Morgunblaðið - 19.11.2012, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 2012
Alveg mátulegur
Heimilis
GRJÓNAGRAUTUR
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
SÍ
A
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Skoða faglegar forsendur
Vilja ekki hrófla við skipulagi sjúkraflutninga á höfuðborgarsvæðinu
Heimir Snær Guðmundsson
heimirs@mbl.is
Formaður Landssambands slökkviliðs- og sjúkra-
flutningamanna, Sverrir Björn Björnsson, segir að
afstaða sambandsins sé skýr er varðar skipulag
sjúkraflutninga á höfuðborgarsvæðinu. Best sé að
skipulag verði með óbreyttum hætti og sjúkraflutn-
ingar og slökkvilið verði áfram rekið undir hatti
Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu. „Við teljum
að þannig sé hægt að skapa bestu þjónustuna og
það er búin að vera stefna sambandsins síðan 2005
um þjónustuna á landsvísu,“ segir Sverrir.
Fram hefur komið að það sé skilningur stjórnar
SHS að allt stefni í að sjúkraflutningar farið frá
SHS. „Við viljum að horft sé faglega á málið og
ákvarðanir teknar út frá faglegum forsendum. Ekki
hefur verið sýnt fram á að þjón-
ustan sé ófagleg. Ekki heldur að
hún verði faglegri. Menn þurfa
að bera virðingu fyrir hagsmun-
um fólksins í landinu,“ segir
Sverrir og tekur fram að tvær
skýrslur sem gerðar hafi verið
fyrir velferðarráðuneytið um
sjúkraflutninga á undanförnum
árum bendi til þess að best væri
að reksturinn yrði með óbreyttu
sniði. Auk þess staðfesti nýleg
skýrsla KPMG þá tilhögun. Þá segir Sverrir að
skoða megi kostnað velferðarráðuneytis við sjúkra-
flutninga á Selfossi í samhengi við umræðuna.
„Eins og fram kemur í svari velferðarráðherra við
fyrirspurn á þingi árið 2010 var kostnaðurinn við
sjúkraflutninga á Selfossi árið 2009, 132 milljónir
kr. Árið 2006 hafnaði velferðarráðuneytið 60 millj-
óna króna tilboði Árborgar í samrekstur sjúkra-
flutninga á svæðinu,“ segir Sverrir og bætir við að
ein af tillögum velferðarráðuneytisins í skýrslu
KPMG sé lenging viðbragðstíma sem þýði þjón-
ustuskerðingu fyrir íbúa höfuðborgarsvæðisins.
Jákvæð áhrif samrekstrar
„Sjúkraflutningar og slökkvilið eru grunnþættir
bráðaþjónustu á Íslandi. Við erum að reka slökkvi-
lið og sjúkraflutninga á sama mannskap. Menn vita
nákvæmlega hvað þeir geta og hvernig á að vinna
verkefnin,“ segir Sverrir. Guðbjartur Hannesson
velferðarráðherra sagði að viðræður við SHS stæðu
yfir en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið þegar
eftir því var leitað.
Sverrir Björn
Björnsson
Bæjarráð Vesturbyggðar mótmælir
sameiningu prestakalla á sunnan-
verðum Vestfjörðum sem samþykkt
var á nýafstöðnu kirkjuþingi. Bæjar-
ráð harmar niðurstöðu kirkjuþings
en samhliða sameiningu prestakalla
var ákveðið að leggja niður embætti
sóknarprests í Bíldudals- og Tálkna-
fjarðarprestakalli sem einnig þjón-
aði Barðaströnd.
Í framhaldinu á að auglýsa 50%
starf prests í Patreksfjarðar-
prestakalli til viðbótar við núverandi
embætti sóknarprests. Bæjarráð
krefst þess að Biskupsstofa komi
með 50% starf á móti því sem lagt er
niður. Í fundargerð bæjarráðs segir
að enn og aftur sé verið að leggja
niður opinber störf á sunnanverðum
Vestfjörðum „með tilheyrandi nei-
kvæðum áhrifum og byggðarösk-
unum“.
Mótmæla
sameiningu
fyrir vestan
Morgunblaðið/Ómar
Prestar Bæjarráð Vesturbyggðar
harmar niðurstöður kirkjuþings.
Þrír voru teknir grunaðir um ölv-
unarakstur í umdæmi lögregl-
unnar á Selfossi í fyrrinótt. 19 ára
gömul stúlka var stöðvuð á Búr-
fellsvegi og tveir karlmenn, 18 og
25 ára, á Selfossi. Áfengismagn
mældist yfir mörkum hjá öllum
þremur. Þessu til viðbótar barst
lögreglu tilkynning um fjórða ölv-
unaraksturinn, en gat ekki sinnt
því sökum manneklu.
Þá voru tveir teknir grunaðir
um ölvun við akstur á höfuðborg-
arsvæðinu snemma í gærmorgun.
Bifreið var stöðvuð á Eiríksgötu
skömmu eftir klukkan fimm að-
faranótt sunnudags, en ökumaður
hennar var grunaður um ölvun við
akstur. Um klukkan hálfátta var
bifreið stöðvuð á Bústaðavegi.
Ökumaður hennar var einnig
grunaður um ölvun við akstur.
Fimm teknir fyrir að
keyra undir áhrifum
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Í dag má búast við því að það létti til
á Norður- og Norðvesturlandi eftir
mikla ofankomu um helgina. Snjó-
þungt verður þó áfram og á þriðju-
dag má búast við norðanátt og ofan-
komu sem mun vara fram á föstudag
að sögn veðurfræðings á Veðurstofu
Íslands.
Almannavarnir settu á óvissu-
ástand vegna snjóflóðahættu á mið-
Norðurlandi í gær. Þá var hættustig
aukið vegna snjóflóða í Skagafirði.
Búið er að aflétta rýmingu í iðn-
aðarhverfi á Ísafirði vegna snjó-
flóðahættu sem verið hefur undan-
farna daga, en almannavarnir
afléttu hættustigi um miðjan dag í
gær í samráði við Veðurstofu Ís-
lands. „Á meðan viðbúnaðarstigið er
á þá fylgjumst við með snjókomunni
á hverjum klukkutíma. Búast má við
því að það dragi úr úrkomu. Við það
minnkar snjóflóðahætta,“ segir Auð-
ur Kjartansdóttir hjá Snjóflóðavörn-
um Veðurstofunnar.
Vegir lokaðir
Erfið akstursskilyrði voru víða
norðan- og vestanlands, en ekki
höfðu borist fregnir af alvarlegum
óhöppum í gærkvöldi. Siglufjarðar-
vegur og vegurinn í Ólafsfjarðar-
múla voru lokaðir norðanlands. Á
Vestfjörðum var vegurinn um Súða-
víkurhlíð opnaður um miðjan dag en
honum hafði verið lokað um morgun-
inn. „Það lítur út fyrir norðanátt
með ofankomu á norðanverðu land-
inu frá þriðjudegi. Á mánudag gæti
Veðurstofu Íslands. Á Suður-, Vest-
ur- og Austurlandi er ekki útlit fyrir
mikla snjókomu í vikunni samkvæmt
spá Veðurstofu Íslands.
veðrið verið skaplegt en aðfaranótt
miðvikudagsins má búast við mikilli
ofankomu norðan- og vestantil, jafn-
vel á Norðausturlandi líka,“ segir
Einar Einarsson, veðurfræðingur á
Stund á milli stríða
Ljósmynd/Halldór Sveinbjörnsson
Mokað Gríðarlega snjóþungt var á Norður- og Norðvesturlandi um helgina. Búast má við því að lát verði á snjókomu í
dag og mestan hluta dags á morgun en svo byrjar aftur að snjóa. Þessi mokaði frá bílnum sínum á Ísafirði í gær.
Lát á ofankomu norðan- og norðvestanlands í dag en áfram snjókoma á morg-
un Hættustigi vegna snjóflóða aflétt á Ísafirði Enn hættustig í Skagafirði
Þrjú hús sem standa við Kambastíg
á Sauðárkróki voru rýmd í gær
vegna snjóflóðahættu. Snjór hafði
fallið úr mikilli snjóhengju í Nöf-
unum fyrir ofan bæinn. Féll snjórinn
á eitt hús. Í húsunum sem rýmd voru
búa tvenn eldri hjón og ein ung hjón
með börn. „Ég vona að þetta ástand
vari ekki lengi,“ segir Margrét
Kristjánsdóttir sem býr ásamt eig-
inmanni sínum, Eymundi Jóhanns-
syni, á Kambastíg 8. Húsið er eitt
þriggja sem voru rýmd í gær vegna
snjóflóðahættu. „Það var gríðarlega
mikill skafl þarna, rétt við húsið okk-
ar. Og í dag brotnaði úr honum og
það lenti á húsinu.“
Snjóflóð féll síðast á þessum stað
úr Nöfunum í mars árið 1973. Flóðið
fór yfir fjárhús í Kristjánsklauf og
felldi 18 kindur. Þrír ungir piltar
voru að leik uppi í klaufinni og talið
var að þeir hefðu hrundið flóðinu af
stað, en þeir flutu á því niður og
sluppu ómeiddir, að því er fram
kemur í fréttum af atburðinum.
vidar@mbl.is, sunna@mbl.is
Hús rýmd vegna hættu á
snjóflóðum á Sauðárkróki
Ljósmynd/Sveinn Brynjar Pálmason
Sauðárkrókur Rýma þurfti þrjú hús vegna snjóflóðahættu á Sauðárkróki.