Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.11.2012, Side 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.11.2012, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.11. 2012 Ferðalög og flakk H Ú S G AG N A H Ö L L I N • B í l d s h ö f ð a 2 0 • Re y k j a v í k • s í m i 5 5 8 1 1 0 0 O P I Ð V i r k a d a g a 1 0 - 1 8 , l a u g a rd . 1 1 - 1 7 o g s u n n u d . 1 3 - 1 6 HOLLANDER Leðursófi. Brúnt gæðaleður. Stærð 3ja sæta B: 220 D: 95 H: 90 cm. 359.000 VERÐ: 409.000 3 SÆTA NÚNA 50.000 KR. AFSLÁTTUR 339.000 VERÐ: 389.000 2 SÆTA EDWARD 3 SÆTA. Slitsterkt áklæði. Stærð 3ja sæta. B: 220 D: 95 H: 90 cm. 229.900 VERÐ: 259.900 3 SÆTA NÚNA 30.000 KR. AFSLÁTTUR 219.900 VERÐ: 249.900 2 SÆTA 169.900 VERÐ: 189.900 STÓLL AMERÍSKIR DAGAR! NÝ SENDING AF S U pphaflega hét ströndin Alfas, sem þýðir að sá í land, og var gefið bænum af Márum sem ræktuðu þar ávexti, ólífur, vín, möndlur og fleira og loks árið 1836, eftir nokkra baráttu, hlaut það sjálfstæði frá Bar- óninum. Í meira en 200 ár voru námuvinnsla og landbúnaður aðalat- vinnugreinarnar í bæn- um, þar til íbúarnir tóku skyndilega upp á því að flytjast búferlum til Suð- ur-Ameríku. Um 1970 varð hins vegar ferðamanna- sprengja í nágrannabæn- um Benidorm, sem enn er við lýði. Það hafði áhrif á Alfas eða Albir, sem nú fær í heimsókn fjölda ferðamanna frá Evrópu, sem sumir hafa kunnað svo vel við bæinn að þeir hafa sest þar að. Albir er rólegur bær og aðalaðdráttarafl hans er ströndin sem er 590 km löng og hefur fengið verðlaun hvað eftir ann- að fyrir gæði. Hún er steinaströnd og útsýnið frábært. Það er stutt á milli staða í Albir og miðbær og strönd eru ávallt í göngufæri. Nætur- lífið á sína spretti og það er þónokkuð af börum og veitingastöðum þar sem boðið er upp á lifandi tónlist. Kosturinn við að fara á þessum árstíma er að hitinn er þokkalegur sem og að fjöldi ferða- manna er ekki jafnmikill og á aðalferðamannatím- anum. Margt af því sem hægt er að gera sér til af- þreyingar í Albir og nágrenni tengist einmitt Benidorm og nágrenni en á milli þessara staða er stutt – álíka langt og á milli sumra hverfa í Reykjavík eða um 10 km og kostar um 10-12 evrur eða um 1.650-2.000 kr. í leigubíl. Ég brá mér einnig þangað og dvaldi í nokkra daga. Á ströndinni rennur ljósbrúnn sandurinn í gegnum fingur manns eins og marm- ari sem barinn hefur verið í eindir og það er yndislegt að búa til engil í sandinum og skella sér svo í sjóinn og láta síðan sólina baka sig í smá- stund. Endurtaka síðan leik- inn og finna barnið í sjálfum sér. Glugga síðan í velktan Voltaire og leyfa svo barninu að toga í sig, kyssa himin og saltan sjó, kyssa bara Voltaire – því hann er svo fullkominn – rétt eins og þessi litla strönd var á Benidorm. Gamli miðbærinn á Beni- dorm er yndislegur og þar er gaman að ganga. Þar er fullt af fjölbreyttum verslunum, flestum spænskum, og við ströndina er fjöldi góðra bara, veitinga- og kaffihúsa. Kvöld- og næturlífið var fjörugt og það var ekki amalegt að sitja á bar eins og Heartbreak við ströndina með lifandi tónlist, kokteilinn Amerísku konuna í annarri hendi og bókina „23 atriði um kapítalisma sem ekki er sagt frá“. Þá er ekkert leiðinlegt þegar franskur og hollenskur karlpen- ingur vippar sér að manni og býður upp í dans en frúin með x-inu kom sér fimlega undan því og benti á ald- urinn og kapítalismann en þakkaði þó gott boð. En yngri kynslóðir nutu þess hins vegar að dansa af lífi og sál, sem og fleiri eldri og þróttmeiri. SAGA AF SÓLARSTRÖND Engill á ströndinni SVO UNDARLEGT SEM ÞAÐ NÚ ER ÞÁ HÖLDUM VIÐ ÍSLENDINGAR FLESTIR AÐ SÓLARSTRENDUR EIGI EKKI SÖGU, NEMA SÓLARSÖGU. ÞETTA ER VITA- SKULD ALRANGT. ALBIR ER STRÖND SEM TILHEYRIR ALICANTE Á SPÁNI. ÞAÐ VAR UPPHAFLEGA NEFNT L‘ALFAS DE POLOP VEGNA TENGSLA SINNA VIÐ BARÓNINN AF POLOP EN SAMKVÆMT SAMKOMULAGI VIÐ HANN ÁTTI HANN AÐ VERJA STRENDURNAR FYRIR SJÓRÆNINGJUM. Unnur H. Jóhannsdóttir uhj@simnet.is * Versla, versla og versla Það eru ef tilvill ekki margar stórverslanir nálægt Albir en þær eru góðar. La Marina er verslunarmið- stöð sem er á milli Benidorm og Finestrat. Þar eru margar góðar búðir og merki eins og Berskha, H&M, C&A, Mango og Zara. Verðlag er hagstætt fyrir Íslendinga og sem dæmi um það má taka buxur sem kosta 12.000 kr. í Zöru á Íslandi, 8.000 kr. í sömu versl- unarkeðju á Englandi en 6.600 kr. á Spáni. * Skimuðu eftir sjóræningjum Altea eryndislegur bær í nágrenni Albir, gott að heim- sækja á kvöldin. Í miðbænum eru ágætis versl- unargötur en allir ættu að heimsækja lista- mannahverfið þar sem gamli bærinn stóð áður og gerði íbúum kleift að sjá sjóræn- ingjana sem komu frá öðrum eyjum eða meg- inlandinu. Það er notalegt að ganga um stein- lagðar göturnar og skoða í listamannabúðirnir og fá sér eitthvað í gogginn á góðum veit- ingastöðum og í bakaríum.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.