Morgunblaðið - 19.11.2012, Page 6

Morgunblaðið - 19.11.2012, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 2012 www.icewise.is Málþing á Rúbín í Öskjuhlíð við hliðina á Keiluhöllinni mánudaginn 19. nóvember kl. 17.15 Ísland & Evrópa Kate Hoey, þingkona Verkamannaflokksins í Vauxhall í London: Hættur Evrópuaðildar – The Dangers of Joining the EU Hallur Hallsson, formaður Þjóðráðs: Ísland á ný á evrópsku áhrifasvæði Jón Kristinn Snæhólm, varaformaður Þjóðráðs: Ísland og sjávarútvegsstefna ESB Fundarstjóri: Skafti Harðarson. Kate Hoey Hallur Hallsson Jón Kristinn Snæhólm Skafti Harðarson Apótekinu á Fáskrúðsfirði hefur verið lokað. Nú þurfa heimamenn að sækja lyfin sín á Reyðarfjörð eða Egilsstaði. Ástæður þess að Lyfja lokaði útibúi sínu á Fáskrúðsfirði eru breyttar rekstrarforsendur. „Opnun Fáskrúðsfjarðarganga hef- ur stytt vegalengdina í aðra þjón- ustu og því hefur dregist saman í rekstri Lyfju á Fáskrúðsfirði. Læknisþjónusta á Reyðarfirði hef- ur einnig verið skert en áður var opið í fimm daga vikunnar en nú er aðeins opið í þrjá. Umferðin í apó- tekinu var mjög lítil þá daga sem læknisþjónusta var ekki fyrir hendi,“ segir Adda Birna Hjálm- arsdóttir, lyfsali Lyfju á Egils- stöðum, en apótekið á Fáskrúðs- firði heyrði áður undir Lyfju á Egilsstöðum. Aðspurð hvaða aðferðafræði Lyfja vinni eftir við rekstur á apó- tekum t.d. á Austfjörðum segir Adda að staðan sé metin hverju sinni. „Við erum að halda úti útibú- um á ótrúlega litlum stöðum eins í Borgarfirði eystri þaðan sem er mjög langt í næsta apótek. Lyfja hefur reynt að halda úti útibúum á landsbyggðinni en með styttri vegalengdum er ekki hægt að halda úti rekstri á öllum stöðum,“ segir Adda. Þess má geta að Lyfja býður upp á póstsendingu á lyfjum. Íbúar á Fáskrúðsfirði þurfa nú að fara á Reyðarfjörð, um 19 km hvora leið til að komast í næsta apótek. „Fólk er sáróánægt með þessi tíð- indi. Hér er alltaf verið að loka ein- hverju. Það er búið að loka bank- anum og skerða læknisþjónustu, menn spyrja sig hvað verður það næst?“ segir Albert Kemp, íbúi á Fá- skrúðsfirði, og segir fólk uggandi um þróun mála. „Hér minnkar alltaf þjónustan. En að sumu leyti er þetta fólkinu sjálfu að kenna því margir héðan sækja t.d. í verslun á Reyðarfjörð eða á Egilsstaði. Samkaup er ennþá með verslun hér en margir eru farnir að óttast um að hún gæti far- ið líka,“ segir Albert og bætir því við að mönnum finnist skrýtið að ekki geti þrifist þjónusta í svo stórum kjarna en á Fáskrúðsfirði búa um 700 manns. heimirs@mbl.is Apótekinu á Fáskrúðsfirði var lokað á föstudaginn  „Fólk er sáróánægt með þessi tíðindi,“ segir íbúi Morgunblaðið/Albert Kemp Lokun Guðfinna Stefánsdóttir, starfsmaður Lyfju á Fáskrúðsfirði, í lyfja- búðinni í vikunni. Fyrir skömmu var einnig útibúi banka lokað í plássinu. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, flutti ávarp við minningarathöfn um fórnarlömb um- ferðarslysa sem fór fram við bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi í gær. Þar voru líka heiðraðar þær starfsstéttir sem koma að björgun og aðhlynningu vegna umferðarslysa. Frá árinu 1993 hafa Sameinuðu þjóðirnar hvatt aðildarríki til að tileinka þriðja sunnudag nóvembermán- aðar minningu fórnarlamba umferðarslysa. Morgunblaðið/Árni Sæberg Minningarathöfn um fórnarlömb umferðarslysa Heimir Snær Guðmundsson heimirs@mbl.is Sigurður Helgi Guðmundsson, fyrr- verandi framkvæmdastjóri hjúkrun- arheimilisins Eirar, hefur endur- greitt heimilinu 300 þúsund kr., annars vegar vegna gjafabréfs að verðmæti 200 þúsund kr. og hins vegar 100 þúsund kr. vegna brúð- argjafar til Vilhjálms Þ. Vilhjálms- sonar, fyrrverandi stjórnarfor- manns Eirar. Í bréfi sínu til stjórnar og framkvæmdastjóra hjúkrunar- heimilisins Eirar segir Sigurður að gjafabréfið hafi verið þakklætisvott- ur til Jóhannesar Rúnars Jóhann- essonar hæstaréttarlögmanns vegna „vinnu við formlegt erindi Eirar til Reykjavíkurborgar, í tilefni af samningamálum varðandi byggingu öryggisíbúða og þjónustu- og menn- ingarmiðstöðvar í Spönginni. Jó- hannes sat í framhaldinu með mér tvo fundi um málið, þar sem erindi Eirar var rætt við borgarstjóra og fleiri embættismenn,“ segir í bréf- inu. Sigurður segist hafa ákveðið að umbuna Jóhannesi með gjafabréf- inu. „Sú ákvörðun var og er á mína ábyrgð,“ segir í bréfinu. Jóhannes er tengdasonur Sigurðar. Í bréfinu segir Sigurður að hinn hluti greiðslunnar, 100 þús. kr., varði gjöf sem Vilhjálmur Þ., þáver- andi stjórnarformaður Eirar, hafi farið fram á að fá frá Eir í tilefni af brúðkaupi sínu. Sigurður segist taka ábyrgð á þeim gerningi einnig og endurgreiði því gjöfina. Sigurður gagnrýnir Ríkisendurskoðun sem hefur fjallað um umrætt gjafabréf fyrir að kalla ekki eftir hans skýr- ingum eða sjónarmiðum. Í lok bréfs- ins hvetur Sigurður stjórn Eirar til að óska þegar eftir rannsókn á starf- semi hjúkrunarheimilisins. Segir ásakanirnar fráleitar „Í ljósi fjölmiðlaumræðu um brúð- argjöf til okkar hjóna frá Eir í júní 2008 og með hvaða hætti fyrrver- andi forstjóri, Sigurður H. Guð- mundsson, hefur matreitt málið í fjölmiðlum höfum við ákveðið að skila þessari brúðargjöf og endur- greiða andvirði hennar til Eirar. Það eru fráleitar ásakanir fyrrverandi forstjóra að ég hafi skipað honum að gera þetta. Þeir sem til þekkja vita best að fyrrverandi forstjóri skipaði en lét aldrei skipa sér,“ segir í yf- irlýsingu Vilhjálms og eiginkonu hans frá því í gær vegna staðhæf- inga Sigurðar um aðdraganda brúð- kaupsgjafarinnar umdeildu. Í sam- tali við mbl.is í gær sagðist Vilhjálmur ekki hafa vitneskju um aðrar stórgjafir sem hjúkrunar- heimilið Eir gaf á þessum árum. Vilhjálmur vill eins og Sigurður að gerð verði úttekt á starfsemi hjúkr- unarheimilisins og segir aldrei hafa staðið á sér né stjórninni að óska eft- ir slíkri úttekt. Í samtali við mbl.is í gær sagði Vilhjálmur að fljótlega eftir að hann tók við sem framkvæmdastjóri Eir- ar hafi hann áttað sig á því að hag- ræðingar væri þörf. Á síðari hluta ársins í fyrra hafi tekist að skera niður í rekstri um sem nemur 50 milljónum á ársgrundvelli, bæði fyr- ir rekstrarsjóð og húsrekstrarsjóð, þannig hafi rekstur hjúkrunarheim- ilisins á síðasta árið skilað 2,7 millj- óna kr. afgangi. Endurgreiða báðir gjöfina  Sigurður endurgreiðir bæði brúðargjöfina og gjafabréfið  Segir Vilhjálm hafa farið fram á brúð- argjöf  „Sú ákvörðun var og er á mína ábyrgð“  Vilhjálmur neitar og segir ásakanirnar fráleitar Sigurður Helgi Guðmundsson Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson Börn yngri en 12 ára fá ekki að fara inn á fæð- ingardeild, vökudeild, Hreiðrið og meðgöngu- og sængurkvenna- deild þessa dag- ana. Ástæðan er smithætta. Ráð- stöfunin tók gildi í síðustu viku og segir yfir- ljósmóðir á fæðingardeild erfitt að segja hvað hún gildi lengi, vana- lega séu slíkar takmarkanir í gildi í nokkrar vikur. Takmarkanirnar eiga ekki við um einstaklingar eldri en 12 ára. „Þetta er þessi ár- legi RS-vírus,“ segir Anna Sigríð- ur Vernharðsdóttir, yfirljósmóðir á fæðingardeild Landspítalans. Aðspurð segir hún vissulega að börn sé leið yfir því að fá ekki að hitta nýfædd systkini. En á sama tíma ríki skilningur hjá foreldrum vegna þessa. 12 ára og yngri fá ekki að heimsækja nýfædd systkini Spítalar Huga þarf vel að nýburum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.