Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.11.2012, Page 15
ur kúrdískum búningi og gekk með
byssu og rýting og náttúrlega með
hermenn og lífverði í kringum sig.
Hann vildi endilega útvega mér
kvikmyndavél og tókst það og ég
gat myndað það sem ég sá, þar á
meðal tók ég myndir af Barzani.
Ég var viðstaddur þing þar sem
Kúrdar í Írak lýstu yfir sjálfstæði
og þegar ég kom aftur til Þýska-
lands skrifaði ég grein um þetta
þing sem birtist í Daily Telegraph.
Fréttir af þessu þingi ásamt mynd-
um mínum frá Kúrdistan birtust
síðan í þýska sjónvarpinu. Málefni
Kúrda hafa alltaf verið mér hug-
stæð, ég kynntist flestum leiðtog-
um þeirra og ég hafði lengi náin
tengsl við þá.
Hin íslenska bók mín um Kúrda
var þýdd á þýsku, ég lengdi hana
mikið og endurbætti og svo kom
hún út í Þýskalandi.“
Þú hittir nokkrum sinnum Ind-
verjann Sai Baba, sem kalla má
töframann og kraftaverkamann og
kannski trúarleiðtoga, og skrifaðir
um hann bók sem hefur komið út
víða um heim.
„Það má telja Sai Baba trúar-
leiðtoga því í kringum hann safn-
aðist fólk og um hann myndaðist
feikistór hreyfing. Hann varð
snemma þjóðkunnur maður og
margir voru ákaflega hrifnir og
undrandi yfir því sem hann gerði.
Sai Baba fékkst aldrei til nokkurra
tilrauna en það gerðist margt í
kringum hann. Það er alþekkt að
töframenn undirbúa vel töfra sína
og hafa ákveðið prógramm hverju
sinni. Sai Baba brást hins vegar
oft við aðstæðum og bjó til eða lað-
aði fram hluti sem menn báðu um.
Allt sem hann töfraði fram gaf
hann og þetta voru kannski tutt-
ugu hlutir á dag. Þetta var heil-
mikil framleiðsla, sumt var einfalt
og ódýrt en annað dýrt. Hann gaf
félaga mínum forláta gullhring.
Þetta gerði hann með því einu að
veifa hendinni og þá lá gullhringur
í lófa hans. Með sama hætti gaf
hann mér men sem var húðað með
22 karata gulli. Hann gat líka létti-
lega kallað fram hluti sem ómögu-
legt átti að vera að nálgast, til
dæmis ávexti sem ekki voru til á
þeim árstíma sem hann töfraði þá
fram.
Indverskur töframaður, Eruk
Fanibunda, sem kunni allar töfra-
listir og klæki og hafði verið verð-
launaður í Bretlandi fyrir nýjungar
í töfrabrögðum, ætlaði eitt sinn að
fletta ofan af Sai Baba en sann-
færðist við nánari skoðun um að
hann væri ekta. Hann sagði: Þetta
eru ekki töfrabrögð, þetta er eitt-
hvað annað!“
Rannsóknir þínar hafa snúist um
hluti sem tengjast dauðanum. Ertu
hræddur við að deyja?
„Ég hef ekki fundið fyrir því. Ég
skal ekki segja hvernig það gæti
orðið við einhverjar aðstæður. Ég
held að menn ýki dálítið í huganum
óttann við að deyja. Við sofnum á
hverju kvöldi og vitundin hverfur
eða fer eitthvað. Ekki erum við
hrædd við það. Af hverju skyldum
við vera hrædd við að deyja?“
Áttu von á að eitthvað taki við
eftir dauðann?
„Mér kæmi á óvart ef svo væri
ekki.“
Morgunblaðið/RAX
Leita að
rökum
með og á
móti
ERLENDUR HARALDSSON PRÓFESSOR HEFUR
ÁTT VIÐBURÐARÍKT LÍFSHLAUP. HANN HEFUR
MEÐAL ANNARS RANNSAKAÐ SÝNIR FÓLKS
Á DÁNARBEÐI OG MINNINGAR BARNA UM
FYRRA LÍF. Í VIÐTALI RÆÐIR HANN UM STÖRF SÍN.
Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is
25.11. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
1
2
-2
3
7
4
ÞESSI TÍMI
ER EINSTAKUR
Arion banki býður foreldrum í fæðingarorlofi að
lækka greiðslubyrði íbúðalána um allt að helming.
Hjá mörgum verða breytingar á ráðstöfunartekjum
við töku fæðingarorlofs. Því viljum við koma til
móts við foreldra og gefa þeim kost á að fresta
hluta af greiðslum íbúðalána sinna. Með þessu
viljum við auðvelda viðskiptavinum okkar að taka
fullt fæðingarorlof og njóta þess til fullnustu.
Hafðu samband við þjónusturáðgjafa okkar í
næsta útibúi Arion banka eða í síma 444 7000
og kynntu þér möguleika þína.