Morgunblaðið - 21.11.2012, Blaðsíða 11
Núpar í Aðaldal standa austan
Laxár um 1 km. norðan brúar-
innar við Núpafoss.
Sigríður Sigurðardóttir er
ekkja Sigurðar Karlssonar áður
bónda á Núpum, en býr nú með
syni sínum og tengdadóttur.
Á Núpum er stunduð sauð-
fjárrækt, en ábúendur stunda
einnig vinnu utan bús.
Standa aust-
an Laxár
NÚPAR
Perturé Fallegt Í
fullum blóma.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Húsfreyja Sigríður Sigurðardóttir á Núpum í Aðaldal leggur mikla rækt við perutréð sitt en ræktar einnig rósir.
afbrigði og þau eru upprunnin bæði í
Evrópu og Asíu. Þau eru bæði stór
og lítil og stærstu perutré geta orðið
10-15 m há. Perur hafa verið notaðar
til manneldis frá örófi alda og marg-
ar þjóðir nota þær mikið. Rómverjar
til forna borðuðu mikið af perum og
perur hafa verið ræktaðar í Kína svo
vitað sé í a.m.k. 3000 ár.
Perutré eru skyld eplatrjám og
notkunin er svipuð. Perur eru borð-
aðar hráar, bakaðar eða soðnar og
einnig þurrkaðar.
Sykurlögur í hlutföllum
Sigríður á Núpum sýður upp-
skeruna niður á haustin þegar per-
urnar eru mátulega þroskaðar. Þá
eru þær teknar niður, flysjaðar og
hreinsaðar og skornar í helminga.
Hún segist búa til sykurlög í
hlutföllunum ½ kg sykur á móti 1⁄3 l
vatni og fer magnið eftir því hvað
perurnar eru margar. Þá setur hún
smásítrónusafa í sykurlöginn til þess
að skerpa bragðið.
Að því búnu tekur hún
niðursuðukrukkur með læstu loki og
þvær þær og sótthreinsar. Perunum
er síðan raðað í krukkurnar og syk-
urleginum hellt yfir.
Þá er krukkunum lokað og þær
soðnar í potti í tíu mínútur við 110-
120°C. Við þetta lofttæmast þær og
geymast vel í langan tíma, enda er
þetta jólamatur margra því Sigríður
hefur ánægju af því að gefa vinum
og vandamönnum þennan fína eftir-
rétt; perurnar úr sínu eigin gróður-
húsi.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2012
Vert er að minna á Gallerí Korpúlfs-
staði nú á komandi aðventu þegar
margir fara á stúfana og skoða fal-
lega hluti sem sumir hverjir enda í
jólapakka en aðrir kannski bara uppi í
hillu. Galleríið var sett á stofn í maí
2011 og er rekið af listamönnum sem
hafa vinnustofur sínar í húsinu en
galleríið er nokkurs konar framleng-
ing af þeim. Listamennirnir vinna í
ýmsum greinum myndlistarinnar, s.s
leirverk, grafíkverk, glerverk, mál-
verk, textílverk, teikningar, skartgripi
o.fl. Gallerí Korpúlfsstaðir er lifandi
gallerí þar sem listamennirnir
skiptast á að sýna verk sín á sér-
stökum sýningarvegg og engin álagn-
ing er á verkunum þar sem galleríið
er rekið af listamönnunum sjálfum.
Þeir listamenn sem standa að gall-
eríinu eru: Anna G. Torfadóttir, Ásdís
Þórarinsdóttir, Bryndís G. Björgvins-
dóttir, Dröfn Guðmundsdóttir, Edda
Þórey Kristfinnsdóttir, Elísabet Stef-
ánsdóttir, Guðfinna A. Hjálmarsdóttir
Guðrún Þórisdóttir, María Valsdóttir,
Marilyn Herdís Mellk, Sigurður Valur
Sigurðsson Tinna Kvaran, Valgerður
Björnsdóttir, Þórdís Elín Jóelsdóttir
Opið er frá klukkan 14-18 fimmtu- og
föstudaga en frá 12-16 laugar- og
sunnudaga. Þá verður opið lengur á
fimmtudögum í desember eða til
klukkan 21. Þá geta allir gestir sem
koma í galleríið 29. nóvember, á opnu
húsi, og fram til 20. des. tekið þátt í
jólapotti gallerísins. Vinningshafar
hreppa gjafabréf að andvirði 10.000
en einnig verða óvæntar uppákomur í
galleríinu á fimmtudagskvöldum í
desember. Nánari upplýsingar í síma
6611144.
Gallerí Korpúlfsstaðir
Korpúlfsstaðir Galleríið er eins konar framlenging á vinnustofum hússins.
Óvæntar uppákomur í desember
islandsstofa.is
Borgartún 35 | 105 Reykjavík
22. nóvember í Hvammi á Grand Hótel Reykjavík kl. 14–16.
Utanríkisráðuneytið, Samtök atvinnulífsins og Íslandsstofa bjóða til opins fundar um
áskoranir og sóknarfæri er tengjast auknum efnahagsumsvifum á norðurslóðum.
Miðað við núverandi þróun má gera ráð fyrir að fjárfestingar á norðurslóðum geti numið
allt að 100 milljörðum dollara á næstu tíu árum, m.a. vegna olíu- og gasframleiðslu,
nýtingar náttúruauðlinda, uppbyggingar samgönguinnviða, ferðaþjónustu og
fjarskiptatækni. Svæðið býr yfir ýmsum áskorunum og hefur Ísland og íslenskt atvinnulíf
reynslu, þekkingu og getu til að nýta sér þau fjölmörgu sóknarfæri sem framundan eru.
Setning
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra.
Frummælendur
Charles Emmerson, sérfræðingur í málefnum norðurslóða hjá Chatham House London
og höfundur nýlegrar skýrslu Loyds of London, Arctic Opening: Opportunity and Risk in
the High North.
Felix Tschudi, eigandi og stjórnarformaður Tschudi skipafélagsins sem vinnur að því að
þróa siglingar um Norður-Íshafið.
Tryggvi Jónsson, framkvæmdastjóri mannvirkja hjá Mannviti.
Ágúst Ágústsson, markaðsstjóri Faxaflóahafna, stjórnarformaður Cruise Iceland.
Samantekt
Svana Helen Björnsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins.
Fundarstjóri
Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu.
Aðgangur er ókeypis en fólk er vinsamlegast beðið að skrá þátttöku á
islandsstofa@islandsstofa.is eða í síma 511 4000.
Athugið að fundurinn fer fram á ensku.
Áskoranir og sóknarfæri
á norðurslóðum
Opinn kynningarfundur:
Líf – styrktarfélag gefur í ár
út óvenjulegt jóladagatal til
styrktar kvennadeild Land-
spítalans. Jóladagatalinu,
sem unnið er í samvinnu við
marga þekkta karaktera úr
íslenskum barnaævintýrum,
er ætlað að vekja börnin
okkar til margvíslegra leikja
og stytta þeim stundir fram
til jóla. Með því að fletta
hverjum degi á jóladagatal-
inu opnast alls kyns ævin-
týri, leikir og þrautir sem
öllum börnum finnst
skemmtilegt að fást við.
Krakkarnir fá nýja mynd til
að lita hvern dag þar sem
við sögu koma kunnar per-
sónur út Latabæ og Ávaxta-
körfunni en einnig má finna
þar Skessuna í fjallinu og
Lilla apa úr Brúðubílnum
svo einhverjar persónur séu
nefndar.
Þá gefur jóladagatalið
börnum líka tækifæri til að
taka þátt í eldhússtörfum
og læra kúnstina að baka
piparkökur og annað gott til
jólanna. Sala er hafin á dagatalinu sem kostar 1.990 krónur og fæst í öllum
verslunum Hagkaupa og Samkaupa. Allur ágóði rennur til Lífs – styrktarfélags
kvennadeildar Landspítalans.
Jóladagatal Lífs
Ævintýraleg niðurtalning
Jóladagatal Í dagtalinu er að finna alls kyns æv-
intýri, leiki og þrautir.