Morgunblaðið - 19.11.2012, Page 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 2012
Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími: 534 9600 · heyrn.is
Erum með allar gerðir af heyrnartækjum - einnig „ósýnileg“
ATH! Myndin sýnir tækin í raunstærð
Okkar markmið er að allir landsmenn heyri vel
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Hernaðaraðgerðir Ísraels á Gaza-
svæðinu héldu áfram um helgina og
að sögn talsmanns ísraleska hersins,
IDF, voru gerðar loftárásir á 50 skot-
mörk í gær. Skotmörk Ísraela voru
m.a. vopnageymslur hryðjuverka-
samtaka á Gazasvæðinu, æfingabúðir
og neðanjarðargöng sem hryðju-
verkamenn nota til að smygla vopn-
um inn á svæðið. Hernaðaraðgerð
Ísraels sem nefnist Operation Pillar
of Defense hófst fyrir rúmri viku og
hefur flug- og landher Ísraels gert
árásir á meira en 1.000 skotmörk sem
talin eru tengjast starfsemi hryðju-
verkasamtaka í Palestínu.
Aðgerðir Ísraels koma í kjölfar
aukinna eldflaugaárása hryðjuverka-
samtaka á Gazasvæðinu en bara í síð-
ustu viku var 850 eldflaugum skotið
frá Gaza yfir á byggðir í Ísrael sam-
kvæmt upplýsingum frá varnarmála-
ráðuneyti Ísraels.
Samkvæmt frétt BBC hefur reynt
verulega á eldflaugavarnarkerfi Ís-
raels sem nefnist Iron Dome en það
er talið geta skotið niður um 90%
allra eldflauga sem skotið er frá
Gazasvæðinu yfir á Ísrael. Eld-
flaugavarnarkerfið og hernaðarað-
gerðir eru liður í að tryggja öryggi al-
mennra borgara í Ísrael að sögn
talsmans IDF.
Palestínumenn hafa gagnrýnt að-
gerðir Ísraela harðlega og segja þær
ekki í neinu samhengi við eldflauga-
árásir hryðjuverkasamtaka á Ísrael.
„Sprengjan sem jafnaði við jörðu höf-
uðstöðvar Ismails Haniyeh, forsætis-
ráðherra Gazasvæðisins, var það öfl-
ug að gluggar brotnuðu og þakplötur
hrundu af húsum allt í kring,“ segir
Mohamed Abdullah en hann býr í ná-
grenni við fyrrverandi höfuðstöðvar
Ismails Haniyeh. „Við erum sökuð
um að skjóta eldflaugum á Ísrael en
það er í engu samhengi við loftárásir
þeirra og eyðilegginguna sem þær
hafa í för með sér.“
Frá því hernaðaraðgerðir Ísraels
hófust hafa 50 látið lífið og 400 særst í
árásunum.
Barack Obama, forseti Bandaríkj-
anna, segir loftárásir Ísraels réttlæt-
anlegar. „Ekkert ríki í heiminum
myndi líða það að skotið væri eld-
flaugum inn fyrir landamæri þess.
Ég styð að fullu rétt Ísraels í viðleitni
sinni að verja sig og borgara sína,“
sagði forsetinn, spurður um málið á
blaðamannafundi í Bangkok í Taí-
landi í gær. Obama segir Hamas-
samtökin bera ábyrgð á ástandinu.
„Eldflaugaárásir Hamas-samtak-
anna eru upptök þessara átaka og
langtímafriður mun ekki nást á svæð-
inu nema Hamas-samtökin hætti öll-
um eldflaugaárásum á Ísrael.
Aðgerðir á Gazasvæðinu halda áfram
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, segir árásir Ísraela réttlætanlegar Hátt í 50 Palestínu-
menn hafa látið lífið í aðgerðum Ísraela 850 eldflaugum skotið frá Gaza á Ísrael
AFP
Sprengingar Ísraelar héldu áfram sókn sinni á Gazasvæðinu um helgina og
gerðu árásir á 50 skotmörk sem talin eru tengjast hryðjuverkastarfsemi.
Hernaður á Gaza
» Hryðjuverkasamtök í Pale-
stínu hafa skotið 850 eldflaug-
um á Ísrael frá því á þriðjudag.
» Ísraelar hafa sprengt upp
meira en 1.000 skotmörk sem
talin eru tengjast hryðjuverka-
starfsemi Hamas.
» Eldflaugavarnarkerfi Ísraels
sem tekið var í notkun árið 2011
hefur skotið niður um 90% allra
flauga frá Gaza.
» Friður á Gazasvæðinu er háð-
ur vilja Hamas til að hætta eld-
flaugaárásum á Ísrael að sögn
Obama.
Ríkisstjórn Frakklands hefur lagt fram drög um
rétt samkynhneigðra til að ganga í hjónaband.
Töluverð mótmæli hafa brotist út í borgum eins
og Lyon. Þá hefur kaþólska kirkjan lagst harð-
lega gegn hjónabandi samkynhneigðra í landinu.
Lögin eru þó í samræmi við þá þróun sem hefur
átt sér stað víða á Vesturlöndum, s.s. á Íslandi og
núna nýlega í fjórum ríkjum Bandaríkjanna þar
sem samkynhneigðir geta gift sig.
AFP
Frakkar mótmæla hjónabandi samkynhneigðra
Réttur einstaklinga til að velja eigið sambúðarform
Meirihluti
breskra kjósenda
eða 56% vill
segja skilið við
Evrópusam-
bandið fengju
þeir að kjósa um
það í dag í þjóð-
aratkvæða-
greiðslu. Frá
þessu sagði
breska sunnu-
dagsblaðið Observer. Meirihluti er
fyrir úrsögn hjá bæði kjósendum
Verkamannaflokksins og Íhalds-
flokksins.
BRETLAND
Bretar vilja ganga úr
Evrópusambandinu
Meirihluti Breta
vill úr ESB.
Í fyrstu opinberu
heimsókn sinni
eftir endurkjör
mun Barack
Obama heim-
sækja Búrma,
fyrstur forseta
Bandaríkjanna.
Þar mun hann
m.a. standa við
hlið baráttukon-
unnar og nóbelsverðlaunahafans
Aung San Suu Kyi við húsið þar
sem hún dvaldi í um tvo áratugi í
stofufangelsi.
BANDARÍKIN
Söguleg heimsókn
til Búrma
Barack Obama