Morgunblaðið - 19.11.2012, Side 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 2012
H
a
u
ku
r
1
0
.1
2
Guðni Halldórsson
lögfræðingur,
gudni@kontakt.is
Brynhildur Bergþórsdóttir
rekstrarhagfræðingur,
lögg. verðbr.- og fasteignasali,
brynhildur@kontakt.is
Gunnar Svavarsson
viðskiptafræðingur,
gunnar@kontakt.is
Jens Ingólfsson
rekstrarhagfræðingur,
jens@kontakt.is
Sigurður A.
Þóroddsson hrl.
sigurdur@kontakt.is
Forgangslisti er nýjung fyrir kaupendur og fjárfesta.
Skráning á www.kontakt.is
Skráðu þig á forgangslista og við sendum þér reglulega upplýsingar í•
tölvupósti um tækifæri sem við getum ekki sett í auglýsingar.
Upplýsingar og skráning á www.kontakt.is.
Fyrirtæki í innflutningi á sérhæfðum efna- og tæknivörum til notkunar í•
fyrirtækjum. Fyrirtækið nýtur álits á markaði og hefur trygga
viðskiptavini. Ársvelta 100 mkr.
Heildverslun með heilsutengdar vörur. Þekkt merki og sterk staða á•
markaði. Ársvelta 150 mkr. EBITDA 25 mkr.
Gott fjárfestingatækfæri. Lykilstarfsmenn eru að kaupa spennandi•
fyrirtæki sem hefur mikla vaxtamöguleika. Fjárfestir óskast til að leggja
fram 20 mkr. sem er um 25% hlutafjár. Í boði er örugg og góð
lágmarksávöxtun á láni eða hlut með sölurétti eftir 3 ár.
Þekkt tískufataverslun í Kringlunni. Góð umboð.•
Heildverslun með tæknivörur fyrir matvælaiðnaðinn. Ársvelta 80 mkr.•
Innflutnings- og framleiðslufyrirtæki tengt byggingariðnaði. Stöðug•
ársvelta um 150 mkr. og rúmlega 20 mkr. EBITDA.
Þekktur skyndibitastaður. Ársvelta 70 mkr.•
Innflutningsfyrirtæki með tæknivörur á vaxandi markaði. Ársvelta 60•
mkr. og yfir 100% álagning.
Lítil en rótgróin bókaútgáfa sem sérhæfir sig á ákveðnu sviði. Stöðug•
velta allt árið.
Samanlagður auður 100 ríkustu
manna heims dróst saman um 26,1
milljarð dala í liðinni viku eða sem
svarar um 3.300 milljörðum króna.
Það er Bloomberg-fréttastofan sem
greinir frá þessu og segir orsökina
vera lækkun á alþjóðlegum mörk-
uðum vegna slæmra horfa í efna-
hagsmálum Bandaríkjanna og Evr-
ópu.
Bill Gates var 1,8 milljörðum dala,
228 milljörðum króna, fátækari í lok
vikunnar en hlutir í Microsoft lækk-
uðu um 8% frá opnun á mánudag.
Ríkasti maður heims, Mexíkóinn Car-
los Slim, glataði 1,2 milljörðum dala í
vikunni.
Standard & Poor‘s 500 vísitalan
hefur ekki náð sér almennilega á
strik eftir dýfu í kjölfar þess að Bar-
ack Obama var endurkjörinn forseti.
Nemur lækkun S&P 500 4,8 pró-
sentustigum í vikunni. Markaðir hafa
verulegar áhyggjur af fjárlögum
næsta árs sem meðal annars eiga að
fela í sér skattahækkanir að upphæð
samtals 607 milljarðar dala.
ai@mbl.is
AFP
Sprækur Carlos Slim spókar sig um í Kólumbíu á dögunum. Hann lætur það ekki á sig fá þó markaðssveiflur
hafi gert hann rösklega milljarði dollara fátækari á einni viku. Markaðir víða um heim einkennast af svartsýni.
100 ríkustu
tapa 26
milljörðum dala
Markaðir leita niður á við vegna óróleika
Ein af stóru fréttum síðustu viku var
endalok matvælaframleiðandans
Hostess Foods. Fyrirtækið hefur um
áratugaskeið framleitt ýmis undir-
stöðumatvæli bandarískrar matar-
menningar og leitun að því heimili
sem ekki á einhverjar Hostess-vörur
inni í skáp. Reksturinn hafði gengið
nokkuð brösuglega síðustu árin og
varð að endingu að hætta honum
þegar ekki tókst að ná lendingu í
kjaradeilu við verkalýðsfélag bak-
ara.
Eru unnendur Hostess-vara farn-
ir að hafa áhyggjur af að geta ekki
lengur keypt úti í búð góðgæti eins
og Twinkies-kökubitana.
Tæma hillurnar
Að sögn CNN hafa neytendur byrjað
að tæma Hostess-vörur úr hillum
verslana, til að eiga a.m.k. einhverjar
birgðir til að gæða sér á. Twinkies-
pakkar eru óðara að hverfa en einnig
eru vinsælar vörur eins og Wonder
Bread, Hostess Cup Cakes og Ding
Dongs gripnar í miklu magni.
Ekki nóg með það heldur eru
braskarar farnir að sjá sér leik á
borði og reyna að áframselja góð-
gætið á uppsprengdu verði á netinu.
Á söluvefjum eins og Craigslist og
eBay eru kökupakkarnir núna boðn-
ir til sölu á hundruð og jafnvel þús-
undir dollara.
Hvort kökubraskið gengur upp er
svo annað mál, því þó að Hostess hafi
lagt upp laupana þarf það ekki endi-
lega að þýða endalok Twinkie-
kökunnar. Í viðtali við CNN segir
framkvæmdastjóri Hostess að
standi til að koma sem flestu af fram-
leiðslutækjum og vörumerkjum
þrotabúsins í verð og vonandi að aðr-
ir framleiðendur taki vinsælustu vör-
urnar upp á sína arma. ai@mbl.is
Kökubraskarar maka krókinn
Heyrir Twin-
kies sögunni til?
AFP
Ódrepandi Ýmsar vörur Hostess, ein og Twinkies-kökurnar, eru orðnar
hluti af dægurmenningunni vestanhafs. Íslendingar þekkja örugglega nafn-
ið úr gamanþáttum þó að þeir hafi aldrei smakkað kremfylltar kökurnar.
Framundan er ein af stærstu versl-
unarhelgum ársins vestanhafs.
„Svarti föstudagur“, föstudagurinn á
eftir þakkagjörðhátíðinni, markar
upphaf jólasölunnar og von á að við-
skiptavinir fjölmenni í verslanir til
að njóta góðs af sérstöku tilboðs-
verði.
Í síðustu viku bárust fréttir af því
að Wal-Mart ætli að byrja föstudags-
brjálæðið enn fyrr, og hefjast tilboð-
in kl. 8 á fimtudeginum. Nú hóta
starfmenn verslanakeðjunnar mót-
mælum og verkföllum til að reyna að
knýja fram kjarabætur.
Hyggjast mótmæla á landsvísu
Aðgerðir eru farnar af stað í
Seattle þar sem a.m.k. 30 starfs-
menn í sex Wal-Mart-verslunum
hafa lagt niður vinnu undir merkjum
starfsmannasamtakanna OUR
Walmart. Stendur til að aðgerðirnar
breiðist út til annarra verslana og
má eiga von á yfir þúsund aðskildum
mótmæla- og verkfallsaðgerðum í
aðdraganda föstudagssprengjunnar.
Að sögn Guardian verða aðgerðirnar
af ólíkum toga: á sumum stöðum
verður miðum dreift til viðskipta-
vina, á öðrum stendur til að efna til
svokallaðra „flash-mob“ uppákoma
og á enn öðrum stöðum ætla starfs-
menn að ganga á dyr.
Skipuleggjendur aðgerðanna gera
ráð fyrir að mótmælin standi yfir
fram að jólum og fram á næsta ár. Í
síðasta mánuði skipulagði hópurinn
stærstu mótmælin í sögu Wal-Mart
þegar starfsmenn lögðu niður vinnu í
tólf verslunum vítt og breitt um
Bandaríkin. Einnig hefur Wal-Mart
þurft að glíma við hrinu verkfalla í
vöruhúsum sem iðulega eru rekin af
sjálfstæðum fyrirtækjum. ai@mbl.is
Starfsmenn Wal-Mart
sæta lagi og mótmæla
Leggja niður
vinnu og trufla
sölu í upphafi jóla-
vertíðar
AFP
Harka Þessi systkini létu fara vel um sig í innkaupakörfu. Lengi hefur verið
deilt um kaup og kjör starfsmanna Wal-Mart. Fyrirhuguð mótmæli hljóta að
koma sér sérstaklega illa enda er spáð mjög líflegri jólaverslun.
Aukablað
alla þriðjudaga