUR KL. 1 (TILBOÐ) - 3.15 L
FUGLABORGIN 3D ÍSL.TAL KL. 1 (TILBOÐ) L
TAKEN 2 KL. 10.10 16
DJÚPIÐ KL. 5.50 - 8 10 *AÐEINS LAUGARDAG
ÁVAXTAKARFAN KL. 3.15 L **AÐEINS SUNNUDAG PITCH PERFECT KL. 8 - 10.10 12
SKYFALL KL. 3.20 (TILB.) - 5.20 - 8 - 10.40 12
DJÚPIÐ KL. 6 10 / TEDDI LANDKÖNNUÐUR 3.30 (TILB)
PITCH PERFECT KL. 8 - 10.30 12
H. TRANSYLVANIA ÍSL. TEXTI KL. 3.40 (TILBOÐ) - 5.50 7
SKYFALL KL. 3 (TILBOÐ) - 6 - 9 12
TAKEN 2 KL. 10.30 16
DJÚPIÐ KL. 3.40 10
THE DEEP ENSKUR TEXTI KL. 5.50 10
LOVE IS ALL YOU NEED KL. 8 L
THE FLOWERS OF WAR KL. 5.30 16 / KORA KL. 3 L
FLYING SWORDS KL. 8 14 / DEAR ENEMY KL. 10.20 L