Morgunblaðið - 21.11.2012, Blaðsíða 2
Í kjölfar skipulagsbreytinga hefur
19 starfsmönnum í verslunum og
höfuðstöðvum N1 verið sagt upp.
Vörumerkið Bílanaust verður
tekið upp aftur samfara skipulags-
breytingunum. Stjórn N1 hefur
ákveðið að færa nokkrar sérversl-
anir félagsins með varahluti, auka-
hluti í bíla og rekstrarvöru í dótt-
urfélag sem rekið verður sem
sjálfstæð eining frá ára-
mótum.
Skipulag N1 verður
jafnframt einfaldað og
verða meginsvið fé-
lagsins tvö, ein-
staklingssvið og
fyrirtækjasvið.
Stefnt er að skrán-
ingu fyrirtækisins í
Kauphöll Íslands á næsta ári.
„Markmið með þessum breyt-
ingum er fyrst og fremst að efla
þjónustu við viðskiptavini N1 á öll-
um sviðum,“ segir Eggert Bene-
dikt Guðmundsson, forstjóri N1, í
fréttatilkynningu. Hann segir jafn-
framt að afkoma þess hluta sem nú
fer undir hatt hins nýja dóttur-
félags hafi ekki verið viðunandi.
Með breytingunum
og hagræðingu sé
ætlunin að styrkja
reksturinn til fram-
tíðar. Fram-
kvæmdastjóri Bíla-
nausts verður Árni
Stefánsson sem áður
var yfir vöru- og rekstr-
arsviði hjá N1.
19 sagt upp vegna skipulagsbreytinga hjá
N1 og vörumerkið Bílanaust tekið upp aftur
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2012
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Hljómsveitarstjórinn Sir Simon Rattle var geisl-
andi kátur í uppklappinu í gærkvöldi að loknum
afar vel lukkuðum tónleikum Berlínar-
fílharmóníunnar í Eldborgarsal Hörpu. Uppselt
var á tónleikana mikil ánægja meðal gesta.
Ríkarður Örn Pálsson, tónlistargagnrýnandi
Morgunblaðsins, sagði að tónleikum loknum:
„Þetta var alvörugaman.“ Bætti hann við að
Berlínarfílharmónían væri ein af þremur
fremstu hljómsveitum í heiminum. Hljómsveitin
er nú á sjö landa tónleikaferð um veröldina og er
henni hvarvetna tekið fagnandi.
„Alvörugaman“ í Eldborgarsalnum
Morgunblaðið/Golli
Berlínarfílharmónían sló í gegn á fjölsóttum tónleikum í Hörpu í gærkvöldi
Heimir Snær Guðmundsson
heimirs@mbl.is
Kristján L. Möller, formaður at-
vinnuveganefndar, setur fyrirvara
við umsögn meirihluta atvinnuvega-
nefndar um þingsályktunartillögu
um vernd og orkunýtingu land-
svæða (rammaáætlun). Þingsálykt-
unartillagan var afgreidd úr um-
hverfis- og samgöngunefnd á
mánudag með atkvæðum fulltrúa
stjórnarflokkanna. Meirihluti at-
vinnuveganefndar segir í áliti sínu
að ekkert sé því til fyrirstöðu að um-
hverfis- og samgöngunefnd afgreiði
tillöguna án breytinga.
Í fyrirvörum Kristjáns segir að
hann sé samþykkur almennum at-
riðum sem komi fram í umsögn
meirihluta nefndarinnar. Þó telur
hann að það hefði verið meira í sam-
ræmi við upphaflegan tilgang
rammaáætlunar ef tillagan hefði í
aðalatriðum verið í samræmi við
röðun verkefnisstjórnar og sérfræð-
ingahóps í orkunýtingarflokk, bið-
flokk eða verndarflokk. „Það á að
vera leiðarljós okkar að ná sátt.
Eins og ég segi í bókun minni þá tel
ég að það hefði stuðlað að breiðari
sátt um málið ef tillagan hefði í aðal-
atriðum verið í samræmi við röðun
verkefnisstjórnar. Slíkt tel ég ákaf-
lega mikilvægt í þessu þarfa, brýna
og góða máli. Sú sátt er þannig að
það fá ekki allir sitt og allir verða að
gefa eitthvað eftir,“ segir Kristján,
aðspurður hvort það hafi verið mis-
tök að hreyfa við röðun verkefnis-
stjórnar.
Í fyrirvörum Kristjáns kemur
fram að honum þyki eðlilegt að taka
tillit til nýrra upplýsinga um laxa-
gengd í Þjórsá og skipa Urriðafoss-
virkjun í biðflokk.
Ræðst ekki aðeins af flokkun
„Mér finnst að það hefði átt að
taka tillit til annarra athugasemda
sem komu fram, t.d. við Hólmsár-
virkjun við Atley og Hagavatns-
virkjun. Í ferlinu kom fram að rök-
stuðningur fyrir því að setja Hólms-
árvirkjun við Atley í biðflokk væri
að það vantaði gögn. Mannleg mis-
tök áttu sér stað og í ljós kom að það
vantaði engin gögn. Ég tel að ráð-
herra hefði þurft að skoða slíkar
nýjar upplýsingar eins og gert var
með Urriðafoss,“ segir Kristján.
Hann minnir á að þó kostum sé ráð-
stafað í nýtingarflokk þá sé það alls
ekki trygging fyrir að ráðist verði í
viðkomandi virkjun. Heimild til
virkjunar ráðist af mörgum þáttum,
t.d. umhverfismati, skipulagsmálum,
framkvæmda- og virkjanaleyfum
sem fjalla þurfi um af þar til bærum
aðilum.
Þá segist Kristján ekki gera sér
grein fyrir því hvort meirihluti sé
fyrir málinu á þingi, hann hafi ekki
vitað af þeim miklu fyrirvörum sem
nefndarmenn í umhverfis- og sam-
göngunefnd settu fram. „Ég ítreka
að ég stend í þeirri góðu trú að það
sé hægt að ná meiri sátt um ramma-
áætlun, það er minn vilji.“
Setti fyrirvara með umsögn
Kristján L. Möller setur fyrirvara við rammaáætlunina Telur að tillagan
hefði átt að vera meira í samræmi við röðun verkefnisstjórnar Vonast eftir sátt
„Ég ítreka að ég
stend í þeirri góðu
trú að það sé hægt
að ná meiri sátt um
rammaáætlun.“
Kristján L. Möller
Jórunn Frímannsdóttir, sem tók
fyrr í þessum mánuði sæti Vilhjálms
Þ. Vilhjálmssonar í stjórn hjúkr-
unarheimilisins Eirar, sagði af sér á
stjórnarfundi í gær. Bætist hún þá
við Hafstein Pálsson sem sagði sig
úr stjórn Eirar fyrir helgi.
Jórunn, sem áður átti sæti í stjórn
fulltrúaráðs Eirar, var boðuð á
stjórnarfund í gærmorgun. Þar til-
kynnti hún í upphafi fundar að hún
hefði ákveðið að segja sig úr stjórn-
inni. Í samtali við mbl.is sagðist Jór-
unn telja mikilvægt að umboð
stjórnarmanna yrði endurnýjað. Að
öll stjórnin ætti að segja af sér og
nýir menn fengnir að borðinu.
„Mér finnst nauðsynlegt að allar
hliðar þessa máls verði skoðaðar.
Hvernig má það vera að stjórnar-
menn hafi ekki verið upplýstir um
hvernig mál gengu fyrir sig?“ sagði
Jórunn m.a. við mbl.is.
Eftir eru í stjórn Eirar Magnús L.
Sveinsson, starfandi formaður, Stef-
án Benediktsson, Þórunn Svein-
björnsdóttir, Helga Eysteinsdóttir
og Fanney Proppé Eiríksdóttir.
Tvö hætt í
stjórninni
hjá Eir
Hafsteinn
Pálsson
Umboð stjórnar
verði endurnýjað
Jórunn
Frímannsdóttir
Fyrsta umræða um frumvarp til
stjórnskipunarlaga, sem byggð eru á
tillögum stjórnlagaráðs, stóð enn yf-
ir á Alþingi í gærkvöldi, þegar
Morgunblaðið fór í prentun. Þá voru
fjórtán þingmenn á mælendaskrá.
Um tíma var þingmönnum heitt í
hamsi og m.a. sakaði Birna Lárus-
dóttir, varaþingmaður Sjálfstæðis-
flokksins, þingmenn um „skrílslæti“.
Undir þetta tók Sigurður Ingi Jó-
hannsson, Framsóknarflokki:
„Ég hef orðið vitni að því ítrekað í
dag að hér er verið að hæðast að
þingmönnum sem koma hér upp og
ræða málefnalega um stjórnarskrá
Íslands. Jafnvel er gengið svo langt
að menn sitja í þingsal og senda inn
ógeðfelld skilaboð á Facebook um
hvað menn eru að segja hér í ræðu-
stól. Mér er nóg boðið.“
Heitar þing-
umræður
Hafísjaðarinn milli Grænlands og Ís-
lands liggur nú um um 67 sjómílur
norðvestur af Barða en tilkynnt hefur
verið um borgarísjaka skammt und-
an Vestfjörðum.
Að sögn Haraldar Eiríkssonar,
vaktaveðurfræðings hjá Veðurstofu
Íslands, hvarf ísinn að miklu leyti til í
lok sumars en hann segir nýmyndun
hafa orðið samfara kólnandi veðri.
„Það er svo sem erfitt að spá um ís-
inn nema að á þessum árstíma er út-
breiðslan að aukast eftir að hafa verið
í lágmarki. En við getum sagt að
fram á helgina er vindáttin frekar
hagstæð, það er norðaustanátt á milli
Grænlands og Íslands, sem heldur ís-
röndinni frá. Og þannig er spáin al-
veg fram á laugardag allavega,“ segir
Haraldur.
Veðurstofan teiknar vikulega upp
kort af ísjaðrinum og styðst við gervi-
tunglamyndir. Hún fær hins vegar
tilkynningar um borgarísjaka frá
skipum á sjó og bárust tvær slíkar til-
kynningar á mánudag.
Í annarri var tilkynnt um tvo borg-
arísjaka á svipuðum slóðum en annar
var í Djúpál og var honum lýst sem
„heilmiklum hlunk“. Voru jakarnir
báðir sagðir stórir og að þeir sæjust
vel og að brot úr þeim væru á floti í
kring. Hin tilkynningin sneri að fjór-
um borgarísjökum, skammt frá þeim
stað þar sem hinir voru sagðir á reki,
en það fylgdi að allir sæjust þeir vel á
ratsjá.
Tilkynningar til Veðurstofunnar
um borgarísjaka eru birtar á
www.vedur.is. holmfridur@mbl.is
Ísjakar undan Vestfjörðum
Morgunblaðið/Kristján
Borgarísjaki Hafísinn hefur látið
sjá sig á miðunum. Mynd úr safni.