Morgunblaðið - 21.11.2012, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2012
Evrópuvaktin segir frá því aðlækkun Moody’s á lánshæfi
Frakklands úr efsta matsflokki
vegna versnandi samkeppnis-
hæfni sé talin vera áfall fyrir
François
Hollande
Frakklands-
forseta og
efnahags-
stefnu hans sem reist sé á hækk-
un skatta í því skyni að auka
hagvöxt:
Matsfyrirtækið Stand-ard&Poor’s lækkaði sitt
mat á Frakklandi þegar í janúar
á þessu ári á meðan Nicolas Sar-
kozy var enn forseti. Moody’s
sagði að rekja mætti niðurstöðu
sína til „varanlegrar minnkunar á
samkeppnihæfni“ Frakklands og
„gamalgróins stirðleika á vinnu-,
vöru- og þjónustumörkuðum“.
Fyrr í mánuðinum spáði Al-þjóðagjaldeyrissjóðurinn að
Frakkar kynnu að dragast aftur
úr Ítölum og Spánverjum með til-
liti til aðstæðna á vinnumarkaði
og samkeppnishæfni. Útflutn-
ingur Frakka dregst saman í
samanburði við aðrar evruþjóðir,
einkum Þjóðverja.
Í nýjasta hefti The Economister Frakklandi líkt við „tíma-
sprengju í hjarta Evrópu“ vegna
þess hvernig á efnahagsmálum er
haldið og ekki hafi tökin batnað
eftir að sósíalistar komust til
valda fyrr á árinu.
Pierre Moscovici, fjármála-ráðherra Frakka, sagði að
lækkun Moody’s „drægi ekki
grundvöll fransks efnahags í efa
og [væri] hvatning til að vinna að
kerfisbreytingum“.
Nú eru þrjú evruríki eftir meðAAA.Verður þeim bráðum
boðið í mat?
Þá voru eftir þrjú
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 20.11., kl. 18.00
Reykjavík 1 alskýjað
Bolungarvík -1 alskýjað
Akureyri -2 skýjað
Kirkjubæjarkl. 0 skýjað
Vestmannaeyjar 3 alskýjað
Nuuk -3 léttskýjað
Þórshöfn 5 skýjað
Ósló 7 þoka
Kaupmannahöfn 6 þoka
Stokkhólmur 7 skýjað
Helsinki 7 skýjað
Lúxemborg 3 skýjað
Brussel 8 heiðskírt
Dublin 10 léttskýjað
Glasgow 11 léttskýjað
London 12 léttskýjað
París 10 skýjað
Amsterdam 10 heiðskírt
Hamborg 7 heiðskírt
Berlín 5 léttskýjað
Vín 6 þoka
Moskva 1 alskýjað
Algarve 17 léttskýjað
Madríd 12 léttskýjað
Barcelona 16 léttskýjað
Mallorca 17 léttskýjað
Róm 15 skúrir
Aþena 17 skýjað
Winnipeg 1 alskýjað
Montreal 2 alskýjað
New York 8 heiðskírt
Chicago 10 alskýjað
Orlando 18 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
21. nóvember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:18 16:11
ÍSAFJÖRÐUR 10:46 15:52
SIGLUFJÖRÐUR 10:30 15:34
DJÚPIVOGUR 9:53 15:35
Smiðshöfði 1, 110 Reykjavík, sími 587 9700, propack.is, propack@propack.is
Sérhæfum okkur í pökkun og frágangi
á búslóðum til flutnings milli landa,
landshluta eða innanbæjar
Við pökkum búslóðinni, önnumst farmbréf, tollafgreiðslu og sjáum um flutning á áfangastað. Flytjum fyrir
einstaklinga, fjölskyldur og fyrirtæki. Sjáum einnig um að pakka upp búslóðinni á nýju heimili og koma öllu fyrir
eins og óskað er. Ef heimilið er ekki tilbúið bjóðum við geymslu búslóða, í nýlegu og glæsilegu húsnæði, með
fullkomnu öryggis- og brunavarnakerfi.
Stofnað árið 1981
Samkvæmt nýrri viðhorfskönnun
Capacent Gallup telja um 80% þjóð-
arinnar að Landsvirkjun (LV) skapi
mikil verðmæti fyrir íslenskt sam-
félag. Rúm 10% telja fyrirtækið
skapa lítil verðmæti og tæp 10%
hvorki mikil né lítil verðmæti.
Könnunin var gerð í tengslum við
haustfund Landsvirkjunar, sem
fram fer í dag á Hótel Hilton
Reykjavík Nordica. Úrtakið í könn-
uninni var 600 manns og alls svöruðu
466 manns eftirfarandi spurningu:
„Hversu mikil eða lítil verðmæti
skapar Landsvirkjun að þínu mati
fyrir íslenskt samfélag?“ Svarhlut-
fallið var 77,6% og því tóku 22,4%
aðspurðra ekki afstöðu til spurning-
arinnar.
Í tilkynningu frá Landsvirkjun er
haft eftir Herði Arnarsyni forstjóra
að miklar væntingar séu gerðar til
fyrirtækisins. Það eitt og sér geti
skapað mikil verðmæti fyrir sam-
félagið. „Við viljum gera okkar besta
til að standa undir þeim vænt-
ingum,“ segir Hörður.
Á haustfundinum í dag verður
m.a. lagt mat á hvernig til hefur tek-
ist hjá Landsvirkjun, framtíðar-
horfur ræddar, tækifæri og sam-
félagslegt hlutverk fyrirtækisins.
Fundurinn fer fram milli kl. 14 og 16
og er opinn almenningi.
80% telja LV skapa mikil verðmæti
Haustfundur Landsvirkjunar í dag
Framtíðarhorfur verða m.a. ræddar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Landsvirkjun Hörður Arnarson for-
stjóri ávarpar haustfundinn í dag.
Samþykkt var í
borgarstjórn
Reykjavíkur að
gera breytingar
á svæðis-
skipulagi vegna
svonefndra
Holtsganga og
byggingarsvæðis
5 á Landspítala-
lóðinni. Annars vegar hefur verið
hætt við eldri áform um Holtsgöng,
sem áttu að tengja Sæbraut við
Hringbraut. Hins vegar verður
byggingarmagn aukið á svæði 5 í
tengslum við uppbyggingu nýs
Landspítala. Samrýmdust Holts-
göngin ekki þeim áformum.
Holtsgöng tekin út
af borgarskipulagi
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
dæmt konu á fimmtugsaldri í 30
daga skilorðsbundið fangelsi fyrir
ærumeiðandi aðdróttanir á netinu
gagnvart karlmanni. Fram kemur í
dómi héraðsdóms að á tímabilinu
14. til 29. mars sl. hafi konan ritað
undir ljósmynd af manninum sem
var á vefsíðu Mottumars, átaks
Krabbameinsfélagsins, sex færslur
undir hinum ýmsu dulnefnum.
Voru ummæli aðgengileg almenn-
ingi. „Drepstu viðbjóður“, „Ljót-
leikinn er jafn að utan sem innan
hjá þér“, og „Hættur að berja kon-
una og krakkana?“ eru á meðal
þeirra ummæla sem konan skrifaði.
Dæmd fyrir æru-
meiðandi ummæli