Morgunblaðið - 19.11.2012, Blaðsíða 30
30 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 2012
Við borðum kannski eitthvað gott eftir kvöldæfinguna, fjöl-skyldan,“ segir Ragnheiður Runólfsdóttir, sundþjálfari áAkureyri, sem verður 46 ára í dag. Hún segist ekki gera mik-
ið með eigin afmæli, hugsi meira um afmæli barnanna. „Maður er
orðinn svo gamall að þetta er ekki svo merkilegt lengur,“ segir af-
mælisbarnið.
Ragnheiður er í hópi helsta afreksfólks Íslendinga í íþróttum.
Hún hætti sundkeppni eftir þátttöku í sínum öðrum Ólympíuleikum,
í Barselóna árið 1992, og sneri sér að þjálfun. Lengst af var hún
þjálfari í heimabænum, Akranesi, en flutti til Akureyrar fyrir ári og
hóf störf hjá sundfélaginu Óðni.
Þar vinnur hún uppbyggingarstarf. Iðkendum hefur fjölgað mik-
ið og eru orðnir um 300 svo hún ætti að hafa góðan efnivið í hönd-
unum. Hún segir að aðstaðan sé ófullnægjandi. Erfitt sé að æfa í úti-
laugum yfir vetrartímann og sárlega vanti góða innilaug. Þá segir
hún að ferðalög með sundfólk á mót séu erfið og kostnaðarsöm og
það dragi úr þátttöku. Nefnir hún sem dæmi að óveður hafi sett all-
ar samgöngur úr skorðum á fimmtudag, þegar halda átti með hóp á
Íslandsmeistaramótið. Flugi var aflýst og vegurinn var lokaður þeg-
ar haldið var af stað. Félagið fékk vanan bílstjóra sem tókst að koma
hópnum suður. Komið var í bæinn klukkan tvö um nóttina og voru
margir lúnir þegar byrjað var að keppa klukkan átta að morgni.
Fjölskylda Ragnheiðar býr á Akranesi og eru það mestu við-
brigðin að njóta minni samvista við hana. „Á móti er gott að hafa
fjöllin og komast á skíði,“ segir Ragnheiður og viðurkennir að henni
hafi farið mjög fram í skíðaíþróttinni. helgi@mbl.is
Ragnheiður Runólfsdóttir 46 ára
Ljósmynd/Þröstur Ernir
Þjálfari Ragnheiður Runólfsdóttir reiknar ekki með miklu afmælis-
haldi enda þarf alltaf að mæta á æfingar með sundfólkinu.
Fer mikið fram í
skíðaíþróttinni
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Eydís Una Grétars-
dóttir, Lilja María
Magnúsdóttir og Selma
Dröfn Haraldsdóttir
gengu í hús á Patreks-
firði og sungu jólalög til
styrktar Rauða kross-
inum. Þær söfnuðu
3.400 krónum.
Söfnun
Hólmavík Íris Lilja fæddist 30. apríl
kl. 22.56. Hún vó 3.835 g og var 49 cm
löng. Foreldrar hennar eru Alexandra
Jenný Írisardóttir og Jóhannes Helgi
Alfreðsson.
Nýir borgarar
Selfoss Ragnhildur Klara fæddist 24.
febrúar. Hún vó 3.885 g og var 53 cm
löng. Foreldrar hennar eru Hermína Ír-
is Helgadóttir og Jón Örn Albertsson.
Á
gúst fæddist á Seltjarn-
arnesi og ólst þar upp
og í Vesturbænum.
Hann lauk stúdents-
prófi frá MR 1983, las
þýsku og bókmenntir við háskóla í
Berlín og München 1984-86 og heim-
speki við HÍ 1989-91.
Ágúst var dagskrárgerðarmaður
og dagskrárstjóri við símatorgsþjón-
ustu Miðlunar frá 1990-95, var texta-
gerðarmaður á kynningardeild Ís-
lenska útvarpsfélagsins 1995-96,
framkvæmdastjóri Veitunnar-
nýmiðlunar, fyrirtækis í símatorgs-
þjónustu 1996-2000, blaðamaður á
Vísi.is 2000-2002, starfaði síðan sjálf-
stætt við ritstörf, þýðingar og bækl-
ingagerð fyrir Nýherja, blaða-
mennskuverkefni fyrir tímaritið
Lyfjatíðindi, var íþróttafréttamaður
á Vísi.is, sem verktaki í hlutastarfi,
starfaði í nokkur ár á Íslensku aug-
Ágúst Borgþór Sverrisson rithöfundur – 50 ára
Fjölskyldan Ágúst Borgþór og Erla með börnunum sínum, Freyju og Kjartani.
Hleypur, les og skrifar
Heimalærdómur Ágúst er hér ungur að árum með móður sinni og Sæ-
mundi, bróður sínum sem lést ungur.
OPNUNARTÍMI EFNALAUG
MÁN - FÖS: 8-18 • LAU: 11-13
OPNUNARTÍMI FATALEIGA
MÁN - FÖS: 13-17 • LAU: LOKAÐ
EFNALAUG OG FATALEIGA GARÐABÆJAR | GARÐATORGI 3 | GARÐABÆ | SÍMI 565 6680 | FATALEIGA.IS
Hröð og vönduð þjónusta. Fjölskyldufyrirtæki til 27 ára.
Persónuleg þjónusta og hagstætt verð.
Efnalaug Garðabæjar ætlar að láta
30% af andvirði
hreinsaðra gluggatjalda
renna til mæðrastyrksnefndar
í nóvember
Komið tímanlega