Morgunblaðið - 21.11.2012, Síða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2012
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Líkamsárásarmál á hendur Annþóri
Kristjáni Karlssyni, Berki Birgis-
syni og átta öðrum karlmönnum var
tekið til aðalmeðferðar í Héraðsdómi
Reykjaness á mánudag. Ákært er
fyrir sérstaklega hættulegar líkams-
árásir, ólögmæta nauðung, frelsis-
sviptingu og tilraun til fjárkúgunar.
Sagðir hafa brotið bein
Ákæran er í fimm liðum. Í þeim
fyrsta eru þeir Annþór, Börkur og
sjö aðrir sakaðir um að hafa ráðist
vopnaðir á fjóra menn í íbúð í Mos-
fellsbæ í janúar síðastliðnum.
Fram kemur í ákærunni að þeim
Annþóri og Berki hafi fyrst verið
boðið inn í íbúðina af einum fjór-
menninganna. Hinir sjö sem voru
með Annþóri og Berki í slagtogi biðu
fyrir utan og fóru svo inn í íbúðina í
heimildarleysi eftir að Annþór gaf
þeim merki um inngöngu.
Mennirnir sem urðu fyrir árásinni
eru sagðir hafa verið slegnir ítrekað
víðsvegar um líkama og í höfuð með
hættulegum vopnum og bareflum.
Brotaþolar hlutu allir áverka.
Einn þeirra fékk þverbrot á sköfl-
ungsbeini. Þá hlaut hann 6 cm lang-
an skurð á framanverðum sköfl-
ungnum og brot á hægri hnéskel.
Árásin þykir sérstaklega hættuleg
og telst varða við 2. mgr. 218 gr. al-
mennra hegningarlaga.
Í öðrum lið ákærunnar eru þeir
Annþór, Börkur, tveir meðákærðir í
málinu auk ókunnugra manna sak-
aðir um sérstaklega hættulega lík-
amsárás með því að hafa ráðist
vopnum búnir á þrjá menn í Reykja-
vík í desember.
Neyddur til að kasta þvagi
Í ákærunni kemur m.a. fram að
þeir hafi haldið fórnarlambinu á
meðan kastað var yfir hann þvagi.
Þá er Börkur sakaður um að hafa
slegið manninn með barefli í hnakk-
ann.
Árásarmennirnir eru einnig sak-
aðir um ólögmæta nauðung með því
að hafa neytt þriðja manninn til að
kasta af sér þvagi yfir vin sinn.
Þá eru mennirnir ákærðir fyrir
frelsissviptingu og tilraunir til fjár-
kúgunar. Var mönnunum hótað
frekara ofbeldi yrðu þeir ekki við
kröfum þeirra og þeim haldið í allt
að klukkutíma.
Í þriðja lið ákærunnar eru tveir
karlmenn sakaðir um hlutdeild í
þeim brotum sem er lýst í öðrum lið
ákærunnar.
Í fjórða lið ákærunnar er Annþór
ákærður fyrir sérstaklega hættu-
lega líkamsárás á tvo menn í Hafn-
arfirði í október sl. Annþór er sagð-
ur hafa slegið þá í andlit og líkama
nokkrum höggum og að hafa tekið
annan manninn kverkataki og ekki
sleppt takinu fyrr en maðurinn
missti meðvitund. Þá lét hann mann-
inn falla í gólfið og sló hann ítrekað í
andlit. Einnig að slá hinn manninn í
andlitið, líkama og höfuð. Þá hótaði
Annþór mönnunum frekara ofbeldi
og fjárkúgun ef þeir segðu frá brot-
unum.
Í fimmta lið ákærunnar eru tveir
menn ákærðir fyrir hlutdeild í þeim
brotum sem lýst er í fjórða liðnum.
Hrottalegar lýsingar í ákærunni
Ákært í árásarmálinu í fimm liðum Ítarlegar lýsingar á meintum brotum sakborninga Ákært
fyrir sérstaklega hættulegar líkamsárásir, ólögmæta nauðung, frelsissviptingu og tilraun til fjárkúgunar
Morgunblaðið/Júlíus
Hérðasdómur Reykjaness Annar sakborninga er hér leiddur út úr réttarsal eftir vitnaleiðslur í gær.
Fréttaflutningur af réttarhöld-
unum er bannaður. Kemur það
til af kröfu saksóknara og
féllst dómurinn á kröfu hans
sem byggist á 11. grein saka-
málalaga. Í henni kemur fram
að „þótt þinghald sé háð í
heyranda hljóði getur dómari
bannað að skýrt verði frá því
sem gerist þar ef ætla má að
frásögn geti leitt til sakar-
spjalla eða valdið vandamönn-
um sakbornings. brotaþola eða
öðrum sem ekki eru fyrir sök-
um hafðir þjáningum eða veru-
legum óþægindum.“ Mátu sak-
sóknari og dómari málið sem
svo að það gæti spillt fyrir
málinu ef sakborningar og
vitni gætu lesið fréttir af vitn-
isburði annarra.
Þá sex sérfræðinga sem
Morgunblaðið ræddi við rak
ekki í minni til þess að þessu
ákvæði hefði áður verið beitt í
réttarhöldum á Íslandi. Enginn
þeirra vildi þó fullyrða að svo
væri. Fram kemur að frétta-
flutningur af réttarhaldinu
verður bannaður þar til
skýrslutöku lýkur.
Líklega notað
í fyrsta skipti
FRÉTTABANN
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
5
3
12
siminn.is · 8004000@siminn.is
Vertu með símkerfið
í öruggum höndum
hjá Símanum
Fyrirtæki
Fast mánaðargjald
fyrir aðgang
að IP símkerfi
Símavist hentar flestum gerðum fyrirtækja,
óháð stærð og starfsemi.
Með Símavist býðst fyrirtækjum að leigja IP símkerfi gegn
föstu mánaðargjaldi sem ræðst af fjölda starfsmanna sem nota
kerfið. Símkerfið er hýst í vélasölum Símans og fyrirtæki þurfa
ekki að fjárfesta í vélbúnaði eða stýrikerfum.
Hafðu samband við Fyrirtækjaráðgjöf
í síma 800 4000 og sérfræðingar
okkar finna hagkvæmustu lausnina
fyrir þitt fyrirtæki.