Morgunblaðið - 21.11.2012, Síða 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2012
Ákæru á hendur Magnúsi Guð-
mundssyni, fyrrverandi bankastjóra
Kaupþings í Lúxemborg í Al-Thani-
málinu svonefnda var vísað frá í
Héraðsdómi Reykjavíkur í gær-
morgun. Jafnframt var hluta ákær-
unnar á hendur Ólafi Ólafssyni, eig-
anda Samskipa, vísað frá. Embætti
sérstaks saksóknara hefur kært úr-
skurð héraðsdóms til Hæstaréttar.
Samkvæmt upplýsingum frá Birni
Þorvaldssyni, saksóknara hjá emb-
ætti sérstaks saksóknara, var ákær-
unni á hendur Magnúsi vísað frá á
þeirri forsendu að í ákærunni væri
ekki nægjanlega lýst aðkomu hans
að málinu. Magnús var ákærður fyr-
ir hlutdeild í umboðssvikum.
Ólafur er ákærður fyrir hlutdeild í
umboðssvikum og hlutdeild í mark-
aðsmisnotkun. Var síðarnefnda
ákæruliðnum vísað frá í gærmorgun
af héraðsdómi vegna vanreifunar en
sá úrskurður var jafnframt kærður
til Hæstaréttar.
Ekki er vitað hversu langan tíma
Hæstiréttur tekur sér til þess að
komast að niðurstöðu en líklegt er
að það taki að minnsta kosti tvær
vikur.
Verjendur sakborninga í Al-
Thani-málinu fóru fram á það við
málflutning fyrir Héraðsdómi
Reykjavíkur hinn 1. nóvember sl. að
málatilbúnaði ákæruvaldsins yrði
vísað frá dómi. Dómari féllst ekki á
að vísa frá ákærum á hendur Sigurði
Einarssyni, fyrrverandi stjórnarfor-
manni Kaupþings, né Hreiðari Má
Sigurðssyni, fyrrverandi forstjóra
Kaupþings. guna@mbl.is
Ákærum í Al-
Thani-máli vís-
að frá að hluta
Úrskurður héraðsdóms kærður
Ólafur
Ólafsson
Magnús
Guðmundsson
Aukablað um bíla fylgir
Morgunblaðinu alla þriðjudaga
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Svo virðist sem margir hafi beðið
spenntir og þyrstir eftir jólabjórn-
um. Alls seldust um 105 þúsund lítr-
ar fyrstu þrjá dagana sem mjöður-
inn var til sölu í Vínbúðunum, þ.e.
frá fimmtudegi til laugardags. Sala
jólabjórs hófst að venju 15. nóv-
ember, sem að þessu sinni var á
fimmtudegi. Í fyrra var 15. nóv. á
þriðjudegi og þá seldust 110 þúsund
lítrar frá þriðjudegi til laugardags.
Ef svipað magn verður selt af
jólabjór í ár og í fyrra má áætla að
salan nemi um hálfum milljarði
króna. Í fyrra var seld rúmlega hálf
milljón lítra af jólabjór fyrir tæpar
460 milljónir (m. vsk.), samkvæmt
upplýsingum frá Vínbúðunum.
Sömu tegundir á toppnum
Mest var selt í síðustu viku af Tu-
borg Christmas Brew, en næst á
eftir koma jólabjór frá Víking og
Kalda. Neytendur virðast því
íhaldssamir þegar kemur að jóla-
bjórnum því þetta eru sömu teg-
undir og voru mest seldar fyrstu
dagana í fyrra.
Árið 1999 voru seldir 57 þúsund
lítrar af jólabjór og jókst salan ár-
lega til ársins 2006, en þá var selt
magn 342 þúsund lítrar. Aðeins dró
úr sölu árin 2007 og 2008 en eftir það
hefur verið stöðug aukning og jókst
t.d. salan í lítrum talið um 42% á
milli áranna 2010 og 2011.
Tegundum hefur fjölgað síðustu
ár og meira magn verið í boði, sem á
sinn þátt í aukinni sölu.
Giljagaur og Gæðingur
Nokkrar tegundir koma í mjög
takmörkuðu magni og gætu þær
selst upp fljótlega ef spurn verður
mikil eftir þeim. Í þessum flokki eru
tegundir eins og Giljagaur, Gæð-
ingur, Mikkella Red White Christ-
mas og Mikkeller Hoppy Lovin’
Christmas. Allar munu þær enn
vera til í einhverjum vínbúðanna.
Alls verður 21 tegund jólabjórs í
sölu fyrir jólin og lýkur sölunni á
þrettándanum. Flestar voru þessar
tegundir á boðstólum þegar sala
hófst á fimmtudag.
Jólabjórinn rann út
fyrstu söludagana
Salan yfir hálfan milljarð í ár?
Söluþróun jólabjórs frá árinu 1999-2011
600.000
500.000
400.000
300.000
200.000
100.000
0
Se
ld
ir
lít
ra
r
19
99
20
00
20
01
20
02
20
03
20
04
20
05
20
06
20
07
20
08
20
09
20
10
20
11
Sala í þús. lítrum 15.-17. nóv. 2012
Heildarsala jólabjórs 104,8
Tuborg Christmas Brew 50,5
Víking Jólabjór 21,9
Kaldi Jólabjór 10,0
F Y R I R Þ I G O G Þ Á S E M
Þ É R Þ Y K I R V Æ N S T U M !
KRINGLUNNISími: 5513200
ERUM AÐ
TAKA UPP
NÝJAR VÖRUR
FYRIR BÖRN!
Birgir
Ármannsson 2.
ÓÞREYTANDI BARÁTTUMAÐUR
BORGARALEGRA LÍFSGILDA
Birgir Ármannsson hefur sýnt það
og sannað, að hann lætur aldrei
deigan síga í baráttunni gegn
upplausnaröflunum, fyrir siðuðu
og sanngjörnu samfélagi, þar sem
frelsi og ábyrgð haldast í hendur.
Kjósum Birgi Ármannsson í
2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokks-
ins nú á laugardag.
stuðningsmenn.