Morgunblaðið - 21.11.2012, Side 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2012
Hafnarborg hefur kynnt sýningar-
stjóra sem valdir voru til að taka
þátt í öðrum hluta samkeppni um
haustsýningu í Hafnarborg á næsta
ári. Er þetta í þriðja sinn sem kallað
er eftir tillögum sýningarstjóra sem
áhuga hafa á að vinna sýningu inn í
rými safnsins og luma á áhugaverð-
um hugmyndum.
Alls bárust 12 tillögur og hefur
listráð safnsins nú valið þrjár þeirra.
Að tillögunum standa Anna María
Bogadóttir, arkitekt og menningar-
fræðingur, Lina Kruopyte sýning-
arstjóri og Hugsteypan, en það er
samstarfsverkefni myndlistarmann-
anna Þórdísar Jóhannesdóttur og
Ingunnar Fjólu Ingþórsdóttur.
Með verkefninu vill Hafnarborg
skapa farveg fyrir áhugaverðar hug-
myndir og verkefnið miðar að því að
auka reynslu þátttakenda á sviði
sýningarstjórnunar hjá opinberu
safni. Tekið var fram að sérstaklega
væri hugað að sýningarstjórum með
stuttan feril að baki. Sýningarstjór-
arnir sem valdir voru nú eiga eiga að
baki ólíkan náms- og starfsferil sem
tengist myndlist, listfræði, bygging-
arlist og menningartengdum verk-
efnum. Í haust var sýningin SKIA
sett upp í Hafnarborg, en sýningar-
stjórinn Guðni Tómasson bar sigur
úr býtum í samkeppninni í fyrra.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Sigurverkefni Frá opnun SKIA. Guðni Tómasson var sýningarstjóri.
Þrjár sýningartillögur
valdar í Hafnarborg
Samkeppni um sýningu á næsta ári
Á síðustu háskólatónleikum þessa
árs verður boðið upp á 18. aldar
dansa í 20. aldar búningi eftir
ítalska tónskáldið Alfredo Casella.
Tónleikarnir fara fram í hátíðarsal
aðalbyggingar Háskóla Íslands í
dag kl. 12:30 og er aðgangur
ókeypis.
Flytjendur eru Ásgeir H. Stein-
grímsson á trompet, Brjánn Inga-
son á fagott, Bryndís Björgvins-
dóttir á selló, Bryndís Pálsdóttir á
fiðlu og Kjartan Óskarsson á klar-
ínett. „Hópurinn sem kemur fram
hefur hvorki verið formlega stofn-
aður né verið gefið nafn. Hann
varð til tónleikanna vegna en hljóð-
færaleikararnir eiga það sameig-
inlegt að hafa um langt skeið leikið
með Sinfóníuhljómsveit Íslands og
gera flestir enn,“ segir m.a. í til-
kynningu.
Kvintett á háskólatónleikum
Kvintett Brjánn Ingason, Bryndís Björgvinsdóttir, Bryndís Pálsdóttir, Ás-
geir H. Steingrímsson og Kjartan Óskarsson leika danstónlist.
Sýningu á nýjum
málverkum Arn-
gunnar Ýrar
Gylfadóttur í
Reykjavík Art
Gallery lýkur nk.
sunnudag. Sýn-
ingin var opnuð í
tilefni af fimmtugs-
afmæli listakon-
unnar, en samhliða
sýningunni var
gefin út yfirgripsmikil bók um list og
feril Arngunnar. Hópur listfræðinga
og gagnrýnenda skrifar textann,
þeirra á meðal John Zarobell, sýning-
arstjóri við nútímalistasafn San
Francisco, og Stephan Jost, forstöðu-
maður nútímalistasafns Havaí, en
Brynja Baldursdóttir hannaði verkið.
Sýningin er opin alla virka daga kl.
10-18 og um helgar kl. 13-17.
Síðasta sýningar-
vika Arngunnar
Arngunnur Ýr
Gylfadóttir
Kaffihúsið Ála-
fossi býður unn-
endum bók-
mennta að njóta
kvöldstunda með
upplestri skáld-
verka og tónlist í
bland í kvöld kl.
20. Að þessu
sinni koma fram
Anton Helgi
Jónsson, Bjarni
Bernharður, Dagur Hjartarson,
Halla Margrét Jóhannesdóttir og
Hrafnhildur Þórhallsdóttir, en tón-
list verður í flutningi Heiðu trúba-
dors.
Allir velkomnir meðan húsrúm
leyfir og er aðgangur ókeypis.
Kaffihúsið er í einu af gömlu hús-
unum sem hýstu gömlu Álafoss-
verksmiðjuna í Álafosskvosinni.
Upplestur og
tónlist í Álafossi
Anton Helgi
Jónsson
56 10 000
TAXI
BSR
Góð þjónusta í 90 ár
J. A. Ó. - MBL
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%GLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
SNABBA CASH 2 KL. 6 - 8 16
CLOUD ATLAS KL. 10 16
PITCH PERFECT KL. 8 12
SKYFALL KL. 5.20 - 10.10 12
T.V. - KVIKMYNDIR.IS
SNABBA CASH 2 KL. 5.45 - 8 - 10.30 16
CLOUD ATLAS KL. 5.30 - 9 16
PITCH PERFECT KL. 5.30 - 8 12
HOTEL TRANSYLVANIA ÍSL. TEXTI KL. 3.30 7
SKYFALL KL. 5 - 8 - 10.15 12
SKYFALL LÚXUS KL. 5 - 8 12
TEDDI LANDKÖNNUÐUR KL. 3.30 L
FUGLABORGIN 3D ÍSL.TAL KL. 3.30 7
SNABBA CASH 2 KL. 8 - 10.15 16
CLOUD ATLAS KL. 5.30 - 9 16
SKYFALL KL. 6 - 9 12
DJÚPIÐ KL. 5.50 10
THE DEEP ENSKUR TEXTI KL. 5.50 10 THE TWILIGHT SAGA - PART 2 Sýndkl.5:30-8-10:25
SKYFALL Sýndkl.7-10
WRECK-IT RALPH 3D Sýndkl.5:40
PITCH PERFECT Sýndkl.8-10:15
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
80/100
,,Skilar því sem óþreyjufullir
aðdáendur voru að bíða eftir.”
The Hollywood reporter
Boxoffice Magazine
80/100
Variety
-bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
12
12
12
L
,,Sú besta í allri seríunni”
T.V - Kvikmyndir.is
,,Fyrsta flokks 007”
J.A.Ó - MBL
,,Þrælspennandi og skemmtileg
frá upphafi til enda”
H.V.A - FBL
Þ.Þ - FBL