Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.11.2012, Síða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.11.2012, Síða 4
Óvissan er mikil fyrir próf-kjör Sjálfstæðisflokksins íReykjavíkurkjördæm- unum tveimur og taugaveiklunin töluverð meðal frambjóðenda, þó að prófkjörið hafi farið vel fram og ef til vill verið óvenju prúðmannlegt. Ef til vill spilar þar inn í að aldrei hafa verið fleiri færi til að komast inn á þing. Ef horft er til kannana gæti þingmönnum flokksins fjölgað í tíu til ellefu, auk þess sem nokkrir þingmenn gefa ekki aftur kost á sér, sem þýðir að það gætu losnað sex til sjö þingsæti. Einungis fjórir þingmenn eru í framboði og flestir telja að þeir eigi greiða leið aftur á þing, þó að hreyfing sé á fylginu og einn viðmælenda blaðamanns hafi talað um að kjósa engan af sitjandi þingmönnum. Forystuslagur Það hefur verið áberandi í próf- kjörum og forvali flokka í haust að kjörsókn hefur verið heldur dræm- ari en fólk á að venjast. Og ætla má að það sama verði uppi á ten- ingnum í Reykjavík, þar sem óánægjan í kjölfar bankahrunsins hefur verið mun áþreifanlegri en á landsbyggðinni. Það hefur verið áberandi á fundum og í úthring- ingum einstakra frambjóðenda að skuldavandi heimilanna er efst í huga kjósenda. Og það er mjög ólíkt hvernig þeir bregðast við því. Sumir segja að það verði einfald- lega að lofa kjósendum einhverju, aðrir útfæra misraunhæfar leiðir til að koma til móts við skuldara og enn aðrir segja hreint út að rík- issjóður hafi ekki ráð á að fella nið- ur skuldir. Slagurinn er harður um efsta sætið. Illugi Gunnarsson varð efst- ur í prófkjörinu fyrir fjórum árum en Hanna Birna Kristjánsdóttir býður sig fram gegn honum í efsta sætið. Samkvæmt netkönnun MMR sem gerð var fyrir rúmum mánuði nýtur hún trausts hjá 76,2% sjálf- stæðismanna til að leiða lista flokksins í öðru hvoru Reykjavík- urkjördæminu í komandi alþing- iskosningum. 10% nefndu Illuga og 7,5% Guðlaug Þór Þórðarson. Þar spilar margt inn í. Víst hefur Hanna Birna sterka stöðu. Hún nýtur góðs af því að hafa verið borgarstjóri, auk þess sem Ólöf Nordal, varaformaður flokksins, hyggst draga sig í hlé og því er mikil eftirspurn eftir öfl- ugum konum. Stuðningsmenn Illuga eru þó brattir og mat þeirra er að staðan hafi verið afar erfið fyrir tveim vik- um, en síðan hafi Illugi bætt veru- lega stöðu sína. Hann hafi lagt áherslu á málefnalega baráttu á meðan Hanna Birna hafi ekki sýnt á spilin. Í þann streng tók Þor- steinn Pálsson, fyrrverandi formað- ur flokksins, í Fréttablaðinu er hann sagði að hún „stæði fyrir ein- föld skilaboð fremur en djúpar rök- ræður“. Það er þó ekkert nýtt að frambjóðandi sem hefur sterka stöðu fari varlega er hann spilar úr henni. Áhrifalaus frétt Slagurinn um annað sætið er harð- ur, því þar narta í hælana á þeim Illuga og Hönnu Birnu þrír þing- menn. Guðlaugur Þór Þórðarson hefur rekið öfluga kosningabaráttu og verið áberandi í fjölmiðlum. Óljóst er hvaða áhrif upphlaup Gunnars Andersens, fyrrverandi forstjóra FME, gagnvart Guðlaugi Þór Þórðarsyni muni hafa, enda tímasetningin grunsamlega nálægt kjördegi og sjálfstæðismenn búnir að fá sig fullsadda af neikvæðum fréttum DV um einstaka frambjóð- endur flokksins. Birgir Ármannsson hefur verið kraftmikill á þingi, sérstaklega í stjórnarskrármálinu, og mun ef- laust njóta afstöðu sinnar í Icesave- málinu, þar sem hann skar sig úr þingmannahópnum. Hann gefur kost á sér í annað sæti ásamt Pétri H. Blöndal sem er til alls vís, enda hefur hann jafnan náð góðum ár- angri í prófkjörum og nýtur virð- ingar fyrir að fara sínar eigin leiðir. Umferðaröngþveiti á kjördag í Reykjavík. Þá var tekist á um á hvorum vegarhelmingi þjóðin héldi sig í pólitíkinni. Sagan endurtekur sig um helgina. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Tekist á um hægri og vinstri umferð í Reykjavík EF AÐ LÍKUM LÆTUR ERU MÖRG ÞINGSÆTI LAUS Í PRÓFKJÖRI SJÁLFSTÆÐISMANNA Í REYKJAVÍK OG LÍNUR SKÝRAST HJÁ VINSTRI GRÆNUM Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU. TEKIST ER Á UM FORYSTUSÆTIN OG NÝTT FÓLK ER Í KJÖRI. 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.11. 2012 Úrslit ráðast í forvali Vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu um helgina og um leið skýrast línur í fylkingaslagn- um innan flokksins. Ögmundur Jón- asson rær lífróður í Suðvest- urkjördæmi, en hann hefur staðið uppi í hárinu á forystu flokksins á kjörtímabilinu, ekki síst í Icesave- málinu. Þær raddir heyrast að hann hafi ekki ræktað kjördæmið nógu vel og að um 300 ný- skráningum sé beint að honum. Það er Ólafur Þ. Gunnarsson bæj- arfulltrúi í Kópa- vogi sem tekur slaginn við Ög- mund, en þar hefur löngum verið sterk- asta vígi Vinstri grænna. Engin ástæða er þó til að vanmeta styrkleika Ögmundar, sem nýtur þess að vera ráðherra og sigraði í forvali flokksins er það var haldið sameiginlega fyrir allt höfuðborgarsvæðið. Ef óánægju gætir með forystuna gæti það líka komið fram í stuðningi við Ögmund. Rósa Björk Brynjólfsdóttir er í framboði í annað sæti, en hún varð upplýsingafulltrúi fjármálaráðuneyt- isins í tíð Steingríms J. Sigfússonar og á sterkar rætur í Kópavogi og Hafnarfirði. Hún etur þar kappi við Margréti Pétursdóttur varaþing- mann frá Hafnarfirði. Í Reykjavík þykir Katrín Jak- obsdóttir hafa langsamlega sterkasta stöðu, enda stendur hún til hliðar við hjaðningavígin í flokknum. Svandís Svavarsdóttir er líkleg til að ná öðru sæti. Fyrirfram var búist við að Árni Þór Sigurðsson og Álfheiður Ingadótt- ir fylgdu á eftir, en þó setja margir spurningarmerki við „kjaftfora kapt- eininn“, Björn Val Gíslason. Vera kann að hann sé jafnvinsæll í Vinstri grænum og hann er óvinsæll í öðrum flokkum. Óánægju gætir með átaka- farveginn sem flokkurinn er í og er kallað eftir nýju fólki. Þar horfa margir til Kristins Schram, sem á sterkar rætur í flokknum. Steingrímur J. Sigfússon og Katrín Jakobsdóttir á forvalssdegi VG. Morgunblaðið/ÞÖK Línur skýrast hjá VG Ögmundur Jónasson Ólafur Þór Gunnarsson Svandís Svavarsdóttir Hvernig sem fer er ljóst að endurnýjun verður töluverð í prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins. Of langt mál er að telja alla upp hér, en nokkur nöfn eru nefnd oftar en annarra. Margir horfa til Brynjars Níels- sonar, sem hefur verið hvass í þjóðfélagsumræð- unni og ekki elt almenn- ingsálitið. Teitur Björn Ein- arsson nýtur þess að hafa gengið fram fyrir skjöldu í atvinnumálum heima fyrir og á sterkar rætur í flokknum. Það sama gildir um Áslaugu Friðriksdóttur sem hefur áður haslað sér völl sem borgarfulltrúi. Jakob F. Ásgeirsson er kunnur af störfum sínum sem ritstjóri Þjóðmála og Elínbjörg Magnúsdóttir þykir breikka flokkinn með bakgrunni sínum í verkalýðshreyfingunni. Sigríð- ur Á. Andersen varaþingmaður er skeleggur frjálshyggjumaður og Ingi- björg Óðinsdóttir þykir hafa rekið öfluga kosningabaráttu. NÝTT FÓLK Í FRAMBOÐI Frá prófkjöri Sjálfstæðisflokksins árið 2006. * „... yrði Ögmundur [Jónasson] felldur myndi það næróhjákvæmilega leiða til klofningsframboðs og sennilegsfalls ríkisstjórnarinnar á síðustu metrum kjörtímabilsins.“ Andrés Magnússon í fréttaskýringu á Eyjunni. Þjóðmál PÉTUR BLÖNDAL pebl@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.